Morgunblaðið - 01.05.2021, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021
Verðbólgan hér á landi er orðinof mikil. Hún fer vonandi ekki
úr böndum, en verðbólgumæling-
arnar þarf að taka alvarlega. Ým-
islegt hefur áhrif til hækkunar, en
það er líka ýmislegt
sem hefur áhrif til
lækkunar. Við
venjulegar að-
stæður ætti núver-
andi ástand í efna-
hagsmálum, sem
orsakaðist af
kórónuveiru-
faraldrinum, að
draga úr verðbólgu.
Samdráttartími er
almennt ekki verð-
bólgutími.
- - -
Hér hefur þaðengu að síður
gerst að í miðjum
heimsfaraldri – þeim skæðasta í
manna minnum – lætur verðbólgu-
draugurinn á sér kræla.
- - -
Hver skyldi vera skýringin áþeirri ógæfu ofan á hina?
- - -
Þó að heimsfaraldurinn sé eðlimáls samkvæmt utanaðkom-
andi vandi sem Íslendingar höfðu
ekkert með að gera, þá er verðbólg-
an sjálfskaparvíti.
- - -
Hér á landi gerðist það að ásama tíma og atvinnulífið
glímdi við margvíslegan vanda fóru
forystumenn úr verkalýðshreyfing-
unni fram af miklu offorsi og óbil-
girni og þvinguðu fram launahækk-
anir sem voru algerlega úr takti við
það sem atvinnulífið gat ráðið við.
- - -
Seðlabankastjóri hefur bent á aðhagsmunaaðilar hér á landi
hafi stundum of mikil áhrif „sem
séu landinu ekki til heilla“. Vart er
til skýrara dæmi um það en fyrr-
greindar þvingunaraðgerðir.
Sólveig Anna
Jónsdóttir
Orsakir
verðbólgunnar
STAKSTEINAR
Ragnar Þór
Ingólfsson
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist
nú 28,7% í nýrri skoðanakönnun sem
MMR gerði á fylgi við stjórnmála-
flokkana. Er þetta tæplega sex pró-
sentustigum hærra en mældist í síð-
ustu könnun MMR um fylgi
stjórnmálaflokka sem var gerð í
byrjun apríl.
Fylgi Vinstri grænna jókst um
tæp þrjú prósentustig frá síðustu
könnun og mældist nú 12,9% en fylgi
Framsóknarflokks minnkaði um eitt
prósentustig og mældist nú 10,5%.
Fylgi Samfylkingar minnkaði um
rúm fjögur prósentustig niður í
11,3% og fylgi Pírata um tæp fjögur
prósentustig og mældist nú 9,6%.
Fylgi Sósíalistaflokks Íslands
jókst um tvö prósentustig og mæld-
ist nú 6% en fylgi Miðflokksins
minnkaði um rúmt prósentustig og
mældist nú 5,8%.
56% styðja ríkisstjórn
Stuðningur við ríkisstjórnina
mældist nú 56,2% og jókst um tæp-
lega fjögur prósentustig frá síðustu
könnun, þar sem stuðningur mældist
52,5%, að því er kemur fram í til-
kynningu frá MMR.
Samanlagður stuðningur við rík-
isstjórnarflokkana er minni, en þó
yfir helmingi eða 52,1%.
Sé fylgi flokkanna umreiknað yfir
í þingsæti (með fyrirvara um mis-
mikið fylgi í kjördæmum) halda
stjórnarflokkarnir velli með 36 þing-
sæti; Sjálfstæðisflokkur fengi 20
þingmenn, Vinstri græn 6 og Fram-
sókn 7. Samfylking fengi 7 þing-
menn, en Píratar og Viðreisn 6 hvor,
Flokkur fólksins félli af þingi, en
Sósíalistar kæmu inn með 4 þing-
menn, líkt og Miðflokkurinn.
Stuðningur við ríkisstjórnina eykst
- Fylgi Sjálfstæðisflokks eykst mikið samkvæmt nýrri könnun MMR
Um 109.000 manns hafa nú fengið að
minnsta kosti einn skammt af bólu-
efni gegn Covid-19 en það er um
37,5% af þeim hópi sem á að bólu-
setja hérlendis. Er þar með öðru
markmiði ríkisstjórnarinnar náð í
samhengi við afléttingaráætlun sem
gerir ráð fyrir því að 20 til 200
manns geti komið saman í byrjun
maímánaðar. Gildandi reglugerð um
samkomutakmarkanir, sem gerir
ráð fyrir 20 manna samkomubanni,
gildir til 5. maí næstkomandi. Sótt-
varnalæknir hefur sagst stefna að
því að skila tillögum um áframhald-
andi aðgerðir um helgina.
Stór bólusetningarvika er fram
undan. Áætlað er að bólusett verði
með 20.000 til 30.000 skömmtum
dagana 3.-7. maí.
Fimm greindust með kórónuveir-
una innanlands á fimmtudag. Þeir
voru allir í sóttkví. Ekkert smit
greindist á landamærunum.
Stór vika að baki en
enn stærri fram undan
- Nú hafa um 109.000 manns fengið sprautu
Hlutfall bólusettra eftir aldri*
Óbólusettir
Bólusetning hafin
Fullbólusettir
*Uppfært 30. apríl
Heimild: Covid.is
16-29 ára 30-39 ára 40-49 ára 50-59 ára 60-69 ára 70-79 ára 80-89 ára 90+ ára
Óbólusettir
90% 87% 81% 61% 14% 5% 2,5% 2,4%
Bólusetning hafin
8% 9% 14% 33% 73% 55% 1,5% 0,2%
Fullbólusettir
2,8% 4,1% 5% 6% 13% 40% 96% 97%
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/