Morgunblaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021 COSTA DEL SOL MYRAMAR FUENGRIOLA 4* FUENGRIOLA, COSTA DEL SOL ÍBÚÐAR HÓTEL MEÐ ÝMIST EINU EÐA TVEIMUR SVEFNHERBERJUM OG TVEIMUR SUNDLAUGUM. 06. - 16. JÚLÍ | 11 DAGA FERÐ FLUG OG GISTING WWW.UU.IS | 585 4000 | INFO@UU.IS FLUG OG GISTING VERÐ FRÁ: 79.900 KR. *Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN INNIFALIÐ Í VERÐI, FLUG, GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR BEINT FLUG FRAM OG TIL BAKA FLUG, SKATTUR OG HANDFARANGUR INNIFALINN FLUG EINGÖNGU VERÐ FRÁ: 39.900 KR.* Unnur Freyja Víðisdóttir unnurfreyja@mbl.is Margt er enn óljóst hvað varðar hegðun, smit og sýkingaráhrif Co- vid-19 þegar kemur að barnshaf- andi konum. Þó standa fyrir dyrum rannsóknir erlendis á áhrifum bólusetninga á barnshafandi konur að sögn Huldu Hjartardóttur, yfir- læknis fæðingarþjónustu Landspít- alans. Barnshafandi konur hafa ekki verið í forgangshópi þegar að kem- ur að bólusetningum hér á landi en þó hefur ekki verið lagst gegn bólusetningum þeirra kvenna sem óska þess. Að sögn Huldu er töluverður fjöldi barnshafandi kvenna hér á landi sem hefur kosið að bíða með að láta bólusetja sig. „Það eru alls ekki allar barnshafandi konur sem hafa þegið boð í bólusetningu,“ segir hún. „Þær hafa eflaust hugsað sér að láta bólusetja sig eftir meðgöngu.“ Meðganga og fæðing auka al- mennt hættu á bláæðasegum en bláæðasega- myndun er sjald- gæf aukaverkun tengd bóluefnunum Astra Zeneca og Janssen. Af þessari ástæðu hef- ur verið reynt að bjóða barnshaf- andi konum önnur bóluefni, sam- kvæmt upplýsingum af vef Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu. Hér á landi hefur barnshafandi konum staðið til boða að fá bóluefnin Pfizer og Moderna. Áhrif bólusetningar við Covid-19 á barnshafandi konur og ófædd börn þeirra hafa lítið verið rann- sökuð, að sögn Huldu. Niðurstöður þeirra fáu rannsókna sem gerðar hafa verið í þessum efnum benda þó ekki til þess að bólusetningar hafi neikvæð áhrif á barnshafandi konur. „Það er eitthvað sem er ekki þekkt, en það eru að hefjast vísindarannsóknir erlendis þar sem fylgst verður með konum sem hafa verið bólusettar á meðgöngu,“ segir Hulda. Barnshafandi konur almennt viðkvæmari fyrir sýkingum Vitneskjan um bólusetningu barnshafandi kvenna við Covid-19 er byggð á þeim upplýsingum sem liggja fyrir um áhrif almennra bólusetninga, að sögn Huldu. „Það er ekki þekkt að önnur sambærileg bóluefni eða að bóluefni almennt valdi fósturgöllum eða fósturláti. Það hefur ekki sýnt sig að aukin hætta sé á því hjá þeim barnshaf- andi konum sem hafa verið bólu- settar,“ segir hún. Hins vegar eru þungaðar konur oft viðkvæmar fyr- ir sýkingum þannig að þetta stang- ast svolítið á. „Hagsmunirnir við það að fá bólusetningarnar og svo möguleg áhætta. En ef maður horfir á þetta frá líffræðilegu sjón- arhorni þá eru engin augljós áhætta.