Morgunblaðið - 18.06.2021, Blaðsíða 17
UMRÆÐAN
17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JÚNÍ 2021
Kartell
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
BOURGIE
Borðlampi
Frá 39.900,-
ÚTSKRIFTAGJAFIR
JELLIES glas – 3.290,- stk.
PLANET
Borðlampi 28cm
54.900,-
MASTERS
Stóll – 33.900,-
COMPONIBILI hirsla
3ja hæða – frá 18.900,-
MOON skál
Ø: 45 cm – 13.900,-
AIR DU TEMPS
Klukka – 17.900,-
BATTERY
Hleðslulampi
Lítill frá 21.900,-
Stór 43.900,-
17.950kr.
Elisa
Ljósastaur, hæð: 85 cm
Litir: Grár, hvítur
og svartur
Við Fellsmúla | Reykjavík | Sími: 585 2888
Vísindunum fleygir
fram. T.d. hafa verið
birtar niðurstöður
merkrar rannsóknar á
kúgun kúa. Greinin,
sem birtist í tímariti
Kven- og kynfræða-
deildar háskólans í
Nýju Jórvík (NY),
heitir: „Undirbúningur
fyrir píslarbekk nauðg-
unarinnar: Kven-
frelsun og rányrkja á æxlunarfærum
dýra“ (Readying the Rape Rack:
Feminism and the Exploitation of
Non-Human Reproductive Systems).
Fyrir höfundi, Mackenzie April,
vakir að afhjúpa „kvenfrelsunar-
tilbrigði við landbúnað með dýr“.
Höfundur er aðgerðasinni og beitir
sér fyrir rétti dýra og neyslu græn-
metis. Hún fræðir lesandann um, að
því miður sé skortur á slíkum rann-
sóknum, sem engu að síður séu
þýðingarmiklar, því að á sama hátt
og „heilsa kvenna hafi verið í húfi
árum saman, hafi æxlunarlíffærum
mjólkurkúa verið misþyrmt (poded
and prodded)“.
Mackenzie vekur athygli á því,
hvernig slík misþyrming stingi í stúf
við þá mynd kýrinnar, sem frá
blautu barnsbeini hefur borið fyrir
hugskotssjónir okkar, þ.e. „mjólk-
urkýr á beit á fögru engi, þar sem
þær „leika við hvurn sinn fingur“
(sow and play) og leggjast til svefns í
rúmgóðu bóli. Við sjónum okkar
blasir hamingjuríkt líf [kúnna], en
þegar kemur að drápi hinna sömu,
blasir [hins vegar] við ógeðfelldur
veruleiki.“
Rannsókn Mackenzie leiddi m.a. í
ljós, að bændur nauðgi kúm sínum
með sæðingum og misnoti þær kyn-
ferðislega, þegar þær eru mjólkaðar.
Þannig býður mjólkuriðnaðurinn
heim umsvifamikilli kynferðislegri
misnotkun; „vettvangur kynferð-
islegar árásar og hlutgervingar á
grundvelli sköpunarverksins“.
Fólk er hvatt til and-
ófs gegn bændum sem
slíka ósvinnu stunda,
svo að „til fullnustu
megi vinna bug á kyn-
ferðislegri kúgun [þ.e.
kúgun kvenna].“ [Kúg-
unin] er verulega út-
breidd, en fram hjá
henni litið, þar sem við
kjósum að virða að vett-
ugi dýrin sem við deil-
um jörðinni með.“ …
„Samfélaginu ber einnig
skylda til að láta sig
hlutskipti mjólkurkúa skipta.“ Þær
séu fórnarlömb (subjects) „kynferð-
islegs misréttis og ofbeldis“, enda
þótt þær hvorki „hafi hátt um það né
séu skiljanlegar“.
Mackenzie elur þá von í brjósti, að
rannsókn hennar ljúki augum al-
mennings upp fyrir því, hvernig
mjólkuriðnaðurinn „styðji og sé [um
leið] dæmi um niðurlægjandi með-
ferð kvenlíkama og æxlunar“. Hún
gælir einnig við þá tilhugsun, að
rannsókn hennar verði kvenfrels-
urum og öðrum réttlætissinnum
hvatning til „að taka tillit til dýralík-
ama í kvenfrelsunarviðhorfum sín-
um. … og virða líf dýra eins og væri
eigið líf“. Hún leggur einnig að les-
endum, að leggja að jöfnu baráttuna
fyrir rétti kúa „með svipuðum rök-
semdum og aðgerðum og í barátt-
unni fyrir rétti kvenna, [baráttu]
sem fólki er hlíft við sökum forrétt-
inda tengdra kynþætti, kynferði,
stétt og svo framvegis“.
„Vaki það fyrir okkur að færa rök
fyrir rétti allra lífvera í veröld, þar
sem ríkir kynferðisleg og kynbundin
kúgun [þ.e. kúgun af karla hálfu],
ætti að taka tillit til mjólkurkúa,
þegar æxlunarheilsa kvenna er
rædd. Það eiga mjólkurkýr skilið,“
segir Mackenzie.
Greinarhöfundur ber saman ófrjó-
ar kusur og óbyrjur, sem svo eru, að
eigin ósk. „Konur, sem óska þess að
fæða ekki börn, eru skammaðar. Sé
kýr [hins vegar] ófrjósöm liggur leið
hennar í sláturhúsið. Þar eð æxl-
unarfæri þeirra eru gagnslaus eru
þær ónytjungar [taldar] sem líf-
verur.“ Þetta kallar höfundur „tvö-
falt siðferði“, þar sem siðvætt sam-
félag mundi kveinka sér við að
myrða konur um leið og þær yrðu
ófrjósamar.
