Morgunblaðið - 25.06.2021, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2021
✝
Magnús Sig-
urgeir Jónsson
fæddist á Ísafirði
29. janúar 1941.
Hann lést á hjúkr-
unarheimilinu
Mörk 17. júní 2021.
Foreldrar hans
voru Jón Valgeir
Guðmundur Magn-
ússon sjómaður, f.
1905, d. 1951 og
Sveinfríður Guð-
rún Hannibalsdóttir, f. 1913, d.
1998. Fósturforeldrar hans
voru þau Þórunn Guðmunda
Eiríksdóttir myndlistarkona, f.
1923, d. 2006 og Ingi Magn-
ússon skrifstofumaður, f. 1930,
d. 2002. Magnús átti tvö systk-
in, þau Guðrúnu Jónsdóttur, f
1938 og Svein Valgeir Jónsson,
f. 1943, auk uppeldisbróður,
Smára Ragnarssonar, f. 1954.
Hinn 16. nóvember 1963
kvæntist Magnús Þórhildi
Mörtu Gunnarsdóttur fram-
kvæmdastjóra, f. 1943, d. 2007.
Foreldrar hennar voru Gunnar
Ásgeirsson stórkaupmaður, f.
1917, d. 1991 og Valgerður
Stefánsdóttir, f. 1919, d. 1998.
Magnús og Þórhildur eign-
uðust tvö börn, þau eru: 1) Val-
geir Magnússon framkvæmda-
stjóri, f. 1968, kvæntur Silju
byggingatæknifræði og lauk
því námi árið 1967. Hann vann
við byggingaeftirlit hjá Reykja-
víkurborg eftir heimkomu úr
námi áður en hann stofnaði
teiknistofu í sínu nafni. Hann
réðst til Iðnskólans í Reykjavík
þar sem hann kenndi tilvonandi
iðnsveinum og –meisturum þar
til hann fór á eftirlaun sem
kennari. Hann stofnaði ásamt
fleirum Teiknistofuna Röðul og
vann þar meðfram kennslu til
fjölda ára. Þau hjónin stofnuðu
verslunina Völustein árið 1990
og ráku þá verslun í 13 ár.
Magnús teiknaði þá á sama
tíma undir nafninu Teiknistof-
an Völusteinn og hélt því áfram
uns hann hætti að teikna árið
2014.
Hann var ötull í félagsmálum
og vann mikið fyrir íþrótta-
hreyfinguna. Hann var formað-
ur badmintondeildar Víkings,
sat í stjórn Víkings, var for-
maður badmintonráðs Reykja-
víkur fyrir ÍBR og formaður
Badmintonsambands Íslands.
Var margsinnis liðstjóri ís-
lenska landsliðsins í badmin-
ton. Hann hefur verið sæmdur
bæði gullmerki ÍBR og ÍSÍ.
Hann gegndi m.a. formennsku
hjá JC Reykjavík ásamt setu í
landsstjórn JC-hreyfingarinnar
og var senator. Hann var virk-
ur Lionsmaður og var í Lions-
klúbbnum Tý. Hann var einnig
frímúrari og var í Glitni.
Útför Magnúsar verður frá
Bústaðakirkju í dag, 25. júní
2021, og hefst athöfnin kl. 11.
Dögg Ósvalds-
dóttur fram-
kvæmdastjóra, f.
1969. Börn þeirra
eru Hildur Eva
Valgeirsdóttir, f.
1991, sambýlis-
maður hennar er
Snorri Þórðarson,
og Gunnar Ingi
Valgeirsson, f.
1993 og hann á
soninn Vilgeir
Svan Gunnarsson, f. 2018. 2)
Valgerður Magnúsdóttir verk-
efnastjóri, f. 1976, gift Óla
Rafni Jónssyni skrifstofu-
manni, f. 1974. Börn þeirra eru
Atli Þór Ólason, f. 2008 og
Edda Sól Óladóttir, f. 2009.
