Morgunblaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
á
sl
ík
u.
At
h.
að
ve
rð
ge
tu
rb
re
ys
tá
n
fy
rir
va
ra
.
595 1000
Verona
Verð frá kr.
19.950
önnur leið m/ handfarangri
Verð frá kr.
39.900
báðar leiðir m/ handfarangri
TAKTU FLUGIÐ TIL ÍTALÍU Í SUMAR
10-60%
AFSLÁTTUR
ÚTSALAN
ERHAFIN
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Skipin okkar, Ísleifur VE og Kap
VE, eru að komast á makrílmiðin
norður í Síldarsmugu,“ sagði Sindri
Viðarsson, sviðsstjóri uppsjávar-
sviðs hjá Vinnslustöðinni í Vest-
mannaeyjum, síðdegis í gær. Ísleifur
VE kom þangað í hádeginu í gær og
Kap VE var rétt á eftir. Sindri sagði
að skipin hafi áður verið búin að leita
að makríl sunnan við landið og fund-
ið lítið sem ekkert.
„Veiðin þarna hefur verið frekar
róleg,“ sagði Sindri. Hann sagði að
íslensk skip hafi farið í Síldarsmug-
una í síðustu viku og skip Vinnslu-
stöðvarinnar lögðu af stað eftir síð-
ustu helgi. Um tveggja sólarhringa
sigling er á miðin. Þangað eru komin
makrílskip frá flestum ef ekki öllum
útgerðum uppsjávarveiðiskipa.
Vinnslustöðin er að undirbúa Hugin
VE á makrílveiðar en hann mun
frysta aflann um borð. Aflinn verður
hins vegar kældur um borð í Ísleifi
VE og Kap VE.
Á heimasíðu Síldarvinnslunnar í
Neskaupstað (svn.is) segir að skipin
sem landa hjá henni hafi verið við
veiðar á þessum miðum. Vilhelm
Þorsteinsson EA kom með fyrsta
farminn, 1.160 tonn, á mánudags-
kvöld. Aflinn var af þremur skipum,
Vilhelm Þorsteinssyni EA, Berki NS
og Beiti NS. Birkir Hreinsson, skip-
stjóri á Vilhelm Þorsteinssyni EA,
sagði að aflinn hafi farið vaxandi.
Stærstu hölin sem skipin fengu voru
orðin yfir 300 tonn. Makríllinn var
stór og meðalviktin 470-500 grömm.
gudni@mbl.is
Skipin farin á makríl
í Síldarsmugunni
- Makrílaflinn hefur glæðst - Tveggja sólarhringa sigling
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Makríll Íslensku uppsjávarskipin eru nú á makrílveiðum á alþjóðlegu
hafsvæði, Síldarsmugunni, sem er langt fyrir norðan landið.
Hólmfríður María Ragnhildardóttir
hmr@mbl.is
Leysingar á norðanverðu landinu
valda nú miklum vatnavöxtum en ár
streyma yfir bakka sína í Eyjafirði
yfir nærliggjandi vegi, reiðvegi og
tún. Veðurstofa Íslands ráðlagði í
gær íbúum á nærliggjandi svæðum
að huga að eignum og dýrum, en bú-
ast má við áframhaldandi vatnavöxt-
um þar sem veðrið er hlýtt og snjór til
fjalla, líkt og á Tröllaskaga og á Aust-
fjörðum.
Vatnavextirnir eru meðal annars
greinilegir í Bægisá en rennsli henn-
ar er farið langt yfir 200-ára flóð.
Eins hefur rennslið í Hörgá verið á
við 25-ára flóð. Vaglaskógur hefur
einnig fengið að finna fyrir þessum
vöxtum en Fnjóská hefur nú flætt yf-
ir bakka sína og yfir tjaldsvæðið þar.
Ákveðið var í gærkvöldi að loka
brúnni yfir Þverá í Eyjafjarðarsveit,
það er Eyjafjarðarbraut eystri,
vegna vatnavaxta.
Tún og beitilönd undir vatn
Beindi lögreglan á Norðurlandi
eystra þeim tilmælum til vegfarenda
að fara Eyjafjarðarbraut vestari og
þá yfir á brúnum við Hrafnagil eða á
Leiruvegi til að komast leiðar sinnar.
„Þetta bara eykst og eykst og er
enn að vaxa,“ segir Hulda Sigurðar-
dóttir, bóndi á Stekkjarflötum í Eyja-
firði, sem hefur verið að fylgjast með
vatnavöxtunum í Eyjafjarðará,
skammt frá heimili sínu.
