Morgunblaðið - 01.05.2021, Síða 29

Morgunblaðið - 01.05.2021, Síða 29
29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021 Leikur Vel hefur viðrað til útivistar að undanförnu og hér bregða hundaeigendur á leik á ylströndinni í Nauthólsvík. Hringlaga potturinn í bakgrunni lúrir skemmtilega undir yfirborði sjávar. Eggert Hún var hátíðleg og hjartnæm stundin sem við urðum vitni að í fréttum í vikunni þegar brast á með miklu lófa- klappi þegar Þórólfur Guðnason sótt- varnalæknir mætti í Laugardalshöll í bólu- setningu. Það var verð- skuldað. Það er líka einstaklega ánægju- legt að fylgjast með hversu vel bólusetningar ganga og ekki síst fagmennskunni og skipu- laginu hjá heilbrigðisstarfsfólkinu okkar og þeim sem koma að al- mannavörnum. Bólusetningarmyndir hafa leyst eldgosamyndirnar af hólmi á sam- félagsmiðlum. Hvort tveggja er stór- kostleg upplifun. Annars vegar er það ægikraftur náttúrunnar og hins vegar kraftur vísinda og samvinnu. Við klárum leikinn saman Í gær samþykkti ríkisstjórnin nýj- ar aðgerðir sem er ætlað að klára leikinn eins og við í Framsókn höf- um orðað það. Þessar aðgerðir bæt- ast á lista umfangsmikilla aðgerða sem hafa skipt sköpum í því að tryggja heilsu og afkomu lands- manna síðasta árið. Styrkur til þeirra sem hafa verið atvinnulausir í lengri tíma, barnabótaauki til þeirra sem lægstar tekjur hafa, tímabundin hækkun framfærslu námsmanna, aukinn stuðningur í geðheilbrigðis- málum barna og ungmenna um allt land, rýmkun á viðspyrnustyrkjum, styrkur til endurráðningar í fyrra starfshlutfall, ný ferðagjöf og fram- lenging á stuðningi við íþróttafélög. Allt eru þetta aðgerðir sem munu styrkja samfélagið síðustu mínútur leiksins. Atvinna, atvinna, atvinna Ríkisstjórnin brást hratt og örugglega við því frosti sem varð í ferðaþjónustu fyrir ári. Stærsta og mikilvægasta aðgerðin þá var hluta- bótaleið félags- og barnamálaráð- herra sem gerði fólki og fyrir- tækjum kleift að viðhalda ráðningarsambandinu og halda úti lágmarksstarfsemi. Stærsta aðgerð- in sem kynnt var í gær er styrkur til endurráðningar í fyrra starfshlutfall. Þessi að- gerð gerir það að verk- um að þeir fjölmörgu sem eru á hlutabótum og vinna 50% verða ráðnir í fyrra starfs- hlutfall með stuðningi ríkisins, ganga í raun inn í þá stóru og merki- legu aðgerð sem kynnt var fyrir skömmu undir heitinu Hefjum störf. Þessar aðgerðir eru mikilvægur liður í við- spyrnu fyrir Ísland og því að skapa störf og hefja störf. Atvinna, at- vinna, atvinna. Landsýn Við sjáum til lands. Stundin er að renna upp, stundin sem við höfum beðið eftir síðan heimsfaraldurinn skall á með öllu sínu tjóni á heilsu og hag fólks um allan heim. Allt síðasta ár hefur verið helgað baráttunni við faraldurinn, helgað því að vernda heilsu fólks og afkomu og því að tryggja hraða og markvissa við- spyrnu fyrir Ísland. Augnablikið þegar allt horfir til betri vegar er ekki síst upplifun okkar hvers og eins þegar við fáum stunguna í öxl- ina, þegar við sjáum fram á að losna við óttann við veiruna, ótta sem snýst ekki aðeins um okkur sjálf heldur ekki síst um ástvini okkar. Ég