Morgunblaðið - 01.05.2021, Síða 16

Morgunblaðið - 01.05.2021, Síða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda. Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í árs fangelsi fyrir að aka bíl ítrekað undir áhrifum áfengis og fíkniefna. Fram kemur í dómnum, að mað- urinn hefur níu sinnum áður hlotið dóma fyrir sams konar brot. Maðurinn var handtekinn í júní árið 2019 eftir að hann var stöðvaður við akstur bíls, en hann var bæði ölv- aður og hafði neytt kannabisefna. Hann var einnig með marijúana og vasahníf í fórum sínum. Þá var mað- urinn aftur handtekinn í mars á síð- asta ári fyrir sams konar brot en þá mældist vínandamagn í blóði hans 2,42 prómill. Aftur fannst marijúana í fórum hans. Loks var maðurinn handtekinn í maí á síðasta ári eftir að hafa ekið undir áhrifum áfengis og kannabis- efna. Játaði sök Maðurinn játaði sök í öllum tilfell- um fyrir dómi. Fram kemur í dómn- um, að maðurinn hefur frá árinu 2012 ítrekað hlotið dóma, bæði fé- sektir og fangelsisdóma fyrir akstur undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna og fyrir að aka án ökurétt- inda en hann var árið 2014 sviptur ökuréttindum ævilangt. Maðurinn lauk afplánun allra fangelsisdóm- anna með samfélagsþjónustu í maí 2018. Maðurinn var eins og áður sagði dæmdur í 12 mánaða fangelsi og seg- ir dómarinn að ekki séu efni til að skilorðsbinda á refsingu. Þá var áréttuð ævilöng svipting ökuréttar hans. Loks var maðurinn dæmdur til að greiða sakarkostnað, rúmar 318 þúsund krónur og vasahnífurinn og tæp 6 grömm af marijúana voru gerð upptæk. Árs fangelsi fyrir ölvunarakstur - Hefur ítrekað ekið undir áhrifum áfengis og fíkniefna Morgunblaðið/Ómar Dómhús Hús Héraðsdóms Reykja- ness við Linnetsstíg í Hafnarfirði. BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Verð á laxi hefur náð sér á strik undanfarnar vikur og hefur haldist nokkuð stöðugt þrátt fyrir að áhrifa kórónuveirufaraldursins gæti enn. Verðið er talsvert hærra en var á sama tíma á síðasta ári, en þá hafði orðið verðfall vegna veirunnar, og er vel yfir meðalverði síðasta ára- tugar. Þótt búast megi við lækkun í sumar, eins og oftast gerist vegna aukins framboðs og minni eftir- spurnar, eru eld- ismenn bjartsýn- ir um þróun verðsins. Ástæðan fyrir bjartsýni um þró- unina er að minni lífmassi virðist vera í sjókvíum í Noregi og Chile en áætlað hefur verið. Þá hefur aukin spurn eftir laxi á undanförnum ár- um ekki haft við enn meiri aukningu í eftirspurn. Jafnframt er búist við að betra árferði verði í við- skiptalöndum en verið hefur, svo sem í Bretlandi, Bandaríkjunum, Kína og Evrópulöndum. Eins og sjá má á meðfylgjandi línuriti var meðalverð á laxi um 43- 45 norskar krónur á fyrstu vikum ársins en fór upp í tæpar 70 krónur í 13. viku og er nú í rúmum 60 krón- um. 60 norskar krónur samsvara um 900 krónum íslenskum. Þá má sjá að verðið var mjög hátt í byrjun árs 2020 en lækkaði snarlega þegar kórónuveirufaraldurinn reið yfir. Þróunin í ár hefur verið þveröfug og í mars komst verðið yfir það sem var á sama tíma á síðasta ári. Verðið hefur í raun hækkað meira í evrum reiknað vegna þess að