Morgunblaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 01.05.2021, Blaðsíða 51
TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is A nnars vegar er um að ræða tónlist við Fjörd Lines, stuttmynd sem snjóbretta- iðkandinn Rúnar Pétur og kvik- myndagerðarmaðurinn Víðir Björnsson gerðu í sameiningu. Við fylgjumst með Rúnari bruna um fjöll í grennd við Neskaupstað og sjónarspilið allsvakalegt (myndina má finna á whitelines.com). Hins vegar er það tónlistin við heim- ildamyndina A Song Called Hate hvar fylgst er með ævintýrum Hatara í Eurovision. Plöturnar eru báðar tiltölulega nýútkomnar og í styttra lagi, sú fyrrnefnda sex laga stuttskífa upp á tæpar fjór- tán mínútur, sú síðarnefnda tæpur hálftími að lengd (báðar á Spoti- fy). Efniviðurinn nægði þó pistil- ritara til að greina þar nokk per- sónulegan stíl. Maður heyrir smávegis í Vök en þó meira í manneskju sem kann giska vel á þau handbrögð sem fylgja því að gera vel heppnaða tónlist af sjón- varps- og kvikmyndatoga. Tildrögin að Fjörd Lines liggja í því að Margrét hafði fylgst með þeim félögum á sam- félagsmiðlum um hríð og hrifist af því sem þeir voru að gera þar. Hvernig þeir voru rennandi sér um íslenska náttúru í alls konar aðstæðum, nýtandi hana til fulls. Í stuttu spjalli við greinarhöfund sagðist hún einfaldlega hafa sent Víði línu og boðið fram krafta sína ef hann þyrfti tónlist við eitt- hvað af þessum tiltækjum. „Þann- ig varð þetta samstarf til,“ segir hún. „Við stefnum 100% á að gera eitthvað meira saman í framtíð- inni.“ Tónlistin við A Song Called Hate var svo unnin af Margréti í samstarfi við Berg Þórisson sem aðstoðaði við að klippa og hljóð- blanda verkið. Í fréttatilkynningu var haft eftir Margréti: „Mig hef- ur alltaf langað til að gera þetta og það var því frábært tækifæri að fá að vinna með Önnu Hildi og hennar teymi. Ég lifði mig mjög mikið inn í fyrstu klippin sem ég fékk frá henni og smám saman bjó ég til safn af þeim tilfinningum sem ég skynjaði þegar ég var að upplifa ferðalag Hatara í gegnum myndirnar sem ég sá.“ Margréti tekst vel að ramma inn það viðfangsefni með hljóm- um. Tónlistin er hvöss og áleitin, vísandi í „industrial“-grunn Hat- ara um leið og stemmunum er sveiflað í draum- og poppkenndari áttir ef svo ber undir. „Into the Unknown“ hefst á gítarplokki en svo tekur engilblíð rödd við (eins og úr fjarska) en undir krauma ókennilegri hljóð. Leikur að and- stæðum. „Palestine“ er angurvært og löngunarfullt og gítarinn svona ýjar að Austurlöndum. „The Flag“ ber með sér spennu, eðli- lega, og Margrét er jafnvíg á blíðu og grimmd í tónmáli sínu. Tónlistin við Fjörd Lines er ekki ósvipuð og maður merkir að hér er sami höfundur. Hljóð- gervlaleg epík opnar hana („Sen- sation“) og því er fylgt eftir með ósunginni stemmu í Vakarsniði („Junoland“). Lögin eru hress og værðarleg á víxl eins og mynd- málið kallar eftir, öll unnin innan þessa þokkafulla, vélræna tón- heims sem Margrét kann svo vel á. Tónlist fyrir kvikmyndir tekur ávallt mið af því sem hún þjónar en það er vel hægt að hefla út eig- in stíl í gegnum þá vinnu eins og okkar helsta fólk á því sviði hefur gert (Hildur og Jóhann t.d.). Ég spurði Margréti hvernig hún bæri sig að þessari vinnu. Ég hefði orðið var við Vök, væru þetta mögulega hugmyndir sem næðu ekki þangað inn eða eitt- hvað allt annað? „Fjörd Lines-tónlistin er mestmegnis samin fyrir myndina en ég átti líka tvö lítið unnin demó sem ég tók lengra því þau pössuðu svo vel við landslag myndar- innar,“ svarar hún. „Þannig að það er allur gangur á þessu.“ Hún segist að lokum vel geta hugsað sér að vinna meira á þessum vett- vangi: „Mér finnst þetta mjög spennandi atvinnugrein og er ég að fiska eftir fleiri verkefnum. Það vantar líka fleiri konur í þetta.“ Tónspor á Ránarslóð Margrét Rán Magnús- dóttir er kona ekki ein- höm. Hún leiðir popp- sveitina frábæru Vök en fann svo einhvers staðar tíma til að semja tónlist fyrir kvik- myndir. Og ekki eina, heldur tvær. Ljósmynd/Dóra Dúna Fjölhæf Margrét Rán er ekki við eina tónlistarfjölina felld. » Margréti tekst vel að ramma inn það viðfangsefni með hljóm- um. Tónlistin er hvöss og áleitin, vísandi í „industrial“-grunn Hatara um leið og stemmunum er sveiflað í draum- og popp- kenndari áttir ef svo ber undir. MENNING 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. MAÍ 2021 Undirbúningur fyrir Eurovision stendur nú sem hæst, en keppnin verður haldin Ahoy-höllinni í Rotterdam í Hollandi. Er þetta í 65. sinn sem keppnin er haldin. Undan- úrslitakvöldin verða 18. og 20. maí og úrslitakvöldið 22. maí. Samkvæmt frétt á vef Sænska ríkisútvarpsins er gert ráð fyrir að alls 3.500 áhorfendur fái að vera viðstaddir í salnum á hverju kvöldi þegar keppendur flytja framlög sín. Það eru umtalsvert færri áhorf- endur en í venjulegu ári, en skýrist af fjöldatakmörknum vegna heims- faraldursins. Í fréttinni kemur fram að ríkisstjórn Hollands hafi veitt sérstakt leyfi fyrir þessum fjölda áhorfenda í ár með því skil- yrði að þeir verði undir ströngu eftirliti. AFP Söngvakeppni Ahoy-höllin í Rotter- dam þar sem Eurovision er haldin í maí. Leyfa allt að 3.500 áhorfendur í sal Tómið og rýmið er heiti sýningar sem Mireya Sam- per myndlistar- kona opnar í sýn- ingarsalnum H71 að Hverfisgötu 71 í dag, laugar- dag, frá kl. 14 til 18. Í tilkynningu segir að í verk- unum á sýningunni nýti Mireya sér á áhrifaríkan hátt „lífrænt eðli jap- ansks washi-pappírs með uppbygg- ingarstyrk sínum og dregur fram á töfrandi hátt vefi, landslag og tómarúm með silfuráferð, vax, olíu og litarefni“. Mireay hefur á undanförnum ár- um sett upp sýningar á verkum sín- um víða um lönd, meðal annars í Frakklandi, Japan og Indlandi. Mireya Samper sýnir verk sín í H71 Mireya Samper
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.