Morgunblaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 62
Morgunblaðið/Eggert Tvenna Katrín Ásbjörnsdóttir fagnar öðru marki sínu gegn Breiðabliki ásamt liðsfélögum sínum á Kópavogsvelli. FÓTBOLTINN Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Katrín Ásbjörnsdóttir reyndist hetja Stjörnunnar þegar liðið vann afar sterkan sigur gegn Íslandsmeisturum Breiðabliks í úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu, Pepsi Max-deildinni, á Kópavogsvelli í Kópavogi í gær. Leiknum lauk með 2:1-sigri Garðbæ- inga en Katrín skoraði bæði mörk Stjörnunnar hvort í sínum hálf- leiknum. „Eftir erfiða byrjun hefur Stjarnan snúið taflinu við og unnið þrjá leiki í röð. Liðið fór óhrætt á einn erfiðasta útivöll landsins og náði í verðskuld- aðan sigur ,“ skrifaði Jóhann Ingi Hafþórsson m.a. í umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is. Stjarnan fer með sigrinum upp í fjórða sæti deildarinnar með 13 stig og er nú einungis fjórum stigum frá toppliði Vals, en Breiðablik er í öðru sætinu með 15 stig. _ Þetta var fyrsti sigur Stjörn- unnar gegn Breiðabliki í efstu deild á Kópavogsvelli í tæp átta ár, en Garðbæingar fögnuðu síðast sigri í Kópavogi hinn 1. júlí 2013. Leiknum lauk þá með 2:1-sigri Stjörnunnar en það voru þær Danka Podovac og Harpa Þorsteinsdóttir sem skoruðu mörk Garðbæinga. Greta Mjöll Sam- úelsdóttir skoraði mark Blika. Vindasamt á Sauðárkróki Vindurinn var í aðalhlutverki þegar Tindastóll tók á móti Selfossi á Sauð- árkróksvelli á Sauðárkróki, en leikn- um lauk með markalausu jafntefli. Það var vindasamt fyrir norðan en þrátt fyrir það var fyrri hálfleikurinn fjörugur. Bæði lið fengi tækifæri til þess að koma knettinum í netið en inn vildi boltinn ekki og markalaus í hálf- leik. Síðari hálfleikurinn var ekki eins fjörugur og sá fyrri og vindurinn hafði mikil áhrif á leikmenn beggja liða. „Króksarar spiluðu með vindinn í bakið í seinni hálfleik og áttu þó- nokkrar hornspyrnur sem vindurinn, maður leiksins, sendi yfirleitt aftur fyrir markið. Engin mörk sáust því í dag og leikmenn gengu því vind- blásnir til búningsklefa og skiptu stigum á milli sín,“ skrifaði Sæþór Már Hinriksson m.a. í umfjöllun sinni um leikinn á mbl.is. Tindastóll er í neðsta sæti deild- arinnar með 5 stig, fjórum stigum frá öruggu sæti, en Selfoss er í þriðja sætinu með 14 stig. _ Þetta fimmti leikurinn í úrvals- deild kvenna í sumar sem endar með markalausu jafntefli og annar leikur Selfyssinga sem endar með marka- lausu jafntefli. Fyrsti sigurinn í átta ár - Selfyssingar misstigu sig í toppbaráttunni þegar þeir heimsóttu Sauðárkrók - Íslandsmeistaraefnin í Val eru með tveggja stiga forskot á toppi deildarinnar 62 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021 Pepsi Max-deild kvenna Tindastóll – Selfoss .................................. 0:0 Breiðablik – Stjarnan............................... 1:2 Staðan: Valur 8 5 2 1 20:11 17 Breiðablik 7 5 0 2 27:11 15 Selfoss 8 4 2 2 13:10 14 Þróttur R. 8 3 3 2 18:14 12 Stjarnan 7 3 1 3 9:11 10 ÍBV 8 3 0 5 13:17 9 Keflavík 8 2 3 3 8:13 9 Fylkir 8 2 3 3 8:16 9 Þór/KA 8 2 2 4 7:12 8 Tindastóll 8 1 2 5 5:13 5 Lengjudeild kvenna Afturelding – ÍA ....................................... 