Morgunblaðið - 01.05.2021, Qupperneq 40
40 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021
✝
Hanna Sigríður
Ásgeirsdóttir
fæddist á Siglufirði
2. júní 1937. Hún
lést á Heilbrigð-
isstofnun Fjalla-
byggðar 20. apríl
2021.
Foreldrar Hönnu
Sigríðar voru hjón-
in Guðrún Hafliða-
dóttir húsfreyja, f.
16.9. 1916, d. 1.1.
2000, og Ásgeir Gunnarsson vél-
stjóri, f. 21.4. 1912, d. 1. 11. 1985.
Hanna Sigga, eins og hún var
alltaf kölluð, ólst upp á Siglu-
firði, næstelst í sjö barna systk-
inahópi. Systkinin voru Hafliði
Sigurðsson, f. 24.6. 1932, d. 22.9.
2000, Ásdís Björg Ásgeirsdóttir,
f. 4.6. 1941, d. 25.11. 2013, Gunn-
ar Ásgeirsson, f. 20.11. 1942, d.
1.10. 2010, Guðbjörg Ásgeirs-
dóttir, f. 11.7. 1945, Pétur Ás-
geirsson, f. 21.12. 1948, og Jón
Ásgeirsson, f. 31.10. 1954.
Hanna Sigríður var gift Sölva
Guðnasyni, f. 27.10. 1935, d. 7.10.
2020. Hann var sonur hjónanna
Guðna Brynjólfssonar, f. 18.5.
1903, d. 31.5. 1985,
og Þórhildar Sölva-
dóttur, f. 29.2. 1912,
d. 20.7. 1995
Börn Hönnu Sig-
ríðar og Sölva eru
fimm:
1) Guðný Þór-
hildur, f. 14.9.1954.
Eigninmaður henn-
ar er Sverrir Jóns-
son og eiga þau
þrjú börn. 2) Guð-
rún Ásgerður, f. 18.12.1955. Eig-
inmaður hennar var Óttar
Bjarkan Bjarnason en hann lést
31.1. 2009. Börn þeirra eru fjög-
ur. 3) Ásgeir Ingvar, f. 8.4. 1960.
Eiginkona hans er Erla Gunn-
laugsdóttir og eiga þau fjögur
börn. 4) Guðni Margeir, f. 8.4.
1960. Eiginkona hans er Júlía
Birna Birgisdóttir og eiga þau
fimm börn.
5) Sölvi, f. 6.5. 1971. Eig-
inkona hans er Sigríður Karls-
dóttir og eiga þau þrjú börn.
Útför Hönnu Sigríðar fer
fram frá Siglufjarðarkirkju í
dag, 1. maí 2021, og hefst at-
höfnin kl. 14.
Elsku mamma.
Það eru margar minningar sem
koma upp þegar ég hugsa til baka.
Þú varst sannkölluð ættmóðir í
stóra hópnum þínum sem þú
fylgdist svo vel með. Og nutum við
góðs af því að vera í mikilli nálægð
við ykkur. Krakkarnir okkar áttu
sitt annað heimili hjá ykkur á
Laugarveginum, þú varst alltaf til
taks fyrir þau og fylgdist náið með
þeim, það var alltaf hægt að fara
til ömmu og fá eitthvað gott að
borða eða nýbakað.
Ógleymanlegar eru allar ferð-
irnar sem við fórum saman bæði
innanlands og utan. Sérstaklega
er mér minnisstæð síðasta ferðin
okkar á áttræðisafmælinu þínu
þegar við fórum um Austfirði þar
sem þú áttir ættir þínar að rekja.
Þú hafðir alltaf sterkar skoðan-
ir á málefnum líðandi stundar og
oft urðu fjörugar umræður í eld-
húsinu á Laugarveginum þegar
við komum í síðdegiskaffið. Það
verður skrítið að geta ekki komið
við og borið undir þig þau málefni
sem eru hverju sinni í leik og í
starfi.
Það var alveg í þínum stíl eins
og þú kenndir mér að standa við
það sem maður segir, þegar þú
sagðir við dánarbeð pabba „ég
kem fljótt til þín“.
Takk fyrir allt.
Þinn sonur,
Sölvi.
Í dag fylgi ég tengdamóður
minni, Hönnu Siggu, til grafar en
hún lést 20. apríl síðastliðinn, ein-
ungis sex mánuðum á eftir manni
sínum, Sölva Guðnasyni, sem lést
7. október 2020. Það kom eigin-
lega ekkert á óvart að stutt yrði á
milli þeirra hjóna því þau fóru
þannig í gegnum lífið, sem spann-
aði 66 ár, saman alla tíð, samhent
og samstíga í stafni á fjölskyldu-
skútunni. Ég vil tileinka tengda-
foreldrum mínum báðum þessar
minningar, þar sem ég hef verið
þeim samhliða í nær 40 ár sem er
langur tími og margs að minnast.
