Morgunblaðið - 01.05.2021, Síða 41
MINNINGAR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021
✝
Ingibjörg Jó-
hannesdóttir
fæddist 9. janúar
1939 í Nólsey í
Færeyjum. Hún
lést á líknardeild
Landspítalans 28.
mars 2021.
Foreldrar henn-
ar voru Bærent
Johannesen og
Jenný Karolína
María Johannesen.
Systkini Ingibjargar eru Odd-
mar, Guðrún, Bærent og Ma-
rita.
Fyrri eiginmaður Ingibjarg-
ar var Gunnar Andrésson, f.
26. maí 1935. Hann lést 29.
úar 1978, maki Atli Sævarsson,
f. 20. febrúar 1981. Barna-
börnin eru ellefu og barna-
barnabörn sex talsins.
Ingibjörg ólst upp í Kolla-
firði í Færeyjum en flutti til Ís-
lands árið 1955, þá 16 ára
gömul. Hún fór þá að vinna á
Landakotsspítala. Eftir andlát
Gunnars, fyrri eiginmanns
síns, fór Ingibjörg í Gagn-
fræðaskóla Garðahrepps til að
taka gagnfræðapróf og í fram-
haldinu hóf hún nám í Hjúkr-
unarskóla Íslands. Hún útskrif-
aðist sem hjúkrunarfræðingur
árið 1973. Ingibjörg hafði alla
tíð mikinn áhuga og ánægju af
starfi sínu. Hún starfaði meðal
annars á slysadeild Borgarspít-
ala, Vífilsstöðum og St. Jós-
efsspítala í Hafnarfirði.
Útför Ingibjargar fór fram í
Fossvogskirkju 7. apríl að við-
stöddum nánustu aðstand-
endum.
maí 1969. Börn
þeirra eru: 1)
Jenný, f. 1. mars
1957, maki Þor-
valdur Sigurðsson,
f. 21. júní 1956. 2)
Gunnar Brynj-
ólfur, f. 26. sept-
ember 1960, maki
Sólveig Sigurð-
ardóttir, f. 25.
mars 1985. 3)
Bjarney Margrét,
f. 28. mars 1962, maki Guð-
mundur Gíslason, f. 2. júní
1962. Seinni eiginmaður Ingi-
bjargar er Sveinn Ingólfsson,
f. 14. desember 1940. Dóttir
þeirra er Bryndís, f. 16. febr-
Nú þegar við kveðjum Ingi-
björgu Jóhannesdóttur kemur
fyrst upp í huga manns kraftur,
dugnaður og gleði.
Ingibjörg fæddist og ólst upp
í Færeyjum, en kom sem ung
stúlka til Íslands til að vinna.
Hún festi rætur hér þegar hún
kynntist ungum manni, Gunnari
Andréssyni, og giftu þau sig og
stofnuðu heimili. En mótlætið
var ekki langt undan því Gunn-
ar veiktist og lést aðeins 34 ára
að aldri og var hún því orðin
ekkja þrítug. Í stað þess að
bogna þegar hún var orðin ein
með þrjú lítil börn setti hún í
kraftgírinn og ákvað að besta
leiðin til að klára það verkefni
sem hún stóð nú frammi fyrir
væri að mennta sig samhliða
barnauppeldinu til að eiga auð-
veldara með að koma börnun-
um til manns sem henni tókst
með sóma. Ég held að hún hafi
aldrei tekið úr gírnum, því
sjaldan féll henni verk úr hendi.
Seinna kynntist Ingibjörg eft-
irlifandi eiginmanni sínum,
Sveini Ingólfssyni, og eignuðust
þau eina dóttur saman.
Það var aldrei nein lognmolla
i kringum Ingibjörgu og var
hún óhrædd við að prófa eitt-
hvað nýtt. Þegar börnin voru
flogin úr hreiðrinu gafst meiri
tími til tómstundaiðkunar og
nýttu þau hjón sér ýmislegt
sem í boði var. Þau lærðu á
skíði og fóru í skíðaferðir til út-
landa og þó svo að í upphafi
hafi hún fengið einstaka sinnum
skrokkskjóðu og jafnvel bein-
brot, þá sá hún enga ástæðu til
að hætta, því þetta var svo
gaman. Það var líka farið á
golfnámskeið og í golfferðir og
þar var hvorki „hook né slice“.
