Morgunblaðið - 01.07.2021, Síða 32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021
www.gilbert.is
VELDU ÚR MEÐ SÁL
FRISLAND 1941
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Margir lýstu vonbrigðum sínum og
undrun þegar fram kom í kynningu
Hafrannsóknastofnunar vegna ráð-
gjafar um hámarksafla fyrir fisk-
veiðiárið 2021/2022 að viðmiðunar-
stofn þorsks hafi reynst minni en
áður var talið. Fram kom að stofninn
hefði verið ofmet-
inn undanfarin ár
og að hann hafi í
fyrra verið talinn
1.208 þúsund tonn
en reyndist hafa
verið 982 þúsund
tonn og sé í ár 941
þúsund tonn.
„Ofmatið á
stærð þorsk-
stofnsins er til-
komið vegna
breytinga sem gerðar voru á líkaninu
sem notað er til að meta stærð stofns-
ins,“ svarar Guðmundur Þórðarson,
sviðsstjóri botnsjávarsviðs Hafrann-
sóknastofnunar, er hann er spurður
hvað skýri ofmatið. „Á undanförnum
árum hefur aldurssamsetning stofns-
ins gjörbreyst vegna lækkaðs veiði-
hlutfalls. Það veldur því að nú eru
hlutfallslega mun fleiri þorskar 8 ára
og eldri í stofninum en áður, en jafn-
framt að 10 til 14 ára þorskar sem
voru mjög sjaldgæfir í stofninum áð-
ur fást nú í auknu mæli í stofnmæl-
ingum botnfiska (ralli).
Eftir því sem árunum hefur fjölgað
þar sem mikið er af eldri fiski hefur
komið í ljós að samband milli fjölda í
stofni og í stofnmælingu er ekki línu-
legt eins og áður var talið hjá eldri
fiski heldur eykst vísitala hlutfalls-
lega hraðar en fjöldi í stofni. Þetta
ásamt því að upplýsingar um nýliðun
í stofnmælingu að haustlagi bentu til
mun sterkari nýliðunar en raunin
varð gerir það að verkum að stofnmöt
síðustu ára hafa ofmetið stærð þorsk-
stofnsins miðað við núverandi stofn-
mat,“ útskýrir hann.
Ekki séríslenskt
Það er hins vegar ekki bara um-
hverfis Ísland sem þorskstofninn hef-
ur verið ofmetinn og ráðlagði Al-
þjóðahafrannsóknastofnunin (ICES)
að veiðar á þorski í Barentshafi yrðu
177 þúsund tonnum minni á næsta ári
sem er 20% lækkun, sú ráðgjöf hefði
verið 43% minni ef ekki væri fyrir
ákvæði um hámarksbreytingar milli
ára. Gat norska hafrannsóknastofn-
unin, Havforskningsinstituttet, upp-
lýst að þorskstofninn í Barentshafi
hafi verið ofmetinn undanfarin ár.
Spurður hvort ofmatið í Barents-
hafi eigi eitthvað sameiginlegt við of-
matið hér á landi svarar Guðmundur
því játandi. „Þær breytingar sem
gerðar voru á stofnmatinu í ár eru um
margt svipaðar og gert var fyrir bar-
entshafsþorskinn í ár. Þar, líkt og
hér, hefur tekist að draga verulega úr
sókn með sömu afleiðingum, að eldri
fiski fjölgar og þær forsendur sem
áður voru gefnar um samband vísi-
talna og stofnstærðar standast ekki
lengur og þarf því að uppfæra í ljósi
nýrra gagna.
Ofmat og vanmat á fiskistofnum er
hluti af þeirri óvissu sem við er að
eiga um mat á stærð og afraksturs-
getu villtra stofna og hefur sést í
mörgum öðrum stofnum eins og í
ufsa, gullkarfa og skarkola. Við höf-
um hins vegar vanist því á undan-
förnum árum að stofnmat þorsks hef-
ur ekki haft mikil frávik milli ára fyrr
en í fyrra og svo aftur í ár. Rétt er að
halda því til haga að við mat á nýting-
arstefnu þorsks [aflareglu] er gert
ráð fyrir að slíkt endurmat geti orðið
öðru hvoru.“
Vísar gagnrýni á bug
Landssamband smábátaeigenda
(LS) hefur sakað Hafrannsókna-
stofnun um að styðjast við ótrúverð-
uga starfshætti og talið ástæðu til að
fá utanaðkomandi aðila til að skoða
aðferðafræði stofnunarinnar. „Haf-
rannsóknastofnun beitir í grunninn
sömu aðferðafræði og notast er við
alls staðar í heiminum þar sem byggt
er á vísindum við stjórn fiskveiða,“
segir Guðmundur, inntur álits á
gagnrýni LS. „Nú er nýlokið endur-
skoðun á aflareglu þorsks á vegum
nefndar sem sjávarútvegsráðherra
skipaði. Í nefndinni sátu fulltrúar
ráðuneytis, hagsmunaaðila, Hafrann-
sóknastofnunar og vísindasamfélags-
ins, þ.e. Háskóla Íslands og Háskól-
ans á Akureyri. Niðurstaða
nefndarinnar var að mæla með
óbreyttri aflareglu. Í kjölfarið óskaði
ráðuneytið eftir að Alþjóðahafrann-
sóknaráðið (ICES) færi yfir aflaregl-
una og aðferðafræði Hafrannsókna-
stofnunar á mati á stærð
þorskstofnsins.