Magnús gekk í grunnaskól-
ann á Ísafirði og í Miðbæj-
arskóla eftir komuna til
Reykjavíkur. Hann vann við
löndun, blaðasölu og önnur
verkamannastörf með grunn-
skóla. Hann var til sjós eftir
grunnskólanám á síldarbátnum
Völusteini. Hann vann sem
handlangari með múrurum,
málurum og smiðum og lauk
námi í húsasmíði. Hann kynnt-
ist konu sinni Þórhildi árið
1961. Þau héldu saman til
Gautaborgar í Svíþjóð árið
1964 þar sem Magnús nam
Elsku pabbi.
Nú eru að verða komin fimm
ár síðan ég talaði við þig, þann
sem ég þekkti sem pabba. Þú
hvarfst frá okkur eftir að þú slas-
aðist og fékkst höfuðhögg, en það
sást stundum glitta í þig með
glottinu þínu og þrjóskan þín var
enn til staðar. Það var erfitt að
sjá þig í þessari stöðu og því
gleðst ég við að þú hefur loks
fengið hvíldina og ert kominn til
mömmu, þótt það sé alltaf sárt að
kveðja.
Þú kallaðir mig alltaf tjúlluna
þína og knúsaðir mig, það var þín
leið til að segja mér að þú elsk-
aðir mig eða til að segja fyrir-
gefðu. Við áttum oft okkar gæða-
stundir saman. Það var hefðin
okkar að fara saman á Þorláks-
messu á Laugaveginn að kaupa
gjöf handa mömmu þar sem þú
komst við hjá öllum happdrætt-
isbílunum til að kaupa miða, en
þú spilaðir ekki til að vinna held-
ur til að styrkja gott málefni og
spáðir aldrei í hvort þú hefðir
unnið eitthvað. Eftir bæjarferð-
ina skreyttum við systkinin jóla-
tréð með þér, því mamma var
alltaf að vinna á þessum degi. Við
horfðum líka mikið á kvikmyndir,
tvö saman því mamma var alltaf
svo kvöldsvæf og þá sátum við oft
tvö eftir og horfðum á góðan
vestra eða Bond-myndir.
Þið mamma nýttuð tímann
ykkar vel og voruð alltaf með
mörg járn í eldinum í vinnu, fé-
lagsmálum og fjölskyldulífi. Við
systkinin fengum oft að fljóta
með og taka þátt. Þið kennduð
okkur dugnað, vinnusemi og að
sýna frumkvæði.
Þú hafðir mikla ástríðu fyrir
íþróttum og þau voru ófá skiptin
sem var sussað á mann, því það
var alltaf mjög mikilvægur leikur
í gangi og úrslitin gátu alveg
breytt stemmingunni á heimilinu,
svo fékk maður námkvæmar lýs-
ingar af leiknum þótt skilningur-
inn og áhuginn væri kannski ekki
til staðar, en spenningurinn hjá
þér var svo mikill að þú þurftir að
koma þessu frá þér.
Þú áttir það oft til að dekra við
mig og ef ég bað um 500 krónur
þá kom yfirleitt: höfum það 1.000
krónur svo það sé öruggt að þig
vanti ekki upp á. Eitt skiptið þá
var ég á leiðinni í nýársfagnað og
hafði fengið tvo kjóla lánaða heim
til að velja á milli og átti erfitt
með að ákveða mig og þá sagðir
þú við mig: „Þá kaupum við bara
báða kjólana.“
Stuttu eftir að ég fæddist hófu
þið mamma að byggja sælureit-
inn okkar á Þingvöllum og þar
urðu til óteljandi góðar minning-
ar sem við munum varðveita og
halda áfram að búa til fleiri. Þetta
er eitt það dýrmætasta sem þið
skiljið eftir fyrir okkur og minn-
ingin ykkar lifir sterkt í öllum
gróðrinum sem þú gróðursettir
og handverkinu ykkar mömmu.
