Þjóðmál - 01.03.2016, Blaðsíða 62
Hvorki þingmenn stjórnarflokkanna né ráðherrar sættu sig við ráðningu Páls
Magnússonar sem yfirmanns Bankasýslunnar en hann var flokksbundinn
framsóknarmaður. Fréttastofa Ríkisútvarpsins greindi frá því að þingmenn
stjórnarflokkanna vilji koma í veg fyrir að Páll tæki við starfinu líkt og stjórn
Bankasýslunnar var einhuga um. Fullyrt var að ráðning Páls hafi verið rædd í
þingflokkum Samfylkingar og Vinstri grænna.
lausu vegna þrýstings frá Árna Páli Árnasyni,
félagsmálaráðherra, sem hafði legið undir
miklu ámæli fyrir að skipa hann. í Kastljósi
sagði Runólfurað umboðsmaður skuldara
gæti ekki sinnt starfi sínu án þess að hafa
dyggan stuðning ráðherrans. Runólfur sagði
Árna Pál hafa kveinkað sér undan pólitískri
umræðu vegna ráðningarinnar og að sér
þætti ekki mikill„mannsbragur" af því.
Bankasýslufarsi
Bankasýsla ríkisins tóktil starfa í ársbyrjun
2010 en stofnunin fer með eignarhluti ríkisins
í fjármálastofnunum. Elín Jónsdóttir var
ráðin forstjóri í upphafi en ákvað að láta af
störfum árið 2011. Staðan var auglýst lögum
samkvæmt og í septembertilkynnti stjórn
Bankasýslunnar að ákveðið hefði verið að
ráða Pál Magnússon, bæjarritara í Kópavogi,
sem forstjóra.
Hvorki þingmenn stjórnarflokkanna né
ráðherrar sættu sig við ráðningu Páls sem
yfirmanns Bankasýslunnar en hann var
flokksbundinn framsóknarmaður. Fréttastofa
Ríkisútvarpsins greindi frá því 16. október
að þingmenn stjórnarflokkanna vilji„koma í
veg fyrir að Páll Magnússon verði gerður að
forstjóra Bankasýslu ríkisins."
Fréttastofan fullyrti að ráðning Páls hafi
verið rædd í þingflokkum Samfylkingar og
Vinstri grænna, þar sem engir„studdu eða
voru ánægðir með ráðningu Páls". Þá sagði í
fréttinni:
„Rökin fyrir því að Páll taki ekki starfið
eru meðal annars þau að trúverðugleiki
Bankasýslunnar muni skaddast við það að
hann setjist í stólinn, ekki síst í Ijósi fortíðar
hans sem aðstoðarmaður þeirra Valgerðar
Sverrisdóttur og Finns Ingólfssonar þegar
þau gengdu (svo) ráðherraembættum á
sínum tíma."
Ríkisútvarpið staðhæfði að þrýstingurinn
væri svo mikill að„stjórn Bankasýslunnar virðist
iila stætt á því að standa við ráðninguna":
„Einstaka þingmenn hafa meira að segja
velt því upp í samtölum við fréttastofu að
þreyta beri lögum þannig að Páli verði ekki
sætt, bakki stjórn bankasýslunnarekki út úr
þessari umdeildu ákvörðun."
Fréttastofa Ríkisútvarpsins sagði í engu frá
bréfi Þorsteins Þorsteinssonar, stjórnarfor-
manns Bankasýslunnar til Steingríms J.
Sigfússonar, fjármálaráðherra, en stofnunin
heyrir undir fjármálaráðuneytið. Bréfið er
dagsett 13. október og þar er bent á að þrjú
próf hafi verið lögð fyrir umsækjendur um
starf forstjóra, þ.e. persónuleikapróf, mæling
á hugrænni hæfni og hversu vel þeir leystu
raunhæf verkefni. Þá var einnig lagt eitt próf
til viðbótar fyrir þá fjóra sem þest stóðu sig í
prófunum þremur. Niðurstaðan var sú að Páll
Magnússon var metinn hæfasturog sam-
kvæmt því ráðinn forstjóri. Að auki var litið
til menntunar, starfsreynslu og afar góðra
meðmæla.
Af þessu má vera Ijóst að stjórn Bankasýsl-
unnar beitti huglægu mati við ráðningu Páls.
Allt í fullkomnu samræmi við yfirlýsingar
forystumanna ríkisstjórnarinnar um að koma
skyldi í veg fyrir pólitískar ráðningar en láta
„faglegt" mat ráða.
Þorsteinn Þorsteinsson benti á í áðurnefndu
bréfi að ráðningarferlið hafi verið„afar
vandað og faglegt" og stuðst hafi verið við
„viðurkenndar matsaðferðir og mælingar":
60 ÞJÓÐMÁL