Þjóðmál - 01.03.2016, Side 95

Þjóðmál - 01.03.2016, Side 95
í upphafi stríðs gerðu bresk stjórnvöld út af örkinni ræðismann til að gæta hagsmuna Bretaveldis hér á landi. Sá ágæti maður var í raun eins manns hernámslið. Hann hikaði ekki við að segja íslenskum ráðamönnum fyrir verkum og réð eiginlega öllu sem hann vildi.f...] Stríðið mikla færði íslensku þjóðinni ekki velmegun og velsæld, fólk hafði ekki ástæðu til að segja„blessað stríðið" eins og þegar næsti heimsófriður teygði anga sína hingað." Með þessum orðum boðar höfundurinn lesandanum viðfangsefni sitt við ritun bókar- innar, það er að greina og skýra afleiðingar stríðsins fyrir íslensku þjóðina í bráð og lengd. Innviðir íslenska stjórnkerfisins voru ekki viðamiklir við upphaf heimsátakanna. Árið 1904 kom stjórnarráðið til sögunnar með einum ráðherra og landritara, Klemens Jónssyni, sem stjórnaði daglegum rekstri. íslenska stjórnarskrifstofan í Kaupmanna- höfn, Jón Krabbe, var tengiliður landstjórn- arinnar við dönsk stjórnvöld. Við upphaf árs 1914 var fólksfjöldi á íslandi 87.137 og starfsmenn stjórnarráðsins 16 og sinntu allir störfum sínum í stjórnarráðshúsinu við Lækjartorg. Hannes Hafstein lét af ráðherra- embætti 21. júlí 2014. Sigurður Eggerz tók við af honum. Daginn sem Austurríkismenn sögðu Serbum stríð á hendur, þriðjudaginn 28. júlí, var Sigurður á heimleið af konungs- fundi í Kaupmannahöfn, þaðan hélt hann til Englands og fékk far til Víkur í Mýrdal með enskum togara frá Hull.Til Víkur kom hann miðvikudaginn 29. júlí 2014 og hélt ríðandi að bænum Ægissíðu við Ytri-Rangá. Þar beið bifreið frá Reykjavík ráðherrans og þangað kom hann skömmu eftir miðnætti aðfaranótt föstudags 31. júlí. Á meðan ráðherrann var á leiðinni frá Vík spurði stjórnarráðið tengilið sinn í Kaupmannahöfn um horfur í Evrópu og fékk þau svör„að brýnt væri að birgja landið tafarlaust upp af matvöru og öðrum Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðingur hlaut íslensku bókmenntaverðlaunin 2016 í flokki fræðibóka og rita almenns efnis. nauðsynjum". Föstudaginn 31. júlí barst annað stutt og skorinort skeyti frá Kaupmannahöfn: „Horfurnar voðalegar". Daginn eftir sögðu Þjóðverjar Rússum stríð á hendur. Þá hafði alþingi samþykkt bjargráðafrumvarp eða neyðarlög. (Bls. 112 til 115.) í lok árs 2015 voru íbúar á íslandi um 330.000 eða tæplega fjórfalt fleiri en árið 1914. Sé litið á flölda stafsmanna í stjórnar- ráðinu, það er aðalskrifstofum ráðuneyta, starfa þar um 500 manns sem er þó ekki nema 2,5% ríkisstarfsmanna, segir á vef- síðunni rikiskassinn.is. Fjöldi starfsmanna stjórnarráðsins hefur rúmlega 30 faldast á 100 árum. Upphaf þessa vaxtar í umsvifum ríkisins má rekja til stríðsins mikla. Kröfurnar um aðgerðir af hálfu hins opinbera jukust jafnt og þétt eftir því sem á stríðið leið. í upphafi árs 1917,4. janúar, var ákveðið að fjölga ráðherrum úr einum í þrjá. Fyrsta Fjöldi starfsmanna stjórnarráðsins hefur rúmlega 30 faldast á 100 árum. Upphaf þessa vaxtar í umsvifum ríkisins má rekja til stríðsins mikla. VORHEFTI2016 93

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.