Þjóðmál - 01.03.2016, Síða 35
svo að dæmi sé tekið, og rynni féð í þróun á
nýrri tækni, sem leyst geti„mengunarvaldana"
af hólmi með markaðslegum aðferðum,
þ.e. með aðgerðum, sem eru hagkvæmari
til skemmri og lengri tíma fyrir þann, sem
innleiðir þær, en að halda áfram losun
gróðurhúsalofttegunda, sóts og annarra
heilsusþillandi efna.
Orkubylting er forsenda lausnar
Þjóðir heims hafa farið hrikalega illa að ráði
sínu í rangsnúinni yfirborðsviðleitni til að
draga úr brennslu jarðefnaeldsneytis, og er
það alls ekki einleikið. Skýringin á því, hversu
óhönduglega hefur til tekist hingað til, gætu
verið þrýstihópar í framleiðslulöndum jarðefna-
eldsneytis, sem ekki vilja sjá þær róttæku
breytingará eldsneytisnotkun, sem nauðsyn-
legar eru og aðeins munu raungerast með
nýrri tækni við raforkuvinnsluna. Þetta kom
t.d. í Ijós á Parísarráðstefnunni 30. nóvember
- 12. desember 2015, þar sem Persaflóaríkin
o.fl. drógu lappirnar, svo að ekki sé nú sterk-
legar að orði kveðið.
Jarðefnaeldsneyti í raforkuverum heimsins
er uppspretta tæplega 70% af allri losun
gróðurhúsalofttegunda um þessar mundir.
Tilraunir til að draga úr þessum yfirgnæfandi
þætti hafa verið hálfkák eitt. Þjóðir, t.d. sumar
Evrópuþjóðir, hafa notað óhemju mikið
fjármagn til að greiða niður rafmagnsvinnslu-
kostnað í orkuverum á borð við sólarraf-
hlöður og vindmyllur, sem þó hafa aðeins
skilað sáralítilli orku inn á stofnkerfið sem
hlutfall af heild.
Samkvæmt IEA -„The International Energy
Agency"-skila vindrafstöðvar, sólarhlöður,
sjáva rfallavirkjanir og jarðgufuorkuver aðeins
1,3% raforkunnar á heimsvísu. Ástæðan er
sú fyrir vind- og sólarorkuver, að reksturinn
er slitróttur, og er nýtingartími uppsetts afls
þeirra yfirleitt aðeins á bilinu 10%-30% af
árinu. Það þýðir, að annars konar orkuver, í
flestum löndum eldsneytisorkuver, þurfa að
vera tiltæk og sjá fyrir allt að öllu afli, sem
þessar slitróttu orkulindir gefa, þegar vel
viðrar fyrir þær. Tíminn, sem varastöðvarnar
eru í gangi, er þá 70%-90% af árinu. Sjá þá
Vindrafstöðvar, sólarhlöður, sjávarfallavirkjanir og
jarðgufuorkuverskila aðeins 1,3% raforkunnar á heimsvísu.
Ástæðan ersú fyrir vind- og sóiarorkuver, að reksturinn er
siitróttur, og er nýtingartími uppsetts afis þeirra yfrleitt
aðeins á bilinu 10%-30% afárinu.
Mynd: bengarrison
allir, hversu lítið gagn er af þessum slitróttu
orkulindum í baráttunni við hlýnun jarðar.
Raforkuvinnsla í heiminum í eldsneytis-
orkuverum nam árið 2013 86,5% af heildar-
raforkuvinnslu samkvæmt IEA og hefur
vaxið síðan. í stað bruðls með opinbert fé til
niðurgreiðslu á dýrum og lítils megandi orku-
verum þarf þegar í stað að beina auknu og
umtalsverðu fjármagni, t.d. 100 milljörðum
bandaríkjadala á ári, í rannsóknir og þróun
á nýjum orkulindum og nýjum gerðum
raforkuvera, sem staðið geta undir grunn-
álagi allan sólarhringinn dag eftir dag og
hafa þannig nýtingartíma uppsetts afls a.m.k.
VORHEFTI2016 33