Morgunblaðið - 01.05.2021, Síða 12

Morgunblaðið - 01.05.2021, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021 Sumarsýning Grósku hefur verið framlengd og verður hún opin næstu þrjár helgar, á laugardegi og sunnu- degi frá kl. 14-18. Sýningin er í Gróskusalnum við Garðatorg 1 í Garðabæ og þar má sjá listaverk af fjölbreyttu tagi eftir 37 myndlistarmenn. Eftir endilöngum salnum er sameiginlegt verk allra sýnenda þar sem hver hefur lagt til eina litla veislumynd. Listaverkin eru lögð á borð og Gróska býður til veislu sem stendur yfir svo lengi sem sýn- ingin er opin, segir í tilkynningu. Veislugestum er hleypt inn í litlum hópum og vel er gætt að fjöldatak- mörkunum og sóttvörnum. Gróska er myndlistarfélag sem stendur fyrir allnokkrum sýningum og viðburðum yfir árið. Tilgangurinn er að styrkja samstarf myndlistar- manna í Garðabæ, efla og gera mynd- listina sýnilegri og auka myndlistar- áhuga. Sumarsýning Grósku framlengd vegna fjölda áskorana Listaverk af fjölbreyttu tagi eftir 37 myndlistarmenn Gróska Veisluverk Grósku í forgrunni og hjá því stjórn Grósku og aðrir Gróskuliðar sem unnu að undirbúningi sýningarinnar. Ljósmynd/Sjöfn Ólafsdóttir Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is É g kynntist þessum manni, Karli nafna mínum Magnúsi, fyrir tólf árum í hlutverki sem mér var falið að leika í sjónvarpsþáttum sem heita Heimsendi og sýndir voru á Stöð tvö,“ segir Karl Ágúst Úlfsson og á þar við aðalpersónu nýrrar skáldsögu hans sem kom út á dögun- um og heitir Eldur í höfði. Þar segir af fyrrnefndum Karli Magnúsi sem er vistmaður á geðdeild, snillingur í stærðfræði, verkfræði og tónlist, en gengur ekki sem best að koma reglu á líf sitt. „Þegar ég tek að mér hlutverk þá reyni ég að gefa þeirri persónu líf með því að búa til einhverja fortíð, hugmyndheim, skoðanir og fleira. Í þessu tilviki vatt þetta svo mikið upp á sig og þær urðu svo viðamiklar rannsóknirnar sem ég lagðist í að ég áttaði mig á að þetta væri efni í miklu stærri sögu. Ég heillaðist af þeirri heimsmynd sem Karl Magnús bjó sér til í gegnum mig og fyrir vik- ið hélt ég áfram að rannsaka og smíða, löngu eftir að upptökum á þáttunum lauk. Á endanum varð þetta skáldsaga sem er sögð með hans orðum og á hans forsendum,“ segir Karl Ágúst og bætir við að sag- an eigi erindi við alla, af því flest höf- um við upplifað einhverskonar eld í höfðinu, þó það sé ekki á þessu ýkta stigi sem það er hjá nafna hans. „Mér finnst ég oft geta tengt við persónur þó ég finni ekki sjálfan mig nákvæmlega þar með húð og hári, því ég kannast við marga þætti í þeirra fari. Ég á tiltölulega auðvelt með að skilja þennan mann og bar- áttu hans, því það er svo margt óskiljanlegt í lífinu sem okkur langar til að væri kannski örlítið skýrara. Sumir eru að leita að Guði allt lífið, en þessi maður er að leita að ein- hverju sem hann kallar ekki Guð, en hann gæti allt eins gert það.“ Leiðar- stefið í bókinni er knýjandi þörf manneskju til að koma reglu á líf sitt, ná að hemja óreiðuna. „Kannski er hann í okkur öllum þessi ótti við óreiðuna, hann er bara á svo háu stigi hjá Karli Magnúsi. Hann er líka sannfærður um að lausnin sé til, að hann þurfi bara að finna hana.