Morgunblaðið - 25.06.2021, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 25.06.2021, Blaðsíða 19
úsi, Þórhildi, Valgeiri og Völu með okkar börnum innan lands og utan. Magnús dró mig líka inn í starf íþróttahreyfingarinnar en eina leiðin til að fá badmintonvöll að hans sögn, var að taka sæti í stjórn badmintondeildar Víkings þar sem hann var formaður. Fljótlega eftir var kallað eftir Magnúsi til að taka við sem for- maður Badmintonsambands Ís- lands og var ég þá allt í einu for- maður deildarinnar. Þegar Austurbakki hf. fór á markað árið 1999 var Þórhildur Gunnarsdóttir heitin kona Magn- úsar kölluð til stjórnarstarfa. Hún var þá önnur tveggja kvenna til að sitja í stjórn í al- menningshlutafélagi eftir því sem ég best man. Að venju stóð Magnús vel við bakið á henni þar og sem annars staðar en sam- band þeirra var mjög fallegt. Nú kveðjum við seinni helm- inginn af hjónum sem gerðu okk- ar líf ánægjulegra og skemmti- legra og veittu meiri lífsfyllingu. Börnum þeirra, Valgeiri, Völu og þeirra fjölskyldum, sendum við okkar dýpstu samúðarkveðjur. Árni Þór og Guðbjörg. Sjálfboðaliðsvinna er eitt mik- ilvægasta starfið sem íþrótta- hreyfingin á Íslandi treystir á. Leiðtogar hennar geta verið margs konar og ekki endilega á íþróttaleikvöngunum sjálfum, heldur ekki síður í störfum utan valla og flestir ólaunaðir. Magnús S. Jónsson, sem nú er fallinn frá, var einn slíkur leiðtogi. Badmintonhreyfingin á Ís- landi naut starfskrafta hans um áratuga skeið. Magnús var fyrst formaður Badmintondeildar Vík- ings, tók svo sæti í stjórn Bad- mintonsambands Íslands og gegndi m.a. starfi formanns þar um árabil. Loks tók hann að sér formennsku í Badmintonráði Reykjavíkur. Ekki er hægt að hafa tölu á öllum þeim mótum og öðrum viðburðum sem Magnús stjórnaði, eða tók þátt í undirbún- ingi og skipulagi á. Aldrei fékk Magnús krónu fyrir alla þá vinnu sem hann lagði af mörkum, held- ur var þetta mörgum sinnum á hinn veginn. Oft þurfti hann að borga með sér, t.d. mat og ferða- kostnað þegar slíkt átti við. Slík- um einstaklingum verður seint fullþakkað fyrir það sem þeir lögðu af mörkum. Við Magnús störfuðum saman í stjórn BSÍ og BRR. Margt var brallað. Við fór- um saman í ferðir, erlendis og innanlands og unnum saman á mörgum badmintonmótum sem haldin voru á vegum þessara samtaka. Við buðum erlendum gestum til þátttöku í Reykjavík- urmóti í badminton, héldum boð og hátíðir við þessi tækifæri eftir því sem hægt var. Stundum fór Magnús í ferðalög með þessa gesti á Lapplander-bílnum sínum enda gaman að sýna erlendum keppendum eitthvað af landinu okkar. Þórhildur, eiginkona Magnúsar, var einnig boðin og búin að taka þátt í þessum við- burðum. Heimili þeirra stóð opið fyrir gestunum og ekki var spar- að í veitingunum. Þórhildur lést árið 2007. Magnús var ekki mikið fyrir að „trana sér fram“, en var samt alltaf trausti aðilinn við stjórnvöl- inn. Ekkert var gert í flýti, held- ur var öllu sinnt af festu og ná- kvæmni. Nærvera hans var þægileg. Ekki voru gerðar mikl- ar kröfur um aðstöðu í íþrótta- húsinu, heldur notast við það sem til var. Mótsstjórnin var ekki að- alatriðið á staðnum heldur kepp- endurnir, og alltaf var reynt að skipuleggja mótin miðað við þeirra óskir og þarfir. Þetta voru góðar stundir, og ég minnist nú Magnúsar með þakklæti fyrir samstarfið og vináttuna á þessum árum. Fjölskyldu Magnúsar sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Sigfús Ægir Árnason. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2021 ✝ Jóna Þor- steinsdóttir fæddist á Ketils- stöðum í Mýrdal 29. maí 1926. Hún lést á hjartadeild Landspítalans 10. júní 2021. For- eldrar Jónu voru Þorsteinn Gunn- arsson frá Steig, f. 29. desember 1893, d. 10. sept- ember 1934, og Margrét Grímsdóttir frá Skeiðflöt í Mýrdal, f. 26. febrúar 1895, d. 20. maí 1971. Jóna var næst- yngst sex systkina sem öll eru hreppi í Rangárvallasýslu, d. 18. febrúar 2003. Börn þeirra eru Þorsteinn Grétar Hjart- arson, f. 24. október 1958, Sig- ríður Hjartardóttir, f. 8. júlí 1965. Eiginmaður Sigríðar er Viðar Helgason, f. 2. nóv- ember 1966. Eiga þau fjögur börn: Hjördísi Unni, f. 2. sept- ember 1983, Bergdísi Jónu, f. 23. nóvember 1993, Theodór Unnar, f. 7. júlí 1995, og Ey- dísi Helgu, f. 15. janúar 2003. Barnabarnabörnin eru fjögur. Jóna flutti ung til Reykja- víkur til þess að vinna. Hún vann ýmis störf, vann í heima- húsum við þrif fyrst í stað, síðan á Hótel Skjaldbreið. Hún var heimavinnandi húsmóðir í nokkur ár. Eftir mörg ár sem húsmóðir fór hún að vinna í Lakkrísgerðinni Krumma, síð- an við þrif í grunnskólum. Útförin fór fram í kyrrþey. látin. Þau voru Unnur, f. 24. júní 1920, d. 23. júní 1921, Unnur Guð- jónína, f. 17. ágúst 1921, d. 16. nóv- ember 1993, Gunnar, f. 17. mars 1923, d. 13. janúar 2006, Auð- björg, f, 4. júní 1924, d. 23. mars 2017, Guðjón Þor- steinn, f. 14. maí 1928, d. 21. júní 2001. Jóna giftist 19. maí 1956 Hirti Elíassyni, f. 22. maí 1923, frá Saurbæ í Holta- Elsku mamma er nú horfin á braut, hún var ótrúleg kona, já- kvæðari og yndislegri konu er varla hægt að hugsa sér. Hún ólst upp við erfiðar aðstæður, hún missti föður sinn þegar hún var átta ára gömul, móðir hennar hélt áfram búskap með börnum sínum og kom þeim öllum til manns. Mamma hugsaði ætíð vel um heilsuna enda bar hún aldur sinn vel. Þegar ég var krakki var drukkið eplaedik með matnum og við borðuðum mikið af lífrænt ræktuðu grænmeti sem hún og pabbi ræktuðu. Mamma var ein- staklega skapgóð kona, þegar maður var eitthvað að æsa sig þá sagði hún ávallt að það borgaði sig ekki að eyða orkunni í rifrildi, að það skilaði engu. Enda man ég ekki eftir rifrildum í uppvextin- um, mamma og pabbi áttu ein- staklega vel saman og voru ótrú- lega samhent hjón. Þegar pabbi fellur frá fyrir 18 árum þá kaup- um við hús, mamma átti sína íbúð á neðri hæðinni. Þannig að sam- gangurinn var mikill, ekki slæmt fyrir krakkana mína að hafa ömmu að leita til þegar við vorum í vinnu. Það sem gat einstöku sinnum pirrað krakkana var að amma Jóna var alltaf með putt- ann á púlsinum þegar krakkarnir voru að fara út – þá kom hún í dyragættina og minnti þá á að klæða sig vel, það væri kannski svolítið kalt úti og fannst henni klæðaburðurinn stundum ekki við hæfi miðað við veðurfar. Mamma var alltaf að, ég man ekki eftir henni öðruvísi en á fleygiferð. Minningin úr landinu, þá voru mamma og pabbi alltaf að gróðursetja, setja niður græn- meti, reyta og taka upp græn- meti. Ég lét oft þau orð falla að þau þyrftu að læra að slaka á og þá kom svarið: við erum bara að gera það sem við höfum gaman af. Mamma var einstaklega nýtin kona, hún mátti ekki sjá að mat væri hent, það var ekki það sem hún ólst upp við. Hún nýtti gömul föt, handklæði, sængurver í tusk- ur og fleira. Hún var ansi