3:0 Staðan: Afturelding 8 5 3 0 22:9 18 KR 7 5 1 1 19:8 16 FH 7 5 0 2 14:7 15 Víkingur R. 7 3 2 2 15:11 11 Haukar 7 3 1 3 10:10 10 ÍA 8 3 0 5 9:20 9 Grótta 7 2 1 4 10:14 7 HK 7 2 1 4 10:17 7 Augnablik 7 1 2 4 8:14 5 Grindavík 7 0 3 4 9:16 3 2. deild karla Leiknir F. – KV ........................................ 1:2 KF – Fjarðabyggð.................................... 4:0 Reynir S. – Njarðvík ................................ 1:3 Þróttur V. – Kári ...................................... 4:1 Haukar – ÍR.............................................. 5:2 Völsungur – Magni................................... 2:2 Staðan: KV 9 5 4 0 20:12 19 Þróttur V. 9 5 3 1 23:11 18 Njarðvík 9 4 5 0 17:10 17 Haukar 9 4 3 2 23:16 15 KF 9 4 2 3 15:11 14 Reynir S. 9 4 1 4 19:18 13 ÍR 9 3 3 3 15:17 12 Völsungur 9 3 2 4 18:21 11 Magni 9 2 4 3 19:22 10 Leiknir F. 9 3 0 6 14:18 9 Fjarðabyggð 9 0 4 5 4:20 4 Kári 9 0 3 6 11:22 3 Noregur Sandefjord – Bodö/Glimt ....................... 1:0 - Viðar Ari Jónsson lék fyrstu 89 mínút- urnar hjá Sandefjord. - Alfons Sampsted lék allan leikinn með Bodö/Glimt. Tromsö – Kristiansund ........................... 0:0 - Adam Örn Arnarson lék fyrstu 78 mín- úturnar fyrir Tromsö. - Brynjólfur Willumsson kom inn á hjá Kristiansund á 74. mínútu. Molde – Strömsgodset............................. 3:0 - Björn Bergmann Sigurðarson lék ekki með Molde vegna meiðsla. - Valdimar Þór Ingimundarson lék fyrstu 63 mínúturnar fyrir Strömsgodset en Ari Leifsson var ónotaður varamaður. Rosenborg – Haugesund......................... 0:0 - Hólmar Örn Eyjólfsson var ónotaður varamaður hjá Rosenborg. Viking – Stabæk ...................................... 3:3 - Samúel Kári Friðjónsson lék allan leik- inn með Viking. Staðan: Molde 11 8 2 1 28:11 26 Bodø/Glimt 12 7 2 3 25:11 23 Kristiansund 10 5 2 3 8:9 17 Vålerenga 10 4 4 2 17:13 16 Viking 10 5 1 4 19:21 16 Rosenborg 11 4 3 4 20:16 15 Lillestrøm 8 4 1 3 10:10 13 Odd 8 3 3 2 11:8 12 Haugesund 8 3 3 2 9:6 12 Strømsgodset 9 3 2 4 13:18 11 Sarpsborg 8 2 3 3 6:8 9 Sandefjord 8 3 0 5 10:16 9 Tromsø 10 2 3 5 10:17 9 Mjøndalen 7 1 4 2 7:7 7 Stabæk 9 1 3 5 11:20 6 Brann 11 1 2 8 9:22 5 Stabæk – Vålerenga................................ 0:5 - Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leik- inn með Vålerenga en Amanda Andradóttir var ónotaður varamaður. Kolbotn – Arna-Björnar ......................... 1:0 - Guðbjörg Gunnarsdóttir var varamark- vörður Arna-Björnar. >;(//24)3;( Úrslitakeppni NBA Úrslit Austurdeildar: Atlanta – Milwaukee .......................... 110:88 _ Staðan er 2:2. >73G,&:=/D KNATTSPYRNA Pepsi Max-deild karla: Origovöllur: Valur – FH .......................19:15 Lengjudeild karla: Hásteinsvöllur: ÍBV – Selfoss ..................18 SaltPay-völlur: Þór – Vestri ......................18 Framvöllur: Fram – Grindavík............19:15 Ólafsvík: Víkingur Ó. – Þróttur R. ......19:15 Varmá: Afturelding – Grótta................19:15 Extra-völlur: Fjölnir – Kórdrengir .....19:15 3. deild karla: Fífan: Augnablik – Víðir ...........................20 Samsungvöllur: KFG – Ægir ....................20 Í KVÖLD! Knattspyrnukonan Lára Kristín Pedersen er orðin leikmaður Vals og verða félagaskiptin tilkynnt fljótlega. Lára var á leik Vals og Keflavíkur í Pepsi Max-deildinni á þriðjudagskvöld. Lára lék með KR á síðustu leiktíð og gekk í kjölfarið í raðir Napólí á Ítalíu í febrúar og lék sex leiki með liðinu í A-deildinni en hefur nú gert samkomulag við Val. Hefur hún leikið með Aftureld- ingu, Stjörnunni, Þór/KA og Napólí og spilað samtals 173 deildaleiki heima og erlendis á ferlinum. Topplið Vals styrkist frekar Morgunblaðið/Eggert Hlíðarendi Lára Kristín Pedersen í leik með KR á móti Val. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Ís- landsmeistari úr Keili, er ofarlega á móti í Hollandi á Evrópumótaröð- inni í golfi eftir góða spilamennsku í gær Guðrún lék átakalítinn hring og notaði 70 högg. Er hún á tveimur höggum undir pari, fjórum höggum á eftir áströlskum kylfingi sem er efstur, Stephanie Kyriacou. Guðrún Brá er í 7.-12. sæti en fyrsta keppnisdegi er lokið. Fyrsti keppnisdagur lofar því góðu fyrir Guðrúnu, en hún lék hringinn án þess að fá verra skor en par. Átakalítið hjá Guðrúnu Brá Ljósmynd/GSÍ Holland Guðrún Brá lék fyrsta hringinn á tveimur undir pari. BREIÐABLIK – STJARNAN 1:2 0:1 Katrín Ásbjörnsdóttir 43. 0:2 Katrín Ásbjörnsdóttir 62. 1:2 Agla María Albertsdóttir 69. MM Katrín Ásbjörnsdóttir (Stjörnunni) Arna Dís Arnþórsdóttir (Stjörnunni) M Agla María Albertsdóttir (Breiðabliki) Chloé Velde (Breiðabliki) Birta Georgsdóttir (Breiðabliki) Anna M. Baldursdóttir (Stjörnunni) Sóley Guðmundsdóttir (Stjörnunni) Ingibjörg L. Ragnarsd. (Stjörnunni) Betsy Hassett (Stjörnunni) Heiða R. Viðarsdóttir (Stjörnunni) Gyða K. Gunnarsdóttir (Stjörnunni) Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson – 5. Áhorfendur: 358. TINDASTÓLL – SELFOSS 0:0 M Hugrún Pálsdóttir (Tindastóli) Bryndís Rut Haraldsdóttir (Tindastóli) Hólmfríður Magnúsdóttir (Selfossi) Guðný Geirsdóttir (Selfossi) Dómari: Birgir Þór Þrastarson – 7. Áhorfendur: 150. _ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/ sport/fotbolti. ÍBV sendi frá sér tilkynningu í gær þar sem fram kom að Andri Ólafs- son hefði látið af störfum sem þjálf- ari kvennaliðs ÍBV í knattspyrnu. Birkir Hlynsson hættir einnig í þjálfarateyminu en fram kemur í tilkynningunni að þeir kjósi að láta af störfum af persónulegum ástæð- um. Andri hefur stýrt liðinu frá haustinu 2019 en ÍBV hafnaði í átt- unda sæti deildarinnar á síðustu leiktíð. Gengi liðsins í sumar hefur verið upp og ofan en ÍBV er með 9 stig í sjötta sæti deildarinnar eftir fyrstu átta leiki sína. Næsti leikur ÍBV verður gegn Fylki í Árbænum á þriðjudag. Andri hættur með lið ÍBV Ljósmynd/Þórir Tryggvason ÍBV Andri Ólafsson lætur af störfum sem þjálfari liðsins. Giannis Antetokounmpo, einn at- kvæðamesti leikmaður NBA- deildarinnar í körfuknattleik, varð fyrir hnémeiðslum þegar lið hans Milwaukee Buck mætti Atlanta Hawks í fjórða sinn í úrslitum Aust- urdeildarinnar. Atlanta hafði betur 110:88 og er staðan jöfn 2:2 en vinna þarf fjóra leiki til að komast í úrslit. Grikkinn fór af velli í þriðja leik- hluta eftir að hafa lent illa á fæt- inum. Ekki lá fyrir hversu alvarleg meiðslin eru þegar blaðið fór í prentun í gær en til stóð að Ante- tokounmpo færi í myndatöku í gær. Þátttaka hans í næstu leikjum virðist alla vega vera í uppnámi en Atlanta er einnig án Trae Young. Antetokounmpo meiddist á hné AFP NBA Giannis Antetokounmpo studd- ur af leikvelli í Atlanta í Georgíu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.