norska krón- an hefur verið að hækka. Ef litið er á framvirka verðið sem getur gefið vísbendingar um þró- unina næsta árið má sjá að þróunin gæti orðið svipuð og oft hefur verið í venjulegu ári. Verðið lækkar í sum- ar og hækkar aftur fyrir jólin og nær svipaðri stöðu og nú á fyrstu tveimur fjórðungum næsta árs. Viðbrögðin mögnuð Guðmundur Gíslason, stjórnar- formaður Fiskeldis Austfjarða, seg- ir alltaf erfitt að spá fyrir um eftir- spurn og verðþróun. Hann segir þó að aðlögun markaðarins við því þeg- ar veitingastöðum var lokað í kórónuveirufaraldrinum og nærri helmingur markaðarins hvarf lofi góðu. Viðbrögðin hafi verið mögnuð. Aukin áhersla hafi verið á að fram- leiða vörur í neytendapakkningum fyrir stórmarkaði og þar hafi nýir neytendur að laxi komist á bragðið. Telur Guðmundur að þegar kór- ónuveirufaraldurinn verður liðinn hjá megi búast við mikilli spurn eft- ir laxi. Nýir neytendur komist á bragðið - Heimsmarkaðsverð á laxi hefur náð sér nokkuð á strik þrátt fyrir kórónuveirufaraldurinn - Sala á stórmörkuðum hefur aukist og kemur í stað veitingastaða - Eldismenn bjartsýnir á framhaldið Þróun heimsmarkaðsverðs á laxi Heimsmarkaðsverð 2020 og 2021 í viku 1-32 Framvirkt verð 2021-2022 Meðalverð 2013-2020 í viku 47 75 65 55 45 35 25 75 65 55 45 35 25 85 75 65 55 45 35 2020 2021 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 2021 2022 2. ársfj. 3. ársfj. 4. ársfj. 1.-2. ársfj. 3.-4. ársfj. '13 '14 '15 '16 '17 '18 '19 '20 Heimild: Fish Pool, NASDAQ Salmon Index 46,49 78,76 79,77 43,58 69,67 64,58 60,25 49,74 Meðalverð í norskum krónum á kg NOK/kg NOK/kg 73,01 39,63 63,25 53,30 57,70 63,20 55,00 64,85 45,01 60,33 44,89 59,69 45,09 Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Afurðir Þótt framleiðslan aukist stöðugt hefur laxaiðnaðurinn ekki undan. Búist er við að markaðurinn taki vel við sér að loknum heimsfaraldri. Guðmundur Gíslason Fiskeldi Austfjarða heldur sínu striki og setur geldan lax í sjókvíar í Berufirði í vor, þrátt fyrir að bakslag hafi komið í eldi á þrílitna laxi í Noregi. Norway Royal Salmon (NRS) tilkynnti í gær að fyrirtækið hefði ákveðið að hætta eldi á þrílitna geldum laxi vegna vel- ferðar laxa. Fyrirtækið fékk níu svokölluð græn eldisleyfi sem veitt eru með skilyrðum sem ætlað er að þróa fiskeldis- iðnaðinn í áttina að sjálfbærni og breytti níu almennum leyfum til viðbótar í græn. Við eldið hefur verið staðfest að þrílitna laxinn virðist varnarlausari fyrir bakteríu- og veirusjúkdómum en ógeltur lax. Norska mat- vælastofnunin hefur ákveðið að banna nýtt eldi á þrílitna laxi frá næsta vori og að framleiðslu skuli hætt fyrir lok árs 2023. Guðmundur Gíslason, stjórn- arformaður Fiskeldis Aust- fjarða, segir eldi á þrílitna laxi aldrei hafa verið prófað á Ís- landi. Miðað við þær forsendur sem fyrir liggi, m.a. um kaldari sjó og minni hitasveiflur á Aust- fjörðum en í Norður-Noregi og minna umhverfisáreiti, ætti það að ganga vel. Haldið áfram í Berufirði HÆTTA MEÐ GELDLAX Morgunblaðið/Eggert Berufjörður Geldlax verður settur út í sjókvíar í vor eða sumar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.