Morgunblaðið - 15.04.2021, Side 68
68 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. APRÍL 2021
SÓLGLERAUGU
frá Aspinal of London
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
skrift og mun það ekki vera til að
leyna efninu heldur vegna þess að
Leonardó var örvhentur og gat þá
komist hjá því að nudda blekið.
En spegilskriftin hefur verið túlk-
uð sem viðleitni Leonardós til að
fara leynt með uppgötvanir og til-
gátur sem aðeins voru á færi inn-
vígðra. Tilraunir frjórra huga til að
lesa leynd skilaboð úr málverkunum
eru svo sérkapítuli út af fyrir sig.
Safnarar björguðu safninu
Hinn margbrotni listamaður mun
hafa verið haldinn söfnunaráráttu og
því ekki grisjað eigið safn eins og
dæmi eru um úr listasögunni.
Fyrir andlátið fól hann aðstoðar-
manni sínum Francesco Melzi til
varðveislu þúsundir teikninga sem
Melzi gætti í 50 ár. Við andlát Melzis
árið 1570 afhenti sonur hans mynd-
höggvaranum Pompeo Leoni (sjá
mynd af bók hans hér til hliðar)
flestar teikningarnar. Leoni raðaði
þeim upp í tvö bindi: Codex Atlant-
icus, sem nú er á safninu í Mílanó og
inniheldur tæknilegar teikningar, og
svo listrænni teikningar, alls um 600
talsins, sem voru í safni Leonis er
hann féll frá í Madrid 1608.
Árið 1630 var síðarnefnda safnið
komið til Englands, nánar tiltekið í
hendur Thomas Howard, sem mun
hafa verið umsvifamesti handrita-
safnari Evrópu á þeim tíma.
Leiðir Clayton líkur að því að
Prinsinn af Wales, síðar Karl I., hafi
keypt safnið í ferð til Madrídar 1623.
Við upphaf ensku borgara-
styrjaldarinnar 1642 hafi hluti hand-
ritanna verið færður til Antwerpen.
Árið 1690 sé getið um að safnið sé í
eigu bresku krúnunnar. Mögulega
hafi Henry Howard, barnabarn
Thomas Howards, fært Karli II.
konungi handritin til eignar. Skilja
má á Clayton að handritin hafi síðan
vakið litla eftirtekt í eina og hálfa
öld, eða þar til þau komust á kon-
svo vel í 500 ár – eldur, flóð og tím-
ans tönn hafa lítið bitið á þeim – að
við getum nú notið þeirra nokkurn
veginn eins og þegar Leonardó
skildi við þau: Sum eru hundrað
árum eldri en Guðbrandsbiblía.
Að sögn Claytons eru handritin nú
varðveitt í Biblioteca Ambrosiana í
Mílanó, Bibliothèque de l’institut de
France í París og á nokkrum öðrum
bókasöfnum. Um 600 þeirra hafi
verið varðveitt sem heild frá dauða
Leonardós og í eigu konunglega
listasafnsins síðan á 17. öld. Úrval
þeirra verka hafi verið til sýnis á
áðurnefndum sýningum í Bretlandi.
Enginn endurreisnarmaður hafi
skilið eftir sig jafn margar teikn-
ingar og Leonardó en ólíkt málverk-
unum voru afköstin mikil, ekki síst
ef viðfangsefnin eru höfð í huga.
Með vítt áhugasvið
Minni hluti teikninga Leonardós
er tengdur listsköpun hans á beinan
hátt, að sögn Claytons, heldur var
hann yfirleitt að rannsaka ýmis
fyrirbæri og náttúruna. Meðal ann-
ars safnaði Leonardó efni í fræðirit
um ýmsar greinar enda fjölfræð-
ingur í takt við tíðarandann.
Teikningarnar hér fyrir ofan eru
dæmi um það. Lengst til vinstri má
sjá teikningu af lifur, svo rannsókn á
dreifingu ljósgeisla, þá hugmynd að
vopnabúri, svo greiningu á höfuð-
kúpu og loks rannsókn á fellingum
klæða við undirbúning að málverki.
