Morgunblaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 29
29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021
Leikur Vel hefur viðrað til útivistar að undanförnu og hér bregða hundaeigendur á leik á ylströndinni í Nauthólsvík. Hringlaga potturinn í bakgrunni lúrir skemmtilega undir yfirborði sjávar.
Eggert
Hún var hátíðleg og
hjartnæm stundin sem
við urðum vitni að í
fréttum í vikunni þegar
brast á með miklu lófa-
klappi þegar Þórólfur
Guðnason sótt-
varnalæknir mætti í
Laugardalshöll í bólu-
setningu. Það var verð-
skuldað. Það er líka
einstaklega ánægju-
legt að fylgjast með
hversu vel bólusetningar ganga og
ekki síst fagmennskunni og skipu-
laginu hjá heilbrigðisstarfsfólkinu
okkar og þeim sem koma að al-
mannavörnum.
Bólusetningarmyndir hafa leyst
eldgosamyndirnar af hólmi á sam-
félagsmiðlum. Hvort tveggja er stór-
kostleg upplifun. Annars vegar er
það ægikraftur náttúrunnar og hins
vegar kraftur vísinda og samvinnu.
Við klárum leikinn saman
Í gær samþykkti ríkisstjórnin nýj-
ar aðgerðir sem er ætlað að klára
leikinn eins og við í Framsókn höf-
um orðað það. Þessar aðgerðir bæt-
ast á lista umfangsmikilla aðgerða
sem hafa skipt sköpum í því að
tryggja heilsu og afkomu lands-
manna síðasta árið. Styrkur til
þeirra sem hafa verið atvinnulausir í
lengri tíma, barnabótaauki til þeirra
sem lægstar tekjur hafa, tímabundin
hækkun framfærslu námsmanna,
aukinn stuðningur í geðheilbrigðis-
málum barna og ungmenna um allt
land, rýmkun á viðspyrnustyrkjum,
styrkur til endurráðningar í fyrra
starfshlutfall, ný ferðagjöf og fram-
lenging á stuðningi við íþróttafélög.
Allt eru þetta aðgerðir sem munu
styrkja samfélagið síðustu mínútur
leiksins.
Atvinna, atvinna, atvinna
Ríkisstjórnin brást hratt og
örugglega við því frosti sem varð í
ferðaþjónustu fyrir ári. Stærsta og
mikilvægasta aðgerðin þá var hluta-
bótaleið félags- og barnamálaráð-
herra sem gerði fólki og fyrir-
tækjum kleift að viðhalda
ráðningarsambandinu og halda úti
lágmarksstarfsemi. Stærsta aðgerð-
in sem kynnt var í gær er styrkur til
endurráðningar í fyrra
starfshlutfall. Þessi að-
gerð gerir það að verk-
um að þeir fjölmörgu
sem eru á hlutabótum
og vinna 50% verða
ráðnir í fyrra starfs-
hlutfall með stuðningi
ríkisins, ganga í raun
inn í þá stóru og merki-
legu aðgerð sem kynnt
var fyrir skömmu undir
heitinu Hefjum störf.
Þessar aðgerðir eru
mikilvægur liður í við-
spyrnu fyrir Ísland og því að skapa
störf og hefja störf. Atvinna, at-
vinna, atvinna.
Landsýn
Við sjáum til lands. Stundin er að
renna upp, stundin sem við höfum
beðið eftir síðan heimsfaraldurinn
skall á með öllu sínu tjóni á heilsu og
hag fólks um allan heim. Allt síðasta
ár hefur verið helgað baráttunni við
faraldurinn, helgað því að vernda
heilsu fólks og afkomu og því að
tryggja hraða og markvissa við-
spyrnu fyrir Ísland. Augnablikið
þegar allt horfir til betri vegar er
ekki síst upplifun okkar hvers og
eins þegar við fáum stunguna í öxl-
ina, þegar við sjáum fram á að losna
við óttann við veiruna, ótta sem
snýst ekki aðeins um okkur sjálf
heldur ekki síst um ástvini okkar.
