Morgunblaðið - 01.07.2021, Qupperneq 34
34 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021
vfs.is
SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • TRYGGVABRAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is
EIN RAFHLAÐA
+ öll verkfæri fyrir garðinn, heimilið og bílskúrinn
1. júlí 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.91
Sterlingspund 171.38
Kanadadalur 100.16
Dönsk króna 19.808
Norsk króna 14.458
Sænsk króna 14.512
Svissn. franki 134.32
Japanskt jen 1.1199
SDR 176.71
Evra 147.3
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 178.0489
Hrávöruverð
Gull 1769.6 ($/únsa)
Ál 2458.0 ($/tonn) LME
Hráolía 74.67 ($/fatið) Brent
af frekari hækkun verðbólgu segir
Ásgeir að þeir þrír þættir sem hafi
valdið mestu í verðhækkunum muni
ganga niður með haustinu. Það er
hækkun á innfluttum vörum vegna
gengisveikingar, hækkun á húsnæð-
isverði og hækkun á erlendum hrá-
vörum og aðföngum. „Þannig að verð-
bólga mun hjaðna þegar líður á árið.
Hver síðan framvindan verður veltur
á launaþróun, ríkisfjármálum og hve
hratt efnahagsumsvif munu taka við
sér eftir farsóttina. Á þessum tíma-
punkti er hins vegar mikilvægt að
setja varnir gegn því að fólk taki of
mikla fjárhagslega áhættu á sama
tíma og vaxtahækkunarferlið er að
hefjast.“
Spurður um áhrif á byggingarverk-
taka, segir Ásgeir að fasteignamark-
aðurinn hafi verið algjör seljenda-
markaður að undanförnu. Verktakar
nái væntanlega áfram að selja allt sitt,
en mögulega á aðeins lægra verði en
annars hefði verið. „Vonandi erum við
að fara að sjá byggingamarkaðinn
bregðast við með nýju framboði.
Sveitarfélögin stjórna framboðinu að
miklu leyti og það sem hefur stundum
gerst er að eftirspurnin hefur rokið af
stað og framboðið ekki brugðist við,
eins og gerðist árið 2008. Þá kom
framboðið eftir á, en enginn gat
keypt.“
Er eitthvað í ykkar tillögum sem
styður við aukningu framboðs?
„Vonandi þýða þessar takmarkanir
að við þurfum ekki að hækka vexti
eins mikið og við þyrftum ella. Það
gæti leitt til þess að verktakar sem
eru flestir að fjármagna sig á breyti-
legum vöxtum, njóti lægri vaxta-
kjara.“
Heilbrigð hækkun 1-2%
Ásgeir segir að fasteignamarkað-
urinn eigi að ganga eðlilega og endur-
spegla kaupmátt þjóðarinnar.
Spurður um hver heilbrigð árs-
hækkun fasteignaverðs sé, segir Ás-
geir að til lengri tíma eigi hún að vera
á svipuðu bili og aukning kaupmáttar
að raunverði. „Eðlileg hækkun væri
kannski 1-2% auk verðbólgu.“
Hann segir að auk peningastefn-
unnar hafi þættir eins og samgöngu-
stefna og skipulagsákvarðanir einnig
áhrif á fasteignaverð. „Sú ákvörðun
að brjóta ekki nýtt land undir byggð í
Reykjavík hefur til dæmis mikil lang-
tímaáhrif.“
Í yfirlýsingu fjármálastöðugleika-
nefndar segir að skoðuð verði nánar
beiting greiðslubyrðarhlutfalls. Ás-
geir segir að þar sé um að ræða nýja
heimild sem bankinn fékk nú í júní
sem heimilar honum að takmarka
hvað hægt er að taka á sig mikla
greiðslubyrði af lánum sem hlutfall af
tekjum. „Þjóðirnar í kringum okkur
hafa beitt þessu mjög mikið. Þetta
skarast töluvert á við framkvæmd
greiðslumats í bönkunum. Kosturinn
við þetta er hins vegar að þetta nær
yfir alla aðila á fasteignalánamark-
aðnum, banka, lífeyrissjóði og aðra.“
Ásgeir ítrekar að um fyrirbyggj-
andi aðgerðir fjármálastöðugleika-
nefndar sé að ræða. „Ef við hefðum
sett upp sambærilegar takmarkanir
árið 2003 hefðum við mögulega getað
komið í veg fyrir fasteignabóluna
2007. Það er of seint að grípa inn í
þegar markaðurinn er kominn á fulla
ferð.“
Ásgeir bætir við að best væri að
framvindan á mörkuðum væri með
þeim hætti að enginn hugsaði um
Seðlabankann. Þá væri allt að virka
eðlilega og stöðugleiki ríkti. En til
þess að ná því markmiði verði að sýna
fyrirhyggju.
Auki eigið fé
Í tilkynningunni kemur fram að
fjármálastöðugleikanefnd hafi ákveð-
ið að hækka ekki sveiflujöfnunarauka
á fjármálafyrirtæki að svo stöddu.
Hann sé því því óbreyttur í 0%.
Nefndin telji þó líklegt að fyrr en síð-
ar verði að taka til skoðunar að
hækka aukann á nýjan leik. Eins og
Ásgeir útskýrir er sveiflujöfnunar-
auki sérstakur eiginfjárauki sem
settur er á bankana til að tryggja að
þeir hafi alltaf borð fyrir báru til að
afskrifa útlánatöp. Aukinn var af-
numinn síðasta vor því óttast var að
veirufaraldurinn myndi gera meiri
usla en hann á endanum gerði í
bankakerfinu.