Hanna Sigga og Sölvi voru mik-
ið fyrir sig og sína, heimakær og
sjálfum sér nóg. Fjölskyldan var
þeim mikilvæg og heima á Laug-
arvegi 46 var miðstöð hennar þar
sem allir komu við, börn, tengda-
börn, barnabörn og barnabarna-
börn nú seinni árin.
Ég var 22 ára þegar ég kom inn
í fjölskylduna. Mér var vel tekið
og bjuggum við Ásgeir hjá þeim
fyrstu mánuðina áður en við flutt-
um í eigið húsnæði. Í gegnum árin
höfum við fjölskyldan átt mikla
samleið með Hönnu Siggu og
Sölva og við hvert skref í lífi okkar
og barna okkar hafa þau verið stór
hluti og mikilvægur. Mér er efst í
huga þakklæti fyrir allt sem þau
gerðu fyrir okkur og gáfu okkur í
veganesti sem ungri fjölskyldu að
hefja sinn búskap og á vegferð
okkar öll árin.
Hanna Sigga var alltaf með
kaffi og bakkelsi og urðu engifer-
kökurnar „hennar einkenni“, því
þær töldust ekki til jólasmáköku-
bakstursins, heldur voru þær það
sem börnin öll ólust upp við að fá
hjá ömmu Siggu á Laugarvegin-
um alla daga. Ég fékk handleiðslu
við heimilishaldið og baksturinn
frá tengdamömmu og tók upp
þann sið að baka engiferkökurnar
á mínu heimili til þess að eiga allt-
af eitthvað með kaffinu. Hanna
Sigga gerði líka eitt til margra
ára, sem mér hefur alltaf þótt
mjög skemmtilegt. Hún hélt litla
dagbók, þar sem hún skráði veðrið
þann daginn, daglega og ýmislegt
annað sem henni þótti vert að
nefna þann daginn. Þetta gerði
hún til svo margra ára og gat svo
sagt okkur allt um veðrið þennan
dag fyrir ári síðan og aftur um
nokkur ár. Tengdamóðir mín var
líka einstaklega skemmtilega póli-
tísk, blá í gegn allt sitt líf og voru
umræðurnar oft mjög fjörugar
þegar leið að kosningum, það
verður missir að hennar atkvæði
við næstu kosningar.
Sölvi tengdapabbi var mjög
handlaginn maður og var það fátt
sem hann gat ekki lagað eða
hreinlega búið til sjálfur ef því var
að skipta. Alla tíð var hann að
gera eitthvað heima við hjá sjálf-
um sér eða hjá einhverju okkar.
Hann tók líka svo mikinn þátt í
öllu með strákunum sínum, bæði
hvað varðaði áhugamál þeirra og
lagfæringar á bílum þeirra og
tækjum. Sölvi var fastur fyrir og
ákveðinn en fór alltaf vel í hlutina
þannig að það var gott að eiga
hann að.
Ég bar mikla virðingu fyrir
tengdaforeldrum mínum og
þakka þeim alla þá umhyggju og
hlýhug sem þau hafa sýnt okkur
fjölskyldunni alla tíð. Það mun
taka okkur tíma að venjast þeirri
tilhugsun að nú sé enginn til að
taka á móti okkur á Laugarvegi 46
en minningin lifir í hjörtum okkar.
Hafið þökk fyrir samfylgdina.
Erla Gunnlaugsdóttir.
Í dag kveð ég elsku ömmu
mína, Hönnu Siggu, eða ömmu
Siggu eins og við krakkarnir köll-
uðum hana. Það eru svo ótalmarg-
ar minningar sem koma upp í hug-
ann enda hef ég verið svo heppin
að alla mína tíð hefur samband
okkar ömmu verið gott og sterk
tengsl okkar á milli. Það eru allar
stundirnar í eldhúskróknum á
Laugarveginum sem standa upp
úr og þeirra mun ég sakna gríð-
arlega, alltaf áttum við skjól þar,
bæði sem börn og í seinni tíð. Pip-
arkökur voru bakaðar allan ársins
hring, þær og djúsglas einkenndu
barnæskuna. Þegar líða fór á full-
orðinsárin var það kaffibolli og
eldheitar pólitískar umræður. Ég
sagði það nú oft að það rynni blátt
blóð í æðum hennar ömmu því
heitari sjálfstæðiskonu hef ég
ekki fyrr hitt og skoðunum henn-
ar var ekki haggað. Það voru for-
réttindi að hafa alist upp í mikilli
nánd við ömmu og afa og aldrei
leið langt á milli hittinga eða sím-
tala. Það er skrítið að hugsa til
þess að ekki verði skotist heim á
Laugarveg í kaffi eða hádegishitt-
ing á næstunni. Það var stórt
skarð sem afi skildi eftir sig fyrir
rúmum sex mánuðum og nú er
það skarð orðið mun stærra.
