Þjóðmál - 01.03.2016, Page 90
Miðað við gengi punds og evru á fyrsta
vaxtadegi samninganna, hinn 1. janúar 2009,
var höfuðstóll skuldarinnar að jafnvirði 638
milljarða króna þann dag, en miðað við
gengið við undirritun samninganna, hinn 5.
júní 2009, var hann að jafnvirði 710 milljarða
króna.
Höfuðstólsreiðslur skyldu greiddar í mynt-
um skuldarinnar, pundum og evrum, innan
fimm virkra daga frá því að greiðslur úr slita-
búi Landsbankans bárust í hvert sinn. Hér er
gert ráð fyrir að greitt hafi verið samdægurs
á miðgengi punds og evru á hverjum tíma.
f töflu 3 má sjá dagsetningar og fjárhæðir
höfuðstólsgreiðslnaTryggingarsjóðsins
og vexti sem hefðu bæst við höfuðstólinn
árlega. Til hliðsjónar er einnig sýnt gengi
punds og evru sem notað er til að umreikna
fjárhæðir í pundum og evrum í krónur á
hverjum tíma.
Tafla 3
Dags. Eftir- stððvar Áfallnir vextir Höfuð- stóls greiðsla Gengi GBP Gengi EUR
I.jan. 2009 638,2 175,43 169,97
5. jún. 2009 710,4 16,4 - 197,07 173,72
5.jún. 2010 704,8 37,1 - 188,88 156,85
5. jún. 2011 751,0 39,5 - 186,52 165,69
2. des. 2011 539,1 - 200,8 185,76 159,72
15. maí.2012 492,1 - 84,4 203,18 162,79
5. jún. 2012 521,4 37,1 - 199,27 161,41
9. okt. 2012 472,9 - 39,2 195,91 158,12
5.jún. 2013 487,3 26,3 - 187,77 159,79
12. sep. 2013 463,1 - 32,9 191,93 161,24
5. jún. 2014 479,2 25,7 - 190,03 154,27
23.des.2014 294,3 - 197,2 196,92 154,75
5.jún.2015 319,0 22,5 - 202,49 148,53
ll.jan. 2016 194,5 - 104,5 188,74 141,20
5.jún. 2016 207,9 14,3 - 187,19 141,80
Alls 207,9 218,7 659,0
Tafla 3. Áætlaðar eftirstöðvar höfuðstóls, áfallnir vextir og
höfuðstólsgreiðslur Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og
fjárfesta vegna Svavars-samninganna. Allar fjárhæðir í
milljörðum króna. Til hliðsjónar er einnig gengi punds og
evru sem notaðer til að umreikna fjárhæðir í pundum og
evrum íkrónur á hverjum tíma.
Heimild: Frumvarp til laga um heimild til handa
fjármálaráðherra, LBI (2015), LBI (2016), Seðlabanki
islands (á.d.) og eigin útreikningar.
Samburður við
Lee Buchheit-samningana
Hinn 11. júní 2015 birtist hér á Vísinda-
vefnum svar við sambærilegri spurningu um
kostnað ríkissjóðs af lcesave-samningunum
sem kenndir eru við Lee Buchheit. Svarið
var þá að áætlaðar heildargreiðslur vegna
þeirra samninga hefðu numið 87 milljörðum
króna, þar af 81 milljarður í vaxtagreiðslur og
6 milljarðar vegna greiðslu á eftirstöðvum í
88 ÞJÓÐMÁL