Þjóðmál - 01.03.2016, Blaðsíða 57

Þjóðmál - 01.03.2016, Blaðsíða 57
bankastjóra yrðu hækkuð um 400 þúsund krónur. í samtali við Morgunblaðið 3. maí 2010 rökstuddi Lára tillöguna: „Þegar seðlabankastjóri var ráðinn var hann að koma úr starfi að utan þar sem hann naut margfaldra launakjara á við þau launakjör sem giltu um seðlabankastjóra hér á þeim tíma, en það voru þau kjör sem honum voru boðin. í Ijósi þess að frum- varpið um breytingar á lögum um kjararáð var komið fram var farið yfir það hvort gera mætti ráð fyrir að þau kjör kæmu til með að skerðast, en honum var þá lofað að hann gæti treyst því að þessi kjör giltu áfram." í viðtalinu hélt formaður bankaráðsins því fram að tillagan um hækkun launa væri til þess gerð að tryggja að starfskjör seðlabankastjóra yrðu sambærileg við það sem þau voru fyrir úrskurð kjararáðs. Það væri í samræmi við þau loforð sem seðla- bankastjóra voru gefin við ráðninguna! Jóhanna Sigurðardóttir sagðist hafa gefið skýr svör í launamálum seðlabankastjóra og engin loforð. í fyrirspurn á Alþingi 6. maí 2010 sagði hún: „Það hafa engin loforð eða fyrirheit verið gefin enda ekki á mínu færi að gefa slík loforð. Laun seðlabankastjóra fara eftir lögum og ákvæðum um Seðlabankann og ekki síst niðurstöðu kjararáðs. Ég sé ekki eftir niðurstöðu kjararáðs að það sé eitt- hvert svigrúm til þess að beita ákvæðum sem eru í seðlabankalögunum í þessu efni til að hækka launin." Ragnar Árnason, prófessor og fulltrúi í bankaráði Seðlabankans, sagði að formaður bankaráðs hefði haldið því fram að tillaga um hækkun launa seðlabankastjóra umfram það sem kjararáð hefði ákveðið, væri lögð fram að höfðu samráði við forsætisráðuneytið. Það sem meira væri; tillagan ætti rætur að rekja til viðræðna við Má Guðmundsson seðla- bankastjóra áður eða um það leyti sem hann var ráðinn til starfa af forsætisráðherra. Þetta kom fram í Morgunblaðinu 7. maí 2010 en daginn áður hafði Jóhanna Sigurðardóttir lýst því yfir á Alþingi að hún hefði aldrei gefið neitt loforð um launakjör seðlabankastjóra. Jóhanna Sigurðardóttir skipaði Má Guðmundsson í embætti seðlabankastjóra íjúni2009 og tók hann formtega við starftnu iágúst. Már fékk siðar að kynnast stjórnsýslu vinstri stjórnarinnar sem hafði valið hann til að stýra peningamálum þjóðarinnar. Sama dag og RagnarÁrnason upplýsti að formaður bankaráðsins hefði lagt fram tillögu um launahækkun í samráði við forsætis- ráðuneytið, var Lára V. Júlíusdóttir í heilsíðu- viðtali við Fréttablaðið. Lára var spurð af hverju hún vilji ekki upplýsa hver hefði gefið Má Guðmundssyni fyrirheit um að laun hans yrðu þau sömu og forvera hans. Lára svaraði: „Ég kýs að tjá mig ekki um ástæður þess." Lára var þá spurt hvort þjóðin ætti ekki heimtingu á að vita hver hefði gefið fyrir- heitið. Lára svaraði: „Ekki frá mér." Þá var formaður bankaráðs Seðlabankans beðinn um að svara hver hefði komið með þau skilaboð að borga ætti Má Guðmunds- syni sömu laun og forveri hans hafði: „Þegar gengið var frá því að hann kæmi til starfa þá gerði hann áskilnað um þetta atriði og því var vitað af því þegar hann hóf störf. Það var gengið frá þessu í júní eða VORHEFTI2016 55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.