Morgunblaðið - 01.05.2021, Page 40

Morgunblaðið - 01.05.2021, Page 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021 ✝ Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir fæddist á Siglufirði 2. júní 1937. Hún lést á Heilbrigð- isstofnun Fjalla- byggðar 20. apríl 2021. Foreldrar Hönnu Sigríðar voru hjón- in Guðrún Hafliða- dóttir húsfreyja, f. 16.9. 1916, d. 1.1. 2000, og Ásgeir Gunnarsson vél- stjóri, f. 21.4. 1912, d. 1. 11. 1985. Hanna Sigga, eins og hún var alltaf kölluð, ólst upp á Siglu- firði, næstelst í sjö barna systk- inahópi. Systkinin voru Hafliði Sigurðsson, f. 24.6. 1932, d. 22.9. 2000, Ásdís Björg Ásgeirsdóttir, f. 4.6. 1941, d. 25.11. 2013, Gunn- ar Ásgeirsson, f. 20.11. 1942, d. 1.10. 2010, Guðbjörg Ásgeirs- dóttir, f. 11.7. 1945, Pétur Ás- geirsson, f. 21.12. 1948, og Jón Ásgeirsson, f. 31.10. 1954. Hanna Sigríður var gift Sölva Guðnasyni, f. 27.10. 1935, d. 7.10. 2020. Hann var sonur hjónanna Guðna Brynjólfssonar, f. 18.5. 1903, d. 31.5. 1985, og Þórhildar Sölva- dóttur, f. 29.2. 1912, d. 20.7. 1995 Börn Hönnu Sig- ríðar og Sölva eru fimm: 1) Guðný Þór- hildur, f. 14.9.1954. Eigninmaður henn- ar er Sverrir Jóns- son og eiga þau þrjú börn. 2) Guð- rún Ásgerður, f. 18.12.1955. Eig- inmaður hennar var Óttar Bjarkan Bjarnason en hann lést 31.1. 2009. Börn þeirra eru fjög- ur. 3) Ásgeir Ingvar, f. 8.4. 1960. Eiginkona hans er Erla Gunn- laugsdóttir og eiga þau fjögur börn. 4) Guðni Margeir, f. 8.4. 1960. Eiginkona hans er Júlía Birna Birgisdóttir og eiga þau fimm börn. 5) Sölvi, f. 6.5. 1971. Eig- inkona hans er Sigríður Karls- dóttir og eiga þau þrjú börn. Útför Hönnu Sigríðar fer fram frá Siglufjarðarkirkju í dag, 1. maí 2021, og hefst at- höfnin kl. 14. Elsku mamma. Það eru margar minningar sem koma upp þegar ég hugsa til baka. Þú varst sannkölluð ættmóðir í stóra hópnum þínum sem þú fylgdist svo vel með. Og nutum við góðs af því að vera í mikilli nálægð við ykkur. Krakkarnir okkar áttu sitt annað heimili hjá ykkur á Laugarveginum, þú varst alltaf til taks fyrir þau og fylgdist náið með þeim, það var alltaf hægt að fara til ömmu og fá eitthvað gott að borða eða nýbakað. Ógleymanlegar eru allar ferð- irnar sem við fórum saman bæði innanlands og utan. Sérstaklega er mér minnisstæð síðasta ferðin okkar á áttræðisafmælinu þínu þegar við fórum um Austfirði þar sem þú áttir ættir þínar að rekja. Þú hafðir alltaf sterkar skoðan- ir á málefnum líðandi stundar og oft urðu fjörugar umræður í eld- húsinu á Laugarveginum þegar við komum í síðdegiskaffið. Það verður skrítið að geta ekki komið við og borið undir þig þau málefni sem eru hverju sinni í leik og í starfi. Það var alveg í þínum stíl eins og þú kenndir mér að standa við það sem maður segir, þegar þú sagðir við dánarbeð pabba „ég kem fljótt til þín“. Takk fyrir allt. Þinn sonur, Sölvi. Í dag fylgi ég tengdamóður minni, Hönnu Siggu, til grafar en hún lést 20. apríl síðastliðinn, ein- ungis sex mánuðum á eftir manni sínum, Sölva Guðnasyni, sem lést 7. október 2020. Það kom eigin- lega ekkert á óvart að stutt yrði á milli þeirra hjóna því þau fóru þannig í gegnum lífið, sem spann- aði 66 ár, saman alla tíð, samhent og samstíga í stafni á fjölskyldu- skútunni. Ég vil tileinka tengda- foreldrum mínum báðum þessar minningar, þar sem ég hef verið þeim samhliða í nær 40 ár sem er langur tími og margs að minnast. Hanna Sigga og Sölvi voru mik- ið