Þegar hún var að lýsa hversu
skemmtilegt þetta var og hvatti
okkur til að prófa var gjarnan
viðkvæðið hjá henni „það er
aldrei of seint að byrja“. Hún
var alla tíð tilbúin að prófa eitt-
hvað nýtt.
Ingibjörg fylgdist vel með
hvað afkomendurnir tóku sér
fyrir hendur, hvort sem var í
námi eða starfi og gladdist inni-
lega yfir velgengni þeirra.
Sama átti við um vinina og
þeirra afkomendur, alltaf
spurði hún hvað hinn eða þessi
var að gera.
Við höfum orðið þess aðnjót-
andi að eiga margar skemmti-
legar stundir með Ingibjörgu
og Sveini í alls konar veislum
og hittingi, auk þess að spila
með þeim golf. Þessar samveru-
stundir voru fullar af jákvæðni
og gleði sem var svo ríkur eig-
inleiki í fari Ingibjargar.
Við þökkum Ingibjörgu sam-
ferðina og kveðjum hana með
söknuði.
Elsku Sveinn, Jenný, Binni,
Baddý, Bryndís og fjölskyldur,
okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Martha og Snorri.
„Lífið er of stutt til að vera
ósátt.“ Þessi setning sem þú
sagðir einhvern tímann ákveðin
við okkur pabba í eldhúsinu í
Aratúninu lýsir þér svo vel, og
hún er svo sönn og góð, og ég
man hana alltaf þótt ég hafi
bara verið unglingur og muni
ekkert lengur um hvað við
pabbi vorum að þrátta. En
þetta var einn af ótal góðum
hlutum sem þú kenndir mér og
hinu fólkinu í kringum þig.
Þú náðir á einstakan hátt til
fólks með hlýju þinni og ró og
sama hvað dundi á þá leistu
alltaf á björtu hliðarnar. Stund-
um er sagt að fólk horfi á lífið
annaðhvort með glasið hálftómt
eða hálffullt. Hjá þér var glasið
einfaldlega yfirfullt.
Alltaf varstu jákvæð, dugleg
og drífandi en líka ákveðin og
umhyggjusöm við okkur öll. Þú
elskaðir að taka til hendinni og
þegar þú komst í heimsókn til
okkar vildir þú helst ekki sitja
bara og drekka kaffi heldur
spurðir alltaf hvað þú gætir
gert, þú vildir fá þvott til að
brjóta saman, taka til í eldhús-
inu eða fá að fara yfir gólfin.
Þú elskaðir að prófa eitthvað
nýtt og hræddist aldrei neitt.
Hverjum öðrum en þér dytti til
dæmis í hug að byrja að fara á
svigskíði í fyrsta skipti á ævinni
komin yfir sextugt? Þú naust
þess í botn að fara í skíðaferðir
og svo síðar í golfferðir til út-
landa með pabba. Þannig varst
þú nefnilega, þér fannst allt
spennandi og gaman.
Þú hreyfðir þig mikið og
varst mikill talsmaður hollra
lífshátta, bæði fyrir þig og fólk-
ið í kringum þig. Best fannst
þér að fara út og ganga rösk-
lega í roki og rigningu, það var
svo hressandi. Þú stundaðir alla
tíð leikfimi og göngur og undir
það síðasta fórstu daglega í
göngur og útitækin við sjóinn í
Garðabænum í hvaða veðri sem
var þrátt fyrir veikindin. Þegar
þú lást á spítalanum fárveik
undir það síðasta hvattir þú
mig eindregið til að gera slíkt
hið sama.
Þegar barnabörnin og vinir
þeirra komu hjólandi í heim-
sókn til ykkar pabba í Aratúnið
varstu í essinu þínu. Þau fengu
að sjálfsögðu hollustuveitingar
hjá ömmu, nýbakað súrdeigs-
brauð, svokallað ömmubrauð,
skyr og fleira góðgæti. Þetta
voru ómetanlegar stundir fyrir
þau.
Fallega brosið þitt er það
sem kemur upp í hugann þegar
ég hugsa til þín einfaldlega af
því þú varst alltaf brosandi. Þú
sóttir mig brosandi í leikskól-
ann þegar ég var barn og veif-
aðir sömuleiðis alltaf brosandi í
dyragættinni þegar við fjöl-
skyldan vorum búin að vera í
heimsókn hjá ykkur pabba í
Aratúni.