er stoltur af þjóðinni okkar. Á erfiðum tímum, tímum þegar farald- urinn hefur ógnað heilsu okkar og okkar nánustu, hefur þjóðin staðið saman og mætt erfiðleikum af ein- urð og styrk. Sól hækkar á lofti, hóp- ur bólusettra stækkar, atvinnulaus- um fækkar. Við horfum bjartsýn fram á veginn og klárum leikinn. Eftir Sigurð Inga Jóhannsson » Stundin er að renna upp, stundin sem við höfum beðið eftir síðan heimsfaraldurinn skall á með öllu sínu tjóni á heilsu og hag fólks um allan heim. Sigurður Ingi Jóhannsson Höfundur er formaður Framsóknar og samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðherra. Við sjáum til lands Í dag fögnum við baráttudegi verkalýðs- ins og vinnandi fólk minnir á kröfur sínar um réttlátt þjóðfélag hringinn um landið. Vitað var að vinnu- markaðsmál myndu setja svip sinn á kjör- tímabilið við upphaf þess og aðdragandi kjarasamninga vorið 2019 var langur og strangur. Mörg umbótamál hafa komist til fram- kvæmda í kjölfar yfirlýsingar stjórnvalda sem gefin var við und- irritun lífskjarasamninga. Þar ber hæst þrepaskipt skattkerfi, lengra fæðingarorlof, hærri barnabætur, aukinn stuðning við félagslegt hús- næði og ný húsnæðislán fyrir fyrstu kaupendur. Þjóðhagsráð með þátt- töku fulltrúa launafólks hefur verið starfandi síðan en þar sitja fulltrúar ríkis og sveitarfélaga, Seðlabanka og heildarsamtaka á vinnumarkaði. Markmið þess er að tryggja efna- hagslegan og félagslegan stöðug- leika. Stytting vinnuvikunnar Stytting vinnuvikunnar hefur lengi verið baráttumál vinnandi fólks. Það er því fagnaðarefni að í flestum kjarasamningum sem und- irritaðir voru veturinn 2019-2020 er kveðið á um heimild til að gera breytingar á skipulagi vinnutíma og stytta vinnuvikuna. Meginmarkmið breytinganna er að auka lífsgæði vinnandi fólks með því að gera því betur kleift að samræma vinnu og einkalíf. Breytingin hjá dagvinnu- fólki er komin til framkvæmda en útfærslan á styttingunni er misjöfn eftir samningum og hópum og getur vinnutími í fullu starfi farið allt nið- ur í 36 virkar vinnustundir á viku. Nú um mánaðamótin bætist vakta- vinnufólk í hópinn en með bættum vinnutíma í vaktavinnu er stuðlað að betri heilsu og öryggi starfsfólks og þeirra sem þurfa á þjónustunni að halda. Auk þess er breyting- unum ætlað að auka jafnvægi á milli vinnu og einkalífs en fyrir þau sem hafa þyngstu vaktabyrðina getur vinnuvikan styst niður í allt að 32 stundir. Endurmat á störfum kvenna Til samræmis við yfirlýsingu ríkis- stjórnar í tengslum við kjarasamninga aðildar- félaga BSRB í mars 2020 skipaði forsætis- ráðherra starfshóp með fulltrúum forsæt- isráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis, félagsmálaráðuneytis, samtaka launafólks og samtaka atvinnurekenda, sem falið er að leggja fram tillögur að aðgerð- um til að útrýma launamun sem staf- ar af kynskiptum vinnumarkaði. Þær aðgerðir skulu hafa það leiðarljós að leiðrétta kerfisbundið vanmat á störfum þar sem konur eru í meiri- hluta. Ég vænti mikils af þessu starfi en heimsfaraldurinn hefur svo sann- arlega varpað ljósi á mikilvægi stórra kvennastétta við að