SÍ vill engin gönuhlaup á markaði
Morgunblaðið/Ómar
Lán Greiðslubyrðarhlutfall nær yfir alla aðila á fasteignalánamarkaðnum.
- Taki ekki of mikla fjárhagslega áhættu á sama tíma og bankinn er að hefja vaxtahækkunarferli
- Of seint að grípa inn í þegar markaðurinn er kominn á fulla ferð - Bankar auki eigið fé fyrr en síðar
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Seðlabankinn lækkaði í gær hámark
veðsetningarhlutfalls fasteignalána
til neytenda úr 85% í 80%. Hámarks-
hlutfall fyrir fyrstu kaupendur verður
hins vegar óbreytt
í 90%. Með
ákvörðuninni vill
bankinn, að sögn
Ásgeirs Jónsson-
ar seðlabanka-
stjóra, koma í veg
fyrir að væntingar
um áframhald-
andi hraða hækk-
un fasteignaverðs
verði til þess að
fólki finnist í lagi
að fara í skuldsett fasteignakaup á
þeim forsendum að markaðurinn búi
til eigið fé fyrir það.
Ásgeir segir í samtali við Morgun-
blaðið að takmarkanirnar eigi ekki að
hafa mikil áhrif núna miðað við núver-
andi markaðsaðstæður. Verið sé að
hugsa til næstu 1-3 ára og að brunn-
urinn verði byrgður áður en barnið
dettur í hann. „Fasteignaverð hefur
verið að hækka töluvert síðustu miss-
eri enda er kaupmáttur mjög hár og
vextir lágir. Aukinheldur er margt
ungt fólk að koma inn á fasteigna-
markað og hlutfall fyrstu kaupenda
hefur aldrei verið hærra sem er mjög
jákvætt. Nú viljum við tryggja að fast-
eignamarkaðurinn haldi jarðsam-
bandi og verðþróun verði í línu við
efnahag þjóðarinnar. Við viljum ekki
sjá spákaupsmarkað sem kemur eng-
um að gagni. Við undanskiljum fyrstu
kaupendur úr takmörkununum því við
viljum halda markaðinum opnum fyrir
þeim. Þeir sem eru kannski að hugsa
um að stækka við sig upp í raðhús eða
einbýlishús eða kaupa eign númer 2
með því að gíra sig upp og veðja á
frekari hækkun fasteignaverðs –
verða mögulega fyrir takmörkunum.“
Endurskoða þarf allar spár
Þessar takmarkanir hefðu í raun
ekki haft nein markverð áhrif á fast-
eignaviðskipti liðins vetrar – hefðu
þær verið settar á fyrir ári, að sögn
Ásgeirs, og munu ekki hafa nein áhrif
ef markaðurinn heldur áfram að fylgja
grunngildum efnahagslífsins er varða
kaupmátt og eiginfjárstöðu. „En þetta
þýðir að endurskoða verður allar
bjartsýnar spár um að hækkun fast-
eignaverðs taki fram úr þróun efna-
hagslífsins,“ segir Ásgeir og vísar þar í
spár greiningaraðila á markaðnum.
Ásgeir segir að bankinn sé með
fasteignamarkaðinn í höndum sér.
Hann geti hækkað stýrivexti og tak-
markað veð- og skuldahlutföll svo eitt-
hvað sé talið. „Við getum ekki leyft
þessum markaði að taka gönuhlaup.
Við erum nú búin að setja upp
ákveðnar girðingar sem koma í veg
fyrir of mikla áhættusækni.“
Spurður hvort hann hafi áhyggjur
Ásgeir
Jónsson
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Birgir Jónsson, forstjóri flugfélags-
ins Play, segir búið að bóka um
helming flugsæta hjá félaginu í júlí.
Hins vegar sé ágúst orðinn þéttbók-
aður og fyrstu vikurnar í haust.
„Þetta kemur heim og saman við
það sem við heyrum frá öðrum í
ferðaþjónustunni. Júlí er frekar ró-
legur en svo er farið að þéttast í
ágúst og inn í haustið. Við erum að fá
bókanir innanlands og frá Evrópu,“
segir Birgir en áfangastaðirnir eru
sýndir á grafinu hér til hliðar.
Varðandi Breta segir hann þá ekki
vera að ferðast jafn mikið næstu vik-
ur og ætlað var. Hins vegar séu þeir
farnir að bóka ferðir í haust.
Áhugi í stórborgunum
Hvað varðar Berlín og París sé nú
meira um bókanir frá heimamönnum
en Íslendingum frá miðjum ágúst.
„Ágúst er farinn að líta þokkalega
út. Mælikvarðar okkar benda til að
hann sé að verða eins og eðlilegur
ágústmánuður á eðlilegu sumri.
Tekjustýringarfólkið okkar, sem
horfir á prósentur langt fram í tím-
ann, er í öllu falli orðið ánægt. Við
gerðum ekki ráð fyrir að júlí yrði
þéttbókaður heldur einbeitum við
okkur að því að koma starfseminni í
gang og vera á réttum tíma.
Við sjáum það á fyrirspurnum hjá
leitarvél Google og á vefsíðu okkar
að áhuginn á Íslandsferðum hefur
aukist mikið síðustu tvær vikurnar,“
segir Birgir. Góður gangur í bólu-
setningum gegn veirunni á Íslandi
eigi sinn þátt í þessu.
Þéttbókað hjá
Play síðsumars
- Play hefur flug
til Berlínar í dag
Playhefur sig til flugs
Áfangastaður Flug hefst
London 24. júní 2021
Tenerife 29. júní 2021
Berlín 1. júlí 2021
Alicante 13. júlí 2021
París 15. júlí 2021
Barcelona 16. júlí 2021
Kaupmannahöfn 22. júlí 2021