Þjóðmál - 01.03.2016, Page 84
ICESAVE
Siguröur Már Jónsson
Svavarsskjólinu að Ijúka
Fyrir stuttu birtust útreikningar dr. Hersirs
Sigurgeirssonar á Vísindavefnum um kostnað-
inn af lcesave-samningi þeim sem kenndur
hefur verið við Svavar Gestsson. Útreikning-
ana má sjá annars staðar hér í blaðinu en
Hersir reiknaði út að eftirstöðvar Svavars-
samningsins til greiðslu úr ríkissjóði, miðað
við 100% heimtur höfuðstóls úr þrotabúi
Landsbankans, næmu nú 208 milljörðum
króna. Það samsvarar 8,8% af VLF 2016. Þessi
upphæð skyldi greiðast í 32 ársfjórðungs-
legum greiðslum næstu átta árin, frá 5. júní
2016. Það þýðir að sjö ára skjóli því sem
Svavari Gestssyni, aðalsamningamanni
íslands, varð svo tíðrætt um er að Ijúka.
Skattgreiðendur yrðu því að standa skil á 26
milljörðum króna á ári næstu átta árin. Ekki
lítil upphæð, sérstaklega þegar haft er í huga
að hana yrði að greiða í erlendum gjaldeyri.
En þetta segir ekki alla söguna. í raun er
hægt að segja að efnahagur landsins hafi
þróast á besta veg undanfarið. Skuldir ein-
staklinga, fyrirtækja og þjóðarbúsins lækka
jafnt og þétt. Krónan styrkist ár frá ári og því
er Ijóst að sú upphæð sem hægt er að reikna
vegna lcesave er mun lægri en ella hefði
orðið. Ef krónan hefði farið í samsvarandi
veikindafasa værum við líklega að tala um
skuld upp á um 300 til 400 milljarða króna.
Allt þetta er vert að hafa í huga þegar við
blasir að efnahagur landsins er með miklum
ágætum, öfugt við það sem við sjáum í
mörgum nágrannalöndum okkar. Þetta hefur
gerst þrátt fyrir að flestir hagspekingar hafi
talið nauðsynlegt á sínum tíma að skrifa
undir samninga við Breta og Hollendinga.
82 ÞJÓÐMÁL