Morgunblaðið - 01.07.2021, Side 32

Morgunblaðið - 01.07.2021, Side 32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021 www.gilbert.is VELDU ÚR MEÐ SÁL FRISLAND 1941 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Margir lýstu vonbrigðum sínum og undrun þegar fram kom í kynningu Hafrannsóknastofnunar vegna ráð- gjafar um hámarksafla fyrir fisk- veiðiárið 2021/2022 að viðmiðunar- stofn þorsks hafi reynst minni en áður var talið. Fram kom að stofninn hefði verið ofmet- inn undanfarin ár og að hann hafi í fyrra verið talinn 1.208 þúsund tonn en reyndist hafa verið 982 þúsund tonn og sé í ár 941 þúsund tonn. „Ofmatið á stærð þorsk- stofnsins er til- komið vegna breytinga sem gerðar voru á líkaninu sem notað er til að meta stærð stofns- ins,“ svarar Guðmundur Þórðarson, sviðsstjóri botnsjávarsviðs Hafrann- sóknastofnunar, er hann er spurður hvað skýri ofmatið. „Á undanförnum árum hefur aldurssamsetning stofns- ins gjörbreyst vegna lækkaðs veiði- hlutfalls. Það veldur því að nú eru hlutfallslega mun fleiri þorskar 8 ára og eldri í stofninum en áður, en jafn- framt að 10 til 14 ára þorskar sem voru mjög sjaldgæfir í stofninum áð- ur fást nú í auknu mæli í stofnmæl- ingum botnfiska (ralli). Eftir því sem árunum hefur fjölgað þar sem mikið er af eldri fiski hefur komið í ljós að samband milli fjölda í stofni og í stofnmælingu er ekki línu- legt eins og áður var talið hjá eldri fiski heldur eykst vísitala hlutfalls- lega hraðar en fjöldi í stofni. Þetta ásamt því að upplýsingar um nýliðun í stofnmælingu að haustlagi bentu til mun sterkari nýliðunar en raunin varð gerir það að verkum að stofnmöt síðustu ára hafa ofmetið stærð þorsk- stofnsins miðað við núverandi stofn- mat,“ útskýrir hann. Ekki séríslenskt Það er hins vegar ekki bara um- hverfis Ísland sem þorskstofninn hef- ur verið ofmetinn og ráðlagði Al- þjóðahafrannsóknastofnunin (ICES) að veiðar á þorski í Barentshafi yrðu 177 þúsund tonnum minni á næsta ári sem er 20% lækkun, sú ráðgjöf hefði verið 43% minni ef ekki væri fyrir ákvæði um hámarksbreytingar milli ára. Gat norska hafrannsóknastofn- unin, Havforskningsinstituttet, upp- lýst að þorskstofninn í Barentshafi hafi verið ofmetinn undanfarin ár. Spurður hvort ofmatið í Barents- hafi eigi eitthvað sameiginlegt við of- matið hér á landi svarar Guðmundur því játandi. „Þær breytingar sem gerðar voru á stofnmatinu í ár eru um margt svipaðar og gert var fyrir bar- entshafsþorskinn í ár. Þar, líkt og hér, hefur tekist að draga verulega úr sókn með sömu afleiðingum, að eldri fiski fjölgar og þær forsendur sem áður voru gefnar um samband vísi- talna og stofnstærðar standast ekki lengur og þarf því að uppfæra í ljósi nýrra gagna. Ofmat og vanmat á fiskistofnum er hluti af þeirri óvissu sem við er að eiga um mat á stærð og afraksturs- getu villtra stofna og hefur sést í mörgum öðrum stofnum eins og í ufsa, gullkarfa og skarkola. Við höf- um hins vegar vanist því á undan- förnum árum að stofnmat þorsks hef- ur ekki haft mikil frávik milli ára fyrr en í fyrra og svo aftur í ár. Rétt er að halda því til haga að við mat á nýting- arstefnu þorsks [aflareglu] er gert ráð fyrir að slíkt endurmat geti orðið öðru hvoru.“ Vísar gagnrýni á bug Landssamband smábátaeigenda (LS) hefur sakað Hafrannsókna- stofnun um að styðjast við ótrúverð- uga starfshætti og talið ástæðu til að fá utanaðkomandi aðila til að skoða aðferðafræði stofnunarinnar. „Haf- rannsóknastofnun beitir í grunninn sömu aðferðafræði og notast er við alls staðar í heiminum þar sem byggt er á vísindum við stjórn fiskveiða,“ segir Guðmundur, inntur álits á gagnrýni LS. „Nú er nýlokið endur- skoðun á aflareglu þorsks á vegum nefndar sem sjávarútvegsráðherra skipaði. Í nefndinni sátu fulltrúar ráðuneytis, hagsmunaaðila, Hafrann- sóknastofnunar og vísindasamfélags- ins, þ.e. Háskóla Íslands