Mamma kvaddi á hvítasunnu-
degi og þú á 17. júní, sem eru báð-
ir dagar sem við vörðum yfirleitt
saman á Þingvöllum. Þetta er sá
staður sem ég finn sterkt fyrir
nærveru ykkar og ég veit að þið
munið vaka yfir okkur gleðjast
yfir samverustundum fjölskyld-
unnar.
Takk pabbi og mamma fyrir öll
tækifærin, hefðirnar og fyrir að
vera góðar fyrirmyndir sem ég
mun halda áfram að tileinka mér
og gefa áfram til fjölskyldunnar.
Þín dóttir
Valgerður (Vala).
Hann pabbi minn er nú farinn.
Hann hvarf eftir höfuðhögg fyrir
fjórum árum. Ég náði því aldrei
að kveðja persónuna.
Elsku pabbi minn. Ég lærði
svo mikið af þér. Að smíða og
reikna var líklega það praktís-
kasta en ósérhlífni, hrokaleysi og
að forðast eigingirni líklega það
sem ég hef grætt mest á.
Maður velur sér ekki foreldra
og ég var heppinn. Foreldrar
mínir voru samrýmdir og höfðu
mig mikið með í því sem þau voru
að bauka. Ég var því fullnuma í
JC-fræðum 12 ára, stjórnun
íþróttaviðburða 14 ára og Lions-
verkefnum 16 ára. Traustið var
mikið og þau voru óhrædd við að
leyfa mér að gera mistök. Ég
sendur í sveit 7 ára og síðar tók
við vera í erlendum skólum öll
sumur. Þegar við Silja vorum ný-
lega byrjuð saman þá var útveg-
uð vinna í Svíþjóð. Seinna áttaði
maður sig á að þau voru stöðugt
að byggja undir sjálfstæði og
ábyrgð sem aldeilis heppnaðist.
11 ára gömlum var mér treyst
fyrir því að fara einn upp á heiði á
vélsleða og 12 ára fyrir hraðbáti
til að æfa sjóskíði. Þau voru alltaf
tilbúin ef illa færi en ég fann að
mér var treyst og að ég bæri
ábyrgð.
Mamma lést allt of snemma og
pabbi sat einn eftir. En sem betur
fer eignaðist hann vinkonu, hana
Siggu, og náði því að njóta betur
áranna eftir að mamma fór.
Hann fór erfiðu leiðina í gegn-
um æskuna og hugsaði því enn
betur um sína nánustu. Hann var
snillingur í að sjá til þess að aðrir
blómstruðu og horfði svo á með
sínu stolta glotti en sagði lítið.
Íþróttir voru hans líf. Bæði að
hreyfa sig og að fylgjast með
íþróttum. Ef hann varð spenntur
þá hvarf hann inn í sjónvarpið.
Fræg er sagan af því þegar þau
hjónin bjuggu í Svíþjóð og pabbi
var að horfa á tennis. Mamma
þurfti að skreppa út í búð og bað
hann að fylgjast með kartöflun-
um. Þegar hún kom til baka voru
kartöflurnar orðnar að kolamol-
um og skaftið á pottinum lafði
niður. Hún öskraði en hann sat
spenntur bara með aðra rass-
kinnina á stólbríkinni og sussaði
á hana. „Það var ekki hægt að
verða reið,“ sagði mamma mín
um þennan atburð. Hún gekk frá,
setti upp nýjar kartöflur og sagði
honum frá þessu þegar leikurinn
var búinn. Seinna átti hann eftir
að vinna mjög mikið fyrir íþrótta-
hreyfinguna og þá sérstaklega að
uppbyggingu badminton á Ís-
landi. Ég og flestir krakkar í
kringum mig urðum að badmin-
tonfólki, þar sem hann þvældist
með okkur um allt í keppnisferðir
öll unglingsárin mín.