„Undir miðnætti heyrði ég af
hrossum í vandræðum sem höfðu
orðið viðskila við hópinn. Þau voru
bara í rólegheitum á beit svo nær
vatnið að flæða á milli. Þetta er í
sjálfu sér ekki stórmál í ljósi þess að
áin er ekki straumhörð þar sem beit-
arsvæðin eru,“ segir Hulda.
Áin hefur nú flætt yfir reiðvegi í
nágrenni og er vatn einnig komið yfir
akstursvegi. „Það er enn hægt að
keyra hann, það er enginn straumur
að ráði heldur flæðir vatnið bara ró-
lega yfir. Reiðvegurinn er samt ófær
og líka reiðbrúin sem liggur yfir ána.“
Þrátt fyrir þessi vandræði telur
Hulda sig koma tiltölulega vel út úr
þessum vatnavöxtum í samanburði
við nágrannana sem eiga tún og hey
sem lentu undir vatni.
Í samtali við blaðamann í gær taldi
Hulda vatnavextina ekki hafa náð há-
marki enn og ætlaði hún að halda
áfram að fylgjast með gangi mála
næstu daga.
Rýmingu aflétt að hluta til
Þrjár aurskriður hafa fallið í
Skagafirði undanfarna tvo daga, en
ekki var víst hvaða tengsl þær hefðu
við vatnavextina. Í kjölfarið var nær-
liggjandi svæði í Varmahlíð rýmt en í
gær var tók Almannavarnarnefnd
Skagafjarðar ákvörðun um að aflétta
þeirri rýmingu að hluta til.
Að sögn Lögreglunnar á Norður-
landi vestra hefur tekist að þrengja
hættusvæðið með fyrirbyggjandi að-
gerðum en næstu daga verður þeirri
vinnu haldið áfram með rannsóknum
á orsökum aurskriðunnar.
Barst lögreglu einnig tilkynning í
gær um aurskriðu á skíðasvæði í
Tindastóli sem olli einhverjum
skemmdum. Svæðinu var lokað tíma-
bundið en ekki er lengur talin hætta á
frekari skriðuföllum þar.
Miklir vatnavextir fyrir norðan
- Íbúum á Norðurlandi ráðlagt að huga að eignum og dýrum vegna vatnavaxta - Eyjafjarðaráin hefur
flætt yfir nærliggjandi vegi, reiðvegi og tún - Rýmingu á Varmahlíð vegna aurskriðna aflétt að hluta til
Ljósmynd/Hulda Sigurðardóttir
Vatnavextir Miklir vatnavextir voru í Eyjafjarðará og flæddi hún yfir nærliggjandi vegi og tún í gær.
Á heimasíðu Geislavarna ríkisins
má fylgjast með vöktun á svoköll-
uðum UV-stuðli. Stuðullinn mælir
styrk útfjólublárrar geislunar.
Sigurður Magnússon, forstjóri
Geislavarna ríkisins, segir að stuð-
ullinn sé samræmdur fyrir allan
heiminn.
„Markmiðið með þessum stuðli er
að gera fólki kleift að verja sig
sjálft fyrir sólinni. Eftir því sem
gildi stuðulsins hækkar, þá aukast
líkurnar á sólbruna.“ Sigurður
bendir einnig á að stuðullinn sé
línulegur og að fólk geti með nokk-
uð einföldum hætti kynnt sér og
notfært sér hann. „Þar sem hann er
línulegur er hægt að segja að ef
maður getur verið úti í klukkutíma
við stuðulinn þrjá án þess að
brenna, þá má ætla að það verði
hálftími sé stuðullinn sex.“
Þá segir Sigurður stuðulinn í
raun aldrei verða mjög háan hér á
Íslandi, hann sé yfirleitt tveir til
sex, en í löndum nær miðbaugi er
stuðullinn almennt hærri.
Á heimasíðu Geislavarna ríkisins
síðdegis í gær mátti sjá að stuðull
styrks útfjólublárra geisla var 5,9
bæði í Reykjavík og á Egilsstöðum.
Mælt er með því að nota sólarvörn
ef stuðullinn er 3 eða hærri.
Sífelld vöktun á UV-stuðli
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Sólbruni UV-stuðullinn gerir fólki
kleift að verja sig fyrir sólbruna.
- Geri fólki kleift
að verja sig sjálft
fyrir sólinni