Þjóðmál - 01.03.2016, Page 12
Samfylkingin logar stafna á milli. Deilt er um menn og málefni vegna þess hve
flokkurinn mælist með lítið fylgi í skoðanakönnunum (um og undir 10%).
Samfylkingin var stofnuð árið 2000 til höfuðs Sjálfstæðisflokknum. Átökin eru
svo mikil að framkvæmdastjórn flokksins sá þann kost vænstan að efnt skyldi til
aukalandsfundar Samfylkingarinnar og í aðdraganda hans yrði gengið
til kosninga um nýjan formann meðal allra flokksmanna.
Sömu daga og forystumenn pírata tókust á
fyrir opnum tjöldum um stjórnarhætti
Birgittu fór fram atkvæðagreiðsla meðal
þeirra á netinu um tillögu þess efnis að píratar
skyldu ekki eiga aðild að ríkisstjórn þar sem
ráðherrar sætu jafnframt sem þingmenn.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar var birt
miðvikudaginn 24. febrúar. Alls greiddu 122
atkvæði, 115 samþykktu tillöguna en 7 voru
henni andvígir.
Miðað við yfirlýsingar pírata um nauðsyn
hollustu stjórnmálamanna við grasrótina
verður að draga þá ályktun að þessi samþykkt
bindi hendur þingmanna pírata að lokn-
um næstu kosningum og allir sem vildu
starfa með þeim í ríkisstjórn yrðu að velja
utanþingsmenn í stjórnina.
Tillögur um að ráðherrar sitji ekki sem
alþingismenn eru ekki nýjar á nálinni. Þær
hafa verið fluttar á alþingi án þess að hljóta
víðtækan stuðning. Sé samþykktin í net-
atkvæðagreiðslunni bindandi fyrir þingmenn
pírata á næsta kjörtímabili virðast þeir dæmdir
til setu utan ríkisstjórnar.
IV.
Samfylkingin logar stafna á milli. Deilt er um
menn og málefni vegna þess hve flokkurinn
mælist með lítið fylgi í skoðanakönnunum
(um og undir 10%).
Samfylkingin var stofnuð árið 2000 til
höfuðs Sjálfstæðisflokknum. Fyrir þingkosn-
ingar árið 2003 varð til bandalag Samfylkingar
og Baugsmanna, eigenda Fréttablaðsins, til
að bola Davíð Oddssyni og Sjálfstæðisflokkn-
um frá völdum. Aðförin mistókst en eftir
kosningar 2007 mynduðu sjálfstæðismenn
stjórn með Samfylkingunni. Stjórn sem sat
til 1. febrúar 2009 þegar framsóknarmenn
aðstoðuðu Ólaf Ragnar Grímsson við að leiða
Samfylkingu (SF) og Vinstri græna (VG) til
valda í minnihlutastjórn. Flokkarnir tveir SF
og VG mynduðu síðan meirihlutastjórn 10.
maí 2013.
Nú eru átökin innan Samfylkingarinnar
orðin svo mikil að 10. febrúar 2016 sá fram-
kvæmdastjórn flokksins þann kost vænstan
að efnt skyldi til aukalandsfundar Samfylk-
ingarinnar4. júní 2016 og í aðdraganda hans
yrði gengið til kosninga um nýjan formann
meðal allra flokksmanna.
Á aukalandsfundinum verður einnig kosinn
varaformaður. Katrín Júlíusdóttir, varafor-
maður Samfylkingarinnar, hefur dregið sig í
hlé. Flún sagðist 18. febrúar 2016 ekki ætla
að bjóða sig oftar fram til þings þar sem hún
hefur setið frá 2003.
Helgi Hjörvar þingflokksformaður lýsti hins
vegar yfir formannsframboði í samtali við
Fréttablaðið 19. febrúar 2016. Hann segist
jafnvel tilbúinn til að leggja niður Sam-
fylkinguna til að bjarga lífi hennar og mælir
með samvinnu allra stjórnarandstöðuflokk-
anna í anda hugmynda Birgittu um stjórnlaga-
byltingu og stutt þing. Má skilja hann svo að
umræðurfari nú fram um slíkt samstarf.
í tilefni af ummælum Helga sagði Birgitta
samdægurs á FB-síðu sinni:
„Píratar eru ekki vinstri flokkur, við erum
flokkur sem einsetur sér praktískar kerfis-
breytingar sem gagnast fólki sem aðhyllist
allt pólitíska litrófið, þá er vert að halda til
haga að það hafa ekki átt sér stað neinar
óformlegar viðræður við okkur mér að
vitandi eins og haft er eftir Helga Hjörvar í
viðtalinu við hann í Fréttablaðinu."
10 ÞJÓÐMÁL