Morgunblaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 01.07.2021, Blaðsíða 65
MENNING 65 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021 Í Gerðarsafni má finna Hlut- bundna þrá, samsýningu átta listamanna frá Íslandi og Singapore, þeirra Dagrúnar Aðalsteinsdóttur, Daniel Hui, Guð- laugar Míu Eyþórsdóttur, Guo- Liang Tan, Luca Lum, Styrmis Arnar Guðmundssonar, Sæmundar Þórs Helgasonar og Weixin Quek Chong. Sýningarstjórn er í höndum þeirra Dagrúnar Aðalsteinsdóttur og Weixin Quek Chong. Samsýn- ingin er hugsuð sem umræðuvett- vangur en ekki síst stökkpallur fyrir frekara samstarf á milli listamanna sem eiga það sameiginlegt að hafa stundað nám í Singapore. Ef við víkjum að titli sýningarinn- ar, Hlutbundin þrá, má greina þá togstreitu sem myndast á milli hins efnislega, þá hlutarins, og hins hug- læga eða þrárinnar. Verk sýning- arinnar taka á þessari togstreitu með ólíkum hætti og eiga það helst sammerkt að notast við afbyggingu (e. deconstruction) með einum eða öðrum hætti til að kanna kjarna við- fangsefnisins. Þessi togstreita tví- hyggjunnar skýrist enn frekar þeg- ar aðfaraorð sýningarinnar eru lesin, en þar koma fram tilvísanir í hugmyndafræði vestrænna fræði- manna, heimspekingsins Slavoj Žižek, kynþáttarfræðingsins og feministans Söru Ahmed og lista- konunnar og heimspekingsins Hito Steyerl. Aðfaraorðin draga fram valin brot úr kenningarheimum þessara fræðimanna er snúa að um- breytingu efnislegra hluta, hvernig gildi hlutarins breytist þegar hlut- urinn er settur í nýtt samhengi og hvernig hann öðlast þar nýja merk- ingu og jafnvel tilgang. Með þessari tilfærslu verður til greinarmunur á efnislegum hlut (e. object) og því sem sýningarstjórar sýningarinnar kalla list-hlut og hefur þá huglæga tilvísun. Þær heimspekilegu kenn- ingar sem koma fram í aðfaraorð- unum eru merkingarþrungnar og verufræðilegar í eðli sínu. Og í anda verufræðinnar hefði mátt vega ein- faldar tilvistarlegar spurningar til móts við kenningar þessara þriggja fræðimanna. Um afbyggingu og efni Upphafsmaður hugtaksins afbygg- ing er heimspekingurinn Jacques Derrida (1930-2004) sem þróaði að- ferðina sem hliðargrein merking- arfræði í bókmenntum. Aðferðina notaði hann til að afbyggja merk- ingu texta fyrst og fremst, í þeim til- gangi að varpa ljósi á eiginlegt merkingarleysi hans. Innan sjón- lista hefur afbyggingu verið beitt sem aðferð til að skoða eiginleika listar sem kristallast gjarnan í hinni klassísku spurningu „hvað gerir list að list?“ eða „hvað er list?“ Í þessu samhengi langar mig að beina sjónum að myndbandsverkinu „Sphinxes“ (2019-2021) eftir Luca Lum. Verkið sýnir ágætlega afbygg- ingu í nútímasamhengi með tilkomu tölvutækninnar. Í verkinu eru eigin- leikar þeirra myndbrota sem sýndir eru greindir út frá ákveðnum eigin- leikum sem eru fluttir og lesnir með API (e. Application Programming Interface) tækninni. API, eða forrit- unarskilum, er gert að greina fyrir- framákvarðaða lykilþætti myndefn- isins, til dæmis lit, pixlafjölda og öryggisstuðul og skilar í kjölfarið sambærilegum leitarniðurstöðum frá veraldarvefnum. Myndefnið er því aðeins greint út frá efnislegum eiginleikum þess í verkinu. Hið hug- læga kemur svo fram í upplestri listakonunnar á sögutexta um Sphinxinn sem hefði verið áhuga- vert hafa til aflestrar samhliða myndbandsverkinu sjálfu. Þriðji þáttur verksins eru útprentuð skjá- skot af myndbandsverkinu ásamt gifsafsteypum af óræðum dýra- andlitum. Afsteypur sem listmiðill eru áhugaverðar í sögulegu sam- hengi, en með þeim er verið að efnisgera, taka