Þjóðmál - 01.03.2016, Side 93
forseti Venúzuela og
Néstor Kirchener forseti
Argentínu, Tabaré Vázquez
forseti Úruguay fylgja
sömu stefnu.
Chávez forseti Venúzuela
hefur kallað eftir efnahags-
legu og pólitísku samstarfi
S-Ameríkuríkjanna til að
minnka áhrif USA í heims-
álfunni. Ástandið er verst
í Kólumbíu. Þar stjórnar
Alvaro Unite sem er
sauðtryggur vinur Bush og
fylgir umyrðalaust tilskip-
unum frá ráðgjöfunum í
Washington.
Þess má reyndar geta að
hagkerfi hins „illa stadda"
Kolumbíu hefur getið af sér
mesta hagvöxt álfunnar,
landsframleiðsla pr. íbúa
hefur nífaldast og fátækt
farið úr 65% niður undir 24%,
þrátt fyrir að hafa þurft að
heyja baráttu við hryðju-
verkasamtökin FARC sem fjár-
mögnuð voru af Venezuela.
Leiklistargagnrýnandi
Morgunblaðsins spyr árið
2003: „Er eitthvað að óttast?"
Chaves hefur greitt niður
hluta skulda Argentínu
við Alþjóðabankann,
hann hefur veitt stórum
Ijárhæðum inní efnahagslíf
Bólivíu, hann selurfátæku
fólki íVermont, í Rhode
Island og Maine í Banda-
ríkjunum olíu á gjafverði
en 40% af útflutningi
Venezúela á olíu fertil
Bandaríkjanna. Hann
hefur lagt fram stórfé í
hjálparstarfsemi til dæmis
vegna jarðskjálftanna í
Pakistan. Og hann eins og
Símon Bolivar vinnur að
einingu Latnesku-Ameríku.
Stærsta verkefni hans er að
reyna byggja upp nokkurs
konar Efnahagsbandalag
Rómönsku- Ameríku. Og
styrkja stöðu þess gagn-
vart Bandaríkjunum sem
lengi hefur ráðið för í
álfunni.
Sú framvinda kann þá að
verða ekki síður heillandi fyrir
aðrar þjóðir en skáldsögur
Gabriels Garcia Marques og
Isabellu Allende.
íVíðsjá RÚV var m.a. sagt að:
Þegar Chavez tók við
sem forseti árið 1999 ríkti
gríðarlegur ójöfnuður í
landinu en rúmum þrettán
árum síðar er Venesúela
það land Suður-Ameríku-
álfu þarsem mestur
jöfnuður ríkir.
Þjóðnýting olíuvinnslunn-
ar hefur orðið með
lýðræðislegum hætti og
það er svo merkilegt hvað
mikið hefur áunnist.
Það „merkilega" sem
ávannst var að olíufram-
leiðsla hrundi (reyndar nokk-
uð sem félagshyggjufólk
telur nú samfélagslega
ábyrgt af umhverfis-
ástæðum).
Ban Ki Moon sagði við
andlát Chavez að leiðtoginn
hafi lyft grettistaki í barátt-
unni við fátækt í Rómönsku
Ameríku og fyrirfriði.
María Kristjánsdóttir
leikstjóri sagði að það hefði
verið „nauðsynlegt að svona
maður hafi komið fram".
Oliver Stone og Sean Penn
kölluðu Chavez hetju og
vildarvin allra fátæklinga í
heiminum.
Hlutlausar fréttaskýring-
ar RÚV hafa auðvitað ekki
brugðist:
Hin stórauknu umsvif
Kínverja íVenesúela, og
olíukaup þeirra þar, valda
stjórnvöldum í Banda-
ríkjunum áhyggjum, en
þau eru ekki vön því að
eiga í samkeppni um
auðlindir ríkja í Rómönsku
Ameríku.
Þess má geta að í dag
þurfa Bandaríkin ekki lengur
að flytja inn olíu sem þar að
auki er seld á heimsmarkaði
og skiptir þar uppruni litlu
máli.
Áætlað hefur verið að
Chavez og arftaki hans og
rútubílstjórinn Maduro hafi
millifært $70B til vinveittra
hryðjuverkasamtaka á borð
við Hezbollah og félags-
hyggjuleiðtoga annarra
ríkja án samþykkis þings eða
ríkistjórnar.
Sagt er að allt vald spilli
og gerræðisvald gerspilli.
Venesúela er eitt af 16 spillt-
ustu ríkjum veraldar hvar
lögregla er líklegri til að ræna
borgara heldur en aðstoða.
Nýlega birti RÚV frétt um
að verðbólga í landinu væri
varlega áætluð 180%.
Ástæðan fyrir efnahags-
erfiðleikunum ÍVenesúela
er fyrst og fremst rakin til
verðlækkunar á eldsneyti.
Það var og......
Pistill eftirArnar Sigurðsson
sem birtist á bloggsíðu hans
20. febrúar 2016.
VORHEFTI2016 91