Morgunblaðið - 25.06.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2021
september 2010. Hvaða verkefni
biðu ykkar þá?
„Þá var verið að vinna í endur-
fjármögnum Icelandair eftir banka-
hrunið. Það var verið að skipta um
stjórn og ég fór þá inn í stjórn.
Jafnframt var fjárhagslegri
endurskipulagningu að ljúka. Síðan í
framhaldi af því er mikill vöxtur sem
byggði að hluta til á því að við feng-
um mikla athygli út á eldgosið í
Eyjafjallajökli, samliða því sem flug-
umferð var að aukast í heiminum og
Icelandair var staðsett hér á þessum
frábæra stað. Þetta snerist ekki að-
eins um að fólk vildi koma til Íslands
heldur var Ísland mjög þægileg
skiptistöð fyrir fólk sem er að fljúga
á milli Evrópu og Bandaríkjanna.
Stóra málið var að grípa tækifær-
in sem tókst mjög vel. Næsta verk-
efni var að endurnýja flugflotann.
Reksturinn gekk mjög vel nema
hvað árið 2018 lendir félagið í mót-
byr sem var meðal annars tilkominn
vegna harðrar samkeppni frá flug-
félögum á borð við Norwegian og
WOW air. Síðan var félagið komið á
skrið þegar Max-þoturnar voru
kyrrsettar 2019. Félagið sigldi í
gegnum það og var að komast á
beinu brautina aftur þegar kórónu-
veirufaraldurinn skall á. Og aftur
tókst okkur að sigla í gegnum
storminn með frábærum stjórn-
endum og frábæru starfsfólki.“
Mikið umbrotaskeið
– Félagið hefur sem sagt glímt við
afleiðingar efnahagshruns, mótbyr
vegna harðrar samkeppni, kyrrsetn-
ingu Max-þotnanna og svo farald-
urinn. Það hefur verið ókyrrð í lofti?
„Ókyrrð í lofti er kannski vægt til
orða tekið. Það hefur gengið á ótrú-
legum hlutum.“
– Hvar er Icelandair statt eftir
þessa endurskipulagningu?
„Icelandair er statt á mjög góðum
stað. Mönnum tókst að sigla í gegn-
um faraldurinn með hlutafjáraukn-
ingu í fyrrahaust. Síðan eru hlutirnir
að komast á fleygiferð en það er auð-
vitað dálítið mál að fara úr engu í
eitthvað, hvað þá í töluvert mikið
eins og nú þegar viðsnúningurinn er
töluvert hraður,“ segir Úlfar og vík-
ur að fjárfestingu Bain Capital.
Mikil viðurkenning
„Áhugi Bain Capital á því að koma
að Icelandair var ótrúleg viðurkenn-
ing á því hversu vel hefur tekist til
með endurskipulagninguna og ég er
sannfærður um að félagið sé á ótrú-
lega góðum stað miðað við allt sem á
undan er gengið.
Við erum að fá inn gríðarlega
stóran og öflugan sjóð sem kemur
ekki aðeins með fjármuni heldur líka
þekkingu, reynslu og tengingar.“
– Hversu langan tíma mun taka að
vinda ofan af áhrifum faraldursins?
„Slíkt mat hlýtur að vera ágiskun.
Því í raun veit það engin. Mín ágisk-
un er að Icelandair muni komast
töluvert hraðar út úr þessu en
margir aðrir. Við erum lítið flugfélag
og getum hreyft okkur töluvert
hraðar en margir aðrir.
Við sjáum hvernig það hafa orðið
algjör umskipti á síðustu vikum. Í
byrjun maí voru menn ekki bjart-
sýnir á þróunina á Íslandi í ár en um
miðjan maí breyttist takturinn og ég
trúi því að þetta gerist hraðar en
menn hafa verið að gera ráð fyrir.“
– Þannig að árið 2022 verði hið
ágætasta ár í rekstri Icelandair?
„Ég held að það sé alveg klárt
með öllum fyrirvörum. Ég sá hvorki
fyrir Max-málið né kórónuveiru-
faraldurinn.“
Leituðu til fjárfesta
– Hver var aðdragandi þess að
Bain Capital kemur að félaginu?
„Við tókum þá ákvörðun í byrjun
árs að breyta tveimur Boeing 767-
þotum í fraktvélar því þar eru gríð-
arleg tækifæri. Þá var farið að leita
að aðilum sem myndu annars vegar
kaupa vélarnar og hins vegar fjár-
magna breytingarnar og við mynd-
um leigja þær til baka. Bain Capital
kemur að því og þá þurftu þeir að
skoða mjög vel þann aðila sem verið
er að semja við. Það var upp úr því
sem þeir nálguðust okkur og veltu
fyrir sér möguleikanum á því að geta
orðið hluthafar í félaginu. Og það er
náttúrulega gríðarleg viðurkenning
fyrir Boga [Nils Bogason forstjóra]
og allt starfsfólkið hjá Icelandair að
svona aðili sjái tækifærin og hafi
áhuga fyrir þessu.“
– Hvað tekur við hjá þér?
„Ég hef nóg að gera. Það verður
einu verkefninu færra. Það eru eng-
in stór plön hjá mér önnur en þau að
eftir mánuð þá lýkur þessum kafla í
lífi mínu sem spannar orðið nærri
ellefu ár,“ segir Úlfar sem er for-
stjóri Toyota á Íslandi.
Kaupin í Icelandair styrkleikamerki
- Fráfarandi stjórnarformaður Icelandair segir fjárfestingu Bain Capital mikla viðurkenningu
- Kaup sjóðsins á 16,6% hlut í Icelandair komi í kjölfar viðræðna um fjármögnun á fraktvélum
Morgunblaðið/Eggert
Til flugs á ný Icelandair hefur lent í nokkrum dýfum síðasta áratug.
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Úlfar Steindórsson, stjórnar-
formaður Icelandair Group, kveðst
ganga sáttur frá borði enda sé fram-
tíðin hjá flugfélaginu björt.
Icelandair hefur náð samkomulagi
við fjárfestingasjóðinn Bain Capital
um kaup á 16,6%
hlut í félaginu
fyrir tæplega 8,1
milljarð króna.
Áformað er að
boða til hluthafa-
fundar 23. júlí.
Meðal skilyrða
kaupanna er að
sjóðurinn fái
stjórnarmann í
Icelandair Group.
„Að því gefnu
að þetta gangi eftir og verði sam-
þykkt fá þeir stjórnarmann. Og þá
þarf einhver að víkja. Það var í mín-
um huga rétt að stíga til hliðar á
þessum tímapunkti,“ segir Úlfar.
Með öflugu fólki í stjórn
„Ég hef verið í stjórn í bráðum ell-
efu ár en með mér í stjórn eru fjórir
einstaklingar sem hafa verið þar
töluvert skemur. Allt saman frábær-
ir aðilar. Það var því í mínum huga
nokkuð ljóst að þetta væri rétti tím-
inn til að hætta og því lagði ég til að
þetta væri gert með þessum hætti.“
– Þú kemur inn í stjórn félagsins í
Úlfar
Steindórsson