Þjóðmál - 01.03.2016, Page 59

Þjóðmál - 01.03.2016, Page 59
viðbótar gæti komið lækkun ráðstöfunar- tekna vegna almennra aðgerða stjórnvalda í skattamálum og því um líku. Ég er hins vegartilbúinn til að sætta mig við það." í þréfinu vísaði Már til fyrri samtala við Jóhönnu Sigurðardóttur: „Þá vil ég nefna það sem mér láðist að geta í samtalinu. Ráðningarferli seðla- bankastjóra hefur sem betur fer farið fram fyrir opnum tjöldum. Það hefur hins vegar þær afleiðingar að hinn alþjóðlegi seðla- bankaheimur er vel upplýstur um það. í aðdraganda umsóknar minnar komu ýmsir þeirra að máli við mig og sumir lögðu bein- línis hart að mér að sækja um." Már taldi að það yrði erfitt fyrir sig að útskýra ef til þess kæmi að hann drægi umsókn sína til baka. En það„yrði hins vegar óhjákvæmilegt vegna orðspors míns í seðla- bankaheiminum" sagði Már og bætti við: „Ég vona að til þess komi ekki, enda ekki víst að þeir eigi auðvelt með að skilja hvernig hægt er að breyta kjörum seðla- bankastjóra stórlega í miðju umsóknarferli. Ég býst við að heyra frá þér á morgun eða þriðjudag og bind vonir við að þú finnir einhverja viðunandi lausn á þessu erfiða máli." Lára V. Júlíusdóttir og Ragnhildur Arnljóts- dóttir, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneyt- inu, fengu afrit af bréfi Más. Augljóst má vera að Lára var, sem formaður bankaráðs Seðlabankans, aðeins að að fylgja eftir vilja forsætisráðherra um hækkun launa Más Guð- mundssonar, þótt ráðherrann hafi síðar ekki viljað við það kannast. En 24. júní 2009 sendi Lára tölvubréf til ráðuneytisstjóra forsætis- ráðuneytisins og með fylgdu drög að tillögu um starfskjör hins nýja bankastjóra: „Sæl Ragnhildur. Eftir að hafa ráðfært mig við starfsmanna- stjóra bankans [...] sendi ég ykkur hjálagða tillögu. Hér er allt tekið til og reynt að hafa hlutina einfalda. Auðvelt er að rökstyðja að formaður peninga- stefnunefndarskuli fá greitt sérstaklega fyrir þá vinnu alla, þannig að svona er þetta mun heppilegra heldur en að fara að greiða aftur fyrir setu í bankaráðinu." Tveimur dögum síðar var Má send tilkynn- ing frá forsætisráðuneytinu þar sem honum var tilkynnt að hann hefði verið skipaður seðlabankastjóri frá og með 25. ágúst til fimm ára samkvæmt lögum. Tillagan um 400 þúsund króna launahækk- un seðlabankastjóra náði ekki fram að ganga enda dregin til baka. Már taldi hins vegar að hann hefði fengið fyrirheit um ákveðin laun sem ekki hefði verið staðið við. Því stefni hann Seðlabankanum. Mun það vera einsdæmi að sitjandi seðlabankastjóri ákveði að höfða mál gagnvart vinnuveitandanum. Íoktóber2012sýknaði Héraðsdómur Reykjavíkur Seðlabankann af kröfum Más Guðmundssonar. Hreinsun þegar í fyrstu viku Bankastjórnar Seðlabankans voru ekki einu embættismennirnir sem minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna, taldi óæski- lega. Hendur stjórnarinnar voru bundnar samkvæmt lögum um seðlabankann og ekki mögulegt að koma bankastjórunum frá nema með þeirra samþykkti eða laga- breytingum. Mun þægilegra og auðveldara varað koma öðrum embættismönnum frá, þótt ekki væri nema tímabundið. I fyrstu vikunni var lagt til atlögu við tvo ráðuneytisstjóra. Öðrum var komið í „sérverkefni" og hinum var skipað í frí. Það liðu ekki margir klukkutímar frá því að Jóhanna Sigurðardóttirtókvöldin í stjórnarráðinu þangað til hún var búinn að knýja Bolla Þór Bollason, ráðuneytisstjóra til að stíga til hliðar. Ragnhildur Arnljótsdóttir var sett ráðuneytisstjóri í stað Bolla og hún skipuð í embættið í júní 2009. Bolli Þór hafði átt farsældan sem embættismaður. Hann var hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun frá 1975 en skip- aður skrifstofustjóri efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins árið 1987. Árið 2004 skipaði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra Bolla Þór sem ráðuneytisstjóra forsætis- VORHEFTI2016 57

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.