Morgunblaðið - 18.06.2021, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.06.2021, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JÚNÍ 2021 ✝ Vilhjálmur Óskarsson fæddist 1. október 1952 í Reykjavík. Hann varð bráð- kvaddur á heimili sínu 2. júní 2021. Foreldrar Vil- hjálms voru Óskar Guðfinnsson, f. 16.1. 1918, d. 19.5. 1984, og Hallveig Ólafsdóttir, f. 27.10. 1925, d. 27.6. 2019. Systk- ini Vilhjálms eru þau Jónína, f. son, f. 1998, og Ragnheiður Rík- harðsdóttir, f. 2005. Dóttir Gunnars er Mía Pálína, f. 2005. Vilhjálmur fór ungur á sjó, lærði vélvirkjun og stofnaði í kjölfarið ásamt fleirum fyrir- tækið Gjörva, sem sá um við- gerðir og þjónustu við skip. Hann starfaði þar til ársins 2016þegar fyrirtækið var selt. Eftir það starfaði hann við ým- islegt en 27. maí 2021 lauk hann námi sem leiðsögumaður frá Ferðamálaskóla Íslands. Vil- hjálmur ferðaðist mikið og átti ýmis áhugamál í gegnum tíðina, s.s. vélsleðaferðir og útivist ým- iss konar og seinni árin stund- uðu þau hjónin golf. Vilhjálmur verður jarðsung- inn frá Lindakirkju í dag, 18. júní 2021, klukkan 13. 1955, Ólafur, f. 1958, Guðfinnur, f. 1958, d. 1978, og Rannveig, f. 1961. Eiginkona Vil- hjálms er Elínborg Proppé, f. 9.1. 1954. Börn þeirra eru Þórey, f. 1972, og Gunnar Þór, f. 1978. Unnusti Þór- eyjar er Magnús Orri Marínarson Schram, f. 1972. Börn Þóreyjar eru Vilhjálmur Kaldal Sigurðs- Hlýja, kærleikur, hugrekki og dugnaður kemur upp í hugann þegar ég hugsa um elsku pabba. En einnig þrautseigja og þol- gæði, eiginleikar sem ég mun þurfa að rækta sérstaklega með mér núna til þess að komast yfir sorgina. Áfallið við að missa þennan dásamlega mann úr lífi okkar – óvænt og allt of snemma. Þrátt fyrir að pabbi hafi unnið í frekar harðgeru umhverfi á sjón- um og í vélsmiðjunni var stutt í mýktina og hlýjuna. Hann sat með mér kvíðnum unglingnum tímunum saman og ræddi um til- finningar og lífið. Hversu erfitt það getur verið og hvernig stundum þurfi bara að halda áfram. Hann kenndi mér að þol- gæðið og þrautseigjan skipta máli þar sem lífið er fullt af áskorunum. Pabbi og mamma eru ein af þeim lánsömu sem fundu ástina og sálufélaga tæplega tvítug en samband þeirra var einstakt. Það varð enn kærleiksríkara með árunum og þau þroskuðust svo yndislega fallega saman. Fjölskyldan var í forgangi hjá pabba, barnabörnin nutu þeirrar gæfu að eiga einstaklega ástrík- an og kærleiksríkan afa. Það hlutverk skipti hann miklu máli enda sinnti hann því framúrskar- andi vel. Villi, Ragnheiður og Mía voru augasteinarnir hans, hann var svo stoltur af þeim og einn þeirra helsti stuðningsmað- ur ásamt mömmu. Hann var einnig dyggur stuðningsmaður minn á minni vegferð í lífinu, hvatti mig áfram alla tíð, hvatti mig til að þora að fara óhefð- bundnar leiðir og að takast á við nýjar áskoranir. Ég fékk svo sannarlega að upplifa það að hann væri stoltur af mér og það var ég einnig af honum. Hreyfing og heilsa var svo stór hluti af lífi pabba, hann gekk og/eða synti á hverjum degi og var í góðu formi. Hann synti skriðsund en við sundfólkið vit- um að það er smartara en að synda bringusund enda var hann flottur gaur. En hann byrjaði einmitt síðasta dag lífs síns á því að fara í sund. Það þurfti alltaf að vera eitthvert verkefni eða við- burður fram undan hjá pabba, alltaf eitthvað að fást við, hann var virkur vel yfir meðallagi. Ég naut góðs af því enda deildi ég þessari virkni með honum. Ég er innilega þakklát fyrir og ylja mér yfir stundunum sem við áttum saman í ýmiss konar leik og úti- vist. Á sjóskíðum, seglbrettum, vélsleðaferðum