„Hin úr sér gengna ímynd kon-
unnar sem móðir og uppalandi lifir
góðu lífi í mjólkuriðnaðinum, sér-
staklega með hliðsjón af því, hvernig
rányrkjunni á skepnunum er hagað,“
t.d. við þá „nauðgun“, sem í sæðingu
felst; við mjöltina, sem er „kynferð-
islegri misnotkun“ líkust; við „tilfinn-
ingalegt áfall kelfdrar kýr“, sem
einnig hefur mátt þola „kynvaka-
meðferð án samþykkis“.
Lokaorð höfundar eru þessi: „Á
meðan við berjumst gegn kynferðis-
legu ofbeldi gegn konum lokum við
augunum fyrir sams konar ofbeldi
sem aðrar lífverur verða fyrir, þrátt
fyrir að leiðir séu færar til að haga
lífi sínu á sjálfbærari hátt og sem
leiða ekki til misþyrminga á millj-
ónum kvenlíkama.“ Höfundur spyr
að lokum, hvers vegna fólk haldi í
heiðri auðvaldið, kynfólskuna og
feðraveldið, þegar því er í lófa lagið
að losna við þann ófögnuð allan á
einu bretti og stuðla um leið að æxl-
unarréttlæti dýra.
Eru kýr beittar kynferðislegu ofbeldi?
Eftir Arnar
Sverrisson
Arnar Sverrisson
»Ný þekkingarfræði
hefur skotið rótum í
vísindunum. Lögð er
áhersla á samhygð við
rannsóknarviðfangið,
t.d. við landbúnaðar-
rannsóknir.
Höfundur er ellilífeyrisþegi.
arnarsverrisson@gmail.com
Það gengur mikið á í
heiminum og ekki síst í
Kínahafinu þar sem
menn ota sínum tota í
mót sínum „and-
skotum“ gráir fyrir
járnum. Það vakti hins
vegar furðu mína er
Kínverjar settu einn
ágætan lögfræðing út af
sakramentinu ekki alls
fyrir löngu og frystu
engar eignir hans í Kína. Kínverjar
eru um margt merkileg þjóð. Þeir eru
kommúnistar að nafni til en eru engu
að síður einhverjir mestu kapítalistar í
gjörvöllum heimi. Þar í landi hafa
menn fyrir löngu afskaffað lýðræði,
málfrelsi, ritfrelsi og trúfrelsi sem þeir
telja algeran óþarfa. Þeir eru víst
nokkuð fastir fyrir gagnvart nágrönn-
um sínum og eru t.d. fyrir löngu búnir
að „Kínverja“ Tíbeta. Þeir minna íbúa
Hong Kong á að nú búi þeir í Kína, þar
með skuli þeir hætta að hafa skoðanir
og marsera í takt. Þá krefjast þeir að
Taívanar gangi til liðs við Ping og ger-
ist kínverskir kommúnistakapítalistar.
Þeir vilja eignast allt Kínahaf, ef ekki
hálft Kyrrahafið a.m.k., sem þykir eðli-
leg krafa útgerðarjöfra í sjávar-
plássum þar í landi og hafa þar for-
dæmi af Íslandi.
Vestur af Kína býr þjóð sem nefnist
Úígúrar. Þeir eru svo óheppnir að vera
flestir múslimar og ekki Kínverjar.
Hér virðist okkur að þeir Ping og
Pong hafi farið aðeins yfir strikið er
þeir reyna að „Kínverja“ Úígúra og
Mammon einn veit hvort það verði
nokkru sinni hægt að „af-Kínverja“ þá.
Allt er þetta býsna sorglegt ef satt er
nú þegar Kínamenn eru farnir að
nudda sér upp við Írana,
sem eru líka múslimar og
ættu frekar að koma trú-
bræðrum sínum til hjálp-
ar en máski eru Úígúr-
arnir að mestu súnna-
megin við Allah.
Kínverjar eru fyrir
löngu farnir að hasla sér
völl sem víðast. Þeir fjár-
festa undir drep um allan
heim. Þeir vildu endilega
hjálpa Færeyingum við
þeirra innviði og gott ef
ekki okkur líka. Þeir hafa
reynt að ná fótfestu á Grænlandi og
vilja hreiðra um sig um allt Norður-
Íshaf, sennilega í öðrum tilgangi en að
skoða norðurljósin. Mér skilst einnig
að þeir hafi slíkt fjárhagslegt hreðja-
tak á Bandaríkjamönnum að vart verði
ofanundið. En bissness er bissness og
frá Kína fáum við jú Eplatölvurnar
okkar og fleira dót, framleitt af fólki á
sæmilegum lágmarkslaunum, trúi ég.
En máski ætti ríkisstjórn okkar og Al-
þingi að hugsa sinn gang varðandi
bissnessinn við þá austmenn. Að öðru
leyti þakka ég ríkisstjórninni, sem hef-
ur unnið aldeilis sæmilega síðustu
misserin undir styrkri stjórn Sam-
herja. En „Guð blessi Ísland“, eins og
maðurinn sagði, og látum oss þakka
öllum góðum vættum fyrir málfrelsi,
ritfrelsi, trúfrelsi og lýðræðið. Sömu-
leiðis vil ég þakka Dalai Lama fyrir
upplýsingarnar og hann biður að
heilsa.
Af Kínverjum
Eftir Hannes Örn
Þór Blandon
Hannes Örn Þór Blandon
» Örlítil hugleiðing um
Kínverja.
Höfundur er prestur og áhugamaður
um alþjóðapólitík.