Þjóðmál - 01.03.2016, Qupperneq 63
„Eftir að mat hafði verið lagt á hæfnis-
kröfur samkvæmt auglýsingu og þær
viðbótarkröfur sem stjórn Bankasýslunnar
gerði til umsækjenda var sú ákvörðun tekin
að bjóða Páli Magnússyni starf forstjóra
Bankasýslu ríkisins. Byggði ákvörðun á
hlutlægum og málefnalegum sjónarmiðum
og að teknu tilliti til eiginleika Páls að gegna
starfinu.Telur stjórn Bankasýslu ríkisins
engum vafa undirorpið að Páll Magnússon
hafi uppfyllt laga- sem og aðrar hæfnis-
kröfur sem gerðar voru og verið hæfastur
umsækjenda um starfið."
Helgi Hjörvar, formaður viðskipta- og
efnahagsnefndar Alþingis, gekk sérstaklega
hart fram í gagnrýninni á Pál Magnússon
og ráðningu hans. Þingmaðurinn fullyrti að
ráðningin væri hneyksli og að Bankasýslan
væri rúin trausti. Helgi taldi nauðsynlegt að
fjármálaráðherra gripi til ráðstafana vegna
þessa. Björn Valur Gíslason, varaformaður
fjárlaganefndar, kallaði ráðninguna rugl í
pistli á bloggsíðu sinni.
Hin pólitíska atlaga að Bankasýslunni,
stjórn hennar og nýjum forstjóra heppnaðist.
Stjórn Bankasýslunnar sagði af sér og í tilkynn-
ingu 24. október 2011 sem undirrituð var af
stjórn sagði að vegið hafi verið að„trúverðug-
leika Bankasýslunnar og friður rofinn um
starfsemi hennar":
„Viðbrögð alþingismanna benda til þess að
erfitt verði fyrir stofnunina að starfa með
eðlilegum hætti að þeim mikilvægu og
vandasömu verkefnum sem henni er ætlað
að sinna og framundan eru."
Stjórnarmenn töldu að„afskipti utanað-
komandi afla geri henni ókleift að starfa
áfram á þeim faglega grundvelli sem stjórnin
telur nauðsynlegan".
Athyglisvert er að fara yfir fréttaflutning af
ráðningu Páls Magnússonar og viðbrögðum
stjórnarþingmanna. Óhætt er að fullyrða
að ef þingmaður Framsóknarflokksins hefði
staðið upp á þingi og gagnrýnt harðlega
ráðningu forstöðumanns í ríkisstofnun, hefðu
fjölmiðlar tekið við sér og fjallað um málið
með öðrum hætti. Ef Framsóknarflokkurinn
hefði verið í ríkisstjórn, hefðu fjölmiðlar
Hin pólitíska atlaga að Bankasýslunni,
stjórn hennar og nýjum forstjóra
heppnaðist. Stjórn Bankasýslunnar
sagði af sér: „Viðbrögð alþingismanna
benda til þess að erfitt verði fyrir
stofnunina að starfa með eðlilegum
hætti að þeim mikilvægu og vanda-
sömu verkefnum sem henni er ætlað
að sinna og framundan eru."
farið á fullt og viðkomandi þingmaður verið
sakaður um að reyna að beita pólitískum
áhrifum til að hafa áhrif á ráðningu. Nú væri
komin fram enn ein sönnun þess að fram-
sóknarmenn beiti öllum ráðum til að tryggja
að aðeins þeir sem eru„þóknanlegir" í augum
flokksins fái„feita" bita.
Brynjar Níelsson, hæstaréttarlögmaður,
gerði fréttaflutning Ríkisútvarpsins 16.
októberað umtalsefni í pistli á Pressunni
daginn eftir. Fjölmiðlar segist alltaf vera að
berjast fyrir bættu siðferði í stjórnmálum:
„Einhvern tímann þóttu pólitískar hreins-
anir af þessu tagi bera vott um ofstæki og
siðferði sem ekki væri til eftirbreytni.
Eins og svo oft áður standa fjölmiðlar sig
ekki í stykkinu. Það sem var fréttnæmt í
málinu er að stjórnmálamenn skeyta hvorki
um skömm né heiður og djöflast áfram í
krafti valdsins. Yfir því ætti Ijölmiðlamenn
og almenningur að hneykslast. Fréttamenn
ættu að velta fyrir sér af hverju það gerist
í lýðræðisríki í stað þess að endurvarpa
gagnrýnislaust öllu þessu lýðskrumi sem
einkennir stjórnmálin á íslandi."
Afskipti af ráðningu forstjóra Bandasýsl-
unnar eru langt í frá eina dæmið um hvernig
forráðamenn ríkisstjórnarinnar beittu afli og
áhrifum á störf stofnunar eða fulltrúa hennar.
Nokkrum mánuðum áður hafði verið komið
í veg fyrir að fulltrúi Bankasýslunnar í stjórn
Arion banka yrði skipaður að nýju í stjórn
bankans.
VORHEFTI2016 61