Hann hefur eflaust verið farið að
lengja eftir spúsu sinni og hugga
ég mig við það að þau séu sam-
einuð í sumarlandinu.
Það gefur mér ró í hjartað að
hafa fengið að vera hjá þér, elsku
amma mín, síðustu dagana þína
hér. Ég kveð þig með miklum
söknuði en eins og ég hvíslaði að
þér „þá sjáumst við seinna yfir
kaffibolla“.
Þín Hanna Sigga.
Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að
sér.
Hún heitast þig elskaði og fyrirgaf þér.
Hún ávallt er vörn þín, þinn skjöldur og
hlíf.
Hún er íslenska konan sem ól þig og
helgar sitt líf.
(Ómar Ragnarsson)
Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir.
Elsku amma mín, komið er að
kveðjustund okkar. Mikið sem ég
er þakklát fyrir allar stundirnar
sem við áttum saman. Sem lítil
stelpa var ég svo heppin að alast
upp tveimur húsum frá ykkur afa,
þannig að maður var iðulega að
kíkja inn í alls konar gotterí og
bakkelsi. Það jafnaðist ekkert á
við kökurnar þínar, það var alveg
sérstakt hvernig þér tókst að gera
bestu kökurnar, þú sagðir nú oft
að ekki væri sama hvaða hráefni
væri notað. Varð mér hugsað til
stundarinnar sem við áttum sam-
an nú síðast í desember; sátum í
eldhúskróknum að spjalla og þú
biður mig að rétta þér uppskrifta-
bókina þína. Svo byrjar þú að lesa
upp fyrir mig úr uppskriftabók-
inni en ég hugsa að þú hafir innst
inni verið að segja mér að fara
baka. Hvorug okkar bakaði þessi
jól en ég skal lofa að bæta úr því
næstu jól.
Síðustu ár reyndust þér erfið
elsku amma og allra mest síðasta
hálfa árið eftir að afi kvaddi okk-
ur. Nú eruð þið sameinuð á ný og
ég veit að hann hefur tekið vel á
móti Hönnu sinni.
Við lífsins stiga ætlum að þramma
og þar með okkur verður þú
okkar elsku besta amma.
Okkur þykir lífið svo skrýtið
og margt er svo flókið í heiminum nú.
Þá er alltaf gott að vita
að okkur getur hjálpað þú.
Þú alltaf í huga okkar ert.
Þú hjörtu okkar hefur snert
með góðmennsku og hjartavernd.
Hér og nú ertu heimsins besta amma
nefnd.
Þú ert sem af himnum send.
(Katrín Ruth Þ. 1979)
Elsku amma mín, ég á eftir að
sakna þín.
Þín
Ása Guðrún (Ása Gunna).
Elsku amma mín, þvílík for-
réttindi sem það voru að eiga þig
að og að mitt annað heimili var
Laugarvegur 46. Það klikkaði
nánast aldrei þegar maður kom
hlaupandi upp stigann þá varst þú
með svuntuna á þér í óðaönn í
bakstri eða matargerð og það er
nú bara svoleiðis að það kemur
enginn til með að toppa þig í þeim
málum. Ljúft að hugsa til þess
þegar maður fékk heitar nýbak-
aðar piparkökur sem voru þær
bestu í heimi og kalda mjólk með.
Mér fannst fátt skemmtilegra
en að fá að stússast með þér og
kenndir þú mér svo ótalmargt.
Skiptin eru óteljandi þar sem ég
fékk að hjálpa þér í eldhúsinu og
fannst mér það geggjað, sérstak-
lega þegar eitthvað stóð til og við
vorum að skreyta kökur. Þú lagðir
mikla áherslu á það hversu mik-
ilvægt það væri að standa sig vel í
skólanum og þú varst alltaf svo
áhugasöm um hvernig gengi og
svo innilega ánægð þegar vel gekk
og átti það við um allt sem ég tók
mér fyrir hendur. Gleymi ekki
þegar við fórum á bókasafnið sam-
an og tókum allar Heiðubækurnar
svo ég gæti æft mig að lesa fyrir
þig. Okkur fannst virkilega gam-
an að fara í búðir saman að kaupa
föt og skó, það var líka óskrifuð
regla að þegar ég keypti mér eitt-
hvað nýtt þá kom ég og sýndi þér
það og sagðir þú gjarnan „já þetta
er sko ekkert slor“. Þvílík ævin-
týri öll ferðalögin sem við fórum í
saman, sumarbústaðaferðirnar,
útilegurnar, jólaferðirnar til
Reykjavíkur og allar hinar ferð-
irnar, en 70 ára afmælisferðin þín
til Köben stendur upp úr.
