Þjóðmál - 01.03.2016, Side 31
ísland gæti þurft að bíða lengi eftir því að
Bandaríkin, Bretland eða Evrópusambandið
leggi til aðskilnað viðskiptabanka- og fjárfest-
ingabankastarfsemi. Hagsmunir stórra banka
standa gegn því að skiptingin verði færð í lög
og þessir bankar hafa ótal erindreka á sínum
snærum sem tala um fyrir stjórnvöldum í
þessum ríkjum. Líklega þarf stærra fjármála-
hrun áður en stjórnvöld í þessum ríkjum taka
af skarið.
Að mínu mati vega rökin fyrir því að banna
viðskiptabönkum að stunda fjárfestinga-
bankastarfsemi mun þyngra en mótrökin.
Með fullum aðskilnaði er komið í veg fyrir að
ríkissjóður sé í ábyrgð fyrir áhættusömum
flárfestingabankaverkefnum. Auk þess myndi
draga úr hagsmunaárekstrum, samkeppni
yrði jafnari og bankar sem nú eru of stórir
myndu minnka.
Frosti Sigurjónsson er þingmaður
Framsóknarflokksins og formaður
efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis.
Annaðhvort eða...
Eitt af einkennum
þjóðmálaumræðunnar er
að fólki hættir til að hugsa í
annaðhvort eða...
Nú er Boris Johnson,
þingmaðurog borgarstjóri
Lundúna með meiru, kominn
í fylkingarbrjóst þeirra sem
vilja að Bretar gangi úr
Evrópusambandinu. Gott
og vel, en það þýðir samt
ekki að honum sé í nöp við
Evrópusambandið. Eitt sinn
tók hann sérstaklega fram í
viðtali að hann væri Evrópu-
sinni:„Ég vil sannarlega
evrópskt samfélag þar sem
maður getur hámað í sig
croissant, drukkið dýrindis-
kaffi, lært erlend tungumál
og almennt notið ásta með
erlendum konum."
Þegar uppgangur bankanna
var hvað mestur í aðdraganda
hrunsins birtist viðtal við
einn frammámanna bank-
anna sem sagði áliðnað og
sjávarútveg óspennandi, þar
sem arðsemin væri lítil. En
fyrirtæki í áliðnaði og sjávar-
útvegi stóðu bankakreppuna
BorisJohnson
af sér og skiluðu miklum
gjaldeyristekjum í þjóðar-
búið þegar mest lá við. í
Egilssögu ertraustri afkomu
Skallagríms lýst þannig:„Stóð
þá mörgum fótum fjárafli
Skallagríms."
Nú er uppgangur í ferða-
þjónustu og er það vel. Þar
varðar miklu að innviðir
hafa byggst upp á liðnum
áratugum í kringum grunn-
atvinnuvegi á borð við
sjávarútveg og orkuiðnað.
En gróskan í ferðaþjónustu
dregur ekki úr vægi annarra
greina. Þvert á móti styrkir
það og breikkar grundvöll
efnahagslífsins að hafa
margar stoðir undir gjald-
eyrisöflun þjóðarinnar.
í skýrslu Hagfræðistofn-
unar frá árinu 2009 segir:
„Áratuga reynsla íslendinga
af einhæfum útflutningi
sjávarafurða með tilheyrandi
sveiflum, bæði vegna afla-
brests heima og verðsveiflna
á erlendum mörkuðum,
undirstrikar mikilvægi þess
að búa við stöðugt gengi.
Almennt gildir sú regla að því
fjölbreyttari sem útflutningur
er því minni verða ófyrirséðar
sveiflur á verðmæti hans."
Hvort tveggja og rúmlega
það.
Pistill eftir Pétur Blöndal sem
birtist í Viðskiptablaðinu 25.
febrúar2016.
VORHEFTI2016 29