Elsku besta fallega mamma.
Sársaukinn sem fylgir því að
þurfa að kveðja þig nístir lík-
ama og sál en um leið er ég svo
þakklát fyrir að eiga þig sem
mömmu. Það verður öðruvísi að
takast á við lífið núna og geta
ekki hitt þig og spjallað við þig
en ég veit að þú ert hjá okkur
þótt við sjáum þig ekki lengur.
Bryndís
Sveinsdóttir.
Ingibjörg
Jóhannesdóttir
Yndislegri mann-
eskju en hana
ömmu mína er vart
hægt að hugsa sér.
Hún var hlý, hugulsöm og hugs-
aði einstaklega vel um okkur
fjölskylduna sína. Ein mesta
gæfa sem mér hefur hlotnast í
lífinu var að fá að vera mikið hjá
ömmu minni sem barn. Frá
minni fyrstu tíð gátum við hleg-
ið mikið saman að öllu mögulegu
og sér í lagi þegar hún las fyrir
mig á kvöldin.
Það er aðdáunarvert hvað
amma mín lifði lífi sínu vel og
farsællega. Hún kynntist afa
mínum, Oddi Benediktssyni,
þegar hún var 19 ára gömul. Afi
var þá 16 ára. Hann sá hana úti
á miðjum akri þar sem hún var
kaupakona á Ármúla í Ísafjarð-
ardjúpi, og var það ást við
fyrstu sýn. Upp frá því byrjaði
þeirra fallega ástarsaga og voru
þau gift í yfir 56 ár, eignuðust 4
börn og 16 barnabörn. Þau voru
bæði hörkudugleg, ósérhlífin og
áorkuðu miklu í lífinu. Amma
hafði metnað og var mjög
Bryndís Alma
Brynjólfsdóttir
✝
Bryndís Alma
Brynjólfsdóttir
fæddist 4. nóv-
ember 1932. Hún
lést 13. apríl 2021.
Jarðarför Bryndís-
ar Ölmu fór fram
20. apríl 2021.
greind. Hún tók
námskeið til að fá
sjúkraliðamenntun
til að fá meiri
ábyrgð þar sem
hún vann á Sjálfs-
björg, sem hún
gerði. Hún sagði
okkur frá því að
þegar kom að loka-
prófinu hefði hún
ekki viljað líta út
fyrir að vera of góð,
svo hún svaraði einni spurning-
unni vitlaust viljandi til að fá
ekki fullkomna einkunn. Svona
var hún amma mín hógvær.
Árið 1975 fluttu afi og amma í
húsið sitt sem þau byggðu í
Seljahverfinu. Amma eldaði allt-
af hádegismat og kvöldmat
handa afa og þeim sem stopp-
uðu þar af börnunum og barna-
börnunum. Hún hélt alltaf hús-
inu hreinu svo það var til
fyrirmyndar.
Á mínum unglingsárum var
mjög gaman að koma í heim-
sókn til ömmu og sitja í eldhús-
inu og spjalla um hitt og þetta.
Alltaf bauð hún mér upp á alls
konar góðgæti sem hún hafði
eldað eða bakað, og stundum
sagði hún upp úr þurru: „Ég
ætla að hræra upp í pönnsur!“
Hálftíma seinna var hún búin að
baka stafla af pönnukökum áður
en afi kom heim í kaffi. Þau
voru svo sæt saman og það var
svo augljóst hvað þau nutu þess
að hugsa vel um hvort annað.
Þau höfðu bæði gaman af garð-
yrkju og áttu stóran og fallegan
garð í kringum húsið sem þau
hugsuðu einstaklega vel um.
Þau höfðu bæði gaman af öllu
sem viðkom jólunum, hvort sem
það voru gjafakaup eða jólamat-
urinn. Við áttum flest jólin okk-
ar með þeim í húsinu þeirra og
ólst ég upp við að sjá afa og
ömmu skreyta saman fyrir jólin
og leggja síðustu hönd á jóla-
matreiðsluna þegar við mættum
kl. 18 á aðfangadag. Þá voru þau
búin að vera að elda saman í
marga klukkutíma, afi forréttinn
og amma aðalréttinn yfirleitt.
Um miðjan níunda áratuginn
opnaði amma sólbaðstofu á neðri
hæð hússins. Hún rak fyrirtækið
samhliða því að hugsa um heim-
ilið og fjölskylduna, og gerði
bæði með sóma.
