Morgunblaðið - 15.04.2021, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 15.04.2021, Qupperneq 64
64 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2021 Út um heimsbyggðina hefur heims- faraldur kórónuveirunnar haft mikil og alvarleg áhrif á starfsmöguleika og þar með lífsafkomu sviðslista- manna en víðast hvar hefur verið lokað á sýningar þeirra mánuðum saman. Með nokkurri tilslökun á sóttvarnareglum á Spáni á síðustu vikum var dönsurum við Victoria Eugenia Antzokia-leikhúsið í San Sebastian þó gert kleift að sýna verkið Mozart a 2 et Sinfonia eftir franska danshöfundinn Thierry Malandain en það er samið undir áhrifum frá veirufaraldrinum. AFP Veirudrama Dansarar leikhússins í San Sebastian á Spáni sameinast í verki danshöfundarins Thierrys Malandains. Dansverk um faraldurinn Gestir Grímuklæddir gestir komnir í salinn, spenntir að sjá danssýninguna.Saman Tveir dansaranna á sviðinu. Þ essi athyglisverða skáldsaga íransk-ástralska rithöfund- arins Shokoofeh Azar, Uppljómun í eðal- plómutrénu, hefst á frásögn af því að á tilteknum tíma í ágústmánuði 1988 hafi móðir Bahar, unglingsstúlk- unnar sem segir söguna, öðlast upp- ljómun þar sem hún sat uppi í hæsta eðalplómutrénu í lundinum fyrir ofan hús fjölskyld- unnar. Á ná- kvæmlega sama andartaki var sonur hennar hengdur annars- staðar í landinu, tekinn af lífi án dóms og laga og huslaður í fjölda- gröf ásamt hundr- uðum annarra pólitískra fanga írönsku klerka- stjórnarinnar. Móðirin kom síðan niður úr eðalplómutrénu og gekk eins og dáleidd inn í skóg, klifraði upp í eik og sat þar á efstu grein í þrjá daga og þrjár nætur og virti þaðan fyrir sér „líf sjálfrar sín, flókið líf fjölskyldumeðlima nær og fjær, at- burðina í stóra fimm svefnherbergja húsinu í fimm hektara trjálundinum, í Razan, Teheran, Íran og svo skyndilega á hnettinum öllum og í al- heiminum“. (14) Höfundurinn, Shokoofeh Azar, er tæplega fimmtug. Hún fæddist í Íran og var sjö ára þegar íslamska bylt- ingin var gerð. Þrátt fyrir að hafa síð- an alist upp í umhverfi sem var frem- ur fjandsamlegt sjálfstæðum ritstörfum, eins og segir í kynningu á höfundinum, þá kveikti faðir hennar, sem var rithöfundur og skáld, hjá henni áhuga á skrifum og listum. Nam Azar bókmenntir í háskóla og starfaði í fjórtán ár sem blaðamaður. Í Íran sendi hún frá sér smásagna- söfn, barnabók og handbók um rit- gerðaskrif og ritstjórn. Sjálfstæð fréttamennska hefur átt æ erfiðara uppdráttar í landinu og eftir að hafa í þrígang setið í fangelsi fyrir skrif sín ákvað Azar að flýja land. Hún fékk fyrir áratug dvalarleyfi sem pólitísk- ur flóttamaður í Ástralíu, vinnur þar við skrif og myndlist, og vakti þessi fyrsta skáldsaga henna mikla athygli þegar hún kom út árið 2018 og var til- nefnd til alþjóðlegu Booker- verðlaunanna. Í tileinkun við upphaf bókarinnar þakkar Azar fyrir að búa í hinu frjálsa landi Ástralíu þar sem hún sé laus við ritskoðun og hafi notið frelsis til að skrifa bókina, frjálsræðis sem henni hafi verið neitað um í Íran. Og sagan fjallar einmitt um hryllilegar afleiðingar íslömsku byltingarinnar – kúgunina, ofbeldið og valdníðsluna – fyrir íbúa landsins. Sjónum er eink- um