Ég er stoltur af þjóðinni okkar. Á
erfiðum tímum, tímum þegar farald-
urinn hefur ógnað heilsu okkar og
okkar nánustu, hefur þjóðin staðið
saman og mætt erfiðleikum af ein-
urð og styrk. Sól hækkar á lofti, hóp-
ur bólusettra stækkar, atvinnulaus-
um fækkar. Við horfum bjartsýn
fram á veginn og klárum leikinn.
Eftir Sigurð Inga
Jóhannsson
» Stundin er að renna
upp, stundin sem við
höfum beðið eftir síðan
heimsfaraldurinn skall á
með öllu sínu tjóni á
heilsu og hag fólks um
allan heim.
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Höfundur er formaður Framsóknar
og samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðherra.
Við sjáum til lands
Í dag fögnum við
baráttudegi verkalýðs-
ins og vinnandi fólk
minnir á kröfur sínar
um réttlátt þjóðfélag
hringinn um landið.
Vitað var að vinnu-
markaðsmál myndu
setja svip sinn á kjör-
tímabilið við upphaf
þess og aðdragandi
kjarasamninga vorið
2019 var langur og strangur. Mörg
umbótamál hafa komist til fram-
kvæmda í kjölfar yfirlýsingar
stjórnvalda sem gefin var við und-
irritun lífskjarasamninga. Þar ber
hæst þrepaskipt skattkerfi, lengra
fæðingarorlof, hærri barnabætur,
aukinn stuðning við félagslegt hús-
næði og ný húsnæðislán fyrir fyrstu
kaupendur. Þjóðhagsráð með þátt-
töku fulltrúa launafólks hefur verið
starfandi síðan en þar sitja fulltrúar
ríkis og sveitarfélaga, Seðlabanka
og heildarsamtaka á vinnumarkaði.
Markmið þess er að tryggja efna-
hagslegan og félagslegan stöðug-
leika.
Stytting vinnuvikunnar
Stytting vinnuvikunnar hefur
lengi verið baráttumál vinnandi
fólks. Það er því fagnaðarefni að í
flestum kjarasamningum sem und-
irritaðir voru veturinn 2019-2020 er
kveðið á um heimild til að gera
breytingar á skipulagi vinnutíma og
stytta vinnuvikuna. Meginmarkmið
breytinganna er að auka lífsgæði
vinnandi fólks með því að gera því
betur kleift að samræma vinnu og
einkalíf. Breytingin hjá dagvinnu-
fólki er komin til framkvæmda en
útfærslan á styttingunni er misjöfn
eftir samningum og hópum og getur
vinnutími í fullu starfi farið allt nið-
ur í 36 virkar vinnustundir á viku.
Nú um mánaðamótin bætist vakta-
vinnufólk í hópinn en með bættum
vinnutíma í vaktavinnu er stuðlað
að betri heilsu og öryggi starfsfólks
og þeirra sem þurfa á þjónustunni
að halda. Auk þess er breyting-
unum ætlað að auka jafnvægi á milli
vinnu og einkalífs en fyrir þau sem
hafa þyngstu vaktabyrðina getur
vinnuvikan styst niður í allt að 32
stundir.
Endurmat á
störfum kvenna
Til samræmis við
yfirlýsingu ríkis-
stjórnar í tengslum við
kjarasamninga aðildar-
félaga BSRB í mars
2020 skipaði forsætis-
ráðherra starfshóp
með fulltrúum forsæt-
isráðuneytis, fjármála-
og efnahagsráðuneytis,
félagsmálaráðuneytis,
samtaka launafólks og
samtaka atvinnurekenda, sem falið
er að leggja fram tillögur að aðgerð-
um til að útrýma launamun sem staf-
ar af kynskiptum vinnumarkaði. Þær
aðgerðir skulu hafa það leiðarljós að
leiðrétta kerfisbundið vanmat á
störfum þar sem konur eru í meiri-
hluta. Ég vænti mikils af þessu starfi
en heimsfaraldurinn hefur svo sann-
arlega varpað ljósi á mikilvægi
stórra kvennastétta við að vernda líf
og heilsu fólks. Eins hefur farald-
urinn sýnt okkur öllum hve dýrmætt
það er að eiga öflugt opinbert heil-
brigðis- og velferðarkerfi þar sem
allir eiga jafnan aðgang.