“ Mamma var sögumenneskja Þegar Karl Ágúst er spurður að því í hvaða smiðjur hann hafi leitað um hugarheim geðsjúkra sem og all- ar þær stærðfræðiformúlur, verk- fræði, tónlist og brúarsmíði og fleira sem kemur fyrir í sögunni, segist hann hafa leitaði til fólks sem er bet- ur að sér en hann. „Ég leitaði til sálfræðinga, stærðfræðinga, tónlistarfræðinga og annarra sem gátu leiðbeint mér. All- ar þær upplýsingar gat ég fengið Karl Magnús til að nýta sér.“ Er eitthvað af þér sjálfum í þessum manni? „Já, kannski í fleiri en einum skilningi. Ég er að setja mig í spor nafna míns, og sem höf- undur sem sest niður til að skrifa þessa sögu þá er ég alltaf að skrifa í karakter. Þá leita ég auðvitað í mitt eigið tilfinningaminni og hluti sem ég hef sjálfur upplifað, til að hafa einhverja tengingu við persónuna. Móðir mín var starfsstúlka á Arnar- holti þar sem vistmenn eru með geð- raskanir og ég gat sótt í gríðarlega mikinn sagnabrunn þar. Mamma var frábær sögumanneskja og hún hafði margar sögur að segja af fólki sem þar var vistað fyrir árið 1960. Marg- ar af þeim sögum sem ég þekkti frá því mamma var þarna starfsstúlka, þær stóðust allt of vel þegar komið var að nútíma minnar sögu. Þetta er ein af mínum tengingum við sögu- efnið, en þar að auki vann amma mín líka á Arnarholti og hún bjó þar löngu eftir að mamma mín hætti að vinna þar. Ég var því tíður gestur í Arnarholti og upplifði eitt og annað sem hefur haft áhrif á mig og eflaust sáð einhverjum fræjum,“ segir Karl Ágúst og bætir við að hann hafi átti mjög fjölbreytta æsku. „Afi minn var verkstjóri hjá Vegagerðinni á sumrin og ég fylgdi honum og ömmu í vegavinnu nokkur sumur. Þar heyrði ég líka margar sögur.“ Heillaður af stærðfræði Við lestur bókarinnar finnur lesandinn sannarlega fyrir stærð- fræðinni í sögunni sjálfri, þar kallast á og tengjast nöfn, tölur, brýr, atburðir, dagsetningar og fleira. Karl Magnús sýnir okkur stærð- fræðina í lífinu sjálfu. „Partur af hugarheimi Karls Magnúsar er sannfæring hans um að allt tengist, að engar tilviljanir séu í lífinu, að allt sé partur af heildar- formúlu sem við þurfum að finna lykilinn að. Vissulega er stærðfræði í nánast öllu í kringum okkur, nátt- úrunni og öllu sem lifir sem og því sem við manneskjurnar sköpum. Ég hef heillast af stærðfræði og sögu hennar þó ég sé ekki mikill stærð- fræðingur sjálfur og ég hef sótt í stærðfræðina og mikið skoðað stærðir og hlutföll,“ segir Karl Ágúst sem vonast til að bókin hans verði fólki hvatning til að opna aug- un fyrir töfrum stærðfræðinnar og því að vera vakandi fyrir þeirri stærðfræði sem býr í öllu. Þáttur tónlistar er líka stór í sögunni hans, enda eru tónlist og stærðfræði nán- ast eitt og það sama. „Það er til dæmis heilmikil tónlist í þeirri verk- fræði sem býr að baki byggingu á hengibrúm, og mínar persónur í bókinni tala um að yrkja brýr,“ segir Karl Ágúst og bætir við að heillandi sé við allt það grúsk og lestur sem heimildavinnan krafðist, að ein per- sóna leiði til annarrar persónu. „Þannig uppgötvar maður teng- ingarnar á milli fólks sem og teng- ingar milli mismunandi tímabila í mannkynssögunni.