vernda líf og heilsu fólks. Eins hefur farald- urinn sýnt okkur öllum hve dýrmætt það er að eiga öflugt opinbert heil- brigðis- og velferðarkerfi þar sem allir eiga jafnan aðgang. Réttlát umskipti Í nýlegri skýrslu sem ASÍ, BSRB og BHM gáfu út ásamt systur- samtökum sínum á Norðurlöndunum er fjallað um réttlát umskipti í veg- ferðinni í átt að kolefnishlutlausu samfélagi. Þar eru dregnir fram mikilvægir þættir sem hafa þarf að leiðarljósi í umræðu og aðgerðum vegna þeirra miklu samfélagslegu breytinga sem hafnar eru og munu verða enn meiri á næstu árum vegna loftslagsbreytinga og aðlögunar að þeim. Samhliða þessu verða nú örar breytingar á vinnumarkaði vegna tækniþróunar. Það er grundvallar- atriði að þessar breytingar auki ekki ójöfnuð og skapi ekki aðstöðumun milli hópa og svæða. Sú ríka hefð sem hér er fyrir samtali og samráði milli stjórnvalda og aðila vinnumark- aðarins mun gagnast okkur vel til að tryggja að yfirvofandi umskipti verði réttlát umskipti. Atvinnusköpun eftir faraldur Atvinnuleysi sem var 12,1% í mars má ekki verða langtímaböl í sam- félagi okkar. Stjórnvöld hafa brugð- ist við atvinnuleysinu sem er bein af- leiðing heimsfaraldursins með margháttuðum aðgerðum. Nýlega kynntum við átakið Hefjum störf þar sem ríkið greiðir stofnunum, sveitar- félögum, fyrirtækjum og félaga- samtökum styrk til að skapa ný störf sem ætluð eru þeim sem hafa verið atvinnulausir lengur en tólf mánuði. Nú þegar hafa tæplega 4.000 ný störf verið skráð í verkefnið og yfir 900 ráðningarsamningar undirritaðir. Í fyrrasumar sköpuðum við enn- fremur störf fyrir námsmenn og það munum við gera aftur núna. Mark- miðið er að skapa alls um 7.000 ný störf á næstu mánuðum. Við höfum tryggt menntatækifæri fyrir at- vinnuleitendur. Þá er hlutastarfa- leiðin umfangsmesta leiðin sem stjórnvöld hafa ráðist í til að styðja við afkomu launafólks en um 36.000 einstaklingar hafa fengið stuðning í gegnum þá leið sem hefur samtals numið um 28 milljörðum króna. At- vinnuleysisbætur hafa verið hækk- aðar um 35% á kjörtímabilinu, ráðist var í tímabundna lengingu tekju- tengdra atvinnuleysisbóta, barna- greiðslur atvinnuleysistrygginga hækkaðar tímabundið og núna fyrir helgi kynnti ríkisstjórnin sérstakan styrk til langtímaatvinnulausra og barnabótaauka fyrir tekjulægri barnafjölskyldur. Síðast en ekki síst hafa stjórnvöld staðið fyrir fjöl- breyttum fjárfestingum til að skapa ný störf og auka umsvif í samfélag- inu. Þar hefur bæði verið ráðist í hefðbundnar fjárfestingar í sam- göngumannvirkjum og bygginga- framkvæmdum en einnig í fjárfest- ingar í rannsóknum, nýsköpun og skapandi greinum. Allt mun þetta stuðla að því að fjölga stoðum efna- hagslífsins og draga hratt og örugg- lega úr atvinnuleysi með hækkandi sól. Ég óska launafólki til hamingju með baráttudag verkalýðsins! Réttlátt þjóðfélag Eftir Katrínu Jakobsdóttur »Mörg umbótamál hafa komist til fram- kvæmda í kjölfar yfir- lýsingar stjórnvalda sem gefin var við und- irritun lífskjarasamn- inga. Katrín Jakobsdóttir Höfundur er forsætisráðherra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.