Þjóðmál - 01.03.2016, Page 65
stjórn Arion banka, þrátt fyrir að hafa tekið
þátt í vandaðri framkvæmd við ráðningu
bankastjóra sem gekk ekki gegn eigenda-
stefnu ríkisins, er óskiljanlegt nema því
aðeins að Bankasýslan hafi verið beitt pólitísk-
um þrýstingi líkt og gert var nokkrum
mánuðum síðar. Þá var stjórnin fullsödd og
sagði af sér.
Dauðadómur og vanvirða
Snorri Óskarsson
Nokkru eftir að Bandaríkja-
stjórn samdi við íran um að
látið skyldi af refsiaðgerðum
gagnvart landinu, tilkynnti
æðsti Immaminn að
dauðadómur yfir skáldinu
Salman Rushdie væri enn í
gildi og hver sá sem dræpi
hann fengi 80 milljónir í sinn
hlut frá írönskum skatt-
greiðendum.
Á sínum tíma þegar
Khomeini Erki-lmmam
dæmdi Rushdie til dauða og
lagði fé til höfuðs honum
taldi fólk á Vesturlöndum
að Khomeini hlyti að vera
orðinn elliær. Brugðist var
hart við þessu og fjölmiðlar
um allan heim fordæmdu
þessa aðför að tjáningar-
frelsinu. Nú þegar ekki er um
villst að þarna er um glóru-
laust ofstæki að ræða og
aðför að tjáningarfrelsinu hjá
ráðamönnum milljónaþjóðar
þá hefur engin neitt við þetta
að athuga af forustufólki hins
Vestræna heims.
Fjölmiðlar og fjölmiðlafólk
rísekki upp til varnar og
forustufólk í lýðræðisríkjum
lætur sem þeim komi þetta
ekki við. Páfinn er upptekinn
við að fordæma Trump og
faðma Castro og má ekki
vera að því að vandræðast
með aðför að tjáningar-
frelsinu.
Óvinirtjáningarfrelsins finn-
ast víða í fleti fyrir. Vestrænir
fjölmiðlar hafa tekið að sér
sjálfritskoðun og þöggun
eins og stjórnmálastéttin og
háskólaelítan.
Fyrir nokkru rak Akureyrar-
bær Snorra Óskarsson frá
störfum sem kennara vegna
skoðana hans. Grímulausu
atvinnubanni (berufsverbot)
var beitt gagnvart honum.
Hæstiréttur dæmdi upp-
sögnina ólögmæta, en
bæjarstjórinn sættir sig illa
við að Hæstiréttur skuli hafa
tekið afstöðu með tjáningar-
frelsinu.
Bæjarstjórinntelurað
Snorri hafi kallað yfir sig
vanvirðu og álitshnekki
vegna skrifa sinna og
trúarskoðana og þess vegna
geti bæjarstjórinn sest í
dómarasæti yfir honum og
fordæmt skoðanir hans og
ekki nóg með það svipt hann
störfum.
Hefði Snorri ekki verið
kristinn heldur játað
Múhameðstrú og verið Imam
þar á bæ þá hefði gegnt öðru
máli. Þá hefði verið sagt að
skrif hans væru réttlætanleg
út frá hugmyndum um fjöl-
menningu. Virða yrði ólíkar
trúarskoðanir. Ógæfa Snorra
er að vera kristinn og njóta
ekki þeirrar undanþágu sem
þöggunarlið Vesturlanda
heimilarflestum þeim sem
ekki játa kristna trú.
Jón Magnússon, hæsta-
réttarlögmaður og fyrrverandi
alþingismaður Sjálfstæðis-
flokkssins, á bloggsíðu sinni
24. febrúar2016.
VORHEFTI2016 63