Morgunblaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 24
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021
Tónlist
fyrir sálina
Matur
fyrir líkamann
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
Kíktu til okkar
í góðan mat og
notalegt andrúmsloft
Borðapantanir á
www.matarkjallarinn.is
Nýttu ferðagjöfina
hjá okkur
Framkvæmdum við 102 metra langa
brú yfir Þjórsá ofan við Þjófafoss
nærri Búrfelli miðar vel og hefur
hún verið opnuð fyrir umferð fólks
gangandi eða á reiðhjóli. Brúin
tengir saman Landsveit og skóg-
lendi sunnan við virkjanir við Búr-
fell. Verkefnið er mótvægisaðgerð
vegna stækkunar orkuversins.
Brúin er 102 metra löng, þar sem
timbur úr íslensku sitkagreni er lagt
á stálbita. Vonir standa til að í sum-
arlok verði allt orðið klárt við brúna
og hún fær hestamönnum. Hún verð-
ur hins vegar lokuð bílum.
„Brúin auðveldar aðgengi í Búr-
fellsskóg þangað sem margir hafa
lagt leið sína. Nú verður staðurinn
væntanlega fjölsóttari svo búast má
við að sveitarfélagið þurfi að leggja
stíga, setja upp merkingar og fleira
slíkt á þessum slóðum,“ segir Björg-
vin Skapti Bjarnason, oddviti
Skeiða- og Gnúpverjahrepps.
sbs@mbl.is
Þjórsárbrú
senn tilbúin
Ljósmynd/Landsvirkjun
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Fyrsti Rafnar-dagurinn var haldinn
í Olympia Marine-smábátahöfninni
nálægt Aþenu fimmtudaginn 24. júní
síðastliðinn. Stefnt er að því að þessi
dagur verði haldinn árlega héðan í
frá, að sögn Þorsteins Sigurbjörns-
sonar á markaðssviði bátasmiðj-
unnar Rafnar.
Rafnar-bátar eru nú smíðaðir
samkvæmt einkaleyfi í Grikklandi,
Bretlandi og hér á Íslandi. Umsvif
fyrirtækisins hafa vaxið mikið og nú
er að hefjast smíði Rafnar-báta í
Bandaríkjunum, Hollandi og í Tyrk-
landi auk þeirra landa sem nú þegar
smíða bátana. Skrokklag þeirra þyk-
ir byltingarkennt miðað við eldri
gerðir báta og Rafnar-bátarnir bæði
sparneytnir og með mikla sjóhæfni.
Hönnuður skrokksins er Össur
Kristinsson, stoðtækjasmiður og
stofnandi Össurar hf.
Á Rafnar-deginum voru sýndir
Rafnar Tactical-bátar, sem eru eft-
irlits- og björgunarbátar, og Rafnar
Leisure sem eru skemmtibátar.
Gríska landhelgisgæslan gerir nú út
fimmtán Rafnar Tactical-báta sem
hafa reynst mjög vel.
Um 300 boðsgestir mættu á Rafn-
ar-daginn en þeirra á meðal voru
viðskiptavinir, mögulegir kaupendur
og bátaáhugamenn. Einnig mættu
háttsettir fulltrúar grísku landhelg-
isgæslunnar.
Ólafur William Hand, fram-
kvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs
Rafnars, sagði að viðburðurinn hafi
farið fram úr þeirra björtustu von-
um. Einnig tóku þátt í Rafnar-
deginum Land Rover-bílaframleið-
andinn og ginverksmiðjan Bombay
Sapphire. Þeir kynntu vörur sínar
sem voru merktar með merki Rafn-
ars í bak og fyrir.
Ólafur segir að þeir séu mjög
ánægðir með velgengni Rafnars á
erlendum mörkuðum og stefnt sé að
frekari vexti á næstunni.
Rafnar-báta-
dagurinn í
Grikklandi
- Umsvif erlendis vaxa mikið
- Ný lönd eru að hefja smíði bátanna
Ljósmynd/Rafnar ehf.
Rafnar Leisure Báturinn í skemmtibátaútfærslu með T-þaki. Svoleiðis þak hentar vel á heitum slóðum en síður hér.
Rafnar Tactical Gríska landhelgisgæslan gerir út báta sem eru sérútbúnir til eftirlits, leitar- og björgunarstarfa.
Glæsifley Útbúnaður skemmtibáts-
ins er hinn vandaðasti eins og sést.