oft búin að stoppa í sokka sem ég hefði nú bara hent, en í hennar augum var alltaf hægt að gefa fötum lengri lífdaga. Við fórum í nokkuð margar ut- anlandsferðirnar saman. Ferðirn- ar til Glasgow fyrir jólin urðu þó nokkrar þar sem við keyptum all- ar jólagjafirnar og nutum þess að vera saman. Ekki má gleyma ferðinni þegar við Viðar bjuggum í Englandi og mamma var 70 ára og við héldum upp á afmælið úti. Mamma var alltaf með vekjara- klukku meðferðis á ferðalögum. Á leiðinni heim til Íslands þá, hafði hún vafið vasaklút utan um klukk- una í veskinu sínu og var tekin af- síðis á Heathrow-flugvelli og það sem við höfum hlegið að þessari sögu, þar sem Jóna var talin vera hættulegur hryðjuverkamaður með sprengju á ferð. Jóna var frábær mamma, ynd- isleg amma og langamma. Ekkert gladdi hana meira en að hitta og heyra í barnabörnunum og litlu dúskunum eins og hún kallaði litlu langmömmustrákana sína. Þegar við hittumst öll fjölskyldan og vorum að rifja upp minningar um mömmu þá var sama sagan hjá öllum, það áttu allir svo góðar minningar um hana. Það er ekki slæmt að skilja þannig minningar eftir um sig. Það verður erfitt að fylla upp í tómarúmið sem þú skilur eftir þig. Elska þig að eilífu. Minning um yndislega konu lifir. Þín dóttir Sigríður. Jóna Þorsteinsdóttir tengda- móðir mín lést þann 10. júní síð- astliðinn eftir tveggja mánaða sjúkrahúsdvöl. Það var dýrmætt í lok maí, að sækja hana á Land- spítalann og fara með til að halda upp á 95 ára afmælið hennar með börnum hennar, barnabörnum og mökum þeirra og barnabarna- börnunum auk mín tengdasonar- ins. Eftir andlát Hjartar eigin- manns hennar árið 2003 keyptum við Sigga hús með Jónu og bjugg- um þar með börnum okkar Siggu. Það voru forréttindi að kynslóðir bjuggu saman á þenn- an hátt sem við gerðum, og ákveðið afturhvarf til eldri tíma. Ómetanlegt fyrir börnin okkar sem nutu umhyggju ömmu sinn- ar eftir skóladag eða ef foreldr- arnir brugðu sér af bæ. Áður hafði Hjördís, þá 12 ára, valið að vera hjá afa og ömmu í góðu yf- irlæti þeirra meðan við fluttum til Englands í eitt ár. Þótt ungling- unum hafi á köflum þótt um- hyggjusemi Jónu vera afskipta- semi, vita þau að allt var þetta af ást hennar til þeirra og góðum huga og þessar minningar sem aðrar munu lifa með þeim. Þegar barnabörnin okkar komu til, naut hún þess að sjá mun meira af þeim en langömmur eiga að venj- ast, búandi í sama húsi og við. Jóna var umfram annað í lífinu eiginkona, húsmóðir, móðir, amma og langamma sem lagði sig í líma við að sinna sínu fólki, heimilinu og frændfólkinu. Jóna og Hjörtur byggðu sér hæð í Langholtshverfi á sínum tíma og gerðust síðar frumbyggjar í Ár- túnsholtinu þar sem keyptu rað- hús sem þau bjuggu í fram að andláti Hjartar. Jafnframt byggðu þau sér lítinn sumarbú- stað og ræktuðu upp land rétt austan borgarinnar. Þar var þeirra líf og yndi. Jóna hafði alist upp við kröpp kjör í sveit, í kreppunni. Alls- nægtir nútímans voru þar fjarri. Þetta markaði líf hennar þannig að nýtni og nægjusemi voru henni í blóð borin. Ég held að henni hafi fundist á köflum að við Sigga hefðum mátt vera nýtnari og for- sjálli á mörgum sviðum. Ekki að hún hafi verið að reyna að stjórna hvernig við lifðum lífi okkar, langt í frá. Hún var t.d. ekkert hrifin þegar við tókum upp á því að fá okkur hund. En hún og Aleda okkar urðu fljótt miklir félagar, og gönguferðir þeirra saman