beint að einni fjölskyldu mennta- manna og listunnenda og grimmileg- um örlögum hennar. En í stað þess að segja raunsæislega frá því sem gerist eftir að heimur fjölskyldunnar hrynur við að ofstækismenn ná völd- um í Íran, þá fer Azar þá leið að segja frá með tækjum þeirrar frásagn- arhefðar sem iðulega er kennd við suðuramerískt töfraraunsæi – nema hér er í kynningu útgefanda talað um „persneskt töfraraunsæi“ – og hvað sem er virðist geta gerst, í sjálfsögð- um fáránleika, og vera fullkomlega eðlilegt. Rétt eins og að móðir geti setið uppi í tré og virt jafnt fyrir sér líf fjölskyldumeðlima sem atburði al- heimsins, þá leikur höfundurinn sér að því að toga tímann til eins og hent- ar, fólk birtist og hverfur, afturganga segir frá og systir breytist í haf- meyju. Allt getur gerst og það göldr- ótta „raunsæi“ virkar vissulega vel hér til að sýna fáránleikann í grimmdinni sem mótar alla tilveru fólksins og þar sem yfirvöld leitast við að útrýma lífsgleði og mennsku. Auk frásagna af lífi og örlögum fjölskyldumeðlimanna gegnum árin eru sagðar mislangar örlagasögur nokkurra annarra persóna eða töfra- anda. Einn er til að mynda flökku- draugur veiðimanns frá Síberíu, þá segir til að mynda af illa liðinni frænku sem hverfur dag einn ásamt sex börnum sínum þar sem þau synda í tjörn og eru þau eftir það í einhverskonar handanheimi, en áhrifamest er sagan af einræðis- herranum Khomeni erkiklerki sem týnist í mikilli speglahöll sem hann lætur reisa og deyr þar einn og yfir- gefinn. Það tekur þrjá mánuði að finna líkið og vísar ýldufnykur mönn- um á það – „Sami fnykur og allir harðstjórar gefa frá sér á endanum.“ (112) Kjarni frásagnarinnar hverfist um ást á bókum og sögum, og um þá trú að sögur af lífi þurfi að skrá til að minningarnar lifi. Slík sagnaritun kemur víða við sögu. Þekktasta skáldsaga Gabriels García Márques, Hundrað ára einsemd, er sínálæg í frásögninni, í aðferðinni sem beitt er og er líka vísað til hennar með ýms- um hætti. Til að mynda í átakan- legum kafla þar sem smámenni í þjónustu klerkanna ryðjast inn á heimilið og bera á bál allar heims- bókmenntirnar sem eru fjölskyld- unni svo hjartfólgnar. Bækurnar eru taldar upp þar sem þær brenna, og persónur þeirra: „Ég heyrði grát hinnar einmana Rebekku og and- mæli Aurelianos Buendía liðsforingja sem segir fullur andstyggðar við Úr- súlu: „Í allri minni harðstjóratíð gekk ég þó aldrei svona langt,““ (112) segir Bahar af þessari skelfilegu upplifun. En eftir vikulanga þögn að bóka- brennunni yfirstaðinni ber faðirinn blöð og penna fyrir fjölskylduna og segir þeim að skrifa allt sem þau muni úr bókunum. Þau reyna þannig að halda í lífið, fegurðina og mennsk- una, en það er ekki auðvelt í heimi harðstjóranna, eins og sagan sýnir. Shokoofeh Azar „Kjarni frásagnarinnar hverfist um ást á bókum og sög- um, og um þá trú að sögur af lífi þurfi að skrá til að minningarnar lifi.“ Töfrum beitt á líf í landi harðstjórnar Skáldsaga Uppljómun í eðalplómutrénu bbbbn Eftir Shokoofeh Azar. Elísa Björg Þorsteinsdóttir þýddi. Maríanna Clara Lúthersdóttir ritaði eftirmála. Angústúra, 2020. Kilja, 332 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.