Morgunblaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Komdu í BÍLÓ!
Nýskráður 03/2020, ekinn 9þkm, bensín & rafmagn (plug in hybrid,
56 km drægni), sjálfskiptur. Leður, 19“ álfelgur, stafrænt mælaborð,
hiti og kuldi í sætum. 360° bakkmyndavél
og miklu meira. Raðnúmer 252399
SKODA SUPERB IV LIMO LAURIN &
K
M.BENZ C 300e 4MATIC
AMLEMENT (L&K)
Nýskráður 01/2020, ekinn 14 Þ.km, bensín & rafmagn (plug in hybrid
50 km drægni), sjálfskiptur 9 gíra, fjórhjóladrifinn. AMG útlit og
19“ AMG álfelgur. glerþak, stafrænt mælaborð og mikið fleira.
Raðnúmer 251912
G line
VERÐ 6.250.000 VERÐ 8.690.000
Þessir síungu strákar eru klárir
í að selja bílinn þinn
Kíktu við, hringd
eða sendu okkur
skilaboð!
Hlökkum til!
Indriði Jónsson
og Árni Sveinsson
u
M.BENZ A 250E
A
Nýskráður 07/2020, ekinn 10 þ.km, bensín & rafmagn (69 km
drægni), sjálfskiptur (8 gíra), stafrænt mælaborð, glerþak,
18“ álfelgur o.fl. Raðnúmer 252498
MG LINE
VERÐ 6.490.000
„Réttindi launafólks hafa brunnið upp í þrengingum sem fylgt
hafa kórónuveirunni. Oft hafa atvinnurekendur farið frjáls-
lega í kringum kjarasamninga og fólk hefur þurft að taka á
sig launaskerðingu. Þá hafa tugir þúsunda fólks misst vinn-
una. Verkefni verkalýðshreyfingarinnar í þessum aðstæðum
eru mörg og aðkallandi,“ segir Aðalsteinn Árni Baldursson,
formaður Framsýnar á Húsavík. „Núna eru án vinnu um
20.000 manns, sem er tilsvarandi og íbúafjöldinn á Akureyri.
Slíkt eru fordæmalausar aðstæður og að leysa úr þeim vanda-
málum sem Covidið hefur skapað mun taka tíma.“
Allir dagar ársins eru baráttudagar launafólks í raun þótt
1. maí hafi sérstaka stöðu, eru orð Aðalsteins: „Nú þarf að
taka slaginn vegna nýs frumvarps um lífeyrissjóði, þar sem
gert er ráð fyrir að ungmenni borgi fyrst í sjóðina 18 ára en
ekki sextán eins og nú. Þetta getur sparað atvinnurekendum
fjármuni, en skerðir réttindi svo ekki verður unað við. Mörg
þau ungmenn sem eru að hefja starfsferil sinn byrja í ferða-
þjónustu, en í þeirri grein eru lægstu launataxtar Starfs-
greinasambandsins. Það verður að endurskoða.“
Aðalsteinn segir stéttarfélögin vera brjóstvörn almennings
á mörgum sviðum, ekki aðeins í því sem tengist atvinnu,
kaupi, kjörum og réttindum. Mikilvægt sé að forysta verka-
lýðshreyfingarinnar tali máli fólks á landinu öllu og horfi út
fyrir höfuðborgarsvæðið. Tilhneigingin síðustu ár hafi verið
að færa til dæmis heilbrigðisþjónustu á höfuðborgarsvæðinu
af landsbyggðinni, sem sé íþyngjandi. „Ég veit þess dæmi að
fólk hafi þurft að neita sér um læknisaðstoð vegna kostnaðar
og ferðalaga til Reykjavíkur sem kosta peninga og tíma.
Þessu þarf berjast gegn,“ segir formaður Framsýnar.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Framsýn Brjóstvörn almennings, segir Aðalsteinn á Húsavík.
Taka þarf slaginn
„Stytting vinnuvikunnar hjá vaktavinnufólki á opinberum
vinnumarkaði tekur gildi í dag en nú tekur við eftirfylgni þess
og stytting dagvinnu. Þetta er eitt af stóru verkefnum okkar
nú,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
„Álag á opinbera starfsmenn er viðvarandi vegna undir-
mönnunar. Í gegnum heimsfaraldurinn höfum við treyst á
framlínufólkið okkar og það er mikilvægt að tryggja að þau
beri ekki heilsufarslegan kostnað af því að hafa staðið í stafni í
baráttunni við veiruna í langan tíma,“ segir Sonja og bætir við:
„Stjórnvöld virðast ekki átta sig á þeim langtímaafleiðingum
sem álagið getur valdið hjá fólki sem starfar í þágu fjöldans.
Ekki er hægt að hlaupa endalaust og álagið getur haft veruleg
áhrif á lífsgæði og heilsu með aukinni hættu á kulnun í starfi
og ýmsum álagstengdum veikindum. Það jákvæða er þó að
verðmætamat samfélagsins er hægt og rólega að breytast.
Mun fleiri en áður sjá hversu ómissandi, lífsnauðsynlegt og
mikilvægt starfsfólk almannaþjónustunnar er í framlínunni.“
Sonja segir meginstefið í boðskap 1. maí, alþjóðlegs bar-
áttudags verkalýðsins, jafnan hið sama, það er breytingar til
að byggja samfélag sem einkennist af jöfnuði og réttlæti.
„Áföll á borð við heilsufarsógnina og kreppuna sem við höfum
búið við er oft hvati til breytinga. Við höfum því núna frjóan
jarðveg til að hugsa hlutina upp á nýtt. Það eru fáir sem vilja í
dag verja málstað þeirra sem ekki vilja deila verðmætunum
jafnt og setja ekki samfélagið ofar eigin hagsmunum. Að því
leyti stöndum við sem þjóð á tímamótum og kjörnir fulltrúar
verða að bregðast við breyttu gildismati. Samstaða, samvinna
og samfélagslegar lausnir hafa sannað gildi sitt í baráttu við
faraldurinn.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
BSRB Samfélagslegar lausnir, segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir.