og Háskól- ans á Akureyri. Niðurstaða nefndarinnar var að mæla með óbreyttri aflareglu. Í kjölfarið óskaði ráðuneytið eftir að Alþjóðahafrann- sóknaráðið (ICES) færi yfir aflaregl- una og aðferðafræði Hafrannsókna- stofnunar á mati á stærð þorskstofnsins. Niðurstaða ICES var að aflaregl- an stæðist alþjóðlegar kröfur um sjálfbærni og leiddi til hámarksaf- raksturs til lengri tíma litið. Í kjölfar endurskoðunar aflareglu fóru er- lendir sérfræðingar yfir aðferða- fræði Hafrannsóknastofnunar við mat á stofnstærð þorskstofnsins á vettfangi ICES. Ráðgjafanefnd ICES (ACOM) féllst á niðurstöður þessara sérfræðinga og því byggir ICES ráðgjöf sína á sömu aðferða- fræði og Hafrannsóknastofnun. Að- ferðafræðin er í grunninn sú sama og beitt er bæði í Evrópu og Norður- Ameríku (Kanada/USA) sem og alls staðar þar sem ráðgjöf byggir á vís- indalegri nálgun. Önnur gagnrýni sem oft heyrist er að togararallið nái ekki utan um þorskstofninn, því er til að svara að rallið byggir á viðurkenndri aðferða- fræði sem notuð er alls staðar við mat á stofnstærð þorsks eins og í Bandaríkjunum, Kanada, Noregi og fleiri löndum. Hafrannsóknastofnun fylgist vel með rannsóknum á slíkri aðferðafræði en enn sem komið er hefur ekki verið sýnt fram á betri að- ferðir til að meta stærð bolfiskstofna á vísindalegan og samræmdan hátt.“ Komið hefur fram sú gagnrýni að þrátt fyrir að ráðgjöf Hafrannsókna- stofnunar hafi verið fylgt er þorsk- stofninn ekki að gefa meira af sér en þegar kvótakerfinu var komið á 1984. Er eitthvað til í þessu? „Það er rétt að afli er nú mun lægri en þegar veiðar voru óheftar, það hins vegar þarf að halda því til haga að ekki er dregið verulega úr þorskafla fyrr en aflareglan kemur fram um miðjan tíunda áratuginn. Ef litið er á stofnþróun frá lokum sjötta áratugarins til þess tíunda sést að viðmiðunarstofninn fór úr um 1.800 þúsund tonnum í um 600 þúsund tonn. Veiðar á þessum tíma voru því langt umfram afrakstursgetu stofns- ins. Það sem hins vegar flækir málið er að framan af komu göngur frá Grænlandi inn á Íslandsmið sem héldu uppi afla hér við land. Þorsk- stofninn við Grænland hrundi á átt- unda áratugnum og síðan hafa ekki komið stórar göngur þaðan inn í ís- lenska stofninn.“ Þarfnast skoðunar Guðmundur segir stofnunina ekki gera ráð fyrir að viðmiðunarstofn þorsks stækki á ný fyrr en stærri ár- gangar koma inn í stofninn. „Það eru ágætar horfur með 2019 og 2020 ár- ganginn sem koma þá inn í viðmið- unarstofninn 2023 og 2024. Horfur fyrir næsta ár eru að stofninn minnki lítillega þar sem lélegir árgangar frá 2013 og 2016 vega enn mikið í við- miðunarstofni. Það er margt á huldu varðandi þorskstofninn og þörf á að rannsaka betur marga þætti í líffræði og vist- fræði hans. Afdrif ungviðis þorsks eru lítt rannsökuð, tengsl þorsks hér og við Grænland þarfnast skoðunar sem og far hans um hafsvæðið við Ís- land. Rannsóknir hafa einnig sýnt fram á mismunandi atferli þorsks, sk. djúpfars og grunnfars, en hvern- ig hlutföll þessara atferlisgerða hafa áhrif á afrakstursgetu þorsks er lítt skoðað. Það er því margt sem er óþekkt í tengslum við þorskinn en öll slík vitneskja mun nýtast við að geta betur metið stærð og afrakstursgetu þessa langmikilvægasta nytjastofns okkar,“ útskýrir hann. Margt enn óþekkt um þorskinn - Vísbendingar voru um sterkari nýliðun en í raun varð - Ofmátu stærð þorskstofnsins undanfarin ár - Aðferðir Hafrannsóknastofnunar samkvæmt alþjóðlegum stöðlum - Ekki séríslenskt vandamál Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Milljarðar Sjávarútvegurinn telur sig verða fyrir tapi vegna minni hámarksafla í þorski á næsta fiskveiðiári. Guðmundur Þórðarson Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Ósáttir Smábátasjómenn hafa gagnrýnt starfshætti og aðferðafræði Hafró.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.