Þjóðmál - 01.03.2016, Page 47

Þjóðmál - 01.03.2016, Page 47
stjórnarskrár um skiptingu valds milli hand- hafa framkvæmdavalds, löggjafarvalds og dómvalds. Á þetta lagði Scalia áherslu á en hann taldi einnig skiptingu valds milli ríkja í Bandaríkjunum og alríkisstjórnarinnar skipta miklu. Hann sagði einfaldlega að sérhver handhafi opinbers valds fari með það vald sem stjórnarskráin ætli honum, hvorki meira né minna. Scalia var á því að þessi valdskipt- ing væri jafnvel þýðingarmeiri fyrir vernd einstaklingsbundinna réttinda helduren ákvæðin í þeim kafla stjórnarskrárinnar sem verndar mannréttindi (Bill of Rights). Segja má að hugmundir Scalia um túlkun laganna og verkaskiptinu stofnana þjóðfélagsins hafi einkennst mjög af megin- reglunni um lýðræði. Hann benti á að ekki sé þörf á ritaðri stjórnarskrá, með sérstakri vernd fyrir tiltekin réttindi, til að tryggja fram- gang ríkjandi gilda í þjóðfélaginu. Almennar kosningar sjái um það. Stjórnarskránni sé þvert á móti ætlað það hlutverk að vernda sérstök gildi fyrir tilfallandi viðhorfum meiri- hluta manna á hverjum tíma. Starfsemi dóm- stóla, sem ekki þurfi að standa almenningi reikningsskil gjörða sinna eins og löggjafinn þurfi að gera, að auka nýjum réttindum við í stjórnarskrána, feli það í sér að lýðræðislegur meirihluti hvers tíma geti ekki lengur ráðið skipan mála á viðkomandi sviði. Vilji menn afla réttindum slíkrar verndar verði þeirað fara þá leið sem stjórnskipunin gerir ráð fyrir og breyta stjórnarskránni. Framangreind viðhorf Scalia eru rauður þráður í gegnum atkvæði sem hann skrifaði og átti aðild að í Hæstarétti Bandaríkjanna. Jón Steinar sagði í umfjöllun sinni að nefna megi fjölmörg dæmi en valdi þrjú sem hvert með sínum hætti sýnir hvernig grunnhug- myndir Scalia birtust í starfi hans sem dómari. Tjáningarfrelsi í fyrsta viðauka stjórnarskrár Bandaríkj- anna er kveðið á um vernd tjáningarfrelsis. Ákvæðið hvíldi á sínum tíma á þeirri hugsun að veita yrði borgurum viðtækan rétt til að tjá sig um hvers kyns skoðanir skoðanir sínar. Að öðrum kosti gætu ekki átt sér stað Scalia flutti fyrirlestur hérá landi árið 2008 og tók Fréttablaðið meðal annars viðtal við hann. rnfTTABLAÐID _ iriskl h*5larétt*r- Antonin Scalta scgir dómara fara út fyrir valdsvié sitt me4 þvt *® túlka *tjórnar*krárákv*»l uK ðnnur Iðg með ððrum harttl cn þcim var - — skilningur anðl'ákváéði eða lagabók- þær rökræður sem gerðu mönnum kleift að velja þann kost sem þeirálitu bestan.Til þessa réttar heyrði óhjákvæmilega rétturtil að gagnrýna ríkjandi valdhafa hverju sinni og tjá andstöðu sína við þá. Meðal aðferða sem sumir tóku upp til að tjá andstöðu var að brenna þjóðfána Bandaríkjanna. Þjóðþingið brást við þessu með lagasetningu árið 1989 (The Flag Protection Act). Ásamtfjórum öðrum dómurum við Hæstarétt komst Scalia að þeirri niðurstöðu að þessi lagasetning bryti gegn reglunni um tjáningarfrelsi í fyrsta viðauka stjórnarskrárinnar. Samkynhneigd Hæstiréttur hafði í dómi árið 1986 komist að þeirri niðurstöðu að réttur fólks afsama kyni til kynmaka hvað við annað væri ekki varinn af stjórnarskránni, einfaldlega vegna þess að hún nefndi ekki slíkan rétt. Þar að auki stydd- ist slíkur réttur ekki við hefðbundin viðhorf í Bandaríkjunum. Raunar hefði háttsemi af þessu tagi beinlínis verið refsiverð í öllum ríkjum Bandaríkjanna fram til ársins 1961. Sautján árum seinna (2003) reyndi aftur á þetta í málinu Lawrence gegnTexas. Nú VORHEFTI2016 45

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.