fyrir sig og sína, heimakær og sjálfum sér nóg. Fjölskyldan var þeim mikilvæg og heima á Laug- arvegi 46 var miðstöð hennar þar sem allir komu við, börn, tengda- börn, barnabörn og barnabarna- börn nú seinni árin. Ég var 22 ára þegar ég kom inn í fjölskylduna. Mér var vel tekið og bjuggum við Ásgeir hjá þeim fyrstu mánuðina áður en við flutt- um í eigið húsnæði. Í gegnum árin höfum við fjölskyldan átt mikla samleið með Hönnu Siggu og Sölva og við hvert skref í lífi okkar og barna okkar hafa þau verið stór hluti og mikilvægur. Mér er efst í huga þakklæti fyrir allt sem þau gerðu fyrir okkur og gáfu okkur í veganesti sem ungri fjölskyldu að hefja sinn búskap og á vegferð okkar öll árin. Hanna Sigga var alltaf með kaffi og bakkelsi og urðu engifer- kökurnar „hennar einkenni“, því þær töldust ekki til jólasmáköku- bakstursins, heldur voru þær það sem börnin öll ólust upp við að fá hjá ömmu Siggu á Laugarvegin- um alla daga. Ég fékk handleiðslu við heimilishaldið og baksturinn frá tengdamömmu og tók upp þann sið að baka engiferkökurnar á mínu heimili til þess að eiga allt- af eitthvað með kaffinu. Hanna Sigga gerði líka eitt til margra ára, sem mér hefur alltaf þótt mjög skemmtilegt. Hún hélt litla dagbók, þar sem hún skráði veðrið þann daginn, daglega og ýmislegt annað sem henni þótti vert að nefna þann daginn. Þetta gerði hún til svo margra ára og gat svo sagt okkur allt um veðrið þennan dag fyrir ári síðan og aftur um nokkur ár. Tengdamóðir mín var líka einstaklega skemmtilega póli- tísk, blá í gegn allt sitt líf og voru umræðurnar oft mjög fjörugar þegar leið að kosningum, það verður missir að hennar atkvæði við næstu kosningar. Sölvi tengdapabbi var mjög handlaginn maður og var það fátt sem hann gat ekki lagað eða hreinlega búið til sjálfur ef því var að skipta. Alla tíð var hann að gera eitthvað heima við hjá sjálf- um sér eða hjá einhverju okkar. Hann tók líka svo mikinn þátt í öllu með strákunum sínum, bæði hvað varðaði áhugamál þeirra og lagfæringar á bílum þeirra og tækjum. Sölvi var fastur fyrir og ákveðinn en fór alltaf vel í hlutina þannig að það var gott að eiga hann að. Ég bar mikla virðingu fyrir tengdaforeldrum mínum og þakka þeim alla þá umhyggju og hlýhug sem þau hafa sýnt okkur fjölskyldunni alla tíð. Það mun taka okkur tíma að venjast þeirri tilhugsun að nú sé enginn til að taka á móti okkur á Laugarvegi 46 en minningin lifir í hjörtum okkar. Hafið þökk fyrir samfylgdina. Erla Gunnlaugsdóttir. Í dag kveð ég elsku ömmu mína, Hönnu Siggu, eða ömmu Siggu eins og við krakkarnir köll- uðum hana. Það eru svo ótalmarg- ar minningar sem koma upp í hug- ann enda hef ég verið svo heppin að alla mína tíð hefur samband okkar ömmu verið gott og sterk tengsl okkar á milli. Það eru allar stundirnar í eldhúskróknum á Laugarveginum sem standa upp úr og þeirra mun ég sakna gríð- arlega, alltaf áttum við skjól þar, bæði sem börn og í seinni tíð. Pip- arkökur voru bakaðar allan ársins hring, þær og djúsglas einkenndu barnæskuna. Þegar líða fór á full- orðinsárin var það kaffibolli og eldheitar pólitískar umræður. Ég sagði það nú oft að það rynni blátt blóð í æðum hennar ömmu því heitari sjálfstæðiskonu hef ég ekki fyrr hitt og skoðunum henn- ar var ekki haggað. Það voru for- réttindi að hafa alist upp í mikilli nánd við ömmu og afa og aldrei leið langt á milli hittinga eða sím- tala. Það er skrítið að hugsa