Morgunblaðið - 01.05.2021, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 01.05.2021, Qupperneq 46
46 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021 Fæst í apótekum, heilsuhúsum og heilsuhillum stórverslanna. Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þú átt þína stuðningsmenn og veist að þú mátt ekki bregðast þeim í neinu, hvað sem á dynur. Hikaðu ekki við að sýna tilfinn- ingar þínar. 20. apríl - 20. maí + Naut Vita skaltu að það dugir ekki að sitja með hendur í skauti og halda að lífið leiti þig uppi. Þú verður að taka frumkvæðið og keyra allt í gang. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Fátt er eins ömurlegt og að sitja fastur í úreltum skoðunum. Lærðu af reynslunni og mundu að ekki hafa allir sömu kímnigáfu og þú. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Glíman við hið óþekkta ber alltaf ár- angur ef menn ekki gefast upp of snemma. Dagurinn í dag er einn af þessum dögum þegar þú getur ekki stillt þig um að taka upp veskið. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Vertu ekki niðurdregin/n þótt ekki gangi allir hlutir upp hjá þér. Leyfðu lífinu að leiða þig áfram í átt að því sem á að verða. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Vinur reynist þér vel, reyndu að gera eitthvað fyrir hann á móti. Lausn á ráðgátu er innan seilingar. 23. sept. - 22. okt. k Vog Leggðu þig fram um að hitta annað fólk í dag, sérstaklega systkini þín. Haltu ró þinni hvað sem á dynur. Gefðu þér tíma til þess að sinna áhugamálunum. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Vertu ekki stygg/ur þótt eitt- hvað tefji verkefni þitt því þú hefur í svo margt annað að grípa á meðan. Sýndu skynsemi í peningamálum. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Alvaran hefur ráðið ríkjum hjá þér og nú er orðið tímabært að þú veitir svolítilli gleði inn í líf þitt. Fólk sem þú lítur upp til tekur skyndilega eftir þér. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þótt sigurinn sé sætur skaltu varast að velta þér upp úr honum því í ann- an tíma getur þú verið sá sem tapar. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Hugsaðu um hvernig þú getur unnið þig í betra álit hjá yfirmönnum og þar með hugsanlega öðlast meiri starfsframa. Láttu ekki undan freistingum. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Hamingjan svífur yfir vötnunum núna og þú ert meðal þeirra sem finna fyrir henni. Daður er í gangi og þér leiðist það ekki. miklar breytingar á félaginu á starfs- tíma mínum. Þegar ég hóf störf var ég einn á skrifstofunni, félagsmenn voru tæplega 2.000 og það heyrði til und- antekninga ef hringt var á skrifstof- una. En þegar ég hætti 2002 voru 30 þúsund á félagaskrá og 97% félags- manna voru í persónulegu sambandi við skrifstofuna og starfsmenn þá 33.“ Magnús var í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna í 9 ár, formaður í 6 ár; í stjórn Eirar, hjúkrunarheimilis, í 11 ár. Auk þessa átti hann sæti í ýmsum stokkið hæð sína eins og Gunnar forð- um“. Magnús stundaði verkamannavinnu á Selfossi samhliða námi 1948 – 1950. Þegar hann útskrifaðist úr Samvinnu- skólanum hóf hann skrifstofustörf hjá Kaupfélagi Árnesinga og var þar til 1958 þegar hann hóf störf hjá Olíufé- laginu Skeljungi og flutti þá fjöl- skyldan til Reykjavíkur. „Ég var ráðinn framkvæmdastjóri VR 1960 og starfaði þar til 2002. Var formaður félagsins í 22 ár. Það urðu M agnús L. Sveinsson fæddist 1. maí 1931 að Uxahrygg á Rangárvöllum og ólst þar upp til 17 ára aldurs en þá fluttu foreldrar hans á Selfoss. „Þægindi og hjálpartæki nú- tímans voru ekki til staðar framan af búskaparárum foreldra minna, frekar en víðast hvar annar staðar á þessum tíma. Húsakostur á Uxahrygg var lé- legur, byggt 1912 með moldargólfi að hluta. Innréttingar í eldhúsi voru nán- ast engar; einn lítill skápur, ekki vask- ur eða frárennsli, óhreint vatn var bor- ið út. Vatn var sótt út í læk um 200 metra frá bænum. Ekki rafmagn, ekki útvarp, ekki sími, tugir kílómetra í verslun, flestar ár óbrúaðar og vega- slóðar fyrir hestvagna. Við þessar að- stæður varð fólk að ganga til verka alla daga ársins. Bakað, prjónað og saum- að til heimilisnota og á haustin var unnið að matargerð til ársforða“. Móðir Magnúsar kenndi Magnúsi og bræðrum hans að lesa og þegar hann var tíu ára hóf hann skólagöngu í heimavistarskólanum á Strönd á Rangárvöllum, þar sem hann var í fjóra vetur og fermdist í Oddakirkju vorið 1945. „Þegar barnaskólanámi lauk var ekki um mikið bóklegt fram- haldsnám að ræða, sem aðstæður leyfðu að ég sækti. Nýr prestur var kominn að Odda, séra Arngrímur Jónsson og faðir minn samdi við hann og var ég við nám hjá honum veturinn 1947-1948.