mót af einhverju eða einhverjum sem má síður gleymast. Hvort afsteypan sé nákvæm eða ekki veltur svo á þeim sem vinnur mótið og þar mætti segja að hug- lægt mat listamannsins komi við sögu. En væri möguleiki að endur- byggja viðfangsefnið út frá þessum flatneskjulegu, efnislegu eigin- leikum sem minnst hefur verið á? Hvaða mynd dregur litur, pixla- stærð eða leitarniðurstöður upp af hinu eiginlega viðfangsefni? Skemmtilegt fannst mér að skoða verk Guðlaugar Míu, „Ferhyrnd stokkun“ (2019), og Styrmis Arnar, „Til heiðurs Gerði Helgadóttur“ (2021), út frá þessari hugmynd um endurbyggingu í stað afbyggingar. Í stað þess að greina myndefnið út frá efnislegum eiginleikum þess, eins og í verkinu „Sphinx“, þá skoðum við frumefni, í sinni smæstu og einföld- ustu mynd, í þessum tveimur verk- um. Í verkunum má segja að af- byggingin hafi þegar átt sér stað. Þannig má skoða „Ferhyrnda stokk- un“ sem endurgerð eða viðbót á hinu hefðbundna lotukerfi efnafræð- innar. En ólíkt því sýna töflurnar hennar Guðlaugar Míu óræðar, sí- breytilegar, huglægar grunnein- ingar sem laðast að hverjum þeim sem skoðar verkið. „Ferhyrnd stokkun“ Guðlaugar rímar svo vel við verk Styrmis, „Til heiðurs Gerði Helgadóttur, JÖRÐ, VATN, LOFT og ELDUR“, sem sýnir túlkun lista- mannsins á frumefnunum í anda og með stíleinkennum Gerðar. Þessi þrjú verk þeirra Luca Lum, Guð- laugar Míu og Styrmis Arnar sýna með ólíkum hætti þær grunnein- ingar sem við þekkjum með tilvísun í lotukerfið og frumefnin að við- bættum þeim upplýsingareiningum sem verða til í stafrænum hliðar- veruleika netsins. Hvorar um sig valda þessar upplýsingar varan- legum breytingum á okkar heims- mynd. Hin huglæga þrá Síðast langar mig að nefna mynd- bandsverk Daniel Hui, „Anda dýr- anna“ (2013), sem fjallar um hag- fræðina og ástina, annars vegar rómantíska ást og hins vegar móð- urástina. Verkið sýnir brot úr lífi tveggja kvenna sem eru að reyna að koma undir sig fótunum. Það sem sameinar frásögn þeirra eru áhrif og tengsl þeirra við innkomu og ást- ina. Svo virðist sem styrkari fjár- hagsleg innkoma bandarísku kon- unnar hafi grafið undan ástinni og orðið til þess að botninn dytti úr sambandinu hennar. Sú algilda stefna að eignast húsnæði og feta framabrautina hafi orðið henni að falli. Í stað þess að vera vel stæð og ástfangin varð hún skuldsett og frá- skilin. Konan í fyrri hluta mynd- bandsins tók í svipaðan streng og hugleiddi hvernig og hvort hún gæti nokkurn tímann endurgoldið móður sinni þann stuðning sem hún hefði veitt henni í gegnum árin. Hún finn- ur friðþægingu í því þegar hún kemst að þeirri niðurstöðu að „pen- ingar eins og ást þurfa að vera á sí- felldri hreyfingu“. Aftur stóð ég frammi fyrir því að greina tog- streitu tvíhyggjunar sem myndast á milli hins efnislega, þá hlutarins, og hins huglæga, þrárinnar, eða í þessu tilfelli ástarinnar. Að lokum vil ég mæla með að gefa ykkur góðan tíma til skoða þessa áhugaverðu sýningu og bendi á að hægt er að fá lánaða klappstóla í af- greiðslu safnsins. Um afbyggingu og endurbyggingu Morgunblaðið/Unnur Karen Stíleinkenni „Til heiðurs Gerði Helgadóttur, JÖRÐ, VATN, LOFT og ELD- UR“ sýnir túlkun listamannsins á frumefnunum með stíleinkennum Gerðar. Gerðarsafn Hlutbundin þrá bbbnn Samsýning átta listamanna. Stendur yfir til 29. ágúst 2021. Safnið er opið alla daga kl. 10-17. KARINA HANNEY MARRERO MYNDLIST Afbygging „Sphinxes“ eftir Luca Lum á sýningunni Hlutbundin þrá sýnir ágætlega afbyggingu í nútímasamhengi með tilkomu tölvutækninnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.