og nú síðustu ár í fjallgöngum. Við spiluðum stundum golf saman sem hefði líklega verið skemmtilegra ef hann hefði ekki alltaf verið svona pirraður á frammistöðu sinni, en við nutum þess alltaf að vera saman þrátt fyrir það. Það var aðdáunarvert að fylgj- ast með pabba fóta sig eftir að hann seldi fyrirtækið sem hann hafði rekið í rúm 30 ár. Þann 27. maí, viku áður en hann dó, út- skrifaðist hann úr leiðsögunámi frá Ferðamálaskóla Íslands. Hann naut þess að vera í náminu og við biðum spennt eftir því að fá að njóta leiðsagnar hans í ferð- um okkar í sumar. Af því verður því miður ekki en ég mun áfram njóta leiðsagnar hans í anda með það veganesti sem hann hefur gefið mér. Stórt skarð er höggvið í litlu fjölskylduna okkar, skarð sem ekki verður fyllt. Minningin um yndislegan föður, afa og eig- inmann lifir áfram um ókomna tíð. Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé. Það streyma til mín hlýjar minningar þegar ég hugsa til lífs- ins með pabba og samverustund- anna sem við höfum átt í gegnum tíðina. Minningar um góðan mann sem lagði sig allan fram við að vera til staðar fyrir þá sem hann elskaði. Ofarlega í huga eru gæða- stundirnar sem við fjölskyldan áttum í Skorradalnum, gæða- stundir sem urðu bara betri eftir því sem árin liðu og barnabörn- unum fjölgaði, grillpartíin á blíð- um sumardögum, gönguferðirnar á ísilögðu vatninu, leikirnir á körfuboltapallinum, trjágrisjun- in, silungaveiðin og allar sjóskíða- ferðirnar. Þar var pabbi í sínu rétta umhverfi enda sannur sveitastrákur inn við beinið og mikill fjölskyldumaður. Hann var okkur ætíð innan handar, hvort sem það var til að gefa einföld ráð um lífsbaráttuna, ef smíða þurfti húsgögn, draga bilaðan bíl frá Þorlákshöfn í bæ- inn á miðsumarsnóttu, breyta bíl- skúr í stúdíóíbúð eða til að hittast og eiga huggulega stund með okkur Míu og fjölskyldunni. Það er sárt að missa slíkan banda- mann, en kærleikur og þakklæti eru sorginni yfirsterkari, þakk- læti fyrir öll árin sem við áttum saman, húmorinn, ástúðina, rök- ræðurnar, umburðarlyndið, elju- semina, ósérhlífnina og þá heil- brigðu forvitni og fróðleiksást sem ég dáðist alltaf að og eru fyr- irmyndarveganesti út í lífið. Elsku pabbi, ég kveð þig með söknuði en ljúfri sátt í hjarta. Gunnar Vilhjálmsson. „Ofsalega eru þau ástfangin“ – sagði ég við Þóreyju eftir að við höfðum hitt tengdó um daginn. Það var nefnilega alveg eins og Villi og Bogga hefðu byrjað sam- an í vor. Svo fallegt blik þegar þau horfðust í augu, kankvísi og bros gagnvart hversdeginum og búið að leggja drög að alls konar ævintýrum í sumar. Fimmtíu ár og svo fallega ástfangin. Tengdapabbi var af kynslóð- inni sem bjó til Ísland. Ósérhlíf- inn og nægjusamur svo við þau yngri gætum látið draumana ræt- ast. Kornungur á sjó og svo í eigin atvinnurekstur, þar sem unnið var myrkranna á milli til að skapa sínu fólki tækifæri. Svo var ekk- ert slegið af þegar um hægðist, því þá þurfti að skutla á æfingar og hengja upp hillur. Aldrei sagði Villi nei. Allt fyrir sitt fólk. Hans bestu stundir voru með fjölskyldunni í útivist. Hvað hann var þolinmóður við sitt fólk þegar illa gekk að standa sjóskíðin í Skorradalnum eða þegar þurfti hjálp í vélsleðastússi. Svo ég tali ekki um ferðina okkar í Þjórsár- dal og Landmannalaugar þegar við bjuggum til fallegar minning- ar fyrir lífstíð. En mest töff þótti mér þegar hann dreif sig í Leið- sögumannaskólann í vetur, bara til að auka á gleðina af ferðalög- um um landið. Stórt skarð er nú höggvið í litlu fjölskylduna og afabörnin eiga um sárt að binda. En ég veit að þau