Morgunblaðið - 01.05.2021, Qupperneq 49
ÍÞRÓTTIR 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Kórinn: HK – KA.................................... L17
Samsungv.: Stjarnan – Leiknir R .... L19.15
Würth-völlur: Fylkir – FH ............... L19.15
Kópavogsvöllur: Breiðablik – KR .... S19.15
Víkingsv.: Víkingur R. – Keflavík..... S19.15
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
KA-heimilið: KA/Þór – Valur ........... L13.30
TM-höllin: Stjarnan – ÍBV ............... L13.30
Kaplakriki: FH – Fram..................... L13.30
Kórinn: HK – Haukar ....................... L13.30
Undankeppni EM karla
Ásvellir: Ísland – Ísrael .......................... S16
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
DHL-höllin: KR – Breiðablik ................ L16
Blue-höllin: Keflavík – Fjölnir .............. L16
Ásvellir: Haukar – Valur........................ L17
Borgarnes: Skallagrímur – Snæfell ...... S16
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Njarðtaksgryfja: Njarðvík – Þór Ak S18.15
DHL-höllin: KR – Grindavík ............ S19.15
Sauðárkrókur: Tindastóll – Keflavík S20.15
UM HELGINA!
Olísdeild karla
ÍBV – Selfoss ........................................ 26:27
FH – Stjarnan....................................... 30:30
Þór – Haukar ........................................ 17:36
ÍR – Grótta............................................ 26:32
Staðan:
Haukar 17 14 1 2 494:402 29
FH 17 10 4 3 505:465 24
Selfoss 17 9 2 6 441:424 20
ÍBV 17 9 1 7 491:469 19
Stjarnan 17 8 3 6 478:465 19
Valur 17 9 1 7 485:459 19
Afturelding 16 9 1 6 425:424 19
KA 16 6 5 5 423:416 17
Fram 17 7 2 8 440:439 16
Grótta 17 4 4 9 434:447 12
Þór Ak. 17 4 0 13 385:470 8
ÍR 17 0 0 17 398:519 0
Undankeppni EM karla
3. riðill:
Færeyjar – Tékkland........................... 27:26
_ Rússland 8, Tékkland 5, Úkraína 5, Fær-
eyjar 2.
8. riðill:
Svartfjallaland – Svíþjóð ..................... 22:34
_ Svíþjóð 10, Svartfjallaland 4, Kósóvó 3,
Rúmenía 3.
E(;R&:=/D
_ Sveindís Jane Jónsdóttir, lands-
liðskona í knattspyrnu, fór meidd af
velli í fyrri hálfleik þegar lið hennar
Kristianstad sigraði Växjö á útivelli,
1:0, í sænsku úrvalsdeildinni. Hún var
borin af velli en ekki var komið á hreint
í gærkvöld hvort um alvarleg meiðsli
sé að ræða. Sveindís hafði farið mjög
vel af stað og skorað í tveimur fyrstu
leikjum Kristianstad á tímabilinu.
_ Berglind Björg Þorvaldsdóttir
skoraði fyrir Le Havre gegn Evrópu-
meisturum Lyon í frönsku 1. deildinni í
knattspyrnu. Hún minnkaði muninn í
2:1 um miðjan fyrri hálfleik en það
dugði skammt því Lyon vann leikinn
5:1. Le Havre er í erfiðri stöðu á botni
deildarinnar þegar þrír leikir eru eftir
og fall blasir við. Berglind er marka-
hæst og hefur skorað fimm af þrettán
mörkum liðsins í deildinni á tíma-
bilinu.
_ Knattspyrnudeild Gróttu staðfesti í
gær að markvörðurinn Hákon Ingi
Valdimarsson gengi til liðs við sænska
úrvalsdeildarfélagið Elfsborg í sumar.
Hákon er 19 ára en hefur verið aðal-
markvörður Gróttu í þrjú ár og lék alla
leiki liðsins í úrvalsdeildinni í fyrra.
Hann gæti leikið með Gróttu í 1. deild-
inni til 1. júlí.
Eitt
ogannað
HANDBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Einar Örn Sindrason reyndist hetja
FH þegar liðið fékk Stjörnuna í
heimsókn í 17. umferð úrvalsdeildar
karla í handknattleik, Olísdeild-
arinnar, í Kaplakrika í gær.
Leiknum lauk með 30:30-jafntefli
en Einar Örn skoraði jöfnunarmark
FH-inga á lokasekúndum leiksins.