til þess að ekki verði skotist heim á Laugarveg í kaffi eða hádegishitt- ing á næstunni. Það var stórt skarð sem afi skildi eftir sig fyrir rúmum sex mánuðum og nú er það skarð orðið mun stærra. Hann hefur eflaust verið farið að lengja eftir spúsu sinni og hugga ég mig við það að þau séu sam- einuð í sumarlandinu. Það gefur mér ró í hjartað að hafa fengið að vera hjá þér, elsku amma mín, síðustu dagana þína hér. Ég kveð þig með miklum söknuði en eins og ég hvíslaði að þér „þá sjáumst við seinna yfir kaffibolla“. Þín Hanna Sigga. Hún bar þig í heiminn og hjúfraði að sér. Hún heitast þig elskaði og fyrirgaf þér. Hún ávallt er vörn þín, þinn skjöldur og hlíf. Hún er íslenska konan sem ól þig og helgar sitt líf. (Ómar Ragnarsson) Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir. Elsku amma mín, komið er að kveðjustund okkar. Mikið sem ég er þakklát fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Sem lítil stelpa var ég svo heppin að alast upp tveimur húsum frá ykkur afa, þannig að maður var iðulega að kíkja inn í alls konar gotterí og bakkelsi. Það jafnaðist ekkert á við kökurnar þínar, það var alveg sérstakt hvernig þér tókst að gera bestu kökurnar, þú sagðir nú oft að ekki væri sama hvaða hráefni væri notað. Varð mér hugsað til stundarinnar sem við áttum sam- an nú síðast í desember; sátum í eldhúskróknum að spjalla og þú biður mig að rétta þér uppskrifta- bókina þína. Svo byrjar þú að lesa upp fyrir mig úr uppskriftabók- inni en ég hugsa að þú hafir innst inni verið að segja mér að fara baka. Hvorug okkar bakaði þessi jól en ég skal lofa að bæta úr því næstu jól. Síðustu ár reyndust þér erfið elsku amma og allra mest síðasta hálfa árið eftir að afi kvaddi okk- ur. Nú eruð þið sameinuð á ný og ég veit að hann hefur tekið vel á móti Hönnu sinni. Við lífsins stiga ætlum að þramma og þar með okkur verður þú okkar elsku besta amma. Okkur þykir lífið svo skrýtið og margt er svo flókið í heiminum nú. Þá er alltaf gott að vita að okkur getur hjálpað þú. Þú alltaf í huga okkar ert. Þú hjörtu okkar hefur snert með góðmennsku og hjartavernd. Hér og nú ertu heimsins besta amma nefnd. Þú ert sem af himnum send. (Katrín Ruth Þ. 1979) Elsku amma mín, ég á eftir að sakna þín. Þín Ása Guðrún (Ása Gunna). Elsku amma mín, þvílík for- réttindi sem það voru að eiga þig að og að mitt annað heimili var Laugarvegur 46. Það klikkaði nánast aldrei þegar maður kom hlaupandi upp stigann þá varst þú með svuntuna á þér í óðaönn í bakstri eða matargerð og það er nú bara svoleiðis að það kemur enginn til með að toppa þig í þeim málum. Ljúft að hugsa til þess þegar maður fékk heitar nýbak- aðar piparkökur sem voru þær bestu í heimi og kalda mjólk með. Mér fannst fátt skemmtilegra en að fá að stússast með þér og kenndir þú mér svo ótalmargt. Skiptin eru óteljandi þar sem ég fékk að hjálpa þér í eldhúsinu og fannst mér það geggjað, sérstak- lega þegar eitthvað stóð til og við vorum að skreyta kökur. Þú lagðir mikla áherslu á það hversu mik- ilvægt það væri að standa sig vel í skólanum og þú varst alltaf svo áhugasöm um hvernig gengi og svo innilega ánægð þegar vel gekk og átti það við um allt sem ég tók mér fyrir hendur. Gleymi ekki þegar við fórum á bókasafnið sam- an og tókum allar Heiðubækurnar svo ég gæti æft mig að lesa fyrir þig. Okkur fannst virkilega gam- an að fara í búðir saman að kaupa föt og skó, það var líka óskrifuð