Morgunblaðið - 18.06.2021, Page 28

Morgunblaðið - 18.06.2021, Page 28
28 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. JÚNÍ 2021 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is „Verkin á þessari sýningu eru aðeins hluti af mínum ferli, þótt þau séu í tveimur stórum sölum. Ef ég hefði verið með yfirlitssýningu hefði ég sennilega þurft sex stóra sali. Ég hef ágæta yfirsýn yfir verkin mín svo ég settist nið- ur og teiknaði hvaða verk ættu að vera saman og hvað hver flokkur verka ætti að heita. Þetta var ekki erfitt val, heldur kom af sjálfu sér að finna hvaða verk pöss- uðu saman og þá fann ég fljótt út hvaða heiti ættu við. Mér finnst það endurlífga verkin að vera sett svona saman, ég sé þau með nýjum hætti þegar ég er búinn að setja þau í þetta nýja samhengi, þá verður eitthvað nýtt til,“ segir Steingrímur Eyfjörð myndlistarmaður um sýninguna Tegundagreiningu, sem nú stendur yfir í Listasafni Reykjanesbæjar. Sýningin er sambland endurlits og nýrra verka eftir Steingrím og er til- raun hans til að skýra kveikjuna að myndsköpuninni. Steingrímur hefur auðkennt ákveðna yfirflokka sem settir eru fram í því samhengi og heita þeir Hið ósnertanlega, Arfur- inn, Heimur kvenna, Gagnrýni, Guðs eigið land, Kellingin, Decode og Comix. Listasafn Reykjanesbæjar gefur út veglega sýningarskrá í til- efni af sýningu Steingríms þar sem hann sjálfur og aðrir skrifa um verk- in. „Þetta eru ekki beint útskýringar, heldur segi ég frá hvernig verkin eru og hvernig þau urðu til, sem mér finnst vera stór hluti af verki. Það er svo merkilegt að ég veit aldrei fyrir- fram hvernig verk ég mun gera eða hvort ég geri verk eða ekki. Stundum kemur það óvænt upp í hendurnar á mér, eins og lífið vilji að ég geri eitt- hvert ákveðið verk. Það gerist eitt- hvað og þá fer eitthvað af stað, eins og til dæmis handmálaða postulíns- matarstellið, verk mitt á sýningunni sem heitir Heilög Terese frá Lisieux, það hefði aldrei orðið til ef ég hefði ekki gengið inn á sýningu Elínrósar Eyjólfsdóttur á Horninu árið 1996. Þar sagði hún mér að hún fengi ekki inngöngu í SÍM vegna þess að hún stundaði aðallega postulínsmálun, en SÍM þætti slík iðja ekki samboðin myndlistarmönnum. Þetta viðhorf finnst mér þreytandi, allir eru jafnir fyrir listagyðjunni en það eru greini- lega ekki allir jafnir gagnvart mönn- unum. Yfir það heila þá er listin hluti af því að vera manneskja svo ég hvatti Elínrós til að halda lítil postu- línsmálunarnámskeið fyrir mig og nokkra myndlistarmenn sem myndu mála á postulín og setja svo upp sýn- ingu á verkunum ásamt henni í heið- urssæti. Það varð úr og nokkrum mánuðum seinna var opnuð sýningin Sparistellið í Hafnarborg í Hafnar- firði,“ segir Steingrímur og bætir við að ástæðuna fyrir því hvers vegna hann valdi Heilaga Teresu sem við- fangsefni megi lesa í sýningar- skránni, en þar kemur við sögu ís- lensk kona sem gerðist nunna sem og nunnurnar í Karmelklaustrinu í Hafnarfirði. Verkin verða leikföng Steingrímur segir mörg verka sinna þannig gerð að þau hvetji þann sem stendur frammi fyrir þeim til að gera eitthvað. „Það er löng hefð fyrir því að lista- fólk geri verk sem eru gagnvirk, þar sem sýningargestir taka þátt með einhverjum hætti, þótt misjafnt sé hvernig hún birtist og er útfærð af listamönnum. Fyrir mér er þetta svo- lítið eins og leikur; verkin verða leik- föng á einhvern hátt. Bænaklefinn er dæmi þar um, verk frá 1994 sem ég er með á sýningunni núna. Þar geta sýningargestir gengið inn og þá snýst heimurinn á hvolf, þá verður speki heimska og heimska verður speki. Í bænaklefanum er blóðsturta Krists í formi ljóss og þegar fólk fer inn í klefann og sturtuna hefur það hreinsast af öllum syndum þegar það kemur út,“ segir Steingrímur nokkuð sposkur. Þó nokkuð er um andlegar pæl- ingar hjá honum í textum um verkin, hvort sem það er trúarlegt, sálfræði- legt eða yfirskilvitlegt, og þegar hann er spurður hvort honum sé þetta hugleikið svarar hann því til að allt sé það hluti af lífinu. „Hvort sem það er hjátrú eða eitt- hvað annað. Allir hafa upplifað eitt- hvað slíkt í lífinu, einhverja drauma, séð eitthvað annars heims og svo framvegis. Fólk er stundum feimið við að viðurkenna það, til dæmis er fólk sem hefur séð álfa feimið að segja frá því, því það er hrætt við að það verði hlegið að því, en fyrir þeim er þetta auðvitað raunverulegt.