Pabbi var glúrinn í að halda ut-
an um peninga þegar þess þurfti
en þegar nóg var til af þeim þá
vildi hann deila þeim út. Hann
keypti alltaf happdrættismiða af
öllum sem seldu en gáði aldrei að
vinningi. Var duglegur að safna í
öllum verkefnum sem hann tók
þátt í á vegum JC, Lions eða
hverju sem var. En þegar þurfti
þá varð hann harður. Þegar þau
voru að byggja þurfti að hugsa
um hverja krónu og ef mamma
vildi kaupa eitthvað þá var svarið
yfirleitt: „Veistu hvað þetta eru
margir sementspokar?“ En það
var eins og karma væri að þakka
honum gjafmildina daginn sem
hann dó, þá vann hann í happ-
drætti SÍBS.
Hann brosti stórt
en sagði fátt
Síðustu ár
Hann lifði dátt
og kvaddi í sátt
svona agnarsmár
Valgeir Magnússon.
Þann 17. júní lést tengdafaðir
minn að lokum. Síðustu vikur og
mánuðir voru honum erfiðir og
með þökk í hjarta er hann núna
kominn til Systu sem hefur beðið
eftir honum með opinn faðm.
Þau hjónin tóku mér opnum
örmum fyrir 35 árum síðan og ég
eignaðist annað sett af foreldrum
enda bara 16 ára stelpuskott sem
ekkert vissi um lífið og tilveruna.
Að fylgjast með samheldni þeirra
og uppbyggjandi samskiptum við
okkur Valla, þegar við vorum að
feta okkar fyrstu skref, kenndi
mér mikið og var Maggi mikil
fyrirmynd. Hann var hreinn og
beinn, kom sér alltaf beint að efn-
inu og var alltaf tilbúinn til að
gefa af sér og leiðbeina.
Ég var 19 ára þegar ég ákvað
að læra tækniteiknun í Iðnskól-
anum. Þar var Maggi kennarinn
minn í Mannvirkjateikningu en
ég græddi ekkert á því. Þurfti
helst að skila betri verkefnum en
samnemendurnir því hann gerði
miklar kröfur, stelpan átti að
standa sig. Hann var mjög góður
og þolinmóður kennari, hann var
á heimavelli í kennslunni. Við
hlógum mikið þegar ég eftir einn
tímann spurði hvort ég mætti fá
lánaðan bílinn og svarið var já.
Aðrir nemendur urðu eitt spurn-
ingarmerki þangað til við
sprungum úr hlátri yfir viðbrögð-
um þeirra. Eftir þetta rétti hann
mér bara bíllyklana þegar tíminn
var búinn. Ég þurfti aldrei að
spyrja aftur.
Síðar vann ég með Magga í
Völusteini sem þau Systa höfðu
byggt upp og á tímabili vorum við
þar öll. Systa, Maggi, Valli, Vala
og ég. Við vorum mjög samheldin
og samstarfið frábært. Að geta
unnið hlið við hlið maka, mág-
konu og tengdaforeldra er ein-
stakt og ég ylja mér við minn-
ingar um góðan tíma og gleði.
Undir þeirra leiðsögn lagði ég
drögin að minni framtíð og
menntun og fæ aldrei fullþakkað
það sem ég lærði af þeim. Heið-
arleikinn, vinnugleðin og hjálp-
semin standa upp úr og eiga þau
hjónin stóran sess í mínu hjarta
um ókomin ár.
Maggi var góður afi og natinn
við barnabörnin. Dagarnir sem
Hildur Eva og Gunnar Ingi fengu
að dvelja á Þingvöllum með
ömmu og afa er dýrmætur og þar
eigum við öll góðar minningar um
góðan mann með græna fingur
sem sinnti náttúrunni af mikilli
alúð og ber skógi vaxið landið við
bústaðinn þess vel merki.
Ég kveð góðan og ljúfan
tengdapabba með miklu þakklæti
efst í huga.
Silja.
Elsku afi minn, ég vona að þú
hafir loksins fundið frið og sért
kominn til ömmu Systu.
Kvöldið sem þú kvaddir upp-
lifði ég eitthvað undarlegt. Rödd-
in þín var í hausnum mínum að
tala við mig þegar ég lagði höf-
uðið á koddann. Þú sagðir við mig
fallega hluti sem ég er ekki vanur
að hugsa um sjálfan mig.