“ Haustið 1948 hóf Magnús nám í Gagnfræðaskólanum á Selfossi, en fjölskyldan hafði flutt að Selfossi þá um vorið. Þaðan lá leið hans í Sam- vinnuskólann haustið 1950 og hann út- skrifaðist eftir eins árs nám á tuttugu ára afmælisdegi sínum 1. maí 1951. Síðan stundaði Magnús framhaldsnám í London 1973. Magnús tók þátt í ýmsu félagsstarfi og íþróttum þegar hann var á Selfossi. Hann lék m.a. skrattann í Gullna hlið- inu sem sýnt var við mikla aðsókn í Selfossbíói. Einnig lék hann Gunnar á Hlíðarenda, í Samtalsþættinum „Gunnar og Kolskeggur“ sem sýndur var 17. júní 1955 í Selfossbíói. Þar hitti hann konu sína í fyrsta sinn og sagði síðar „að hún hefði fallið fyrir Gunnari á Hlíðarenda, enda þótt hann hafi ekki nefndum og ráðum á vegum verka- lýðshreyfingarinnar. „Ég var borgarfulltrúi fyrir Sjálf- stæðisflokkinn í 20 ár, 1974-1994, í borgarráði í 14 ár, forseti borgar- stjórnar í 9 ár. Þessu fylgdi mikil vinna. Sem forseti borgarstjórnar ann- aðist ég t.d. um 200 móttökur fyrir inn- lenda og erlenda gesti. Ég flutti hátíð- arræðu á Arnarhóli á 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar 18. ágúst 1986 þar sem ekki færri en 50 þúsund manns voru saman komin. Ég sat á Alþingi sem varaþing- maður Sjálfstæðisflokksins í febrúar 1999. Flutti þar tillögu sem miðar að því að afnema rétt Tryggingastofn- unar til að skerða lífeyrisrétt fólks sem sett hefur hluta af launum sínum í líf- eyrissjóð. Stutt vera mín á Alþingi gaf mér því miður ekki möguleika á að fylgja tillögunni eftir og aðrir þing- menn hafa ekki séð ástæðu til þess.“ Magnús hefur verið virkur í rit- störfum og auk þess að vera ritstjóri VR-blaðsins í 20 ár (1960-80), skrifaði hann bækurnar: Áfangar í kjarabar- áttu Verzlunarmannafélags Reykja- víkur 1955-2003 sem kom út 2004; Það urrar í þér. Lífsfléttur okkar hjónanna (2010) og Af moldargólfi í ólgusjó verkalýðsmála (2020). Auk þessa hefur hann skrifað fjölda greina í blöð og tímarit um kjara- og félagsmál, borg- armál og stjórnmál. „Þann 14. júní 2002 sæmdi stjórn VR mig gullmerki félagsins og tilnefndi mig heiðurs- félaga þess. Áður hafði ég verið gerður heiðursfélagi Samtaka sykursjúkra, en ég hafði beitt mér fyrir því að opnuð var deild fyrir sykursjúka á Landspít- alanum á sínum tíma.“ Fjölskylda Eiginkona Magnúsar var Hanna Hofsdal Karlsdóttir tannsmiður, f. 10.4. 1931, d. 11.7. 2019. Foreldrar Hönnu voru Sólveig Þorsteinsdóttir, f. 31.7. 1915 í Hafnarfirði, d. 15.5. 1998, og Karl Guðmundsson, sjó- maður Ólafsvík, f. 7.10. 1909, d. 8.10. 1986. Börn Hönnu og Magnúsar eru: 1) Sveinn, f. 4. 9. 1957, verkefnastjóri öryggisíbúða Eirar, hjúkrunarheim- ilis. Börn hans með Sólveigu A. Skúladóttur eru Magnús Leifur Magnús L. Sveinsson verkalýðsforingi – 90 ára Æskuslóðirnar „Hluti fjölskyldu minnar á gamla bæjarstæðinu á Uxahrygg í maí 2020 með Þríhyrning og Eyjafjallajökul í baksýn.“ Í ólgusjó verkalýðsmálanna Hjónin Magnús og Hanna á skíðum í Austurríki í febrúar 2004. Magnús er mikill útivistarmaður. 1943 Magnús tólf ára við Þverá norðan við Uxahrygg með bílinn sinn góða, sem hann smíðaði. Til hamingju með daginn 50 ÁRA Hafdís fæddist í Eyjum en flutti tveggja mánaða til Írans og bjó þar í rúmlega 7 ár, en faðir hennar var að vinna þar fyrir danskt verktakafyr- irtæki. Eftir hálft ár í Danmörku fluttist fjölskyldan til Hafnarfjarðar, en Hafdís hefur búið þar nánast allar götur síðan. Hafdís er viðskiptafræðingur frá HÍ og hefur unnið sem fjármálastjóri hjá Saltkaup frá 2012, en vann áður hjá KPMG, Apal og Kemi. „Ég vann í 9 sumur við að malbika og fannst erfitt að vinna á skrifstofu fyrstu sumrin eftir að ég hætti því mér líður hvergi bet- ur en úti. Hafdís æfði skíði þegar hún var yngri, en valdi síðan körfubolta. „Ég stundaði körfubolta í mörg ár, lengst með Haukum en líka Grindavík og ÍS, og á nokkra landsleiki. Hafdís æfði líka með skokkhópi Hauka fyrir nokkrum árum, en nokkrar úr þeim hóp eru núna að ganga saman. „Ég nýt ég þess að ganga í náttúrunni og á fjöll. Hef eitthvað verið að prófa mig áfram í golfi og finnst líka gaman að taka hring á gönguskíðum. Svo hefur öll fjölskyldan gaman af ferðalögum. FJÖLSKYLDA Eiginmaður Hafdísar er Marel Örn Guðlaugsson og þau eiga synina, Magna, f. 1998, Aron Frey, f. 2000 og Ævar Örn, f. 2006. „Við eigum líka tvo engla, hana Evu Vigdísi, f. 2004 og Ósk, f. 2008.“ Hafdís Hafberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.