munu heiðra minningu hans, þar sem þau búa yfir greind, manngæsku og húmor – öllum hans helstu kostum. Ég veit líka að þau munu sækja fram og nýta tækifærin – fyrir afa Villa. Láta drauma sína rætast. Það myndi gleðja ástfangna parið. Magnús Orri Marínarson Schram. Elsku afi minn, það er svo erf- itt að halda minni lífsgöngu áfram án þín. Ég myndi gera allt til að fá að knúsa þig einu sinni enn. Þú hefur alltaf verið til staðar fyrir mig sama hvað bjátar á og einn minn besti vinur síðan ég man eft- ir mér. Endalausar klukkustund- ir þar sem þú lékst þér með mér í fótbolta, golfi eða bara hverju því sem ég hafði áhuga á, þá hjálpaðir þú mér alltaf að rækta mín áhugamál sama hver þau voru. Þú ert besta sál sem til er og vona ég að þú hafir það gott á þeim stað sem þú ert á núna og finnir fyrir ró og friði, elsku eng- illinn minn. Ég sakna þín svo mik- ið og mun gera það alla mína ævi. Ég veit samt að þú verður mér ávallt við hlið og ég sömuleiðis með þér. Ég elska þig afi og mun ávallt gera. Þangað til við hitt- umst næst, þinn Vilhjálmur (Villi litli). Hann Villi bróðir minn lést öll- um að óvörum í blásumarbyrjun. Þegar ég kveð elskulegan bróður, eftir samfylgd gegnum heilt líf, skjótast upp minningaleiftur hvar og hvenær sem er; í búðinni, við bensíndæluna eða á rúntinum út á Granda. Hann var góður bróðir sem hafði alltaf reglulega samband og meira ef eitthvað bjátaði á. Klettur. Hann var fjöl- skyldumaður, vinur vina sinna, athafnasamur og áræðinn. Fal- legur, raungóður og ósérhlífinn. Sorgin og söknuðurinn hellast yf- ir. Mamma réð nafninu á frum- burðinum og hann var skírður í höfuðið á langafa okkar Vilhjálmi Gíslasyni, járnsmið og ferju- manni yfir Ölfusá. Fyrstu þrjú ár- in sín var Villi eina barnið og naut óskiptrar athygli og aðdáunar og pabbi keypti allskonar flotta bíla og leikföng handa honum í sigl- ingunum. Á Framnesveginum minnist ég þess þegar Villi fór að veiða á færi niður á bryggju og kom stoltur heim með kola sem hann hafði veitt. Mamma steikti fiskinn sem var borðaður með góðri lyst. Stundum á sunnudög- um fór Villi í þrjúbíó ásamt vinum sínum að sjá Tarzan, Roy Rogers og Zorró-myndir og ég með, því fylgdu kvaðir að vera stóri bróðir. Þegar Villi bar út Moggann á Melunum fékk ég stundum að hjálpa til sem var eftirsóttur heið- ur. Á sumrin, þegar pabbi var í landi, fórum við í Heiðmörk og nestið var borðað í notalegri laut. Mamma fræddi okkur um jurtir og þau kenndu okkur að skoða skýin og spá í veðrið. Þegar Villi fór í sveit á sumrin var farið í Hagkaup á Miklatorgi þar sem keyptir voru nýir skór og nesti, man eftir risastóru súkkulaði í safírbláum álpappír. Fyrst var hann í sveit á Hamri í Flóa, síðan á Stóra-Kálfalæk á Mýrum og síðast á Kirkjubæjarklaustri. Part úr sumri var Villi á Eyrar- bakka hjá Rannveigu ömmu á Eyri. Í fyrrasumar þegar við gengum þar frá sat hann innan um alla ættingjana á veggjunum og rifjaði upp þennan tíma. Húsið er nú komið í eigu Þjóðminja- safnsins og verður opnað sem safn næsta sumar. Villi fór snemma á sjóinn, var á togaran- um Mars og sigldi til útlanda í söluferð og færði okkur gjafir þegar hann kom heim úr túrnum; gaf mér hettukjól og bjútíbox. En talandi um föt, þegar Villi fermd- ist keypti hann bítlaskó fyrir ferminguna. Þarna voru tímarnir að breytast og Villi fór að láta hárið vaxa niður fyrir eyru og fékk sér bítlabindi. En alvara lífs- ins var ekki langt undan. Einn daginn voru ókunnir ungmeyjar- skór í ganginum heima. Þar með var Bogga komin til sögunnar; ung, sæt, flink og heilsteypt. Fljótlega voru þau komin