Jafnræði var með liðunum allan
leikinn en Stjarnan leiddi 27:26 þeg-
ar fimm sekúndur voru til leiksloka
og þá tók Patrekur Jóhannesson,
þjálfari Stjörnunnar, leikhlé.
Garðbæingar hófu sókn að nýju en
á einhvern óskiljanlegan hátt tókst
þeim að kasta boltanum frá sér, FH-
ingar brunuðu í sókn og jöfnuðu.
Pétur Árni Hauksson og Björgvin
Hólmgeirsson skoruðu átta mörk
hvor fyrir Stjörnuna en Ásbjörn
Friðriksson var markahæstur FH-
inga með sjö mörk.
Bæði lið þurftu nauðsynlega á
tveimur stigum að halda en FH er í
harðri baráttu við Hauka um deild-
armeistaratitilinn á meðan Stjarnan
er í harðri baráttu um sæti í úrslita-
keppninni.
FH er með 24 stig í öðru sæti
deildarinnar, fimm stigum minna en
Haukar, en Stjarnan er í fimmta
sætinu með 19 stig líkt og ÍBV, Val-
ur og Afturelding.
_ Hergeir Grímsson átti stórleik
fyrir Selfoss þegar liðið styrkti stöðu
sína í baráttunni um sæti í úrslita-
keppninni með 27:26-sigri gegn ÍBV
í Vestmannaeyjum.
Hergeir gerði sér lítið fyrir og
skoraði níu mörk, þar af sjö úr víta-
köstum, en Hákon Daði Styrmisson
var markahæstur Eyjamanna með
tólf mörk, þar af sjö úr vítaköstum.
Jafnræði var með liðunum allt
þangað til fimm mínútur voru til
leiksloka þegar Selfyssingar náðu
fjögurra marka forskoti, 26:22, og
ÍBV tókst ekki að snúa leiknum sér í
vil eftir það.
Selfyssingar fara með sigrinum
upp í þriðja sæti og eru nú með 20
stig, einu stigi meira en ÍBV.
Það munar aðeins fjórum stigum á
Selfossi og KA, sem er í áttunda sæti
sem gefur jafnframt sæti í úrslita-
keppninni, en Akureyringar eiga
leik til góða á liðin fyrir ofan.
_ Þá virðist fátt geta komið í veg
fyrir að Haukar verði deildarmeist-
arar en liðið gjörsigraði Þór frá Ak-
ureyri þegar liðin mættust í Höllinni
á Akureyri.
Leiknum lauk með 19 marka sigri
Hauka, 36:17, en Haukar leiddu með
níu mörkum í hálfleik, 18:9.
Orri Freyr Þorkelsson var
markahæstur Hauka með sjö mörk
en Karolis Stropus var atkvæða-
mestur Hauka með fimm mörk.
Haukar eru með 29 stig og fimm
stiga forskot á nágranna sína í FH
þegar fimm umferðir eru eftir af
tímabilinu.
Þórsarar eru áfram í ellefta og
næstneðsta sæti með 8 stig.
_ Grótta fjarlægðist botnsvæðið
með sex marka sigri gegn ÍR í Aust-
urbergi í Breiðholti.
Leiknum lauk með 32:26-sigri
Gróttu en eftir jafnan fyrri hálfleik
náðu Seltirningar yfirhöndinni í síð-
ari hálfleik og sigldu sigrinum heim
af öryggi.
Stefán Huldar Stefánsson átti
stórleik á milli stanganna hjá Gróttu
og varði 17 skot en Daníel Örn
Griffin var markahæstur Gróttu-
manna með sjö mörk.
Grótta fer með sigrinum í 12 stig í
tíunda sæti og er nú fjórum stigum
frá fallsæti. ÍR-ingar eru sem fyrr í
neðsta sæti deildarinnar án stiga og
fallnir úr deildinni.
Köstuðu frá sér sigrinum
- Selfyssingar gerðu góða ferð til Eyja
- Seltirningar fjarlægðust botnsvæðið
Morgunblaðið/Eggert
Glíma Hafnfirðingurinn Leonharð Þorgeir Harðarson í harðri baráttu við
Garðbæingana Hrannar Braga Eyjólfsson og Dag Gautason í Kaplakrika.