Réttlát umskipti
Í nýlegri skýrslu sem ASÍ, BSRB
og BHM gáfu út ásamt systur-
samtökum sínum á Norðurlöndunum
er fjallað um réttlát umskipti í veg-
ferðinni í átt að kolefnishlutlausu
samfélagi. Þar eru dregnir fram
mikilvægir þættir sem hafa þarf að
leiðarljósi í umræðu og aðgerðum
vegna þeirra miklu samfélagslegu
breytinga sem hafnar eru og munu
verða enn meiri á næstu árum vegna
loftslagsbreytinga og aðlögunar að
þeim. Samhliða þessu verða nú örar
breytingar á vinnumarkaði vegna
tækniþróunar. Það er grundvallar-
atriði að þessar breytingar auki ekki
ójöfnuð og skapi ekki aðstöðumun
milli hópa og svæða. Sú ríka hefð
sem hér er fyrir samtali og samráði
milli stjórnvalda og aðila vinnumark-
aðarins mun gagnast okkur vel til að
tryggja að yfirvofandi umskipti verði
réttlát umskipti.
Atvinnusköpun eftir faraldur
Atvinnuleysi sem var 12,1% í mars
má ekki verða langtímaböl í sam-
félagi okkar. Stjórnvöld hafa brugð-
ist við atvinnuleysinu sem er bein af-
leiðing heimsfaraldursins með
margháttuðum aðgerðum. Nýlega
kynntum við átakið Hefjum störf þar
sem ríkið greiðir stofnunum, sveitar-
félögum, fyrirtækjum og félaga-
samtökum styrk til að skapa ný störf
sem ætluð eru þeim sem hafa verið
atvinnulausir lengur en tólf mánuði.
Nú þegar hafa tæplega 4.000 ný störf
verið skráð í verkefnið og yfir 900
ráðningarsamningar undirritaðir. Í
fyrrasumar sköpuðum við enn-
fremur störf fyrir námsmenn og það
munum við gera aftur núna. Mark-
miðið er að skapa alls um 7.000 ný
störf á næstu mánuðum. Við höfum
tryggt menntatækifæri fyrir at-
vinnuleitendur. Þá er hlutastarfa-
leiðin umfangsmesta leiðin sem
stjórnvöld hafa ráðist í til að styðja
við afkomu launafólks en um 36.000
einstaklingar hafa fengið stuðning í
gegnum þá leið sem hefur samtals
numið um 28 milljörðum króna. At-
vinnuleysisbætur hafa verið hækk-
aðar um 35% á kjörtímabilinu, ráðist
var í tímabundna lengingu tekju-
tengdra atvinnuleysisbóta, barna-
greiðslur atvinnuleysistrygginga
hækkaðar tímabundið og núna fyrir
helgi kynnti ríkisstjórnin sérstakan
styrk til langtímaatvinnulausra og
barnabótaauka fyrir tekjulægri
barnafjölskyldur. Síðast en ekki síst
hafa stjórnvöld staðið fyrir fjöl-
breyttum fjárfestingum til að skapa
ný störf og auka umsvif í samfélag-
inu. Þar hefur bæði verið ráðist í
hefðbundnar fjárfestingar í sam-
göngumannvirkjum og bygginga-
framkvæmdum en einnig í fjárfest-
ingar í rannsóknum, nýsköpun og
skapandi greinum. Allt mun þetta
stuðla að því að fjölga stoðum efna-
hagslífsins og draga hratt og örugg-
lega úr atvinnuleysi með hækkandi
sól.
Ég óska launafólki til hamingju
með baráttudag verkalýðsins!
Réttlátt þjóðfélag
Eftir Katrínu
Jakobsdóttur »Mörg umbótamál
hafa komist til fram-
kvæmda í kjölfar yfir-
lýsingar stjórnvalda
sem gefin var við und-
irritun lífskjarasamn-
inga.
Katrín Jakobsdóttir
Höfundur er forsætisráðherra.