Morgunblaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 71
MENNING 71
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021
Umsækjendur með virka ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á lán
geta nú óskað eftir því að ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á lán haldi
áfram. Þetta er gert með því að skrá sig inn á www.leidretting.is
og óska eftir að gildistími ráðstöfunar sé framlengdur.
Frestur til að óska eftir áframhaldandi ráðstöfun inn á lán er til ogmeð
30. september 2021. Eftir það gilda umsóknir aðeins frá þeim mánuði
þegar þær berast.
Ef gildistími umsókna er ekki framlengdur falla umsóknir úr gildi frá
og með 1. júlí 2021 og engar frekari greiðslur berast inn á lán.
Heimild til ráðstöfunar
séreignarsparnaðar framlengd
um tvö ár
Heimild til að nýta
séreignarsparnað vegna
kaupa á íbúðarhúsnæði
til eigin nota eða til
ráðstöfunar upp í
höfuðstól láns hefur
verið framlengd til
30. júní 2023.
Þeir sem nú þegar nýta sér úrræðið og vilja halda
því áfram þurfa að óska eftir framlengingu.
skatturinn@skatturinn.is 442 1000
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
Enski kvikmyndaleikstjórinn Mene-
lik Shabazz er látinn, 67 ára að
aldri. Shabazz var bæði leikstjóri
og handritshöfundur og brautryðj-
andi í kvikmyndagerð þeldökkra í
Bretlandi. Hann lést af völdum syk-
ursýki í Simbabve þar sem hann
vann að kvikmyndinni The Spirits
Return en þá fyrstu, Burning an Ill-
usion, gerði hann árið 1981.
Í frétt dagblaðsins The Guardian
segir að Shabazz hafi rutt brautina
fyrir þeldökka kvikmyndagerð-
armenn í Bretlandi en hann fæddist
í Barbados og flutti til Bretlands
þegar hann var fimm ára. Shabazz
gerði sína fyrstu stuttmynd árið
1977 og var Burning an Illusion
önnur kvikmynd þeldökks leik-
stjóra í sögu Bretlands. Af öðrum
merkum myndum má nefna heim-
ildarmyndina Blood Ah Go Run. Ár-
ið 1998 stofnaði hann tímaritið
Black Filmmaker Magazine sem
var helgað kvikmyndagerð þel-
dökkra.
Brautryðjandi Menelik Shabazz.
Shabazz látinn
Silkinálin fellur
nefnist sýning
Rakelar Mjallar
sem opnuð verð-
ur í galleríinu
Flæði, Vestur-
götu 17, í dag kl.
17. Á henni má
sjá hönnun eftir
Rakel og mynd-
listarverk þar
sem silki er í
aðalhlutverki. Rakel kynnir fyrstu
fatalínu sína undir nafninu Silk Ba-
sics sem er unnin úr umhverfisvott-
uðu og lífrænu silki. Rakel er tón-
listar- og myndlistarkona að mennt
en reynir nú einnig fyrir sér í fata-
hönnun. Undanfarin ár hefur hún
búið í London og er meðlimur í
hljómsveitinni Dream Wife en þeg-
ar kórónuveirufaraldurinn hófst
þurfti hún að flytja heim. Á ferðum
sínum um heiminn hefur hún iðu-
lega saumað eigin búninga og var
það henni hvatning til að stíga
fyrstu skrefin í fatahönnun. Segir í
tilkynningu að hún hafi frá unga
aldri verið heilluð af silkiefnum og
að hana hafi alltaf langað að sauma
úr efninu. Í faraldrinum gafst tími
til þess og úr varð fyrsta fatalína
hennar úr umhverfisvottuðu líf-
rænu silki. Á sýningunni verða til
tvö ný vídeóverk, annað þeirra er
unnið í samstarfi við leikkonu og
ömmu Rakelar, Guðrúnu Ásmunds-
dóttir, en hitt er eftir systur henn-
ar, listakonuna Ragnheiði Hörpu.
Sýningin stendur yfir í þrjá daga.
Silkinálin fellur
Rakel Mjöll
Leifsdóttir
mark sitt á mína tónlist og greitt
götu mína með því að gera mína
músík enn betri. Ég gæti ekki
verið ánægðari með þetta gengi
og hef því nefnt þau Stórskota-
liðið,“ skrifar Sváfnir í tilkynningu
um hljómsveitina og að hann sé
ákaflega spenntur fyrir því að
telja í og vonast eftir góðri mæt-
ingu.
Jæja gott fólk hefur hlotið góð-
ar viðtökur og þá m.a. hjá Arnari
Eggerti Thoroddsen og Andreu
Jónsdóttur á Rás2 og hafa nokkur
laga plötunnar komist á vinsælda-
lista útvarpsstöðvarinnar. Á tón-
leikunum verða flutt lög af báðum
plötum Sváfnis en fyrri platan,
Sváfnir Sigurðarson heldur út-
gáfutónleika í kvöld kl. 20.30 í
Gamla bíói með sjö manna hljóm-
sveit.
Sváfnir gaf út aðra sólóplötu
sína, Jæja gott fólk, í desember í
fyrra og segir „kærkomið að fá
loksins að spila þessa músík við
bestu aðstæður með besta mann-
skap sem ég hefði getað hugsað
mér að fá í verkefnið“ og að hann
sé mjög spenntur fyrir tónleik-
unum. Miðasala á þá fer fram á
tix.is.
„Þetta eru allt saman algerir
snillingar. Fólk sem hefur spilað
með mér á umliðnum árum; vinir
mínir og kunningjar sem hafa lagt
Loforð um nýjan dag, kom út
2016.
Stórskotaliðið eru þau Dagný
Halla Björnsdóttir sem syngur og
raddar, Diddi Guðnason sem leik-
ur á slagverk, Flosi Þorgeirsson á
bassa, Haraldur V. Sveinbjörnsson
á hljómborð, gítar og syngur,
Kristján Freyr sem leikur á
trommur og syngur, Stebbi Magg
á gítar, Pálmi Sigurhjartarson
sem leikur á píanó, harmonikku og
syngur og loks Sváfnir sjálfur sem
leikur á gítar og syngur. Svo
skemmtilega vill til að Sváfnir á
afmæli í dag, verður 52 ára og er
honum óskað til hamingju með
daginn. Stórskotalið Sváfnir með hljómsveitinni sem leikur með honum í kvöld.
Sváfnir fagnar með Stórskotaliðinu