Þjóðmál - 01.03.2016, Page 53
Til atlögu við embættismennina
FRÉTTABLADID
í verkefnaskrá sem ríkisstjórn vinstri flokk-
ana gaf út um leið og hún tók við völdum
í febrúar 2009 var gerð skilmerkileg grein
fyrir því að ráðist yrði í skipulagsbreytingar
á stjórnkerfinu. Sérstaklega var tekið fram að
skipt yrði um yfirstjórn Seðlabanka íslands
og lögum um bankann breytt þannig að
ráðinn yrði einn bankastjóri yfir bankann. Þá
yrðu gerðar breytingar á yfirstjórn einstakra
ráðuneyta.
Enginn fór í grafgötur með að raunveru-
leg ástæða þess að ríkisstjórnin taldi það
forgangsmál að skipta um yfirstjórn Seðla-
bankans var persónuleg óvild forystumanna
stjórnarinnar í garð Davíðs Oddssonar.
Aðeins fjórum dögum eftir að Jóhanna tók
við lyklavöldunum íforsætisráðuneytinu
lagði hún fram frumvarp til breytinga á
lögum um Seðlabankann. Frumvarpið var
samþykkt sem lög frá Alþingi 26. febrúar
2009. Með lögunum voru stöður sitjandi
seðlabankastjóra, Davíðs Oddssonar, Eiríks
Guðnasonar og Ingimundar Friðrikssonar,
lagðar niður.
Áður en Jóhanna lagði fram áðurnefnt
frumvarp skrifaði hún bankastjórum Seðla-
bankans bréf þar sem hún óskaði eftir því
að þeir segðu af sér. í bréfinu (dagsett 2.
febrúar) var bent á fyrirhugaðar breytingar
á lögum en með þeim verði embætti þeirra
lögð niður. Jóhanna sagðist vilja kanna
„hvort vilji sé til þess af yðar hálfu að biðjast
lausnar frá embætti nú þegar og leggjast
þannig á sveif með stjórnvöldum í viðleitni
þeirra til að endurvekja trúverðugleika og
traust á Seðlabanka íslands enda megi ætla
að mannabreytingar einar og sér geti verið
til þess fallnar". Bankastjórnunum var boðið
til viðræðna við stjórnvöld um„starfsloka-
greiðslur er taki mið af þeim réttindum sem
þér eigið samkvæmt 34. gr. laga um réttindi
og skyldur starfsmanna ríkisins".
Ingimundur Friðriksson féllst á þeiðni
forsætisráðherra en Davíð Oddsson og
Eiríkur Guðnason höfnuðu henni. í svarbréfi
til Jóhönnu Sigurðardóttur sagðist Davíð
Ný ríkisstjórn tekur við völdum
Segir forgangsverk
að víkja bankastjórn
Nýr forsætisráðherra mun fara strax í að kanna hvernig hægt verði að koma
bankastjórn Seðlabankans frá. Nýr sjávarútvegsráðherra vill láta rannsaka
hvort ákvörðun forvera hans um að leyfa hvalveiðar standist stjórnsýslulög.
aldrei hafa hlaupist frá neinu verki sem
hann hafi tekið að sér og hann muni ekki
gera það nú. Davíð gagnrýndi málsmeðferð
forsætisráðherra og fór hörðum orðum um
frumvarpið sem hann taldi illa undirbúið.
Seðlabankastjóri sagði bréf forsætisráðherra
lítt dulbúna hótun til embættismanna sem sé
einsdæmi, ekki eingöngu hér á landi, heldur
einnig um allan hinn vestræna heim:
„Lög sem eiga að tryggja sjálfstæði seðla-
banka og forða pólitískri aðför að seðla-
bankastjórninni hafa nú verið þverbrotin.
Ábyrgð ráðherrans er því mikil."
í bréfinu benti Davíð á að æ fleiri mönnum
sé að verða Ijóst að bankastjórn Seðlabankans
hafi á undanförnum árum ítrekað„varað við
því að í óefni stefndi i bankamálum þjóðar-
innar og þrýst á þá sem ábyrgð báru um að
bregðast við í tíma":
„Það er hlálegt að ráðherra úr hóþi þeirra
sem hlustuðu ekki og sjálf lyfti ekki litla
fingri til að stemma stigu við því sem var að
gerast skuli nú ganga fram með þeim hætti
sem hún gerir."
Davíð hélt því fram að forsætisráðherra
hafi tekist að flæma Ingimund Friðriksson úr
Seðlabankanum. Mann sem sé„táknmynd
VORHEFTI2016 51