“ Stoltur smiður Hvítárbrúar Strauss-bræður og -feðgar koma þó nokkuð við sögu og segir Karl Ágúst að allt sem kemur fram um þá séu sannar staðreyndir, ekki skáldskapur hans. „Ég byggi þær staðreyndir á því sem skrifað hefur verið um Strauss-fjölskylduna og einnig ævi- sögu tónskáldsins Josefs Strauss. Allt sem ég nýti mér sem hugmyndir Karls Magnúsar og í því sem hann fær að heyra, meðal annars frá sinni þýsku móður sem er konsertpíanisti, eru hlutir sem ég hef fundið í þess- um bókum. Þegar maður fer að sökkva sér í svona grúsk með þess- um formerkjum að þarna er maður sem langar umfram allt að finna ein- hverja lausn á sínum erfiðleikum, þá verða svo auðveldlega til samsæris- kenningar. Manni finnst svo margt í raunveruleikanum tæplega geta ver- ið tilviljun, til dæmis af hverju í ósköpunum þurfti að eyðileggja þessi fimm hundruð tónverk eftir Jo- sef Strauss?“ Sagan í nýju bókinni hans Karls Ágústs er ekki einvörðungu saga um eldinn í höfðinu, hún er ekki síður saga af vináttu. Þau eru kostuleg þrenning, Karl Magnús, Metta og Niklas, sem hrærast saman á náms- árum í Danmörku. Sagan er líka fjöl- skyldusaga, því lesendur fá að kynn- ast bernskuárum Karls Magnúsar sem er sonur þýskrar konu sem hingað kom sem flóttamaður í stríð- inu og íslensks bónda, hvers mesta afrek var að smíða brú yfir Hvítá. „Þar er gríðarlega mikil bak- saga sem er að stórum hluta ósögð, lesendur fá aðeins brot af henni og ég hef velt fyrir mér hvort þeirra saga sé ekki þess virði að segja hana nánar.“ Ótti við óreiðu býr í okkur öllum „Ég á tiltölulega auðvelt með að skilja þennan mann og baráttu hans, því það er svo margt óskiljanlegt í lífinu sem okkur langar til að væri kannski örlítið skýrara,“ segir Karl Ágúst Úlfsson um nafna sinn, persónu í nýrri skáldsögu hans. Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Karl Ágúst „Ég leita auðvitað í mitt eigið tilfinningaminni og hluti sem ég hef sjálfur upplifað.“ Skógræktarbýlið Vík í Fjarðabyggð Fasteignamiðstöðin er með til sölu jörðina og skógræktarbýlið Vík í Fjarðabyggð. Umtalsverð skógrækt hefur farið fram á jörðinni undanfarin ár. Jörðin stendur við þjóðveg númer 1 og eru um 11 km að þorpinu Búðum og um 10 km að Búðareyri. Jörðin á land milli fjalls og fjöru og er sunnan megin í firðinum. Á jörðinni er snyrtilegur húsakostur sem er íbúðarhús, fjárhús, hlaða og vélaskemma. Landstærð jarðarinnar er um 1100 hektarar. Ræktað land samkvæmt Þjóðskrá er 15,6 hektarar. Jörðin er eins og áður sagði skógræktarjörð. Búið er að gróðursetja í 123 hektara og er tilbúinn samningur við Héraðsskóga Austurlands um 158 hektarar til viðbótar. Kolefnajöfnun er óráðstafað og í eigu Víkur, hefur hvorki verið seld né leigð. Gott aðgengi að sjó, lítið bátaskýli. Náttúrulegar aðstæður til fiskeldis og stutt á gjöful fiskimið. Aðeins um æðarfugl en æðarvarpi hefur ekki verið sinnt. Gott berja- og útivistarland með góðum gönguleiðum. Víkurgerðisá var virkjuð hér áður en sú virkjun er aflögð. Rjúpna- og gæsaveiðiland. Jörðin er án bústofns, véla og án framleiðsluréttar. Mjög fallegt er á þessu svæði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.