Ég hef alltaf litið svo mikið upp
til þín elsku amma, þú varst alltaf
svo ekta, tvínónaðir ekki við hlut-
ina, hafðir sterkar skoðanir sem
þú fórst ekki leynt með, varst allt-
af til staðar og mikill húmoristi.
Við gátum ekki eytt jafn mikl-
um tíma saman síðustu ár og við
vorum vanar að gera en hringdum
mjög reglulega í hvor aðra og átt-
um svo miklar gæðastundir sam-
an þegar ég kom á Sigló. Við gát-
um eytt mörgum tímum saman að
ræða um allt og ekkert og gera
allt og ekkert, við áttum alveg ein-
stakt samband, fyrir það er ég
þakklát.
Takk fyrir allt, elsku amma
mín, ég á eftir að sakna þín mikið.
Þín
Þórhildur Sölvadóttir.
Hanna Sigríður
Ásgeirsdóttir
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta í yfir 70 ár
Við tökum vel á móti ástvinum
í hlýlegu og fallegu umhverfi
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma,
SALÓME HALLDÓRA MAGNÚSDÓTTIR,
Dóra,
Bólstaðarhlíð 41,
lést þriðjudaginn 20. apríl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Jón Helgason
Helgi Jónsson Hrönn Nielsen
Helga Dóra, Milla, Magnús
Guðlaugur, Jón Andri, Sædís Ósk
langömmubörn og langalangömmubarn
Okkar ástkæra
TINNA BJÖRG KARÍTAS
SIGURBJARGAR OG FINNSDÓTTIR
lést mánudaginn 12. apríl og útförin hefur
farið fram í kyrrþey.
Sigurbjörg Ólafsdóttir Finnur Ellertsson
Sigurbjörg D. Finnsdóttir Gunnar Guðmundsson
Páll O. Finnsson Karen Finnsson
Sunna Sigmarsdóttir
Sól Arnþórsdóttir
Eldur Snær Arnþórsson
Stefán Þór Stefánsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÍSHILDUR ÞRÁ EINARSDÓTTIR
SÖRING,
Hellu,
lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Lundi á
Hellu föstudaginn 23. apríl.
Útförin fer fram í kyrrþey.
Birna Borg Sigurgeirsdóttir
Íris Björk Sigurðardóttir Guðbjörn Sv. Ingvarsson
Sigurborg Hulda S. Söring Gunnar Hólm Jóhannsson
Torfi Sigurðsson Olga Kristjánsdóttir
Guðný Söring Sigurðardóttir
Hafdís Sigurðardóttir Leifur Bjarki Björnsson
Ævar Svan Sigurðsson Ragnheiður Gísladóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir, dóttir,
tengdadóttir, systir, mágkona og frænka,
STEFANÍA ANNA SVEINSDÓTTIR
HOSKINS,
andaðist á sjúkrahúsi í Southend á Englandi
þriðjudaginn 27. apríl.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu.
Chris Hoskins
Lilia Mey Hoskins Henry Freyr Hoskins
Sveinn Árnason
Stella Aðalsteinsdóttir
Bob Hoskins Sally Hoskins
Elín Hildur Sveinsdóttir Ragnar Guðmundsson
Eva Steinunn Sveinsdóttir Þorvarður Sigurbjörnsson
Jóhann Sveinmar Hákonars. Sigríður Kristinsdóttir
Aðalsteinn Hákonarson Elínborg Valsdóttir
Inga Birna Hákonardóttir
Þórveig Hákonardóttir Guðmundur Ólafsson
og systkinabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ANNA MARÍA BALDVINSDÓTTIR,
Frostafold 14,
lést á Landspítalalnum Fossvogi
laugardaginn 24. apríl. Útförin mun fara
fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 11. maí klukkan 13.
Hrafn Karlsson
Karen Ósk Hrafnsdóttir Jón H. Clausen Gunnlaugss.
Baldvin Hrafnsson Guðleif Sunna Sævarsdóttir
Sæþór Árni Hrafnsson
Elfa Dögg Hrafnsdóttir Höskuldur Páll Hjaltalín
barnabörn og barnabarnabarn