gáfu henni mikinn selskap því fólk sem hún mætti ræddi við hana á með- an það kjassaði og dásamaði hundinn. Og hún gerði enga at- hugasemd þegar við fengum okk- ur nýjan hund, Simba, hún hafði saknað Aledu sinnar. Sambúðin með hundunum var Jónu mikils virði, og hundarnir kunnu að meta aukabitana og AB-mjólkina sem hún stakk að þeim. Jónu féll varla verk úr hendi. Lengi hjálpaði hún til við heim- ilishald með því að þrífa hjá okkur og gera sitt til að létta undir með okkur í dagsins önn. Það var ekki fyrr en hún var hætt að treysta sér hjálparlaust í stigann upp á efri hæð, að hún varð að láta af því. Hún eldaði sjálf fyrir sig allt fram undir það síðasta. Hún af- sakaði iðju sína alltaf með því að hún hefði ekkert betra að gera. Að leiðarlokum langar mig með örfáum orðum að þakka Jónu allt það sem hún gaf og gerði fyrir mig og mína alla tíð. Þessi orð gera lítið til að jafna þá skuld. Guð geymi Jónu Þorsteins- dóttur og blessi minningu hennar. Viðar Helgason. Bráðum er brotinn bærinn minn á heiði. Hlýtt var þar stundum - hann er nú í eyði. Man ég þá daga. Margt var þá á seyði. (Jóhannes út Kötlum) Látin er kær móðursystir, hún Jóna frænka, næstyngst sex barna þeirra Margrétar og Þor- steins á Ketilsstöðum í Mýrdal. Ung misstu þau föður sinn en móðir þeirra hélt vel utan um hópinn þeirra. Mikil ábyrgð var lögð á ungar herðar, en með kjarki og dugnaði tókst þeim að halda búinu gangandi. Margrét amma var börnum sínum góð fyr- irmynd, einstaklega umtalsfróm, harðdugleg og reglusöm um alla hluti og strangheiðarleg. Hún kenndi börnum sínum og síðar barnabörnum bænir, sem fylgt hafa okkur áfram. Alla þessa eiginleika erfði hún Jóna. Hún var létt í lund, ljúf og falleg. Eftir að hún flutti að heim- an var mikil tilhlökkun þegar hún kom heim í Mýrdalinn, en hún réð sig ýmist í vist eins og tíðkaðist mjög í þá daga, þjónustustörf og fleira. Já og ekki má gleyma hey- skapnum, en þar stóð henni eng- inn á sporði og var á orði haft að með ólíkindum væri hvað gengi undan stúlkunni, því að hún sýnd- ist vart hreyfast. Það kom sér vel því að hún var ekki fyrir að láta á sér bera. Alltaf kom hún færandi hendi, setti það einhvers staðar bakatil: „Uss, þetta er ekkert! Ekki að nefna það!“ Og „alls enga fyrirhöfn“ ef hellt var á könnu, að ekki sé nefnt meðlæti. Þetta var konan sem opnaði heimilið fyrir fólkinu sínu, allt var sjálfsagt, gisting og veislukostur. „Uss, lát- ið ekki svona,“ var viðkvæðið ef einhver leyfði sér að hrósa gest- gjöfunum. Það var um sumar að Jóna kom í sveitina með kærasta, öðlinginn hann Hjört sem varð strax sem einn af fjölskyldunni og mikið voru þau glæsilegt par. Hjá þeim átti Margrét amma öruggt og gott skjól síðustu æviár sín. Gam- an var að fylgjast með hve sam- hent þau voru um hvaðeina. Þau keyptu landskika skammt frá Reykjavík, heldur óárennilegan við fyrstu sýn, en þarna sáu þau tækifæri og með ómældri vinnu og útsjónarsemi breyttu þau landinu í unaðsreit, þar sem þau ræktuðu blóm, tré og lífrænt grænmeti og byggðu lítinn sum- arbústað. Vinnan veitti þeim ómælda gleði, enda uppskáru þau eins og sáð var til. Þátttakendur í þessu ævintýri og fleirum voru börnin þeirra Steini og Sigga. Ferðuðust þau um landið milli þess að þau áttu yndisstundir „uppi í Landi“. Jóna var alla tíð sjálfstæð og eftir að Hjörtur féll frá keypti hún sér litla íbúð. Þar gat hún séð um sig sjálf, en