með hana Þóreyju, fyrsta barnabarn- ið, sem var fagnað í báðum fjöl- skyldum og síðan kom Gunni og fullkomnaði fjölskylduna. Að auki eignaðist hann einstaka tengda- foreldra. Villi og Bogga hafa átt farsæla samfylgd og fjölskyldan hefur vaxið og dafnað. Hugur minn er hjá ykkur, elsku Bogga, Þórey, Gunni og fjölskyldur. Hafðu þakkir fyrir allt, elsku bróðir. Fyrir sálar sjónir sagðar myndir brugðu, meðan hljóð ég hefi horft í ljós og sorta. Sá að kveldi síga sól að höfuðbóli. Árdags lít í anda endurkomu tendrast. (Bryndís Jónsdóttir Bach- mann) Jónína Óskarsdóttir. Elsku Villi. Kynni okkar hófust þegar ég var aðeins 14 ára gamall þegar þið Bogga systir byrjuðuð að vera saman. Síðan fluttir þú til okkar í Skipasundið á æskuheim- ili okkar Boggu. Ég á margar góðar minningar frá þeim tíma og þeim fjölmörgu árum sem við höf- um umgengist eftir það. Þegar mamma féll frá hittumst við reglulega til að ganga frá bú- slóð hennar og þjappaði það okk- ur enn meira saman. Við hittumst síðast á Jómfrúnni, sem var uppá- haldsveitingastaðurinn hennar mömmu, og borðuðum þar sam- an. Þar ræddum við um að nú skyldum við fara að fjölga okkar samverustundum, fara í utan- landsferðir, styrkja enn meira okkar góða samband og njóta lífs- ins á okkar efri árum. Eftir sitjum við öll harmi sleg- in eftir snöggt og ótímabært frá- fall þitt en við yljum okkur við minningu um yndislegan, ljúfan og góðan mann sem sjaldan skipti skapi. Takk fyrir samfylgdina síð- astliðin fimmtíu ár og við Anna eigum eftir að sakna þess að hitta þig með Boggu í komandi fram- tíð. Þú varst gull af manni. Elsku systir, Þórey, Gunni og fjölskyldur, okkar innilegustu samúðarkveðjur á þessum erfiðu tímum. Ingólfur og Anna. Í dag kveðjum við Vilhjálm Óskarsson. Það var áfall að fá fréttir af skyndilegu fráfalli afa Villa að kvöldi miðvikudagsins 2. júní. Alltof snemma er hann tek- inn frá fjölskyldu sinni og vinum og fráfall hans skilur eftir sig mikið skarð, söknuð og sorg. Hugur minn er hjá Boggu, Þór- eyju og Gunna og barnabörnun- um þremur, Villa, Ragnheiði og Míu, á þessum erfiðu tímamótum. Ég var svo heppin að eiga Villa afa sem tengdapabba um hríð og hann er afi stelpunnar minnar, hennar Míu. Besti, trausti, góði afi Villi. Villi hafði góðleg, dökk augu (sem Mía hefur frá honum) og góða og hlýja nærveru. Hann var kannski hlédrægur en ávallt með glott í auga, sá það fallega í lífinu, elskaði fólkið sitt og sinnti því vel. Villi hafði áhuga á heiminum, ferðalögum og fjarlægum löndum um leið og hann ræktaði garðinn sinn – hógvær ævintýramaður. Villi var með stórar og sterk- legar hendur og hann var ávallt tilbúinn að leggja öðrum lið, hjálpa, styðja og aðstoða. Hann var einn af þeim sem geta allt og kunna, duglegur og dagfarsprúð- ur. Afi Villi var stoltur af barna- börnunum sínum. Hann sagði með vissu um Míu þegar hún var bara nokkurra mánaða að hún væri ofurgreind og stóð við þá fullyrðingu, sem við foreldrarnir að sjálfsögðu efumst ekki um. Ég man eftir gamlárskvöldi sem afi Villi eyddi með Míu son- ardóttur sinni inni í fataskáp þar sem hún hræddist flugeldana og öll lætin. Hann taldi það ekki eftir sér að sitja í hnipri með litlu hnát- unni sinni inni í skáp mestallt kvöldið og passa upp á hana, spjalla við hana og láta hana gleyma öllum látunum fyrir utan. Þannig var Villi, alltaf að passa upp á sitt fólk. Hann elskaði að dekra við barnabörnin og „tvíbu- rafrænkurnar“ Mía og Ragnheið- ur nutu ávallt góðs af góð- mennsku hans og umhyggju. Samband hans við nafna sinn, dóttursoninn Villa, var einstakt og þeir mjög nánir. Elsku