Þjóðmál - 01.03.2016, Síða 43
Rafvæðingu bílafíotans verður lokið
árið 2045. Þá verður búið að planta}
skógi i 1.000 km2 lands fyrir kolefnis-
gjald afumferðinni, sem bindúr
árlega 500 kt/áa ^
farartæki á vegunum orðin fleiri en 70.000
talsins eða helmingur af því, sem markmiðið
útheimtir. Þetta jafngildir aðjafnaði 4.700
slíkum bifreiðum á ári eða tæpum þriðjungi
endurnýjunar. Það þýðir, að tæplega 250 kt/
áraf C02 þarf að kaupa sem losunarkvóta
eða, sem er miklu vænlegra, að binda með
landgræðslu og skógrækt. Þetta jafngildirt.d.
skógrækt á 50 kha lands eða 500 km2.
Árið 2014 þakti ræktaður skógur um 400
km2 lands og hafði þá aukist um tæplega 14
km2 á ári undanfarinn aldarljórðung. Ef strax
er hafist handa, útheimtir þetta skógræktar-
átak plöntun í rúmlega 33 km2 lands á
ári, svo að ríflega tvöföldun afkastanna er
nauðsynleg. Með fjármögnun frá kolefnis-
gjaldi á umferðina er slíkt raunhæft. Til að
standa undir stofnkostnaðinum þarf 1,0 mia
kr/ár eða tæplega 5.000 kr/bíl á ári. Þetta eru
aðeins um 3% af þeim gjöldum og sköttum
af bensíni, sem ríkissjóður innheimtir líklega
árið 2016, svo að engin hækkun á eldsneytis-
verði til notenda er nauðsynleg vegna þessa.
Þegar hér verður komið sögu árið 2030,
gæti hóflegt kolefnisgjald af bifreiðum hafa
staðið undir skógrækt á 500 km2 lands, sem
binda 250 kt/ár. Á næstu 15 árum þar á
eftir til 2045 má reikna með tvöfalt hraðari
rafvæðingu bílaflotans, því að þá verða
innviðirnir væntanlega löngu tilbúnir, drægni
á hleðslu komin yfir 500 km og rafmagns-
bílar orðnir tiltölulega ódýrari en nú vegna
þróunar og fjöldaframleiðslu. Þetta þýðir, að
rafvæðingu bílaflotans verður lokið árið 2045.
Þá verður búið að planta skógi í 1.000 km2
lands fyrir kolefnisgjald af umferðinni, sem
bindur árlega 500 kt/ár.
Árið 2013 losaði iðnaðurinn 2112 kt af
koltvíildisjafngildum, og nam sú losun þá
47% af losun íslands. Ef losunarkvóti hans
verður árið 2030 minnkaður í 60% af losun
hans árið 1990,1337 kt, verður iðnaðurinn
að draga úr losun eða kolefnisjafna 1310 kt
árið 2030. Ef engin tæknibylting verður þá
orðin hjá honum, sem dregur mjög úr losun
C02 á hvert framleitt tonn, verður hann að
kaupa sér losunarheimildir á markaðinum.
Árið 2045 getur hann keypt a.m.k. 500 kt/ár
af skóginum, sem plantað var fyrir kolefnis-
gjaldið, á 4.000 kr/t C02 eða alls tveir millj-
arðar króna á ári að núvirði, og hægt verður
að halda áfram landgræðslu og skógrækt
á sömu afköstum eða meiri fyrir andvirði
kolefnisbindingarfrá stóriðju svo lengi sem
menn kjósa.
Samantekt
ísland er í einstakri stöðu til að leiða baráttuna
við meinta hlýnun jarðar, sem talin er stafa
af vaxandi styrk koltvíildis í andrúmslofti.
Aðstæður á íslandi eru með þeim hætti, að
orkubyltingin þarf aðeins að taka 35 ár eða
mannsaldur (kynslóðaskipti verða með þessu
bili), og getur hún verið um garð gengin
árið 2050. Þvert á það, sem margir óttast,
þarf orkubyltingin ekki að draga úr hagvexti
VORHEFTi 2016 41