um leið notið ómetanlegrar nálægðar Siggu, Viðars og barnabarnanna, sem bjuggu á efri hæðinni og voru endalausir gleðigjafar. Hin síð- ustu ár naut hún öryggis og um- hyggju síns fólks eins og Margrét amma hafði áður gert. Við systkinin frá Vatnsskarðs- hólum þökkum af hjarta gjöfula samfylgd. Megi minning Jónu frænku lýsa fallegu fjölskyldunni hennar og okkur öllum fram á veginn. Margs er að minnast. Margt er enn á seyði. Bleikur er varpinn, - bærinn minn í eyði. Syngja þó ennþá svanir fram á heiði. (Jóhannes úr Kötlum) Margrét Steina Gunnarsdóttir. Elsku Jóna frænka mín. Það er erfitt að sætta sig við að dagur sé að kvöldi kominn hjá þér. Þú varst lifandi sönnun þess að aldur er bara tala. Enda eins og ég sagði þér svo oft, varstu mér svo góð fyrirmynd í svo mörgu og það er mitt markmið að fá að eldast jafn vel og þú. Alltaf gastu hlegið jafn mikið að því, enda hógvær með eindæmum. Ég á eftir að sakna þess mikið að geta komið í heimsókn til þín. Það var alltaf tilhlökkunarefni hjá mér, Alexöndru og Anthony að koma í heimsókn til Jónu frænku. Enda fastur liður í hverri Íslandsferð á meðan við bjuggum erlendis að koma til þín í Heiðarásinn. Þú varst svo ein- staklega gestrisin og gott að koma til þín. Það var alltaf svo gaman að spjalla við þig og þú hafðir frá svo mörgu fróðlegu og skemmtilegu að segja. Sérstak- lega var gaman að heyra sögur frá því í „gamla daga“. Ég á alltaf eftir að geyma í hjartanu símtalið okkar núna um daginn á afmælinu þínu. Það var svo dýrmætt að hitta svona vel á þig. Ég var reyndar alveg sann- færð eftir það um að þú myndir komast heim aftur og ná þér. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið þann heiður að eiga þig sem frænku og fyrirmynd í þessu lífi. Ég veit að Hjörtur hefur tek- ið vel á móti þér hinum megin, ásamt öllum þínum sem fóru á undan þér yfir. Fallegasti engill- inn er kominn heim. Mínar allra hlýjustu samúðar- kveðjur til ykkar, elsku Steini, Sigga, Viðar, Hjördís, Teddi, Bergdís og Eydís. Unnur Elfa. Jóna Þorsteinsdóttir Elskuleg móðir okkar, amma, tengdamóðir, systir og mágkona, GYÐA BJARNADÓTTIR augnlæknir, lést fimmtudaginn 3. júní í Gautaborg, Svíþjóð. Hún verður jarðsungin frá Áskirkju þriðjudaginn 29. júní klukkan 15. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast Gyðu er bent á að styrkja Bjarkarhlíð: Kt.: 680817-0300, bnr.: 133-26-013108. Ingi Bjarni Skúlason Davíð Þór Skúlason Jóhanna Sigríður Sveinsdóttir Jóhanna Elísa Skúladóttir Davíð Þór Viðarsson Guðmundur Þ. Bjarnason María Clara Alfreðsdóttir Embla Hjördís Davíðsdóttir Víkingur Brynjar Davíðsson Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, EDDA S. SKAGFIELD frá Páfastöðum, lést mánudaginn 21. júní á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Sauðárkróki. Útförin verður auglýst síðar. Lovísa Baldursdóttir Albert Baldursson Birna G. Flygenring Helga Baldursdóttir Jón Gunnar Valgarðsson Sólveig Baldursdóttir Sigurður Baldursson Guðrún Kristín Jóhannesdóttir barnabörn og barnabarnabörn Móðir mín, tengdamóðir, amma okkar og langamma, GUÐRÚN ÓLAFSDÓTTIR, Víðilundi 20, Akureyri, lést sunnudaginn 6. júní. Útförin fór fram í kyrrþey þriðjudaginn 22. júní. Heiða Hrönn Hreiðarsdóttir Arnar Eyfjörð Erika Mist Arnarsdóttir Urður Ylfa Arnarsdóttir Viktor Samúelsson Ýmir Hugi Arnarsson Tinna Lind Helgadóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.