Morgunblaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 46
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021 Netverslun skornir.is SMÁRALIND www.skornir.is Verð 14.995 Flex&Go s na er nota gæ a leður sem og náttúruleg efni, sem gerir það að verkum að skórnir falla vel að fætinum og eru einstaklega þægilegir. ær r - Í kó ð há ð Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Kristín veit svo sannarlega hvað hún syngur þegar kemur að brúnku- kremi. Að hennar mati er raki lyk- illinn að því að fá fallega brúnku. „Ég er ein af þeim sem setja á sig brúnku vikulega, mér finnst ég vera mun frísklegri með smá brúnku í andliti og á líkama. Fyr- ir mér er þessi vikulega brúnku- athöfn ómissandi,“ segir Krist- ín. Hennar uppáhaldsvara um þessar mundir er brúnku- kremsfroðan sem St. Tropez gerði í samstarfi við ofurfyrirsæt- una Ashley Graham. Froðan heitir Self Tan Luxe Whipped Créme Mousse og kemur í setti ásamt mjúk- um hanska en settið er í takmörkuðu upplagi. „Liturinn er einnig sá fallegasti sem ég hef prófað frá St.Tropez. Froðan inniheldur hýalúrónsýru svo hún veitir húðinni mikinn og góðan raka,“ segir Kristín. Kristín er einnig hrifin af Purity Vitamin Water- seruminu frá sama merki. „Það er vara sem er mér ómissandi fyrir fal- lega, náttúrulega og ljómandi brúnku í andlitið. Þetta er brúnka sem allir geta notað og fengið góðan ávinning fyrir húðina í leiðinni. Það er meðal annars fullt af hýal- úrónsýru og C- og D-vítamíni. Þessa vöru nota ég nokkrum sinnum í viku.“ Ekkert mál ef maður ber sig rétt að Margir geta ver- ið smeykir við að hefja brúnkuveg- ferð sína og hræð- ast það að líta út eins og gíraffar daginn eftir. Krist- ín á góð ráð fyrir lesendur sem vilja vera sólkysstir í sumar án þess að grilla sig í sterkri sumarsólinni. „Þar sem ég ber á mig brúnku viku- lega finnst mér mikilvægt að fjarlægja gömlu brúnkuna áður en ég set á mig nýja. Til þess að gera það nota ég skrúbbhanskann frá St.Tro- pez og St.Tropez Tan Remover. Þessi tvenna leysir upp gömlu brúnkuna og skrúbbar í burtu dauðar húðfrumur. Næst nota ég St.Tropez Tan En- hancing Body Moist- uriser til að næra húðina og einblíni ég sérstaklega á olnboga og hné en það eru svæði sem mynda mikla þurrkubletti hjá mér. Ég nota alltaf brúnkuhanska þegar ég ber á mig brúnk- una og ég enda rút- ínuna alltaf á hand- arbökunum en það er svæði sem getur ver- ið erfitt að fá jafnan og fallegan lit á. Ég lærði gott trix fyrir nokkrum árum að blanda smá brúnku við handáburð og bera á handarbökin með léttum farða- bursta. Hendurnar fá mikla næringu um leið, hægt er að koma í veg fyrir þurrkubletti og brúnkan verður jafnari og eðlilegri. Besta trix sem ég hef lært á minni brúnkutíð,“ segir Kristín. Brúnkuklútarnir sem ollu stórslysum Þegar gervibrúnka var að verða vinsæl á ofanverðri tuttugustu öldinni voru svokallaðir brúnkuklútar mjög vinsælir. Kristín hefur brennt sig á þeim eins og svo margir sem þráðu að fríska upp á litinn án þess að skella sér til sólarlanda. „Mitt stærsta slys hlýtur að hafa verið þegar ég stundaði brúnkuklút- ana af krafti. Það var engin leið að sjá hvar þú varst búin að bera á þig og hvar ekki, þú fékkst bara óvænta út- komu daginn eftir – sem var síðan langt frá því að vera falleg, appel- sínuguli liturinn frá brúnkuklútunum var langt frá því að vera eðlilegur lit- ur á brúnku. Ég er mjög þakklát í dag að ekki var mikið um samfélags- miðla á þessum tíma svo það eru eng- in sönnunargögn til af þessu slysi,“ segir Kristín. Hún segir að mörg slys hafi orðið hjá henni eftir þetta en að þeim hafi farið fækkandi með árunum, þökk sé nýjum og góðum brúnkuvörum. „Raki, raki og meiri raki“ Kristín segir að lykillinn að ending- argóðri og áferðarfallegri brúnku sé raki, raki og meiri raki. „Húð sem er full af raka og án þurrkubletta mun meðtaka brúnkuna betur. Brúnkan sest gjarnan í þurrkublettina og myndar dekkri bletti, til að koma í veg fyrir það er gott að losa húðina við dauðar húðfrumur með því að skrúbba hana með góðum líkams- skrúbbi daginn áður en brúnkukrem- ið er sett á. Strax á eftir þarf að bera á húðina gott og næringarríkt raka- krem og/eða líkamsolíu, passa sér- staklega vel upp á öll svæði sem verða gjarnan þurr. Daginn eftir er húðin full af raka og laus við þurrku- bletti, brúnkan mun ekki bara sitja lengur á heldur mun hún verða fal- legri.“ En brúnka er ekki bara sama og brúnka. Kristín velur mismunandi gerðir fyrir mismunandi tilefni. Til dæmis velur hún dekkri brúnku fyrir fín tilefni og notar þá Self Tan Dark Bronzing Mousse frá St. Tropez. „Þegar brúnkan hefur þornað bæti ég við á bringu, axlir og fætur Instant Tan Finishing Gloss til að fá ljóma og sólkyssta áferð,“ segir Kristín. Hversdagsbrúnkan hennar er Ex- press Advance Bronzing Mousse. Froðan er létt en það er auð- velt að stjórna hve dökkur liturinn verður. „Þú ein- faldlega ferð í sturtu eft- ir klukkutíma ef þú vilt ljósan lit en leyfir froð- unni að liggja lengur ef þú vilt örlítið dekkri. Ef ég vil jafnvel léttari lit þá nota ég St. Tropez Purity Vitamin Water Mist, spreyið er einfalt í notkun og gefur fallegan sólkysstan lit. Kristín Samúelsdóttir, áhrifavaldur og förðunarfræðingur, segir lykilinn að fallegri og jafnri brúnku vera raki. Kristín fór yfir leyndardóma hinnar fullkomnu brúnku með Smartlandi. Fína froðan Kristín notar Dark froð- una fyrir fín tilefni. Flýtifroða Express- froðan er fullkomin fyr- ir þá sem eru að flýta sér. Brúnkumeistari Kristín hefur notað brúnku- vörur í mörg ár. Ómissandi Hanski er ómissandi við áburð brúnku- krems. Ultimate Glow Settið kemur í tak- mörkuðu upplagi. Prep & Maintain Kremið frá St. Tropez er lyk- illinn að end- ingargóðri brúnku. Purity Vitamins- línan Gefur sól- kyssta áferð. Kristín hefur fullkomnað brúnkuna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.