regla að þegar ég keypti mér eitt- hvað nýtt þá kom ég og sýndi þér það og sagðir þú gjarnan „já þetta er sko ekkert slor“. Þvílík ævin- týri öll ferðalögin sem við fórum í saman, sumarbústaðaferðirnar, útilegurnar, jólaferðirnar til Reykjavíkur og allar hinar ferð- irnar, en 70 ára afmælisferðin þín til Köben stendur upp úr. Ég hef alltaf litið svo mikið upp til þín elsku amma, þú varst alltaf svo ekta, tvínónaðir ekki við hlut- ina, hafðir sterkar skoðanir sem þú fórst ekki leynt með, varst allt- af til staðar og mikill húmoristi. Við gátum ekki eytt jafn mikl- um tíma saman síðustu ár og við vorum vanar að gera en hringdum mjög reglulega í hvor aðra og átt- um svo miklar gæðastundir sam- an þegar ég kom á Sigló. Við gát- um eytt mörgum tímum saman að ræða um allt og ekkert og gera allt og ekkert, við áttum alveg ein- stakt samband, fyrir það er ég þakklát. Takk fyrir allt, elsku amma mín, ég á eftir að sakna þín mikið. Þín Þórhildur Sölvadóttir. Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Við tökum vel á móti ástvinum í hlýlegu og fallegu umhverfi Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, SALÓME HALLDÓRA MAGNÚSDÓTTIR, Dóra, Bólstaðarhlíð 41, lést þriðjudaginn 20. apríl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Jón Helgason Helgi Jónsson Hrönn Nielsen Helga Dóra, Milla, Magnús Guðlaugur, Jón Andri, Sædís Ósk langömmubörn og langalangömmubarn Okkar ástkæra TINNA BJÖRG KARÍTAS SIGURBJARGAR OG FINNSDÓTTIR lést mánudaginn 12. apríl og útförin hefur farið fram í kyrrþey. Sigurbjörg Ólafsdóttir Finnur Ellertsson Sigurbjörg D. Finnsdóttir Gunnar Guðmundsson Páll O. Finnsson Karen Finnsson Sunna Sigmarsdóttir Sól Arnþórsdóttir Eldur Snær Arnþórsson Stefán Þór Stefánsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÍSHILDUR ÞRÁ EINARSDÓTTIR SÖRING, Hellu, lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Lundi á Hellu föstudaginn 23. apríl. Útförin fer fram í kyrrþey. Birna Borg Sigurgeirsdóttir Íris Björk Sigurðardóttir Guðbjörn Sv. Ingvarsson Sigurborg Hulda S. Söring Gunnar Hólm Jóhannsson Torfi Sigurðsson Olga Kristjánsdóttir Guðný Söring Sigurðardóttir Hafdís Sigurðardóttir Leifur Bjarki Björnsson Ævar Svan Sigurðsson Ragnheiður Gísladóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, dóttir, tengdadóttir, systir, mágkona og frænka, STEFANÍA ANNA SVEINSDÓTTIR HOSKINS, andaðist á sjúkrahúsi í Southend á Englandi þriðjudaginn 27. apríl. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hluttekningu. Chris Hoskins Lilia Mey Hoskins Henry Freyr Hoskins Sveinn Árnason Stella Aðalsteinsdóttir Bob Hoskins Sally Hoskins Elín Hildur Sveinsdóttir Ragnar Guðmundsson Eva Steinunn Sveinsdóttir Þorvarður Sigurbjörnsson Jóhann Sveinmar Hákonars. Sigríður Kristinsdóttir Aðalsteinn Hákonarson Elínborg Valsdóttir Inga Birna Hákonardóttir Þórveig Hákonardóttir Guðmundur Ólafsson og systkinabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA MARÍA BALDVINSDÓTTIR, Frostafold 14, lést á Landspítalalnum Fossvogi laugardaginn 24. apríl. Útförin mun fara fram frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 11. maí klukkan 13. Hrafn Karlsson Karen Ósk Hrafnsdóttir Jón H. Clausen Gunnlaugss. Baldvin Hrafnsson Guðleif Sunna Sævarsdóttir Sæþór Árni Hrafnsson Elfa Dögg Hrafnsdóttir Höskuldur Páll Hjaltalín barnabörn og barnabarnabarn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.