Fólk í framlínu
„Endureisn í eftirleik kórónuveirunnar er risastórt verkefni
næstu ára. Störfum þarf að fjölga og á réttum forsendum. Al-
menningur vill sanngjarna skiptingu á auðlindum, hvort sem
það er náttúra landsins eða starfskraftar fólksins. Sú krafa
hefur sjaldan verið háværari og því kalli þurfa stjórnvöld að
mæta,“ segir Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Raf-
iðnaðarsambands Íslands og 1. varaforseti ASÍ.
Atvinnuleysi er mikið og nú geta margir verið farnir að
nálgast hámarkstímalengd í atvinnuleit. „Því er mikilvægt að
tryggja rétt fólks í atvinnuleit þegar bótatímanum sleppir,“
segir Kristján. „Mikilvægi öflugra og sterkra verkalýðsfélaga
hefur komið vel fram á undanförnu ári því sífellt er sótt að
réttindum launafólks. Verkefnastaðan er kannski ekki sem
verst hjá iðnaðarmönnum og margir hafa nóg að gera. En nú
er enn þá brýnna að tryggja að aðbúnaður og öryggismál á
vinnustöðum sé í lagi. Við höfum séð allt of mörg slys á und-
anförnum árum og aðgerða er þörf í öryggismálum. Einnig
þurfum við að fylgjast sérstaklega vel með aðbúnaði erlends
launafólks á Íslandi.“
Lífskjarasamningarnir svonefndu, sem nú gilda á almenna
vinnumarkaðinum, voru undirritaðir snemma árs 2019 og
gilda fram í september á næsta ári. Í haust hefst endurskoðun
samninganna og vinna við undirbúning þeirra næstu.
„Við finnum að það er mikill hugur í rafiðnaðarmönnum
fyrir næstu samningalotu. Stigin hafa verið skref til stytt-
ingar vinnuvikunnar sem er mjög þýðingarmikið. Lágir vext-
ir hafa jafnframt skilað okkar félögum miklum ávinningi á
undanförnum árum og munar launafólk mjög um lægri
greiðslubyrði lána,“ segir formaður RSÍ.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Rafiðn Endurreisnin er fram undan, segir Kristján Þórður.
Sanngjörn skipti
„Nú þegar kórónuveirunni er að
slota er sameiginlegt verkefni okk-
ar allra að reisa atvinnulífið við,“
segir Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir
formaður Afls – starfsgreinafélags
á Austurlandi. „Hér eystra hafa
áhrifin af þessu bakslagi verið mik-
il. Sérstaklega á það við um svæðin
þar sem umsvif í ferðaþjónustu
voru mest, svo sem á Héraði og
Hornafirði. Í stóriðjurekstri og
sjávarútvegi er yfirleitt jafnvægi
og flestir starfsmenn ganga að sínu
vísu. Hér á Höfn, þar sem humar-
veiðin hefur alltaf skipt miklu máli,
er veiðin þó dræm og kvótinn aldrei
minni. Við vonum samt að úr ræt-
ist.“
Endurreisn þjóðfélags og ver-
aldar, sem hefur verið í spenni-
treyju heimsfaraldurs síðasta eina
og hálfa árið, er risastórt verkefni
sem efalítið mun kalla á áleitnar
spurningar og aðgerðir sem kalla á
umræðu. „Covidið hefur kostað
mikið og nú þarf aftur að ná rík-
issjóði í jafnvægi. Slíkt vil ég að
gerist á löngum tíma, en ekki með
skyndilegum og handahófs-
kenndum niðurskurði til dæmis í
velferðarmálum,“ segir Hjördís.
„Almenningur á ekki að þurfa að
borga brúsann, en alltaf er hætta á
að slíkt verði gert. Raunar höfum
við að undanförnu þurft að taka
slaginn vegna breytinga á rekstri
þriggja hjúkrunarheimila sem
sveitarfélögin ráku, en fara nú yfir
til ríkisins og eitt til einkafyr-
irtækis. Allar slíkar breytingar eru
mjög viðkvæmar, hvort sem litið er
til hagsmuna starfsfólks eða íbúa.
Ég hef líka fyrirvara á að þjónusta
Vinnumálastofnunar við Horna-
fjarðarsvæðið eigi að flytjast frá
Egilsstöðum á skrifstofuna á Sel-
fossi.“
Um 6.000 félagsmenn eru í Afli,
en starfssvæði félagsins nær frá
Langanesi að Skeiðarársandi. Á
þessu svæði hafa yfirleitt verið
haldnir baráttufundir á tólf stöðum
1. maí, en allt slíkt liggur í láginni
nú. „En landið er að rísa og við ger-
um eitthvað skemmtilegt á næsta
ári,“ segir formaður Afls.
Ljósmynd/Aðsend
Afl Reisa atvinnulífið við, segir
Hjördís Þóra Sigþórsdóttir.
Covid kostað mikið
Saman að byggja réttlátt þjóðfélag
„Vér bárum fjötra en brátt við hljótum/að byggja réttlátt þjóðfélag.“ Svo er sungið í Internationalnum, söng dagsins í dag, 1. maí.
Baráttudagur verkalýðsins er runninn upp, og sem endranær blasa við óteljandi brýn viðfangsefni við að bæta kjör launafólks og
samfélagsgerðina almennt, eins og formenn nokkurra verkalýðs- og stéttarfélaga, sem Morgunblaðið ræddi við, segja hér frá.