Niðurstaða ICES var að aflaregl-
an stæðist alþjóðlegar kröfur um
sjálfbærni og leiddi til hámarksaf-
raksturs til lengri tíma litið. Í kjölfar
endurskoðunar aflareglu fóru er-
lendir sérfræðingar yfir aðferða-
fræði Hafrannsóknastofnunar við
mat á stofnstærð þorskstofnsins á
vettfangi ICES. Ráðgjafanefnd
ICES (ACOM) féllst á niðurstöður
þessara sérfræðinga og því byggir
ICES ráðgjöf sína á sömu aðferða-
fræði og Hafrannsóknastofnun. Að-
ferðafræðin er í grunninn sú sama og
beitt er bæði í Evrópu og Norður-
Ameríku (Kanada/USA) sem og alls
staðar þar sem ráðgjöf byggir á vís-
indalegri nálgun.
Önnur gagnrýni sem oft heyrist er
að togararallið nái ekki utan um
þorskstofninn, því er til að svara að
rallið byggir á viðurkenndri aðferða-
fræði sem notuð er alls staðar við
mat á stofnstærð þorsks eins og í
Bandaríkjunum, Kanada, Noregi og
fleiri löndum. Hafrannsóknastofnun
fylgist vel með rannsóknum á slíkri
aðferðafræði en enn sem komið er
hefur ekki verið sýnt fram á betri að-
ferðir til að meta stærð bolfiskstofna
á vísindalegan og samræmdan hátt.“
Komið hefur fram sú gagnrýni að
þrátt fyrir að ráðgjöf Hafrannsókna-
stofnunar hafi verið fylgt er þorsk-
stofninn ekki að gefa meira af sér en
þegar kvótakerfinu var komið á
1984. Er eitthvað til í þessu?
„Það er rétt að afli er nú mun
lægri en þegar veiðar voru óheftar,
það hins vegar þarf að halda því til
haga að ekki er dregið verulega úr
þorskafla fyrr en aflareglan kemur
fram um miðjan tíunda áratuginn. Ef
litið er á stofnþróun frá lokum sjötta
áratugarins til þess tíunda sést að
viðmiðunarstofninn fór úr um 1.800
þúsund tonnum í um 600 þúsund
tonn. Veiðar á þessum tíma voru því
langt umfram afrakstursgetu stofns-
ins. Það sem hins vegar flækir málið
er að framan af komu göngur frá
Grænlandi inn á Íslandsmið sem
héldu uppi afla hér við land. Þorsk-
stofninn við Grænland hrundi á átt-
unda áratugnum og síðan hafa ekki
komið stórar göngur þaðan inn í ís-
lenska stofninn.“
Þarfnast skoðunar
Guðmundur segir stofnunina ekki
gera ráð fyrir að viðmiðunarstofn
þorsks stækki á ný fyrr en stærri ár-
gangar koma inn í stofninn. „Það eru
ágætar horfur með 2019 og 2020 ár-
ganginn sem koma þá inn í viðmið-
unarstofninn 2023 og 2024. Horfur
fyrir næsta ár eru að stofninn minnki
lítillega þar sem lélegir árgangar frá
2013 og 2016 vega enn mikið í við-
miðunarstofni.
Það er margt á huldu varðandi
þorskstofninn og þörf á að rannsaka
betur marga þætti í líffræði og vist-
fræði hans. Afdrif ungviðis þorsks
eru lítt rannsökuð, tengsl þorsks hér
og við Grænland þarfnast skoðunar
sem og far hans um hafsvæðið við Ís-
land. Rannsóknir hafa einnig sýnt
fram á mismunandi atferli þorsks,
sk. djúpfars og grunnfars, en hvern-
ig hlutföll þessara atferlisgerða hafa
áhrif á afrakstursgetu þorsks er lítt
skoðað. Það er því margt sem er
óþekkt í tengslum við þorskinn en öll
slík vitneskja mun nýtast við að geta
betur metið stærð og afrakstursgetu
þessa langmikilvægasta nytjastofns
okkar,“ útskýrir hann.
Margt enn óþekkt um þorskinn
- Vísbendingar voru um sterkari nýliðun en í raun varð - Ofmátu stærð þorskstofnsins undanfarin ár
- Aðferðir Hafrannsóknastofnunar samkvæmt alþjóðlegum stöðlum - Ekki séríslenskt vandamál
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Milljarðar Sjávarútvegurinn telur sig verða fyrir tapi vegna minni hámarksafla í þorski á næsta fiskveiðiári.
Guðmundur
Þórðarson
Ljósmynd/Þorgeir Baldursson
Ósáttir Smábátasjómenn hafa gagnrýnt starfshætti og aðferðafræði Hafró.