Summan af þessum verkum er svo
sterk og verkin í slíkum gæðaflokki
að Leonardó skapar af sjálfsdáðum
eigin grein innan myndlistarinnar.
Handrit sem eru í senn framlag til
þekkingarleitar og listar. Sem teikn-
ari hafði hann gífurlega gott auga og
fáir hafa túlkað hreyfingu jafn vel.
Handritin eru skrifuð með spegil-
unglega bóksafnið í Windsor-kastala
á fjórða áratug 19. aldar, eftir að
hafa gengið á milli halla konungsfjöl-
skyldunnar.
Það hafi svo verið á dögum Vikt-
oríu drottningar sem teikningar
voru teknar úr bindunum og þær
hengdar upp til sýnis. Eitt bindanna,
kennt við myndhöggvarann Pompeo
Leoni (sjá mynd), hefur varðveist.
Með þetta í huga er það ekki fyrr
en á síðari tímum sem verk Leon-
ardós hafa verið kortlögð.
Leonardó átti sér velunnara sem
gerðu honum kleift að sinna listinni.
Myndhöggvarinn Benvenuto Cell-
ini – höfundur frægrar sjálfsævisögu
– sagði Frans I. Frakkakonung hafa
haft slíkt yndi af því að hlusta á
Leonardó tala að hann hefði gætt
þess að vera aðeins fáeina daga á ári
fjarri meistaranum.
Leonardó í galleríi drottningar
Frá 1508 Teikning af lifrinni. Frá 1508 Rannsóknir í ljósfræði. 1485-1490 Úr vopnabúrinu. Frá 1489 Hlutar höfuðkúpunnar. 1491-94 Klæði krjúpandi manns.
- Hálfum mánuði áður en kórónuveiran lokaði heiminum voru handrit Leonardós sýnd í Edinborg
- Um var að ræða lokapunktinn í handritasýningu sem sett var upp í hlutum á 12 stöðum í Bretlandi
Hugarflug Hér er brot af annarri teikningunni til hægri hér fyrir ofan.
Morgunblaðið/Baldur
Gegnt skoska þinghúsinu Gallerí drottningar í Edinborg (Palace of Holyroodhouse) sýndi verk Leonardós.
Handritin Disegni di Leonardo da Vinci restaurati da Pompeo Leoni. Þ.e. í
lauslegri þýðingu Teikningar Leonardós varðveittar af Pompeo Leoni.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Árið 2019 voru 500 ár liðin frá dauða
endurreisnarmannsins ódauðlega
Leonardós da Vinci (1452-1519).
Af því tilefni efndi listaverka-
sjóður bresku konungsfjölskyld-
unnar, Royal Collection Trust, sem
Karl Bretaprins er í forstöðu fyrir,
til tólf sýninga á teikningum Leon-
ardós í eigu sjóðsins (sjá rct.uk).
Sýningarnar fóru fram samtímis á
Englandi, Skotlandi, Wales og á
Norður-Írlandi á vormánuðum 2019.
Sumarið 2019 voru svo um 200
valdar teikningar sýndar í galleríi
Englandsdrottningar í Buckingham-
höll í Lundúnum en að sögn Karls
Bretaprins, sem ritar formála að bók
um sýninguna, var það umfangs-
mesta sýning á þessum handritum í
70 ár. Lokapunkturinn var svo sýn-
ing á úvali verka Leonardós í galleríi
drottningar við Holyroodhouse í
Edinborg, gegnt skoska þinghúsinu.
Varðveitt í Windsor-kastala
Sýningin var skoðuð í lok febrúar
2020 en kórónuveiran var þá farin að
stinga sér niður í Evrópu.
Það var einstök upplifun að kom-
ast í tæri við teikningar sem hafa
verið sveipaðar slíkri dulúð og verið
varðveittar bak við rammgerða kast-
alaveggi í öll þessi ár.
Martin Clayton, forstöðumaður
teikninga og grafíkverka hjá Royal
Collection Trust í Windsor-kastala,
fylgdi verkunum úr hlaði með um
250 blaðsíðna bók þar sem teikning-
arnar eru flokkaðar eftir viðfangs-
efnum og tímabilum.
Eins og Clayton rekur er það mik-
ið lán að verkin skuli hafa varðveist