Ég man eftir því áður en þú
veiktist, að alltaf þegar þú sást
mig þá heilsaðir þú mér með því
að segja: „hæ gæ“.
Og þegar ég gisti hjá þér og
ömmu þá bauðst þú mér góða
nótt með því að strjúka á mér
vangann og kallaðir mig „gullið
þitt“.
Þú kallaðir mig það líka í
hausnum mínum kvöldið sem þú
kvaddir, alveg eins og þú gerðir
þá, í sama tón. Heyri hann enn.
Ég mun alltaf hugsa til þín
þegar ég er á Þingvöllum og sé
tréð, sem ég kalla Magnús, sem
við gróðursettum saman aðeins
viku áður en þú veiktist.
Ég sakna þín og hef gert það
lengi.
Hvíldu í friði, elsku afi minn.
Gunnar Ingi Valgeirsson.
Í dag kveðjum við kæran vin,
sem hefur verið stór hluti af lífi
okkar hjóna allt frá unglingsár-
um. Sú vinátta var alla tíð einstök
og aldrei bar skugga á, sem er
ekki sjálfgefið. Oft hleypur
snurða á þráðinn, þegar fólk er
nákomið og getur þá hvesst á
milli manna, en aldrei þau 65 ár
sem við áttum saman minnumst
við þess að styggðaryrði hafi fall-
ið.
Magnús og Örn kynntust um
fermingu og ég kom inn í það
vinasamband fljótlega eftir það.
Þórhildur Marta Gunnarsdóttir,
alltaf kölluð Systa, eiginkona
Magnúsar, sem lést 2007 langt
um aldur fram, bættist í hópinn
nokkru síðar og varð strax ynd-
islegur vinur, féll vel inn í hópinn.
Frá þeim tíma var yfirleitt talað
um okkur fjögur sem eitt. Ferða-
lög voru í miklu uppáhaldi hjá
okkur öllum og við skoðuðum
landið okkar og nutum samvista á
hinum ýmsu stöðum. Við giftum
okkur með 6 vikna millibili og
strax eftir brúðkaup hvorra
tveggja var farið í nám erlendis,
við Örn til Óslóar og þau til
Gautaborgar. Aðskilnaðurinn
varð þó ekki mikill, því við skipt-
umst reglulega á heimsóknum,
þegar frí gafst í skóla og vinnu
um helgar, og keyrðum þá á milli.
Eftir að námi lauk var farið í
margar ferðir um Evrópu auk
innanlandsferða og þessar sam-
vistir frá yngri árum ylja okkur
nú um hjartaræturnar, þegar við
verðum að horfast í augu við að
aldur færist yfir og kallið kemur í
Sumarlandið.
Við Örn og fjölskylda okkar
þökkum okkar kæra vini fyrir all-
ar góðu minningarnar sem hann
og Systa hans sköpuðu með okk-
ur gegnum árin. Minningin um
einstakan mann lifir í hjörtum
okkar. Við sendum börnunum
hans, Valla og Völu, og þeirra
fjölskyldum innilegar samúðar-
kveðjur.
Hvíl í friði, elsku vinur.
Ragnheiður K. Karlsdóttir.
Enn heggur maðurinn með ljá-
inn skarð í hóp félaga og vina.
Okkur félaga í Lionsklúbbnum
Tý langar til að minnast í fáum
orðum Magnúsar Jónssonar, sem
árum saman var ötull og vel lið-
inn samstarfsmaður og félagi,
jafnt í fjáröflun og öðru starfi
klúbbsins. Týr hefur löngum alið
á samheldni og vináttu félaga
með þátttöku maka og barna í
starfinu, svo sem í fjáröflun, en
ekki síst með ferðalögum bæði
innanlands og utan. Lengi vel
stunduðum við útileguferðir í
tjöldum, en þegar börn fóru að
fullorðnast og aldur að sækja á
félaga, var farið í dagsferðir eða
gist á hótelum. Þau Magnús og
Þórhildur Gunnarsdóttir, kona
hans, létu sitt ekki eftir liggja og
voru með í eftirminnilegum ferð-
um, svo sem í Þórsmörk þar sem
tjöld féllu eða fuku í veðurofsa og
rútan festist í Krossá á heimleið-
inni. Eða skemmtilegri og fjör-
mikilli afmælisferð til Svíaríkis.