Bogga, ég sendi þér sterka strauma og hlýju við þessi sorglegu tímamót. Þú og Villi vor- uð æskuástir og hafið eytt nánast allri ævinni hlið við hlið, samstiga og stutt hvort annað. Saman byggðuð þið fallegt heimili og einnig sumarbústað í Skorradal. Þar var öllu haganlega haldið við, allt svo vel gert og sómasamlega, hugað að öllu og þar var vel tekið á móti manni. Ég minnist góðra stunda sem við áttum þar saman. Elsku Gunni og Þórey, þið átt- uð svo góðan pabba og munuð búa að því alla tíð. Míu, Ragnheiði og Villa sendi ég líka samúðar- kveðjur, þið eigið minningar um besta afann og ég veit að þið geymið þær með ykkur. Minning um góðan mann lifir. Lóa Auðunsdóttir. Það er sárt að sakna og sökn- uðurinn ristir djúpt. Nú kveðjum við yndislegan vin okkar Villa sem lést 2. júní, á afmælisdegi mínum. Það er einkennilegt til þess að hugsa að Villi hafi kvatt þetta tilverustig en hann hefur verið hluti af lífi mínu meirihluta ævinnar. Í örfáum orðum langar mig að minnast vinar míns. Aldrei óraði mig fyrir því að ég ætti eftir að skrifa minningarorð um þig elsku Villi minn, en svona er lífið, það veit enginn hver er næstur. Minningarnar eru margar dýr- mætar: dásamlegar ferðir til Flórída, en ein slík ferð var fyr- irhuguð í haust, sumarbústaða- ferðir, golfferðir að ógleymdum kaffihúsaferðum okkar vinanna sem Skúli sá um að væru farnar einu sinni í mánuði. Þar voru rædd þjóðfélagsmál og umfram allt rifjuð upp skemmtileg atvik frá námsárunum og alltaf glatt á hjalla. Það eru helst þær minn- ingar sem koma upp í hugann á þessum tímamótum, góðar minn- ingar um einstakan vin. Við lærð- um saman í Hamri og síðan vann ég hjá þér í Gjörva í 19 ár sem segir svo margt um okkar sam- band. Villi var mikill fagmaður og fljótur að sjá hvað skipti máli. Villi var áhugasamur um allt sem hann tók sér fyrir hendur, bæði starf sitt og áhugamál og ekki má gleyma dugnaði þeirra hjóna við að koma upp bæði íbúð- arhúsnæði og sumarbústað. Að leiðarlokum er mér efst í huga söknuður og þakklæti fyrir áralanga vináttu, drengskap og samskipti sem aldrei bar skugga á. Ég votta elsku Boggu og fjöl- skyldu innilega samúð. Betri vin- ir eru vandfundnir. Góða ferð kæri vinur og hvíl í friði. Þó sólin nú skíni á grænni grundu er hjarta mitt þungt sem blý, því burt varstu kallaður á örskammri stundu. Í huganum hrannast upp sorgarský. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða, svo fallegur, einlægur og hlýr. En örlög þín ráðin – mig setur hljóða. Við hittumst samt aftur á ný. Megi algóður guð þína sálu nú geyma, gæta að sorgmæddum, græða djúp sár. Vilhjálmur Óskarsson Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SÓLBERG JÓNSSON sparisjóðsstjóri, Bolungarvík, lést þriðjudaginn 8. júní. Útförin fer fram frá Hólskirkju laugardaginn 19. júní klukkan 14. Slóð vegna streymis: facebook.com/vidburdastofa. Lucie Einarsson Ásgeir Sólbergsson Margrét Gunnarsdóttir Bjarni Sólbergsson Elísabet Jóna Sólbergsdóttir Guðjón Jónsson Sölvi Rúnar Sólbergsson Birna Guðbjartsdóttir María Sólbergsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elsku Valdi okkar, ÞORVALDUR JÓHANNES ELBERGSSON, Grundargötu 23, Grundarfirði, lést föstudaginn 11. júní á Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi. Útförin fer fram miðvikudaginn 23. júní klukkan 13 frá Grundarfjarðarkirkju. Hlekk á streymi er hægt að nálgast á mbl.is/andlat. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Krabbameinsfélagið. Fyrir hönd aðstandenda, Ragnar Elbergsson Matthildur S. Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.