“ Segir mikilvægt að tilkynna grun um aukaverkanir Halldóra segir mikilvægt að fólk tilkynni grun um aukaverkanir vegna bólusetningar við Covid-19 til Lyfjastofnunar. Til dagsins í dag hafa stofnuninni borist sam- anlagt 68 tilkynningar vegna gruns um alvarlega aukaverkun af bólu- efnunum Pfizer og Moderna. Ekki þarf þó að vera orsakasamband milli bólusetninga og tilkynntra at- vika að sögn stofnunarinnar. Rannsaka áhrif á barnshafandi konur - Margt er enn óljóst um áhrif kórónuveirunnar á barnshafandi konur - Áhrif bólusetningar á meðgöngu og ófædd börn hafa lítið verið rannsökuð - Margar konur hér á landi hafa kosið að bíða Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Fjöldi Stór bólusetningardagur var í Laugardalshöll í gær þar sem um 12.000 manns fengu sinn seinni skamt af bóluefni AstraZeneca. Ekki er lengur grímuskylda í bólusetningunni. Hulda Hjartardóttir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilsugæslu höfuðborgarsvæð- isins, segir að gengið hafi mjög vel að bólusetja í gær, en fólki var þá boðið upp á seinni skammtinn af AstraZeneca. Komu fleiri en von var á að sögn Ragnheiðar, en alls voru 12.611 manns bólusettir. Mikil stemning var í höllinni og segir Ragnheiður að fólk hafi verið spennt að kom- ast í sumarfrí og elta sólina norður eða austur á land. Fólk farið að huga að fríi BÓLUSETNINGAR Úrskurðarnefnd lögmanna hefur veitt lögmanni áminningu vegna ummæla sem hann viðhafði í sjón- varpsviðtali. Fram kemur í úrskurð- inum að lögmaðurinn hafi farið með viðkvæmar persónugreinanlegar upplýsingar um annan málsaðila, sem fram komu í lokuðu þinghaldi. Einnig kemur fram að háttsemi og framkoma lögmannsins í sjónvarps- viðtali hafi ekki verið í samræmi við 34. grein siðareglna lögmanna. Þá var það mat úrskurðarnefndarinnar að sú háttsemi lögmannsins að fjalla um heilsufarslegar upplýsingar ein- staklings í viðtalinu hafi verið til þess fallin að valda honum hneyksl- isspjöllum í skilningi 35. greinar siðareglna lögmanna. „Það sem skiptir máli með þennan úrskurð er að hvergi er dregið í efa að lögmaður tjái sig í fjölmiðlum um mál sem eiga erindi til almennings. Þetta lýtur eingöngu að því að lög- maður er talinn hafa tjáð sig um einkamálefni annars málsaðila er fram komu í lokuðu þinghaldi,“ sagði Einar Gautur Steingrímsson, formaður nefndarinnar, við Morg- unblaðið. Lögmanni veitt áminning vegna sjónvarpsviðtals Skúla Magnússyni, umboðsmanni Alþingis, hafa borist 25 kvartanir vegna leghálsskimana. Á heimasíðu umboðsmanns er greint frá því að hann hafi fundað í gær með Ernu Bjarnadóttur, sem er í forsvari fyr- ir Facebook-hópinn Aðför að heilsu kvenna, og Gunnari Bjarna Ragn- arssyni krabbameinslækni. Komu þau þar á framfæri ýmsum ábend- ingum um fyrirkomulag legháls- skimana og þann farveg sem þær hafa verið í undanfarin misseri. Umboðsmaður greindi frá því að honum hefðu borist á þriðja tug kvartana vegna málsins ásamt óformlegum ábendingum sem hafi orðið honum tilefni til að fylgjast náið með því. Málið sé enn til skoðunar hjá stjórnvöldum og aðhafist umboðs- maður því ekki að svo stöddu. Hins vegar sé ástæða til að fylgjast grannt með framvindunni og bregðast við gefist tilefni til. 25 erindi send til umboðsmanns
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.