Morgunblaðið - 18.06.2021, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.06.2021, Blaðsíða 1
Morgunathöfn þjóðhátíðardagsins á Austurvelli var hátíðleg að venju. Þar flutti forsætisráðherra ávarp og fjallkonan sér- samið ljóð. Skrúðganga fór frá Austurvelli í kirkjugarðinn við Suðurgötu þar sem blómsveigur var lagður að leiði Jóns Sig- urðssonar og Ingibjargar Einarsdóttur. Lúðrasveitir voru á vappi um miðbæ Reykjavíkur í gær en Lúðrasveit Reykjavík- ur, Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur héldu upp á þjóðhátíðardaginn með því að arka fram og til baka um miðborg Reykjavíkur og blása í lúðra sína. »6 Morgunblaðið/Jón Helgi Lúðrasveitir örkuðu fram og aftur F Ö S T U D A G U R 1 8. J Ú N Í 2 0 2 1 .Stofnað 1913 . 141. tölublað . 109. árgangur . ALLIR ERU JAFNIR FYRIR LISTA- GYÐJUNNI MÆLA HJARTSLÁTTINN NÁGRANNAÞJÓÐ- IRNAR Í 16 LIÐA ÚRSLITIN SVARTÞRESTIR 9 EM Í KNATTSPYRNU 27TEGUNDAGREINING STEINGRÍMS 28 _ Flestir formenn stjórnarand- stöðuflokkanna segja verð bréfanna í hlutafjárútboði Íslandsbanka hafa verið allt of lágt. Mikla þátttöku al- mennings í útboðinu megi því rekja til verðlagningar bréfanna auk óhagstæðra vaxta á innlánsreikn- ingum. Flestir formenn stjórnarandstöð- unnar fagna aðkomu erlendra fjár- festa og breiðri dreifingu eignar- halds bankans. „Auðvitað er ánægjulegt að við séum að fá erlenda fjárfesta þarna inn, hugsanlega mun það einhverju breyta. En það breyttist ekkert hjá Arion banka við það og við erum enn að glíma við þessa fákeppni á banka- markaði. Því miður,“ segir Inga Sæ- land formaður Flokks fólksins. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar telur jákvætt að almenningur sé aftur orðinn þátt- takandi í hlutafjármarkaðnum. »2 Telja bréfin hafa farið á undirverði Esther Hallsdóttir esther@mbl.is Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, segist vona að sóttkví við komuna til lands- ins verði afnumin fljótlega. Opnað var fyrir komu bólusettra ferðamanna frá löndum utan EES/ EFTA-svæðisins hinn 6. apríl. Ferðamenn sem eru bólusettir eða með vottorð um fyrri sýkingu fara nú í eina sýnatöku á landamærum fram að 1. júlí. Óbólusettir ferðamenn frá EES/ EFTA-löndum, aðrir en þeir sem koma frá Grænlandi, þurfa að sýna neikvætt PCR- próf, fara í tvær sýnatökur og sæta sóttkví í fimm daga. „Þegar það var opnað 6. apríl fyr- ir bólusetta ferða- menn utan Schengen byrj- uðu Ameríkanar að tínast til lands- ins. Það eru aðallega þeir sem hafa verið á ferðinni í einhverjum mæli síðustu vikurnar. Síðan er núna farið að bera töluvert meira á Evrópu- búum,“ segir Bjarnheiður. „Það sem einkennir þessa ferða- menn er fyrst og fremst að þeir eru nánast allir bólusettir. Það sem mun skrúfa almennilega frá krananum er þegar við getum breytt reglum á landamærunum þannig að sóttkvíin verði afnumin. Það verði, eins og var búið að tala um að yrði jafnvel 1. júlí, bara einföld skimun fyrir alla. Því var frestað allavega til 15. júlí. Það er í rauninni það sem ferða- þjónustan er að bíða eftir, því að þá getum við sagt að það sé búið að af- létta öllum takmörkunum og þá get- ur ferðaþjónustan farið í fullan gang. Þetta er náttúrlega takmarkandi þáttur því það eru ekki allar þjóðir komnar eins langt og við í bólusetn- ingunum,“ segir hún. Mikið bókað í haust Bjarnheiður segir að bókanir séu að tínast inn en þær séu ekkert mið- að við árin fyrir faraldurinn. Þó sé mikið bókað í ágúst og september og fram eftir haustinu. „Þetta eru mjög spennandi tímar og ferðaþjónustan til í tuskið og hlakkar til að komast í gang aftur al- mennilega,“ segir Bjarnheiður. „Staðan er allt önnur en í fyrra.“ Hún á von á að ferðamenn verði til helminga Íslendingar og erlendir ferðamenn framan af sumri. Vilja afnema sóttkvína - Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir ferðaþjónustuna komast í fullan gang þegar sóttkví á landamærunum verður afnumin - Von á aukningu í haust Bjarnheiður Hallsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.