“ Endanleg hugmynd um ljótleika Steingrímur vísar í mörgum verka sinna langt aftur í tímann, jafnvel nokkrar aldir í mannkynssögunni. Hann horfir líka til gömlu þjóðmenn- ingarinnar í flokki sem heitir Arf- urinn, þar eru m.a. verk sem heita Hervarar saga og Heiðreks, Völs- ungasaga og Þiðrekssaga. Undir öðr- um flokki, sem kallast Heimur kvenna, má meðal annars sjá Grýlu gömlu, í verki frá 1998. „Uppruni hugmyndarinnar eru minningabrot frá um 1960 þegar ég var barn og horfði á stúlku sem köll- uð var Lillý ljóta að tætast í hárinu á sér með hárspreyið á fullu fyrir fram- an spegil á baðherberginu. Hún tal- aði stanslaust um að hún væri eins og Grýla um hárið. Í þessu samhengi vísar hugmyndin um Grýlu til endan- legrar hugmyndar um ljótleika. Eng- in er ljótari en Grýla eins og engin er fegurri en Venus. Til að fá mynd af Grýlu ímyndaði ég mér að ég væri kona að skoða auglýsingar í tímarit- um um tísku og lífsstíl kvenna. Og um leið upplifa hvernig auglýsingar af þessari tegund hafa áhrif á líkams- vitund svo sem skömm og djúpa óánægju yfir líkama sínum sem hefur leitt til átröskunar og þunglyndis. Mig dreymir um að gera afsteypur af skúlptúrnum af Grýlu í sílíkoni þann- ig að skúlptúrinn verði eins og Jelly- Bear. Raða nokkrum eintökum af skúlptúrnum af Grýlu á hæstu staði inni í stórri snyrtivöruverslun og kvenfatadeild, þar á hún heima. Síð- an selja míníatúrur af Grýlu og láta ágóðann renna til þeirra sem hafa orðið fyrir áföllum vegna neyslu- menningarinnar. Þannig yrði verkið fullklárað,“ segir Steingrímur, sem er ánægður með að hafa getað sett upp á sýningunni nokkrar innsetn- ingar, m.a. nýtt verk sem heitir Balt- hazar & Jóhanna. „Þegar ég las skáldsöguna Váboða eftir Ófeig Sigurðsson heillaðist ég af frásögninni um Balthazar og Jó- hönnu, apapar sem sagt er að hafi komið til Íslands um miðja sautjándu öld. Ég skapaði psychedelic horror slapstick-innsetningu með þetta apapar í huga. Grafskrift og parið er endurtekið níu sinnum með sverð og afhöggvin höfuð Tyrkjaráns- sjóræningja. Hljómsveitin Evil Mad- ness samdi sérstaklega hljóðmynd- ina fyrir þessa innsetningu.“ Sýningin Tegundagreining stend- ur til og með 22. ágúst. Ljósmynd/Vigfús Birgisson Yfirgripsmikið Sýning Steingríms er í tveimur stórum sölum í Listasafni Reykjanesbæjar, en hér fremst á myndinni má sjá verkið Heilög Terese frá Lisieux (1997), sem er matarstell, handmálað postulín. Ljósmynd/Vigfús Birgisson Balthazar & Jóhanna (2021) Psychedelic horror slapstick-innsetning. Steingrímur heillaðist af samnefndu apapari í sögu Ófeigs Sigurðssonar, Váboðum. Parið var sagt hafa komið til Íslands um miðja sautjándu öld. Listin hluti af því að vera manneskja - Steingrímur Eyfjörð opnaði nýlega sýninguna Tegundagreining í Listasafni Reykjanesbæjar - „Stundum er eins og lífið vilji að ég geri ákveðið verk, eitthvað gerist og þá fer eitthvað af stað“ Ljósmynd/Vigfús Birgisson Grýla (1998) Steingrímur veltir í þessu verki fyrir sér áhrifum auglýsinga í tískutímaritum á líkamsvitund kvenna, svo sem skömm og djúpri óánægju yfir líkama sínum, sem hefur leitt til átröskunar og þunglyndis. Steingrímur Eyfjörð Ljósmynd/Vigfús Birgisson Heilög Terese frá Lisieux Miskunnsemi var hennar leiðarljós, hún boðaði gildi hins smáa. Ljósmynd/Vigfús Birgisson Bænaklefinn (1994) Syndaþvottur.Vissir þú að r þína auglýsingu? Morgunblaðið er með 47% lengri lestrartíma að meðaltali og 106% lengri yfir vikuna * yfi * G a llu p Q 1 2 0 2 1

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.