Þjóðmál - 01.03.2016, Síða 17
við. Þessi hamar var afhentur árið eftir og fór
til notkunar í einni af aðalnefndum allsherjar-
þingsins. - Nánar um hann í næsta hefti
Þjóðmála.
Vel má segja að með því að gefa gripi sem
styrkja fundarhöld hjá þessum mikilvægu
samtökum þjóðanna hafi ísland lagt áherslu
á þá von sína að þeim auðnist að ná tilgangi
sínum fremur með orðræðum fulltrúa
aðildarríkjanna en þvingunaraðgerðum eða
vopnavaldi.
Það er svo ef til vill táknrænt fyrir hve
erfiðlega Sameinuðu þjóðunum hefur
gengið að vernda frið í veröldinni að fundar-
hamar Ásmundar hefur þrívegis brotnað
og verið endurnýjaður, árin 1961,1985 og
2005. Þá hafa skorið hann haganlega út
Guðmundur Benediktsson myndlistarmaður
og húsgagnasmiðurog listakonan Sigríður
Benediktsdóttir á Grund í Villingaholtshreppi.
Frægt er í sögu Sameinuðu þjóðanna
atvikið þegar hamarinn brotnaði í fyrsta sinn.
Það var á miklum hitafundi allsherjarþingsins
hinn 12. október 1960. Leiðtogi Sovétríkj-
anna, Nikita S. Krústjoff, vildi samkvæmt
ákvæði í fundarsköpum fá orðið til andmæla
þar sem honum þótti hafa verið veist of
gróflega að landi sínu. Forseti þingsins, írinn
Frededrick H. Boland, sá ekki eða lést ekki sjá
þegar Krústjoff veifaði til hans. Greip þá sá
síðarnefndi skó sinn og lamdi með í borðið
til að vekja frekari athygli á ósk sinni. Það
var svo þegar Boland hugðist koma reglu á
fundinn eða slíta honum að hann barði svo
fast með hamrinum að hann brast.
Ánægjulegt er að geta að lokum þess,
sem fastafulltrúi okkar hjá Sameinuðu
þjóðunum, Einar Gunnarsson sendiherra,
hefur upplýst, að forsetaskipti allsherjar-
þingsins ár hvert gerast með þeim formlega
hætti að sá fráfarandi afhendir hinum ný-
kjörna fundarhamar Ásmundar Sveinssonar,
gjöf íslands til samtakanna.
Ólafur Egilsson er fyrrverandi sendiherra.
1. okt. 1985 frá afhendingu eins afSÞ fundarhömrunum sem gerðir hafa verið ístað brotsins. Guðmundur Benediktsson
myndlistarmaður skar út hamarinn og fylgdi nákvæmlega gerð upphaflegs hamars Ásmundar myndhöggvara Sveinssonar
frá 1952. íljósi reynslunnarlímdi Guðmundur saman viðarþynnurþvers og kruss og bjó til traustan trékubbsvoað útskorinn
hamarinn stæðist betur álag. Hér hefur forseti allsherjarþings SÞ, Spánverjinn Don Jaime de Pinies, tekið við nýja hamrinum
úr hendi Geirs Hallgrimssonar utanríkisráðherra (ímiðju) að viðstöddum fastafulltrúa Islands Herði Helgasyni sendiherra.
VORHEFTI2016 15