Minnisstæðust er þó mörgum
ferðin til Hesteyrar í Jökulfjörð-
um, þegar við héldum okkur vera
að kveðja Magnús hinstu kveðju
eftir sykursýkilost vegna gall-
aðra neyðarlyfja. Vökunótt án
læknisaðstoðar eða símasam-
bands. En Magnús vaknaði hress
og keikur að morgni og mundi
ekki eftir neinu. Þórhildur féll frá
allt of snemma, en Magnús hélt
ótrauður áfram starfinu með
okkur og seinna með Sigríði, vin-
konu sinni. Mörgum árum seinna
fékk hann svo alvarlegra áfall,
sem honum tókst ekki að yfir-
vinna og varð til þess að hann gat
ekki setið fundi eða unnið að
hugðarefnum klúbbsins með okk-
ur. En eftir situr minningin um
góðan dreng og dugmikinn fé-
laga. Við sendum fjölskyldu
Magnúsar alúðarkveðjur.
F.h. Lionsklúbbsins TÝS,
Björn Þorvaldsson.
Það var í JC hreyfingunni sem
fundum okkar Magnúsar bar
saman en hann var í hópi ungra
manna og kvenna sem gerðu JC
Reykjavík að stórveldi í hreyfing-
unni á árunum upp úr 1970 og
langt fram eftir níunda áratugn-
um. Þar gekk maður undir mann
að byggja upp stjórnunar-
fræðslu, færni í fundarsköpum og
byggðalagsverkefnum sem gerðu
hreyfinguna að því afli sem hún
var. Stjórnmálamenn kepptust
um að fá að vera ræðumenn á
fundum og útbreiðsla hreyfingar-
innar úti um allt land var í fullum
gangi.
Magnús varð forseti JCR árin
1976-77 auk þess að vera öflugur
leiðbeinandi á Ræðunámskeiði 2.
Ég minnist þess að hafa farið
með honum að leiðbeina í JC
Húnabyggð á Blönduósi eina
vetrarhelgi. Við gátum ekki byrj-
að námskeiðið á laugardeginum
fyrr en að loknum mjöltum og
þýddi það að við vorum seinir að
leggja í Holtavörðuheiðina og það
var byrjað að snjóa og komið
myrkur. Magnús var að sjálf-
sögðu á Volvo með splittuðu drifi
og tókst okkur eftir nokkurt þref
að sigra heiðina. Þarna kom vel
fram hversu hann var mikill jafn-
aðargeðsmaður og vann hann
okkur hægt og örugglega í gegn-
um skaflana.
Það var líka á hans vakt sem
fyrsta konan var tekin inn í
hreyfinguna og voru ekki allir
sammála en við höfðum sigur í
því máli.
Fjölskyldur okkar tengdust
vináttuböndum og áttum við
margar góðar stundir með Magn-
Magnús Sigurgeir
Jónsson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
JÓNA ÞORSTEINSDÓTTIR,
Heiðarási 15,
lést á hjartadeild Landspítalans 10. júní.
Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að
ósk hinnar látnu.
Þorsteinn Grétar Hjartarson
Sigríður Hjartardóttir Viðar Helgason
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamamma, amma
og langamma,
MARGRÉT INGIBJÖRG
BJÖRNSDÓTTIR,
Víðigrund 6, Sauðárkróki,
lést á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki
miðvikudaginn 23. júní, útför verður auglýst síðar.
Sólborg Jóhanna Þórarinsd. Hávarður Sigurjónsson
Hörður Þórarinsson Hafdís Halldóra Steinarsdóttir
Hrefna Þórarinsdóttir Þorsteinn Kárason
barnabörn og barnabarnabörn