Þjóðmál - 01.03.2016, Side 38
Ekki er nóg með, að hér sé í fyrsta sinn
kominn fram á sjónarsviðið
samkeppnishæfur valkostur við
jarðefnaeldsneyti til raforkuvinnslu,
heldur verður líka unnt að klæðskera-
sauma stærð raforkuversins við þarfir
á hverjum stað, sem dregur úr þörfinni
fyrir mikla raforkuflutninga á milli
landshluta, svo að ekki sé nú minnst
á rándýra flutninga á milli landa um
sæstrengi. Þetta dregur enn úr álagi
á umhverfið og dregur úr kostnaði við
raforku frá þóríum-verunum.
samanburðar er uppsett afl virkjana á íslandi
um 2,5 GW og hagkvæmt virkjanlegt afl er
stundum talið nema rúmlega 6 GW.
Þetta nýja afl er líka rétt að setja í samhengi
við öflugasta gróðurhúsavaldinn, kolakynt
raforkuver. Árið 2000 nam uppsett afl þeirra
1132 GW í heiminum, en árið 2014 hafði
afkastageta þeirra aukist meira en nokkru
sinni áður á jafnlöngu tímabili, eða upp í
1980 GW, sem er aukning um 848 GW á 14
árum eða meira en 5% á ári. Þessi þróun
mála sýnir í hnotskurn árangursleysi þeirrar
aðferðarfræði, sem beitt hefur verið, og hvað
það þýðir að bjóða þjóðum heims ekki upp á
neina raunhæfa valkosti við kolefnisspúandi
raforkuver.
Kolakynt orkuver sjá heiminum um þessar
mundirfyrir41% af raforku sinni og 30% af
heildarorkuþörfinni. Á næsta áratugi verður
unnt að stöðva fjölgun þeirra með þessari
nýju tækni, og á áratuginum 2031-2040
verður unnt að afnema öll kolakynt orkuver
að uppsettu afli um 2000 GW og að auki að
að loka olíukyntum raforkuverum upp á 600
GW og auka við framleiðslugetu heimsins
um 1000 GW með þessari nýju tækni. Árið
2040 verður þannig hægt að helminga losun
gróðurhúsalofttegunda úr um 40 Gt/ár C02
árið 2015 í um 20 Gt/ár C02, sem er svipuð
losun og var árið 1970. Með þessu móti gæti
tekist að halda hlýnun jarðar innan 2°C, en
ekki innan 1,5°C, nema meira komi til.
Hvað mun þessi nýja raforka frá þóríum-
kjarnorkuverum kosta ?
„Menn reikna með, að hún verði ódýrari en
úr kolaorkuverum og verðið verði vel undir
30 USD/MWh í upphafi. Þegarfjöldafram-
leiðsla verður komin í gagnið, er áætlað, að
verðið verði undir 10 USD/MWh. Það gæti
vel gerstfyrir2030."4
Til samanburðar er meðalorkuverð frá
íslenskum orkuverum um þessar mundir á
rúmlega 30 USD/MWh.
Ekki er nóg með, að hér sé í fyrsta sinn
kominn fram á sjónarsviðið samkeppnis-
hæfur valkostur við jarðefnaeldsneyti til
raforkuvinnslu, heldur verður líka unnt að
klæðskerasauma stærð raforkuversins við
þarfir á hverjum stað, sem dregur úr þörfinni
fyrir mikla raforkuflutninga á milli landshluta,
svo að ekki sé nú minnst á rándýra flutninga
á milli landa um sæstrengi. Þetta dregur enn
úr álagi á umhverfið og dregur úr kostnaði
við raforku frá þóríum-verunum.
Framagreint orkuverð er vinnslukostnaður
við virkjun fyrir stórnotanda með stöðugt
álag. Sé tekið mið af aðstæðum á íslandi, má
reikna með, að verðið til almennings muni
þá nema um 9 kr/kWh frá fjöldaframleiddum
Þóríum-raforkuverum, og er það aðeins 55
% af núverandi raforkuverði til almennings
á íslandi (16,5 kr/kWh). í Frakklandi borgar
almenningur 23 kr/kWh og í Þýkalandi 42 kr/
kWh (0,30 EUR/kWh). Almenningur í Þýkalandi
geldurfyrirorkustefnu ríkisstjórnarinnar, sem
snýst um háar greiðslur frá hinu opinbera
til eigenda vindorkugarða og sólarhlaða
og stöðvun kjarnorkuvera, en síðasta þýska
kjarnorkuverinu á að loka árið 2022. Þrátt
fyrir gríðarlega uppbyggingu og fjárhags-
stuðning standa vindorkuver Þýskalands þó
aðeins undir 15% orkuvinnslunnar þar, en sé
hlut vatnsorkuvera, sólarhlaða og lífmassa
bætt við, hækkar þetta hlutfall í 35%. Á venju-
legum vetrardegi er þýska álagið 77 GW, og
koma þá um 50 GW frá jarðefnaeldsneyti. Á
árabilinu 2025-2030 gætu Þjóðverjarfræði-
36 ÞJÓÐMÁL