Breiðablik tryggði sér sæti í úrvals-
deild karla í körfuknattleik með því
að sigra Sindra, 99:79, í toppslag á
Hornafirði í gærkvöld.
Blikar eru með 24 stig og eiga
einn leik eftir og keppinautar
þeirra geta ekki náð þeim lengur.
Sindri var eina liðið sem átti mögu-
leika á að standa í vegi fyrir Kópa-
vogsliðinu fyrir leikina í gærkvöld.
Hin átta liðin í deildinni fara síð-
an í umspil um eitt sæti í úrvals-
deildinni. Árni Elmar Hrafnsson
skoraði 26 stig fyrir Breiðablik í
gærkvöld og Samuel Prescott 16.
Breiðablik í
úrvalsdeildina
Morgunblaðið/Hari
Þjálfarinn Pétur Ingvarsson er
kominn með Blikana upp.
Íslenska karlalandsliðið í hand-
knattleik lýkur undankeppni Evr-
ópumótsins á Ásvöllum í Hafnar-
firði á morgun þegar það mætir
Ísrael í lokaleiknum klukkan 16.
Fyrir síðustu umferðina eru Portú-
gal með 8 stig og Ísland með 6 stig
komin á EM. Litháen er með 4 stig
og Ísrael 2 stig. Litháar sækja
Portúgala heim en þeir eiga enn
möguleika á EM-sæti með sigri þar.
Vinni Litháar í Portúgal tryggir Ís-
land sér sigur í riðlinum með því að
vinna Ísrael og um leið sæti í betri
styrkleikaflokki.
Nær Ísland efsta
sætinu aftur?
Ljósmynd/HSÍ
Víti Ómar Ingi Magnússon skorar í
fyrri leik liðanna í Tel Aviv.
KÖRFUBOLTINN
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Keflavík er deildarmeistari karla í
körfuknattleik 2021 eftir 95:87 sigur
gegn KR í 19. umferð úrvalsdeild-
arinnar, Dominos-deildarinnar, í
Blue-höllinni í Keflavík í gær.
KR-ingar voru með frumkvæðið
framan af en þegar rúmlega fjórar
mínútur voru til leiksloka kom Dom-
inykas Milka Keflvíkingum yfir í
fyrsta sinn í langan tíma, 79:77.
KR-ingum tókst að minnka mun-
inn í þrjú stig þegar mínúta var til
leiksloka, 87:90. Calvin Burks jr.
setti þá niður tvö vítaskot í röð og
Deane Williams gerði út um vonir
KR-inga með þriggja stiga körfu
þegar 30 sekúndur voru til leiksloka.
Keflavík er því deildarmeistari í
fyrsta sinn í þrettán ár en liðið varð
síðast deildarmeistari árið 2018. Lið-
ið hefur aðeins tapað tveimur leikj-
um á tímabilinu, báðum á útivelli, en
liðið er með 34 stig í efsta sæti deild-
arinnar. KR-ingar eru hins vegar í
fimmta sæti deildarinnar með 20
stig, líkt og Valur, en Tindastóll og
Grindavík koma þar á eftir með 18
stig og því ljóst að það stefnir í harða
baráttu um heimavallarréttinn í úr-
slitakeppninni.
Þá átti Styrmir Snær Þrastarson
stórleik fyrir Þór frá Þorlákshöfn
þegar liðið stöðvaði sigurgöngu Vals
í Icelandic Glacial-höllinni í Þorláks-
höfn. Leiknum lauk með 98:96-sigri
Þórsara en Styrmir Snær var með
tvöfalda tvennu, skoraði 24 stig og
tók tíu fráköst. Leikurinn var jafn
og spennandi allan tímann en aðeins
munaði einu stigi á liðunum þegar
ein og hálf mínúta var til leiksloka.
Þórsarar endurheimtu annað sæti
deildarinnar með sigrinum og eru
með 26 stig, líkt og Stjarnan.
Valsmenn höfðu unnið sex leiki í
röð fyrir leik gærdagsins en liðið er
með 20 stig í fjórða sæti deild-
arinnar, sex stigum minna en
Stjarnan og Þór.
Morgunblaðið/Skúli B. Sig
Meistarar Hörður Axel Vilhjálmsson og Ágúst Orrason hefja deildarbik-
arinn á loft eftir sigur gegn Íslandsmeisturum KR í Keflavík í gær.
Biðin loks á
enda í Keflavík
- Þórsarar stöðvuðu sigurgöngu Vals