Morgunblaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 72
ER HAFIN
WWW.ILVA.IS
ALLT AÐ
50%
AF VÖLDUM
VÖRUM
Útsalan
1.júlí - 9.ágúst
ILVA Korputorgi
Lau. og sun. 12-18
virkir dagar 11-18:30
ILVA Akureyri
Lau. 10-17 Sun. 13-17
virkir dagar 11-18
s: 522 4500 - www.ILVA.is
FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 182. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
„Það er hrikalega gaman í Þorlákshöfn núna og það lýs-
ir því best að leikmenn hafa farið í sundlaugina á venju-
legum afgreiðslutíma með verðlaunapeninginn um
hálsinn. Adomas [Drungilas] bannaði okkur að taka
verðlaunapeninginn af næstu fimm daga,“ segir Lárus
Jónsson, þjálfari karlaliðs Þórs frá Þorlákshöfn í körfu-
knattleik, meðal annars í blaðinu í dag. Leikmenn hafa
fagnað Íslandsmeistaratitlinum vel en einnig er rætt
við Ragnar Örn Bragason sem segir árangurinn skipta
alla bæjarbúa máli. »63
Meistararnir spókuðu sig í sund-
lauginni með gullið um hálsinn
ÍÞRÓTTIR
ford og við vorum oft þar og áður
en ég fór í Íþróttakennaraskólann
fékk ég að æfa hjá félaginu og
spila með varaliðinu. Síðan var
mér boðið að vera hjá Arsenal og
var þar í um fjóra mánuði. Þetta
var skemmtilegt en ég átti aldrei
möguleika á atvinnumennsku.“
Pamela, eiginkona Halla, lést úr
krabbameini 2016. Hann segir að
félagsskapurinn í boltanum hjálpi
mikið við að takast á við ein-
veruna. „Þetta er skemmtilegur
hópur og dagurinn er fljótur að
líða þegar ég hjóla á hádegisæf-
ingu og fer í gufu á eftir.“
Siglfirðingurinn lék með KS upp
alla flokka. Frægt er þegar liðið
tók fyrst þátt í 2. deild Íslands-
mótsins, 1963, og vann Þrótt
Reykjavík 4:2 á leiðinni að sæti í
efstu deild. Haraldur og tveir
bræður hans voru í liði heima-
manna, en Þróttarar kærðu liðið
fyrir að tefla fram þeim yngri, Sig-
urjóni, sem var 16 ára, á þeirri for-
sendu að hann væri of ungur og
var KS dæmt úr keppni þrátt fyrir
að hafa fengið staðfestingu frá
KSÍ fyrir leik að pilturinn mætti
spila! Haraldur hefur hins vegar
aldrei verið kærður fyrir að vera
of gamall. „Þvert á móti segja
stöðugt fleiri að þeir geti ekki hætt
fyrr en þeir verði búnir að ná mér
í aldri, segjast eiga að minnsta
kosti eftir 10 ár í boltanum,“ segir
hann yfirvegaður. Það er vel enda
er stefnt að því að fyrrnefnt mót
Breiðabliks, KR og Þróttar verði
vísir að Íslandsmóti fyrir 60 ára og
eldri.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Haraldur Erlendsson, íþrótta-
kennari í um 53 ár og enn að, er
sennilega elsti íslenski knatt-
spyrnumaðurinn til að taka þátt í
fótboltamóti, en hann er 76 ára og
var í sigurliði Breiðabliks í þriggja
liða móti leikmanna 60 ára og eldri
á dögunum. „Fótboltinn er mín
líkamsrækt og ég þakka fyrir að
geta leikið mér aðeins,“ segir
hann.
Halli, eins og hann er alltaf kall-
aður, ólst upp á Siglufirði, var á
skíðum á veturna og í fótbolta á
sumrin. Það hefur lítið breyst. „Ég
er reglulega í fótbolta og fer á
svigskíðin í Bláfjöllum þegar hægt
er. Ef röð er í lyfturnar skelli ég
mér á gönguskíðin.“
Fyrsta markið
Miðjumaðurinn lék 158 leiki
með meistaraflokki Breiðabliks á
árunum 1969-1976 og skoraði
fyrsta mark Breiðabliks í efstu
deild í 1:0 sigri á KR 1971. „Þór
Hreiðarsson hljóp upp kantinn
með boltann, gaf fyrir, boltinn fór
í fæturna á mér og þaðan í mark-
ið,“ segir Halli hógvær. Þess má
geta að Róbert, sonur Halla, og
Sara, dóttir hans, hafa spilað í
meistaraflokki í Breiðabliki og út-
lit er fyrir að Tómas Róbertsson
verði fyrsti meistaraflokksmaður
félagsins af þriðju kynslóð leik-
manna.
Þjálfaraferillinn byrjaði á Fá-
skrúðsfirði samfara sundkennslu
eitt sumarið og seinna þjálfaði
hann yngri flokka hjá Breiðabliki
og var þjálfari meistaraflokks
kvenna í nokkur ár. „Ég fann Ástu
B. Gunnlaugsdóttur,“ segir hann
um þjálfun meistaraflokksins.
Hann hafi séð hana á sprettinum í
frjálsum og fengið hana til að
mæta á fótboltaæfingu. „Ég vissi
að hraði hennar myndi nýtast vel
og þó hún skoraði bara úr tveimur
af tíu dauðafærum væri það hið
besta mál.“
Margir í fótbolta eiga sér draum
um atvinnumennsku og Halli
reyndi fyrir sér hjá Watford og
Arsenal. „Eiginkonan var frá Wat-
Á eftir bolta kemur...
- Haraldur Erlendsson 76 ára meistari í fótboltamóti
- Byrjaði snemma í íþróttum á Siglufirði og kennir enn sund
Alltaf í boltanum Haraldur Erlendsson, Halli, á fullri ferð á dögunum.
MENNING
Þóra Kristín Gunnarsdóttir píanóleikari og Eden Sek-
ulovic sellóleikari leika sónötur eftir Beethoven og
tyrkneska tónskáldið Fazil Say í Hofi á Akureyri í kvöld
kl. 20. Sónata Beethovens í A-dúr er ein þekktasta són-
atan fyrir selló og píanó og Fazil Say leitar á önnur mið
í sónötu sinni þar sem áhrif frá djassi, þjóðlagatónlist
og popptónlist blandast saman við klassískan grunn-
inn, eins og því er lýst í tilkynningu. Eden og Þóra
kynntust við nám í Zürich. Eden er frá Svartfjallalandi
og Þóra frá Akureyri. Miðasala fer fram á mak.is.
Gamlir og nýir tímar – sónötur fyrir
selló og píanó í Hömrum í Hofi