Amma mín hafði ákaflega
gaman af því að ferðast og fór í
verslunarferðir, og einnig til
framandi landa með móður
minni. Ferðuðust þær meðal
annars til Brasilíu og Suður-Afr-
íku. Ég fór í nokkrar verslunar-
ferðir með henni á unglingsár-
unum og var hún mjög
skemmtilegur ferðafélagi. Hún
var líka sérlega smekkleg kona
og hafði gott auga fyrir sniðum,
efnum og gæðum.
Afi minn lést í júlí 2013 og við
huggum okkur við að þau eru
saman á ný. Guð geymi þig
amma mín.
Hulda Jenný
Kjartansdóttir.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÁSLAUG HULDA ÓLAFSDÓTTIR,
Ása,
Kirkjuvegi 1, Keflavík,
lést á Hrafnistu Hlévangi föstudaginn
23. apríl. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 4. maí
klukkan 13. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu
aðstandendur vera viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður
streymt á https://www.facebook.com/groups/aslaughulda.
Þökkum starfsfólki Hlévangs fyrir einstaka umönnun og hlýtt
viðmót.
Hermann Helgason
Valdís Þórarinsdóttir
Elín H. Hermannsdóttir Skúli S. Ásgeirsson
Margrét Hermannsdóttir Kristinn Ómar Herbertsson
Ólafur P. Hermannsson Líney Bergsteinsdóttir
Már Hermannsson Sigurbjörg Jóhannesdóttir
Hermann Hermannsson Guðbjörg Inga Guðmundsd.
Úlfar Hermannsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
ERLA M. OLSEN,
Faxabraut 13, Reykjanesbæ,
lést á Hrafnistu Hlévangi föstudaginn
23. apríl. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
miðvikudaginn 5. maí klukkan 13.
Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera
viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á
https://www.facebook.com/groups/erlaolsen.
Laufey Dagmar Jónsdóttir
Fanney Bjarnadóttir Gunnólfur Árnason
Ólafur Birgir Bjarnason Ragnheiður Ragnarsdóttir
Aðalheiður Bjarnadóttir Leifur Kristjánsson
Olga Sædís Bjarnadóttir Guðni Sigurðsson
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn
Ástkær sonur, bróðir og frændi,
ÞJÓÐBJÖRN JÓHANNSSON,
Háengi 6, Selfossi,
lést á heimili sínu sunnudaginn 25. apríl.
Útför hans fer fram frá Akraneskirkju
fimmtudaginn 6. maí klukkan 13.
Vegna fjöldatakmarkana verða aðeins nánustu ættingjar og vinir
viðstaddir útförina, en henni verður einnig streymt á heimasíðu
Akraneskirkju, www.akraneskirkja.is.
Guðríður Hannesdóttir Jóhann Þóroddsson
Valgerður Jóhannsdóttir Saikou Badjie
Rannveig Jóhannsdóttir Sigurbrandur Jakobsson
og fjölskylda
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
MATTHILDUR INGVARSDÓTTIR,
Matta á Bjargi,
Lóulandi 9, Garði,
lést á heimili sínu mánudaginn 26. apríl.
Útförin fer fram frá Útskálakirkju fimmtudaginn 6. maí klukkan
13. Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur vera
viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á
https://www.facebook.com/groups/matthilduringvarsdottir.
Magnús Þór Magnússon
Einar Jón Pálsson Hildur Hauksdóttir
Elmar Þór Magnússon Helga Andersen
Harpa Lind Magnúsdóttir
Sigmar Viðar Magnússon
Ingibjörg María Ólafsdóttir Sveinn H. Zophoníasson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur sonur okkar, bróðir, mágur og
frændi,
L. EMIL ÓLAFSSON,
sem lést sunnudaginn 18. apríl, verður
jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn
3. maí klukkan 15.
Anna J. Hallgrímsdóttir Jóhannes B. Helgason
Ólafur Emilsson Sigrún Ragna Jónsdóttir
Hrefna Björk, Harpa Dís, Anna Sara
Hallgrímur, Ásdís Elva, Ísabella Ýrr, Kormákur Logi
Líney, Hafþór, Anna Karólína
Hildur, Díana Lilja, Mikael Darri, Jökull Ólafur