Morgunblaðið - 01.05.2021, Page 2

Morgunblaðið - 01.05.2021, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021 STYRKUR -HAGKVÆMNI -HÖNNUN LANDSHÚSLandshús - Sími 553 1550 - landshus.is KLETTARHEILSÁRSHÚS Klettareru sterkbyggðhús – sérhönnuðaf Efluverkfræðistofu. Húsineruhefðbundin timburgrindarhús semeru Íslandi aðgóðukunn. Húsinafhendastósamsett, aðhluta í forsmíðuðumeiningumogaðhluta semforsniðiðefni.Hentug lausnviðþröngaraðstæður. Uppsetninghúsannaerafarfljótleg. Klettar erumeðrúmgóðusvefnlofti (hæð2,1m) semeykurnotagildi hússinsumtalsvert. Klettar 65 –Grunnverðkr. 9.475.000,- Klettar 80 –Grunnverð kr. 11.975.000,- Ítarlegar upplýsingar og afhendingarlýsingumá finna á vefsíðu okkar. Húsið ámyndinni er af gerðinni Klettar 80 sem reist var 2019 á Vesturlandi. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. smálegt sem til fellur. „Við vitum að Ari á dyggan hóp fastra við- skiptavina sem koma á stöðina með- al annars til að njóta hans frábæru þjónustu. Slíkir menn eru öllu sam- félaginu dýrmætir,“ segir Hinrik enn fremur. Skemmtileg stund töfruð fram Margir mættu í afmæli Ara í gær, svo sem fólk úr höfuðstöðvum N1 og af öðrum þjónustustöðvum félags- ins. Afmælisbarnið fékk lítið að vita fyrir fram hvað stæði til og varð því hissa þegar skemmtileg stund var töfruð fram. Boðið var upp á hress- ingu frá Vöffluvagninum og fleira gott og afmælisbarnið fékk góðar gjafir, svo sem kvöldverð og gistingu á hóteli. Á fastan hóp viðskiptavina „Satt að segja þurfa öll fyrirtæki að eiga sinn Ara, eða einhvern hon- um líkan. Þetta er maður sem lætur dæluna ganga í tvöfaldri merkingu og er meðal gimsteina í starfs- mannahópi okkar. Tæpast líður sú vika að okkur stjórnendum félagsins berist ekki skilaboð frá við- skiptavinum með þakklæti fyrir góða þjónustu sem Ari veitir. Þá er Ari líka myndrænn maður í útlit og hefur gjarnan verið andlit í auglýsingum okkar. Þetta er góður maður sem fólk kannast við,“ segir framkvæmdastjórinn. Á Bíldshöfðanum sér Ari um að dæla eldsneyti á bíla, skipta um rúðuvökva, þurrkublöð og annað Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Ari er tvímælalaust meðal okkar allra bestu manna,“ segir Hinrik Bjarnason, framkvæmdastjóri N1. Dagamunur var gerður í gær, 30. apríl, þegar Ari Bragason, af- greiðslumaður á þjónustustöð fyrir- tækisins við Bíldshöfða í Reykjavík, varð sextugur. Ari hefur starfað frá árinu 2012 hjá N1 og orð fer víða af þjónustulund hans og greiðvikni þeg- ar bíleigendur koma á staðinn. Ari hefur ráð undir rifi hverju. Hann er einnig þekktur fyrir að segja fólki skemmtilegar sögur, syngja söng og hann lætur jafnvel fjúka í kviðlingum þegar svo ber undir. Já, svona eiga menn að vera, gæti einhver sagt! Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Hátíð Ari Bragson meðal samstarfsfólks í gær. Vinsæll maður meðal viðskipavina og annarra sem hann þekkja. Ari greiðvikinn og meðal okkar bestu - Ari afgreiðslumaður hjá N1 á Bíldshöfða sextugur í gær Félagið Nordic Visitor hf. hefur und- irritað samkomulag við Icelandair um kaup á ferðaskrifstofunni Iceland Travel, einu dótturfélaga Icelandair. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair. Ferðaskrifstofan hefur verið í sölu- ferli frá í janúar, en samkvæmt heim- ildum ViðskiptaMoggans kepptust fjögur fyrirtæki um kaupréttinn: Nordic Visitor, Kynnisferðir, Kea hótel og hópur tengdur Hópbílum og bílaleigunni Hertz. Nordic Visitor er íslensk ferða- skrifstofa en hún er einnig með starf- semi annars staðar á Norðurlöndum og Írlandi. Samningurinn milli Icelandair og Nordic Visitor er gerður með hefð- bundnum fyrirvörum um fram- kvæmd áreiðanleikakönnunar og samþykki Samkeppniseftirlitsins, auk þess að aðilar nái saman um kaupsamninginn, að því er segir í til- kynningu frá Icelandair. Salan er í samræmi við stefnu Ice- landair Group sem hefur viljað leggja áherslu á kjarnastarfsemi sína, flug- rekstur, í stað margs konar ferða- þjónustu eins og verið hefur síðustu ár. Í árslok 2019 seldi félagið dóttur- félagið Icelandair Hotels. Íslandsbanki hefur sinnt ráðgjöf fyrir Icelandair í söluferlinu, en ráð- gjöf Nordic Visitor er í höndum Arc- tica Finance. alexander@mbl.is Nordic Visitor kaup- ir Iceland Travel - Icelandair selur dótturfyrirtækið Morgunblaðið/Eggert Sala Nordic Visitor nýr eigandi. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Ríkisstjórnin hefur ákveðið að fram- lengja eða innleiða á annan tug úr- ræða til að mæta afleiðingum kór- ónuveirufaraldursins. Greiddur verður sérstakur 30 þús- und króna barnabótaauki með hverju barni til þeirra sem fá tekju- tengdar barnabætur. Einnig verður gefin út ný ferðagjöf sem gildir út sumarið 2021. Fjármálaráðherra hefur lagt fram frumvarp þar sem er lagt til að gildistími úttektar séreign- arsparnaðar verði framlengdur út árið 2021. Lokunarstyrkir og viðspyrnu- styrkir verða framlengdir og ný tekjufallsviðmið búin til vegna við- spyrnustyrkja. Búinn verði til nýr flokkur fyrir tekjufall á bilinu 40- 60%. Þá verður lánastofnunum heimilað að hliðra endurgreiðslutíma stuðningslána í allt að tólf mánuði til viðbótar. Frestur þeirra sem hafa fengið frest til greiðslu staðgreiðslu og tryggingagjalds 2020 verður framlengdur. Þá fá langtímaatvinnu- lausir allt að 100.000 króna ein- greiðslu. Veitt verður 600 milljóna króna viðbótarframlag til geðheilbrigðis- mála fyrir börn og ungmenni. Þá verður 200 milljóna króna viðbótar- framlag veitt til viðspyrnu gegn nei- kvæðum áhrifum faraldursins gagn- vart börnum, eldri borgurum, öryrkjum, fólki af erlendum uppruna og öðrum félagslega viðkvæmum hópum. Ferðamálaráðherra leggur fram frumvarp um að rekinn verði samtryggingarsjóður allra seljenda pakkaferða sem tryggi fullar endur- greiðslur. Þá verður stutt sérstak- lega við námsmenn á framhalds- og háskólastigi. Tekið á áhrifum faraldursins - Ríkisstjórnin kynnti fjölbreyttar ráðstafanir - Nýtast heimilunum og fyrirtækjum með beinum hætti - Sérstakur barnabótaauki - Ný ferðagjöf - Fé til geðheilbrigðismála barna og ungmenna Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Ráðherrabústaður F.v.: Sigurður Ingi Jóhannsson, Bjarni Benediktsson og Katrín Jakobsdóttir kynntu aðgerðirnar eftir ríkisstjórnarfund í gær. „Ég tel að þetta séu mjög skyn- samlegar aðgerð- ir. Heilt yfir vil ég hrósa ríkisstjórn- inni fyrir þetta út- spil,“ sagði Jó- hannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferða- þjónustunnar. Hann sagði afar gott að búið væri að ákveða að framlengja viðspyrnu- styrkina. Eins að komið væri nýtt tekjufallsviðmið fyrir þá sem eru með 40-60% tekjufall. „Það mun hjálpa fyrirtækjum eins og t.d. veit- ingastöðum og öðrum sem höfðu lent utan garðs í öðrum aðgerðum.“ Jóhannes sagði skynsamlegt að hlutabótaleiðin hyrfi og ráðningar- styrkir tækju við. Þannig gæti fólk verið í 100% vinnu en fyrirtækin samt sem áður fengið styrk. Honum þykir afskaplega gott að von sé á nýrri ferðagjöf, enda hafi ferðagjöfin í fyrra gefið mjög góða raun. „Ein- hverjir eiga enn ferðagjöfina frá í fyrra og ég hvet þá til að nýta hana fyrir lok maí,“ sagði Jóhannes. Samtryggingasjóður vegna pakkaferða er mjög mikilvægt mál, að mati Jóhannesar. „Við sáum þeg- ar faraldurinn skall á að trygginga- kerfi pakkaferða var augljóslega gallað. Ferðamálaráðherra gerði rót- tæka breytingu á þessu kerfi til samræmis við það sem er t.d. ann- ars staðar á Norðurlöndum. Nú kem- ur samtryggingarsjóður í stað sér- tryggingar hvers fyrirtækis. Þetta mun koma öllum til góða, sér- staklega neytendum sem nú fá fulla endurgreiðslu verði ferðaskipuleggj- andi gjaldþrota.“ gudni@mbl.is Mjög skynsamlegar aðgerðir FRAMKVÆMDASTJÓRI SAF HRÓSAR STJÓRNVÖLDUM Jóhannes Þór Skúlason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.